Kvennablaðið - 30.04.1903, Side 1

Kvennablaðið - 30.04.1903, Side 1
Kvennablaðið kost- ar x kr. 50 au. inn* anlands, erlendis s kr. (60 cents vestan- hafs). 1 vcrðsina borgist fyrirfram.en a/3 fyrir 15. júlí. 'tnnutaHftiiiii ♦ Uppsögn skrifleg bundin við Ara* mót, ógild nema komin só til út - gef. fyrir 1. okt. og kaupandi hafi borgað að fullu. 9. ár. Reykjavík, 30. april 1903. M 4. Reykjavík í krók og kring. 11. Stadhœttir borgarinnar. EGAR litið er héðan ofan af tún- unum yfir borgina og nágrennið, þá sá sjáum vér glöggast staðhætt- ina. Borgin liggur í daldragi milli Oskjuhlíð- arinnar og Skólavörðuhæðarinnnar að aust- anverðu, og „túnanna" að vestanverðu. Sunn- an við hana liggur tjörnin, eins og sjá má á myndinni í 3. tölubl. þ. á., en norðan við hana höfnin. Suður af tjörninni eru mýrar, alla leið suður undir Kópavog. Þar er mó- tekja nokkur, og auk þess nokkuð af kúa- högum bæjarmanna. Að vestanverðu við tjörnina og mýrarnar eru Skildinganessmel- arnir suðvestur að Skerjafirði, beint á móti Bessastöðum á Alptanesi. Myndin í 3. blaði er, eins og áður er sagt, tekin útsunnanmegin við tjörnina. Húsið á tanganum, sem skerst að vestanverðu út í hana, er skothúsið, þar sem skotfélagið held- ur æfingar sínar. Einstaka, stóra húsið hinu megin, er barnaskólinn, ogá bak við hann sést í kvistinn á latínuskólanum, en rétt skamt frá barnaskólanum, suður á túninu, er nú búið að byggja fríkirkjuna, með háttgnæfandi turni í got- neskumstíl. Stóra húsið niður við tjörnina.sem ber í kirkjuturninn, er Iðnaðarmannahúsið, í venjulegu máli kallað Iðnó, og Goodtemplar- húsið þar spölkorn vestar; en stóra, breiða steinhúsið rétt vestur af kirkjunni, að eins gata á milli, er alþingishúsið. Eins og menn sjá, er barnaskólinn að vestanverðu neðan til við tjörnina, skamt frá lækjarbakkanum. Hin eru öll í miðbænum, að norðanverðu við tjörnina. Héðan ofan af túnunum er oft harla frítt að litast út yfir hauður og haf, og ofan yfir bæinn. Fyrir öllu suðvestrinu og suðr- inu blasir Reykjanessfjallgarður óslitinn við, í boga frá norðvestri til suðausturs, og mynd- ar yztu takmörk sjóndeildarhringsins að sjá frá Reykjavik, alla leið norðvestan frá Reykja- nesi og suðaustur að Esju. í norðvestri beint á móti, gnæfir Snæfellsjökull snjóhvftur, eins og upp úr hafinu; og alla leið frá honum liggur sá fjallgarður, sem við hann er kend- ur, þangað til Akrafjall og Esjan hylur hann sjónum vorum. Hér er þvf sjóndeildarhring- urinn allt í kring takmarkaður af óslitnutn tjallgörðum, nema f vestri, þar sem mynnið á Faxaflóa brýtur skarð í hann. Á kyrru sumarkvöldi, þegar flóinn og höfnin er alveg spegilslétt og hvít, túnin ið- græn, og húsin og túnin spegla sig í tjörn- inn, þá er ekki auðvell að finna stað, sem hefur tígulegra útsýni að bjóða en Reykja- vík. Hér vantar fátt, sem fegurð má auka tilsýndar, nema skógana, og fallega hlaðinn skemtistíg í kringum alla tjörnina, með gróðursettum trjám og blómrunnum að ofan- verðu, og bekkjnm hér og hvar til að hvíla sig á. Sá vegur mundi fjölfarinn, og skjótt verða aðalskemtivegur bæjarbúa. m. Skifting borgarinnar og strœtaskipun. Eins og áður er sagt, þá liggur tjörnin sunnan við bæinn. Lengi frameftir voru eng- ar byggingar að austanverðu við hana. En byggingarnar þutu óðum upp og færðust nær henni. Var þá farið að þurka upp parta af tjörninni og byggja þar. Þannig er með Iðnað- armannahúsið, Goodtemplarahúsið og Báruhús- ið við norðurenda hennar. Þau eru öll bygð á lóð, sem fylt hefur verið upp úr tjörninni. Sömuleiðis er mikið af lóðinni þar norður

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.