Dagskrá - 10.04.1897, Page 6
282
Tvö kvæði.
Eptir St. St.
I. Heillaósk.
Ei handa þjer beðið um guðsblessun get
Nje geðþekkni manns,
Því þú yrðir fjepúki, frændi minn, þá
Og fordómur lands.
Jeg óska’ að þú fáir af skorti þinn skerf,
Af skömmunum nóg.
En lifir svo allt saman ólánið dautt
Og óvildar róg.
II. Sumardagurinn fyrsti.
Þegar þiðnar í flóum.
Til þíðviðra lopt hefur breyttst.
Þegar þungum úr snjóum
Er þrælsband af jörðinni leyst;
Þegar ráð villtra raknar
Ur raun, sem af vetrinum stóð;
Þegar veröldin vaknar
A vorin með yngjandi ljóð,
Þá er lánsdagur landa
Og llfið á jörðunni glatt,
Veröld örugg í anda
Er orðin og kveður allt satt:
»Eg skal fegrast og fríkka
Og fella hvert ok mjer af háls,
Eg skal betrast og blíkka
Uns hvert blóm og hver vængur er frjáls«.
Þegar harðýðgin hnígur
Og heimskan, þau lýðanna mein,
En í stól þeirra stfgur
In staðfasta sanngirni ein:
Þá 1 lófa þjer lagður
Er lánsdagur allra’ og þín sjálfs,
Þá er sannleikinn sagður
Og hver sál og hver hönd verður frjáls.
mr Þeim kaupendum Dagskrár er útsölumenn
hafa innsent göggan lista yfir, samkvæmt brjefi dags.
29. jan. þ. á., verdur sent blaðið hverjum fyrir sig
hina síðustu póstferð af þessum árgangi.
Dagskrá kemur út júnímánuð allan í sama formi
sem blaðið á að gefast út í á næsta ári.
Þeir útsölumenn sem eptir eiga að senda áskrif-
endalista eru vinsamlega beðnir að gjöra það með
næstu ferð.
Hús kaupist.
Laglegt, vel byggt hús á góðutn stað í bænum óskast
til kaups strax eða frá 14. maí.*
HERBERGI til leigu.
Frá 14. maí og frá 1. júlí eru herbergi til leigu í
miðjum bænum fyrir góða familíu eða einhleypan mann.*
Til heimalitunar
viljum vjer sjerstaklega ráða mönnum til að nota vora
pakkaliti, er hlotið hafa verðlaun, enda taka þeir ölluin
öðrum litum fram, bæði að gæðum og litarfegurð.
Sjerhver, sem notar vora liti, má öruggur treysta
j því, að vel muni gefast.
í stað hellulits viljum vjer ráða mönnum til að
nota heldur vort svo nefnda »Castorsvart«, því þessi
litur er miklu fegurri og haldbetri en nokkur annar
svartur litur.
Leiðarvísir á íslensku fylgir hverjum pakka.
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á Islandi.
Buchs-Farvefabrik.
Stddiestræde 32.
Kjöbenhavn K.
The
Edinburgh Roperie
& Sailcloth Company Limited
stofnað 1750,
verksmiðjur í LEITH & GLASGOW
búa til:
færi, kaðla, strengi og' segldúka.
Vörur verksmiðjanna fást hjá kaupmönnum um allt land.
Umboðsmenn fyrir ísland og Færeyjar:
F. Hjorth & Co.
Kaupmannahöfn.
Fineste Skandinavisk
Export Kaffe Surrogat
er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibætir, sem nú er í
versluninni.
Fæst hjá kaupmönnnm á Islandi.
F. Hjort & Co.
Kaupmannahöfn.
Orgel Harmonium
j fást mjög vel vönduð og með góðu verði. Kaupendur
| snúi sjer til undirskrifaðra
Brödrene Thorkildsen
Aasen
pr. Throndhjem
Norge.