Kvennablaðið - 31.03.1902, Qupperneq 1
Kvennablaðið kost-
ar i kr. 50 au. inn-
anlands, erlendis 2
kr. (60 cents vestan
hafsi. i/j verðsins
borgist fyrirfam, en
2/2 fyrir 15. júlí.
♦
Uppsögn skrifleg
kundin við ara-
mót, ógild nema
komin sé til út-
gef. fyrir x. ekt.
og kaupðndi hati
borgað að fullu.
8. ár.
Reykjavík, 31. marz 1902.
3.
Frá félaginu ,Cirklen‘.
„Hennar náð
Landshöfðingjafrú Stephensen!
Vyrir hönd félagsins «Cirklen« leyfi eg
mér enn á ný að þakka hinni íslenzku dömu-
nefnd fyrir heimboð hennar í fyrra, sem nokk-
urum af félagskonum »Cirklens« var sent, og
vér gátum þá ekki þegið.
Mér fellur illa, að því miður tekst oss
ekki heldur ennað geta fengið nógu margar til
íslandsfararinnar. En því, sem er frestað, er
til allrar hamingju ekki algerlega hætt. Það
þarf tíma að koma slíkum fyrirtækjum í verk,
Og skyldi svo fara, að næsta ár yrði greið-
ari undirtektir og fleiri fengjust til að taka
þátt í þessu áformi, þá vonum vér að gest-
risni vorra íslenzku systra verði hin sama
gagnvart oss og áður.
Sömuleiðis vonum vér að heimsókn fs-
lenzkra kvenna til vor, sem vér höfum svo
mjög óskað eftir, muni seinna geta orðið fram-
gengt, þegar efni og ástæður leyfa.
Með beztu kveðjum, og þakklæti fyrir
alla fyrirhöfn í þessu máli, sem að líkind-
um síðar getur orðið haldið áfram með meiri
árangri og til ánægju á báðar hliðar, er eg
yðar
með mestu virðingu
Axelline Lund
(forseti „Cirklens“)“-
*
* *
Landshöfðingjafrúin er fyrir kvennanefnd þeirri,
sem félagskonur „Cirklens" höfðu valið, til að standa
fyrir heimboði þeirra til íslenzkra kvenna f fyrra,og
sem einnig stóð fyrir að bjóða einhverjum af Cirk-
lens-dömunum aftur. Hún fékk núsíðast með „Lauru“
bréf það, sem hér birtist, og sendi mér það til þess
að eg tæki meira eða minna úr þvf í Kvenna-
blaðið. Mér fanst réttast aðsetjaþað orðrétt þýtt, svo
dömur þær, sem ætlað höfðu að taka þátt í heim
boði þessu fengju að sjá svar Cirklens með þeirra
eigin orðum. Utgefandl.
Bæjarfélagseldhúsið
í Kristjaniu.
KKUR finst víst það, sem eg ætia
nú að segja ykkur,harðla ótrúlegt.og
ímyndið ykkur að það sé nokkurs
konar sjómanna-æfintýri. Mér finst það líka
sjálfri vera halflíkt einhverri kynjasögu fr.t
veizluhöldutn gömlu risanna, sem við höfum
svo oft lesið. En til þess að þið sjáið að
það sé óefandi „sögulegur sannleikur", sem
eg fer með, þá skal eg konia með „statist-
iskar" upplýsingar, eins og kallað er í venju-
legum opinberum skýrslum.
Því miður hefi eg þó ekki ljósmyndir
við hendina til að sýna ykkur alþýðueldhúsið
í Lakkegötunni 79 í Kristjaníu. En cf eg
get síðar fengið þær, þá getur þú ef til vill
notað þær í blað þitt. í eldhúsi þessu er
búinn til miðdagsmatur handa 7000 svöng-
um skólabörnum f Kristjaníu, setn fá hann
ókeypis, eins og kenslan líka í barnaskólum
ríkisins er ókeypis.
Eldhúsið er stór höll, ca. 30 al. löng og
20 ál. breið. A miðju gólfi standa 2 raðir
af risavöxnum pottunr I2aðtölu; hver þeirra
tekur 800 pt. í þessum pottholum er nú
soðinn maturinn handa þessum 7000 skóla-
börnum, vtðvegar úr Kristjaníu. Þú getur
ekki ímyndað þér, hvaða skamta þarf til þess.
Eg kom þangað daginn sem eldhúsið var
fyrst opnað, það var 13. jan. stðastl. Þann
dag átti að hafa til miðdags kjötmauk (labs-
kaus) og sætsúpu. í kjötmaukið fór þann
dag af saltkjöti ca. 1000 pd., eða 5 tunnur
kúffúllar, og af nýju kjöti 900 pd. Og svo
kartöflurnar! Þessi eina máltíð gleypti 35
tunnur af þeiml 20 konur höfðu ekki gert
annað í heila 2 daga en afhýða þær. Og
margar stúlkur gerðu ekkert annað en að