Dagskrá - 14.09.1896, Page 7
91
áfengist. tðbakst.
kr. kr.
Keykjavíkurkaupstaðnr . . . 32,033 16,103
ísafjarðarsýsla og kaupstaður .... . . . 16,413 7,817
Eyjafjarðarsýsla og Akureyri .... . . . 14,855 7,500
Norðurmúlasýsla . . . 12,955 6,881
Árnessýsla . . . 10,870 4,944
Skagafjarðarsýsla . . . 8,600 3,876
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla . . . . . . 7,167 3,461
Kjósar- og Gullbringusýsla . . . 6,372 3,355
Húnavatnssýsla . . . . 5,903 1,829
Suðurmúlasýsla . . . 5,531 5,103
Mýra- og Borgarfjarðarsýsla .... . . . 4,225 2,924
Strandasýsla . . . 3,945 2,549
Barðastrandasýsla . . . 3,577 3,822
SkaptafellBsýsla . . . 3,447 1,900
Þingeyjarsýsla *. . . . . . 3,138 2,327
Yestmannaeyjasýsla . . . 2,582 722
Dalasýsla . . . 1,315 986
Aðalvegabæt-ur er unnar voru þetta ár, 1895, voru:
á Hellisheiði og í Ölfusi . . fyrir 20,000 kr.
á Mosfellsheiði — 14,500 —
í Hróarstungu í N.-Múlasýslu — 4,740 —
Peningaforði landssjóðs var við síðustu áramót 465,000 kr.
Vesta kom hingað í gærmorgun. Með henni komu frá Kaup-
mannahöfn Jón Dórarinsson, skólastjóri í Plensborg kennari Jó-
hannes Sigfússon og Dorvaldur læknir Jónsson á ÍBafirði, en frá
Vestmannaeyjum Magnús sýslumaður Jónsson, Björn kaupm. Krist-
jánsson, fröken Margrjet Arnljótsdóttir frá Sauðanesi o. fl.
Quiraing kom hingað í gærmorgun frá Skotlandi með vörur,
fór í dag til Akraness. Með pví var hr. G. Thordal með frú sína
og flciri.
Prestvíysla. í gær vígði Hallgrímur biskup Sveinsson guðfræð-
iskandidat Björn Blöndal til Hofs á Skagaströnd.
Smávegis.
Mismunur á gáfnafari pilta og stúlkna. Kvennfrelsismál-
ið, sem nú er svo mjög rætt, hefur komið vísindamönnunum á stað
til að ransaka þetta efni. Nýlega var pað rætt á fjölmennum fundi,
sem sænskir uppeldisfræðingar hjeldu í Stokkhólmi. Þar mættu
kennarar frá ýmsum skólum, er valdir höfðu verið til að halda uppi
umræðunum.
Margir hjeldu því fram að munurinn á hæfilegleikum karla og
kvenna væri jafnmikill hvort heldur væri litið til hins líkamlega
eða andlega. Stúlkur eru bráðþroskaðri en drengir bæði líkamlega
og andlega. En þegar þær eru fimmtán ára eða þar um bil verður
breyting á sálarlífi þeirra; tilfinningarnar ráða þá meBtu hjá þeim
um nokkur ár. Drengirnir þroskast seinna, en jafnara og hjá þeim
verður ekki vart nokkurra svo snöggra breytinga.
í skólunum er ljettara að fá stúlkurnar til að taka eptir; þær
eru fijótari til að Bkilja og eptirtektasamari og fer því opt og tíð-
um meira fram; en þær gieyma fyr, þvi sem þærhata lært. Dreng-
irnir gleyma seinna, hafa betri skilning á þvi, sem þeir læra, og
meira gagn af því. Þekking sú sem þeir ná verður fastari hjá þeim
og áreiðanlegri, og við öll próf er stúlkunum hættsra við að missa
huginn, tapa þræðinum og láta sjer fipast. Drengirnir eru yfirleitt
miklu sjálfstæðari í hugsunum, sem meðfram er því að þakka að
þeir hafa venjulega meira sjálfræði.
Mikill munur er á því hvernig drengir og stúlkur passa skóla-
nám sitt. Drengirnir eru miklu latari og skeitingarlausari. Sóma-
tilfinningin er miklu ríkari hjá stúlkunnm; þær leggja meira að
sjer og svíkjast minna um en drengirnir. Þeir eru aptur duglegri
þegar á þarf að halda, kunna betur að snúa sjer út úr vandræðum
og bjarga sjer sjálfir.
