Dagskrá - 28.01.1897, Page 3
207
við það sem vjer gætum átt og ættum að eiga af
skipum.
Eins og allir vita og viðurkenna, er sjávarútvegur
vor annar aðalatvinnuvegur þessa lands, en því miður
hefur honum ekki verið sýndur sá sómi, sem vera ber,
þótt undarlegt megi virðast, og fyrir það sama stönd-
um vjer mjög illa að vígi, til þess, að hagnýta oss auð-
æfi hafsins, og er það orðið nógu áþreifanlegt hjer við
Faxaflóa, hvert tjón vjer höfum bakað oss með van-
rækslu þilskipaútvegsins.
Það virðist nú samt á síðustu tímum sem menn sje
farið að ráma í að þilskipaútvegur mundi geta bætt úr
því böli, sem þeir nú bíða af hinu langvarandi aflaleysi.
Menn eru og farnir að finna sárt til þess að alger-
lega hefur verið forsómað að leggja stund á, að útbúa
farsælii og arðmeiri sjávarútveg, en hinn stopuli og
hættulegi bátaútvegur er og verður.
Og það væri góð bót í máli ef vjer nú almennt
vöknuðum af hinu gamla menningarleysis-móki, reyndum
að búa oss betur undir framtíðina hjer eptir en hingað
til og gerðum ráðstafanir til þess, að koma á
fót öflugum þilskipastól og ötulli sjómannastjett. —
Betra er seint en aldrei.
Vegirnir liggja enn opnir fyrir með nýjum hjálpar-
meðölum til framkvæmda, ef viljann að eins ekki
vantar.
Það eru ávallt einhverjar orsakir til allra liluta, og
hið sama á sjer stað uni þann áhuga í þessa átt, sem
hefur vaknað hjer hjá einstaka manni til að bjarga '
Faxaflóa.
ííinn stórfenglegi veiðiskapur ensku botnvörpumann- j
anna hefur reist menn af dvala. — Þótt langvarandi
aflaleysi á opnum bátum hafi opt áður átt sjer stað,
bæði af völdum náttúrunnar og sjálfra vor, þá hefur j
sjaldan nein rödd látið til sín heyra að þörf væri á um- !
bótum. — Höfum vjer þannig ætlað náttúrunni sjálfri að
bæta oss það upp á öðrum tímum, þegar hún sæi oss j
það fyrir bestu, en brygðist það, hefur oss fundist að j
vjer værum löglega afsakaðir, þótt vjer hefðum ekkert
að leggja oss til munns.
Það er raunar ekki nema eðlilegt, þótt vjer gerum
lítið úr því sem oss er sjálfum að kenna; vjer höfurn
þar ekkert að bera fyrir oss nema það sem oss er til
hneysu. En nú þykjumst vjer hafa ástæðu til þess að
kvarta og kenna botnvörpuveiðum Fnglendinga um ófarir
vorar. Nú jæja, máske vjer höfum rjett fyrir oss. En
vjer verðum þá líka að gæta að því, að vjer ráðum
sem stendur jafnt við botnvörpuveiðar Englendinga hjer
eins og við sjálfa náttúruna; þar á móti getur orðið rnikið
lengri bið á því að þeir láti undan oss heldur en nátt-
úran, því auðvitað róta þeir fiskinum upp á miðum vorum
meðan þeir fá þann fisk, setn þeim líkar. Vjer höfum
engu öðru að treysta en sjálfum oss; hvorki natt-
úran nje Englendingar taka minnsta tillit til þess sem
vjer krefjumst. Vjer verðum sjalfir að hjalpa oss.
Því verður nú ekki neitað, að framtíðarhorfurnar hjer
við Faxaflóa eru sem stendur allískyggilegar hvað
aðdrætti á opnum bátum snertir. En fyrir það satna
er líka einmitt ástæða til þess að reyna að breyta um
veiðiaðferð og leggja stund a þilskipin.
Uppgripaveiði Breta hjer við land ætti að knýja
oss kröptuglega til þess að breyla út af vananum og
koma oss á fót tryggari útveg en vjer almennt höfum
haft, og hefðu þeir þá gert oss meira gagn en tjón tneð
komu sinni hingað, og það nntn líka verða raunin á, ef
vjer sofnum ekki algerlega út af.
Þilskipaútgerðin á að taka svo miklum ftamförum
hjá oss að aðalsjósóknin sje framkvæmd á þilskipunt,
eu opnir bátar að eins hafðir í viðlögum og af þeim sem
ekki geta stundað sjóferðir á þilskipum.
Þær harmatölur og kveinstafir sem komið hafa t
ljós bæði í ræðum og ritum út af veiði Englendinga
hjer á flóanum, miða að mínu áliti fremur til þcss að
gera oss lilægilega í augum annara sjálfstæðra þjóða,
heldur en að slíkt komi oss að nokkru haldi.
Hvcrnig getum vjer ætlast til þess, að Englcnd-
ingar, hin mikla siglinga- og framfaraþjóð, láti það eptir
oss að friða Faxaflóa utan landhelgi fyrir botnvörpu-
veiðum landa sinna, svipti þá sjálfa atvinnufrelsi rtg
baki sjer stórkostlegt peningatjón? Kröfurnar um slíkt
hafa við mjög lítil rök að styðjast. Það sjer hver
maður, að vjer ættum að eiga eins hægt með að senda
haffær skip út fyrir tjarðarmynnin, þangað sem fiskvon
er, eins og útlendingar, sem senda skip sín hingað til
lands, svo mörgum hundruðum skiptir, til að afla fiskjar.
En hvað erum vjer svo bættari með því, þótt vjer
fengjum þá ósk vora uppfyllta, að Faxaflói yrði friðaður
fyrir botnvörpuveiði innan »Skaga?«
Ef vjer fengjum þá ósk vora uppfyilta, þá yrði af-
leiðingin ekki önnur en sú, að vjer mundum enga hvöt finna
hjá oss til þess að breyta um fiskveiðiaðferð og vjer værum
jafnnærri öllum sönnum bjargræðisframförum eptir sem
aður.
Það er mín skoðun og það mun líka verða raunin
á, ef rjett er að verið, að besti og beinasti framfaravegurinn
fyrir þetta hrjóstruga og afskekkta land er öfl-
ugur þilskipaútvegur. Ef hann er rekinn með raðdeild og
dugnaði, er hann vegur til velrnegunar og arðs, sem ekki
bregst, og það er ekki eitt, heldur er það allt, sem
mælir með því að hið opinbera snúi sjer nú af alefli að
því að auka þennan útveg.
(Meira .