Kvennablaðið - 30.04.1919, Side 1
Kr Atiuftbl«ðið ko*t-
»r 3 kr.inBanlftnda
erlendi* kr. 3 60
(1 dollftr reitftn-
hftfi) '/« yerðiini
borgiit fyrfrftm, en
*/• fyrir 16. júli.
ticmia&labtíi.
é
Uppiögu ikrifleg
bnndin rið ire-
mót, ógild nemft
komin 16 til út-
geí. fyrir 1. okt
og kftnp&ndi hftfl
borgftð ftð fullu.
25. ár. Reykjavík, 30. apríl 1919.
4.
t
Frú Þóra Melsteð.
i ____
Hún var fædd 18. des. 1822 í Skjelskör á
Sjálandi, og dó 21. apríl 1919. Varð hún því
rúmra 96 ára. Hún var dóttir Gríms amt-
manns Jónssonar, sem
margir hafa heyrt get-
ið, og konu hans Bir-
gitte Cecilie Breum, er
var af norskum ætt-
um. Ólst hún upp hér
á landi á Möðruvöllum
í Hörgárdal frá því hún
var 4 mánaða gömul,
til 10 ára. En eftir það
í Danmörku til tvítugs-
aldurs, fókk hún marg-
háttaða mentun, bæði
i bóklegum og verk-
legum greinum, sem
kom henni síðar að
miklum notum við
skólahaldið 1 Reykjavík.
Með frú Þ. Melsteð
eiga íslenzkar konur á
bak að sjá einni af
sínum merkustu konum frá 19. öldinni. Það
var hún, sem fyrst allra kom á kvennaskóla
hér á landi með tilhjálp manns síns. Og þann
skóla elskaði hún sem móðir barn sitt. Henn-
ar skólahugsjón var eiginlega reglulegur hús-
stjórnarskóli. Hún vildi gera íslenzku stúlk-
urnar sem færastar í húsmóður- og móður-
stöðuna, sem væri þeirra eðlilegasta starf.
Það er skýrt tekið fram í „ Ávarpi til íslend-
inga“, sem 25 kvenna nefndin sendi út um
land 18. marz 1871. Og með því það er
mjög fróðlegt að bera saman þá skólahugsjón,
sem fyrir henni vakti þá, við það kvenna-
skólafyrirkomulag, sem nú er að verða efst
á baugi hjá konum í mörgum löndum, þá
skulu hór teknir aðaldrættirnir í þessu fyrsta
hugsaða skólafyrirkomulagi frú Þ., sem því
miður ekki gat þrifist hér, af ýmsum ástæðum.
1) Að guðsorð sé baft um hönd að minsta kosti
á hverju kvöldi, til að viðhalda og efla hjá hinum
ungu gott hugarfar og sið-
samlega hegðun.
2) Að innræta þeim i
öllum greinum reglusemi,
áreiðanleika, þrifnað og
skynsamlega sparneytni.
3) Að þær læri að halda
herbergjum, hús- og bús-
gögnum hreinum ogþokka-
legum, hafa hvern hlut í
röð og reglu, að búa til
allan mat, sem venjulega
er haíður hér á landi,
hreinan og hispurslausan,
með hagsýni og sparsemi;
að sníða og sauma alls-
konar fatnað, sauma alls-
konar útlendan og inn-
lendan útsaum, baldýra;
ennfremur: að lita, vefa,
prjóna ýmislegt (t. d. peys-
ur), svo og útprjón, að
bekla og knipla o. s. frv.
Að þær læri skriít, hið
einfaldasta og nauðsyn-
legasta í reikningi, að rita móðurmálið nokkurn-
veginn rétt, skilja auðvelda bók á dönsku máli,
nokkuð í sögu og landafræði (þó fremur eftir frá-
sögn eða fyrirlestrum, én að þær þurfi að læra
slikt utanbókar); hið nauðsynlegasta í uppdráttar-
og sönglist, þess utan hlýða á upplestur á kvöldum
úr ýmsum fræði- og skemtibókum.
4) Kenslutíminn ætti að vera 3 ár, 9 mánuðir á
ári hverju. Þó gæti skemri tími nægt en 3 ár, eftir
efnum og ástæðum.--------
Það var merkilegt við hemiar skóla, og
sömuleiðis þann, sem einu eða tveimur ár-
um síðar var settur á Laugalandi í Eyjafirði,
Frú Póra Melsteð.