Mismun á gáfnafari pilta og stúlkna má einnig sjá á því, hvern-
ig þau lesa einstakar námsgreinir. Stúikurnar hafa mestgaman af
því i sögunni sem snertir einstaka mann, drengirnir aptur á móti
hata mest gaman af viðburðunum. Drengirnir eru betur að sjer i
almennri náttúrufræði. Aptur á móti er það órjett að stúlkurnar
eigi óhægra með að læra reikning og hugsanfræði.
Sómatilfinningin lýsir sjer hjá stúlkunum í skyldurækni og sam-
viskusemi. Kennararnir kafa meira vald yfir þeim og þær eru leiði-
tamari. Hjá drengjunum lýsir sómatilfinningin sjer öðruvísi. Þeir
eru sjáifstæðari, þola ver að þeim sje gjört órjett og eru tryggari
í öllum fjelagsskap.
Aðrir sem töluðu á fundinum mótmæltu þessu, og hjeldu því
fram, að munurinn á gáfnafari pilta og stúlkna væri enginn, þau
dæmi sem hinir komu með væru einstök og sönnuðu ekkert.
Svefninn og jarðsuúningurinn. Það hefur víst fæstum kom-
ið til hugar að ekki standi á sama hvort heldur þeir snúi rúmun-
um sínum í austur og vestur eða norður og suður. En nafnkunnur
enskur læknir heidur því fram, &ð það hafi allmikla þýðing fyrir
heilsu manna, einkum þeirra, sem vesælir sjeu eða veikbyggðir hvern-
ig þeir snúa meðan þeir sofa. Jarðsnúningurin, segir hann, hafi á-
hrif á blóðrásina. Ef menn snúa höfði til vesturs rennur blóðið
meira til höfuðsins en ella, en snúi menn höfði til austurs verður
blóðrásin til höfuðains minni. Sjálfur sefur iæknirinn best þegar
hann snýr höfði til vesturs, en kveðst ekki hafa ransakað málið eun
til fullnustu.
Litblindni. Enskur læknir, sem sjerstaklega hefur ransakað
litblindni, uppástendur að kennfólk greini liti betur en karlmeun.
Hann segir að fimmtihver karlmaður sje litblindur, en þar á móti
ekki nema ein kona af hverjum tveim þúsundnm. Tóbaksreykur á
að hafa ill áhrif á menn í þessu tilliti.
Hægri og vinstri hlið eru nokkuð mismunandi á flestum mönn-
um. Til að finna hvernig þeim mismun sje varið hafa læknar í
Breslau mælt meþ mikilli nákvæmni 5000 hermenn. Það reyndist
að á flestum, 82 af 100, voru bæði handleggir og fætur mislangir.
Á 75 af 100 var hægri handieggur lengri en hinn vinstri, en á 9
af 100 var hinn vinstri lengri. Þar á móti var vinstri fótur lengri
á 52 af 100, en hægri fótur að eins á 16 af hundraði. Mismunur-
inn var ekki alllítill. Á fótunum allt að 2, og á handleggjunum
allt að 3 centim. Stuttir menn eru ætíð í hlutfalli til annarar stærð-
ar fótleggjastuttir, en háir menn fótleggjalangir.
Hryggurinn or í fæstum mönnum beinn. Á 52 mönnum af 100
hallast hann til hægri hliðar, en á 16 af 100 til vinstri.
Áhrif söngsins. Á síðustu tímum eru menn farnir að nota
sönglistina á sjúkrahúsum til að hafa áhrif á heilsu þeirra sem veik-
ir eru og eru hverjum sjúkling valdir þeir tónar sem við hann
eiga, eptir því hvað að honum gengur, og tónunum þannig úthlut-
að eins og hverju öðru læknismeðali.
Söngurinn hefur áhrif á hárvöxt manna. Á Englandi eru ekki
meir en 8 af 100 sköllóttir at' þeim mönnum sem fást við söng, en
14 af 100 af öðrum yfir höfuð.
Það er alkunuugt að söngur fjörgar menn við vinnu auk þess
sem hann skemmtir. Og nú taia sumir um að fara að innleiða söng
á vinnustofunum til að skemmta fólki meðan á vinnunni stendur
og flýta verkinu.