Dagskrá - 14.09.1896, Page 6
90
manns eða meir vorn niðri í fjöru, þegar hann kom þar. í hinni
fornu dðmbirkju Ólafs hins helga, fór fram þakkargjörð með mikilli
viðhöfn; sðttu þangað menn úr öllum þrændalögum. Þar var meg-
ÍDstyrkur landsins, segir Snorri; Nansen sagðist finna að hér væri
hjarta Noregs. Það þótti Þrændum gott. — Prá Niðarðsi var sam-
flot, því margir vildu verða „Fram“ samferða. En er þeir sigldu
inn til Björgvinar, fór mikill floti skipa á mðti þeim, bæði gufu-
skip og seglskip og enn smærri skip og bátar, svo að sundið var
alþakið. Öll voru skipin sett blðmurn og fánum og prýdd á marga
vegu; eitt var mest og skrautlegast í fararbroddi; á því skipi voru
sendimenn frá borginni; einn af sendimönnum var Grieg. Síðan
íylgdu öll skipin Nansen með hljóðfæraslætti og fagnaðarðpum. —
Nansen var í Björgvin þegar hann fastrjcð förina; nú minntist hann
þess, og kallaði bæinn fðstru og fæðingarstað fyrirtækisins. Slíkar
voru viðtökurnar í Björgvin, og ekki voru þær minni þegar á land
kom. Höfuðborgin er nú eptir og býr sig til þess að taka við þeim
fjelögum eins og höfuðborg sðmir. Konungur kemur þangað til að
taka á móti þeim, og mundi jeg ekki geta þess, ef sum norsku
blöðin hefðu ekki tekið Bjer það til og óskað að hann gerði það
ekki: Norðmenn vildu vera einir um Nansen, og þyrfti ekki út-
lendinga við. Björnson á að balda eina aðalræðuna: „Þjóðin vill
heyra sinn snjallasta mann segja, hvernig henni er innbrjðsts í
þetta sinn“, sögðu blöðin, og Björnson var sóttur til útlanda. —
Sverdrup, sá er tók við stjórn á „Fram“ eptir að Nansen fór af
skipinu, er sagður hinn öruggasti, og segir Nansen sjálfur, að hann |
eigi honum mest að þakka, að svona fór. „Framx hrakti langt til )
norðurs, lengra en nokkur annar hafði komizt, annar en Nansen.
Þcim hafði liðið vel alla leíðina og mikið láta þeir af skipinu, hve
traust það sje og haglega gert.
— Það er sagt þannig frá því, þegar „Yindvard“, hið enska
norðfaraskip, hitti Nansen. Einn morgun var skipstjóri uppi við
og sá út yfir hvítgráan íshroðan ; haun sá svartan díl langt í burtu
og kallaði eptir kíkinum sinum. Hann vissi ekkert hvað þetta gæti
verið og hugsaði helzt það myndi vera rostungur, og á því máli
voru skipverjar aðrir. Skipstjóri tók byssu sína og lagði af stað
með nokkra menn vopnaða. Þetta var á hreifingu og færðist nær
þeim, og sáu þeir skjótt að þetta var ekki roBtungur og alls ekki
selur. „Það er maður!“ sagði einn. Þá sönsuðust hinir á það. En
að hugsa sjer, — einn maður á þessum slóðum! Það var Nansen.
En hann var eiginlega ekki sjelegur. Fötin voru bætt og stöguð
og stóðu á honum eins og stokkur, af storknu blóði og óþverra.
Hárið fjell um herðarnar, og andlitið var kolsvart af bjarnarspiki,
sem þeir urðu að bera i andlit sjer til þess að þola kuldan. Marg-
ar aðrar ýtarlegar sögur ganga um þá fjelaga alla. Norðmenn
hafa gaman af þvr að ýkja þær eins og allt, sem snertir þá Nansen.
Tyrkland. Þar eru þeir farnir að berjast í sjálfum Miklagarði.
1 3 daga hafa Tyrkir gengið berserksgang gegn Armeníumönnum.
Menn vita ekki hvernig það hefur byrjað, en fyrsta frjettín var, að
einir 30 Armenar hafi sest í Bank of Ottoman og hótað að hatast
þar við. Hvað þeim hafi gengið til, er ekki áreiðanlega víst. Lík-
lega hafa þeir ætlað að kúga soldán til að ljetta okinu á Armeníu
með hótunum um að sprengja upp bankann. Að 30 manns skyldi
geta tekið hús þar sem meir en 100 manns er fyrir, það er næsta
ósbiljanlegt. Hitt er þó enn meira, að þeir vörðust þaðan hermönn-
um, ekki allskamma hríð, að sagt er, og ljetu tilleiðast að gefa upp
vörnina móti því að fá grið þangað til þeir væru komnir út úr
ríkinu. Þetta segja Tyrkir, og ennfremur að margir Armenar hafi
verið á hlaupum til og frá um borgina, með sprengikúlur og önnur
heljartól. Með öðrum orðum: Að þeir hafi ætlað að gera upphlaup.
