Dagskrá - 28.04.1897, Side 3
*95
3. ítölsk kirlíja eða bænahús, málað af P. Kornbeck
1880. Gefin 1886 af Birni Bjarnarson.
4. Skógarstígur; málað hefur fröken Ravn-Hansen 1885.
Gefið af málaranum 1886.
5. Skógur um haust, fölnaður, Akvarel eptir Thorvald
Niss. Gjöf frá B. Bjarnarson 1886.
6. Málverk eptir prófessor J. Sonne frá stríðinu milli
Dana og Þjóðverja 1864, máluð 1884 og gefin 1885
af málaranum.
7. Norrænir víkingar verpa haug yfir fallinn val og
efna til blóts eptir sigur. Myndina hafa málað pró-
fessorarnir Malmström og Gude í Dússeldorf, og er
þetta hin fyrsta mynd málaranna (Pröve), en eptir
henni máluð afarstór mynd, sem til er á safninu í
Stokkhólmi. Þetta málverk hefur próf. H. Fr. Gude
gefið sjálfur safninu- hjer 1886.
8. Dansmey eptir Emil Rosenstrand. Gefin af málar-
anum 1886.
9. Birkibeinar á flótta með Hákon konung, eptir norsk-
an málara, Knut Bergslien (f. 1827). Myndin er
máluð 1880, en gefin af Fr. Giertsen, skólastjóra
í Kristjaníu 1886.
10. Kristofershús á Skaga (Jótlandsskaga), eptir danskan
málara, P. S. Kröyer (f. í Stavanger 1851). Þessi
mynd er talin eitt af snilldarverkum málarans, og
hefur hann gefið hana sjálfur 1886.
12. Eyjafjörður, eptir Kristján V. Blache (f. 1838). Mynd-
in er máluð 1882 eptir annari lítilli, sem safnið á
líka og þykir þessi stærri mynd ekki jafn nákvæm
og sú minni, sem máluð er árið áður. (Það ár sem
málarinn ferðaðist hér fyrir norðan land). Myndin
er tekin frá Oddeyrartanganum og sjest þar Akur-
eyrarkaupstaður og fram til dalanna langt. A höfn-
inni eru herskip tvö, danskt og franskt, póstskipið
»Díana« og »Njáll« hákarlaskip. Málverk þetta
hefur málarinn gefið sjálfur 1885.
13. Geitá við Kalmanstungu með Balljökul, Eiríksjökul
og Geitlandsjökul í framsýni, eptir próf. T. Kloss,
máluð 1871. Þessa mynd hefur konungur vor,
Chr. IX., gefið 1885.
14. Birkiskógur frá Sjálandi, eptir próf. Janus A. B. la
Cour (f. 1837), gefinn af málaranum 1885. Það er
hið fyrsta málverk er safninu var gefið.
15. Veiðimaður í Tyrol eptir próf. C. Schleissner. Málað
1874. Gjöf frá Chr. konungi IX. 1885.
16. Tidsvildeskógurinn við Isafjörð á Sjálandi, málaður
af Wildenradt 1884. Gjöf frá málaranum 1886.
17. Mynd af skógarspildu fyrir utan Helsingjaeyri með
kastalanum Krónborg, Akvarel eptir G. Emil Libert.
Gjöf frá B. Bjarnarson 1886.
18. Sundmaður, eptir Lundé. Gjöf frá ekkju málarans
1886.
Húsbygging á Þingvöllum.
Nefnd sú, er hefur stofnast til þess að koma upp
húsbygging á Þingvöllum, hefur óskað birtingar á eptir-
farandi brjefi.
Vjer undirskrifaðir, sem höfum gengið í fjelags-
skap um að koma upp húsbyggingu á Þingvelli, er
bæði gæti verið fyrir samkomur innlendra manna og til af-
nota fyrir erlenda ferðamenn, sem eins og kunnugt er sækja
fjölmargir á hverju ári til Þingvalla og Geysis, leyfum oss
hjer með að bjóða almenningi á Islandi að taka þátt í þessu
fyrirtæki með því að kaupa, einn eða fleiri saman, tuttugu
og fimm króna hluti í hinni fyrirhuguðu húsbyggingu.
Áætlað er að húsið muni kosta allt að 5000 kr.
eða um 200 hluti alls, og er gjört ráð fyrir, að það geti
verið fullgjört áður en ferðamanna er að vænta næsta
sumar. Það er ákveðið, að hlutir þeir sem koma inn,
skuli geymast 1' sparisjóði Reykjavíkur, en eigi verður
byrjað á byggingunni fyr en sjeð verður að nóg fje
muni fást; að öðrum kosti verður peningunum skilað
aptur til eigendanna.
Komist byggingin upp eins og að framan er sagt,
skulu hlutaeigendur njóta tiltölulega ágóða af húsinu,
þeim er verður framyfir viðhalds- og umsjónarkostnað,
eptir árlegri skilagrein.
í hússtjórnarnefnd skal kjósa 3 menn, þannig, að
formaður Þjóðvinafjelagsins nefnir einn, sýslumaðurinn í
Árnessýslu annan og ferðamannafjelagið í Reykjavík
hinn þriðja. Nefndin skal kosinn til 2 ára í senn, í
fyrsta sinn jafnskjótt og húsið er fullgjört.
Allt það, sem að framkvæmdum byggingarinnar lýt-
ur, önnumst vjer undirskrifaðir.
Hlutaupphæðir skulu sendar til gjaldkera fjelagsins,
Sigfúsar bóksala Eymundssonar í Rvík, með glöggri
skýrslu um nöfn og heimili hlutaðeiganda, og sendir hann
þeim þá hlutabrjef með fyrsta pósti, eða afhendir þau
þeim, sem borga utanpósts.
Til þess að hægt sje, að byggja húsið næstkom-
andi sumar, verða fjelagshlutir að vera borgaðir innan
loka þessa árs.
Vjer treystum því, að góðir menn veiti þessu máli
greiðar undirtektir, bæði vegna landsmanna sjálfra og
vegna þess, að slík bygging mundi, einkum ef henni
fylgdi skemmtibátur til veiða og siglinga á Þingvalla-
vatni, stuðla mjög að þvi, að auka heimsóknir erlendra
ferðamanna til íslands, sem hingað tií hafa ekki getað,
vegna skýlisleysis, haft neina dvöl á hinum forna, víð-
træga þingstað Islendinga.
Reykjavík, 24. april 1897.
B. - Sveinsson. Tr. Gunnarsson, Sigfiús Eynmndsson,
formaður. gjaldkeri.
Helgi Helgasort. Sigurður Kristjánsson.
D. Thomsen. ITannes Þorsteinson.