Þess vegna hafa hinir tyrknesku borgarbúar orðið æfir. En enginn
veit til að nokkur sprengikúla hafi sprungið í allri borginni, og
sum blöðin hafa gefið í skyn, að einhver hafi staðið á bak við skríl-
inn og beinlínis stýrt honum til hryðjuverkanna. Þeim ljetti allt
i einu, þegar sendiherrarnir skrifuðu soldáni að þeir slægust i leik-
inn, ef þeim linnti ekki; það þykir grnnsamlegt. Vona menn ná-
kvæmra frjetta síðar, en margir halda, að einhverjum geti orðið
hált á þessu glæpaverki. — Það er talið að um 3000 Armena hafi
verið drepnir í borginni þessa 3 daga, karlar, konur og börn. Sum-
ir voru kvaldir herfilega og meiddir áður en þeir voru líflátnir, og
svo mikið var blóðið sumstaðar, að það þurfti að fá lánaðar slökkvi-
vjelárnar, til að þvo göturnar.
Danmiirk. Dauft er hjer og viðburðalítið. Þó er eins manns-
láts að geta: Júlíusar Lange, mesta snilldarmanns. Hann lagði
stund á að þekkja listaverk og hefur skrifað mikið um það. Hann
var gáfumaður og hinn besti drengur að allra rómi.
Lobauov, utanríkisráðgjafi Rússa, vitur maður og slunginn,
ljest nýlega; hann var frægur maður.
Ensk blöð, sem bárust hingað með Quiraing frá 8. sept. segja
miklar fregnir og illar frá Miklagarði. Armeningar eru höggnir
þar niður sem trjeviði. Þeir, sem sjónarvottar hafa verið að þeim
manndrápum þykjast aldrei hafa sjeð annað hryllilegra, börn og
kvenfólk er myrt eigi síður en karlmenn. Því fer svo fjarri að
herinn eða lögreglan reyni að hepta grimdarverkin, að þeim er jafn-
vel fremur kennt um að auka þau. Armeningar þykja ekki verjast
hraustlega. Einn af þeim mönnum, sem sjeð hefur á viðureignirnar,
kveðzt hafa horft á einn tyrkneskan hermann drepa þrjá vel vopn-
aða Armeninga einn eptir annan. Þeir veittu því sem næst enga
mótstöðu og var eins og þeim hirfi algjörlega hugur, þegar Tyrk-
inn veifaði að þeim vopninu. Peningar, sem Armeningum hafa
verið sendir víðsvegar að, til að kaupa fyrir vopn og verjur, koma
þeim að engu haldi. Tyrkir fletta þá fje og vopnum svo gott sem
fyrirhafnarlaust.
Frá Kríteyjaruppreisninni eru þær fregnir sagðar, að eyjan sje
nú laus undan yfirráðum Tyrkja, en ekki er enn vist hvað um
hana verður, hvort hún kemst i samband við Grikkland, sem lik-
legast er, eða hún verður sjálfri sjer ráðandi, undir vernd einhverr-
ar stórþjóðarinnar.
Landsreikningurinn 1898.
Tekjur landssjóðs voru áætlaðar það ár í fjárlögunum um 575,-
000 kr., en urðu nær 720,000, og er það hærra en nokkru sinni
áður. Útgjöldin voru áætluð um 590,000 og urðu litlu meiri, eða
692,000. Varð því gróði landssjóðs eða tekjuafgangur þetta ár
127,751 kr.
Tollarnir hafa allir farið langt fram úr áætlun:
áætlun reikningur
kr. kr.
Fiskitollur . . , . . 30,000 57,675
Áfengistollur . . . 120,000 139,092
Tóbakstollur . . . 50,000 74,580
Kaffi- og sykurtoliur 125,000 163,950
Aukatekjurnar hafa og farið talsvert fram úr áætlun, orðið
31,384 kr. í stað 22,000; tekjur af póstferðum urðu nær þriðjungi
hærri, 29, 277 kr. í stað 20,000 og viðlagasjóðstekjur 35,885 kr. í
stað 28,000, ennfremur lausafjárskattur 29,426 kr. í stað 23,000 kr.
Áfengis- og tóbakstollurinn hefur skipts þannig niður á lög-
sagnarumdæmi landsins (eitt þeirra, Rangárvallasýsla, er kaupstað-
arlaust):