Dagskrá - 28.04.1897, Side 8
3oo
kggja. slík störf fyrir sig, og eiga hægra með að kenna |
þau öðrum, en búfræðingar af búnaðarskólunum. Okkur j
vantar ekki búfræðinga, en okkur vantar nógu marga
og duglega jarðyrkjumenn, óbreytta vinnumenn eða efni
í búmenn sem gætu sætt sig við hin þröngu kjör sem j
flestir frumbýlingar á okkar fátæka landi verða að sætta
sig við, ef vel á að fara á meðan þeir eru að komast í
»álnirnar« sem kallað er, þeir sem annars kæmust það
nokkurn tíma.
III.
Torfi skólastjóri í Olafsdal hefur skrifað um búnað- j
arkennslu í Búnaðarriti 6. árg.
Þessi ritgjörð er mjög ljós og skipulega samin, eins
og allt sem höf. skrifar. Færir hann þar vel rökstuddar
sannanir fyrir því, að einn strangvísindalegur búnaðar-
skóli samsvari ekki eins þörfum vorum og 4 skólar, sem
veitt gætu hina svokölluðu lægri búfræðismenntun, því
búnaður vor sje á því stigi að hann útheimti ekki bú- j
vísindalegri þekkingu fyrst um sinn, en fengist geti á
fjórðungaskólunum, einkum sjeu þeir ofurlítið bættir.
Verkleg menntun mundi verða ófullkoinnari á 1 skóla
— landsskólanum — sem ætti að útskrifa árlega jafn-
marga og fjórðungaskólarnir til samans. En af því að
óhugsandi sje að fá svostóra jörð sem samsvaraði slíkum
skóla eða hún gæti veitt meira en helming af þeirri
verklegu æfingu sem fengist geti á fjórðungaskólunum,
þá hlyti búfræðingar frá landsskólanum að hafa hálfu
minni verklega kunnáttu, nema þeir væru helmingi lengri
tíma og þá helmingi færri, sem árlega útskrifuðust það-
an. En ekki mundi mega knappa af tölu þeirra manna,
er nú árlega fengju búfræðislega þekkingu. Eptirspurn
eptir slíkum mönnum færi allt af í vöxt.
En þess ber að gæta að hjer liggur einungis til
grundvallar hjá höf. sú uppástunga sem komið hefði um
þær mundir. er hann reit greinina, bæði í ræðum og rit- j
um frá einstöku mönnum að heppilegast mundi fyrir land-
búnað vorn að sameina fjórðungaskólana í einn stóran I
og vísindalegan skóla, sem hefði það mark og mið að
útskrifa jafnmarga búfræðinga árlega og fjórðungaskól-
arnir allir til samans gjörðu, og jafnframt að þeir hefðu
ekki einungis jafnmikla verklega kunnáttu heldur miklu
betri af þessum eina skóla; sömuleiðis átti skólinn að
hafa líkt vísindalegt gildi og betri búnaðarskólar erlendis
hafa.
En þessum kröfum væri óhugsandi að landsskólinn
gæti fullnægt án þess að standa í sambandi við lægri
búnaðarskóla, eins og Torfi í Olafsdal hefur sýnt fram á
í nefndri ritgerð. Enda munu nú flestir fallnir frá lands-
skólahugmyndinni með líku fyrirkomulagi.
(Mcira).
Góður varningur
NÝKOMIÐ með „Vesta“:
úrkeðjur af mörgum teg. fyrir karla og kon-
ur, skrautlegri en venja er til, með ágætu verði.
Kapsel, gull-»double« fyrir karlmenn, o. m. fl.
Enn fremur margt tilbeyrandi laxveiði, svo sem:
girni (öngultaumar oghjólfæri), önglar, flugur
og stengur, smáar og stórar. Vönduð og ódýr
laxhjól af mismunandi stærð og verði.
Með ,Laura‘
koma Saumavj elar af ýmiskonar gerð, svosem:
»Singers« stálsaumavjelar o. fl. með afarlágu
verði. T. d. afbragðsgóðar stálsaumavjelar fyrir 30
krónur.
Singers endurtoættvi saumavjelar þekkja
allar bestu saumakonur landsins.
Einnig stórt úrval af allslconar úrum,
þar á meðal úr með málm- og »Alabast«-skífu.
Enn eru eptir nokkrar vegyja-klulikur,
mjög fallegar. —
Sívaxandi fjöldi viðskiptamanna, bæði í R.vík og
víðsvegar um land, er hin besta sönnun fyrir því, að
jeg sel:
Góðan varning og býð góð kjör.
Reykjavík, 27. apríl 1897.
PJETUR HJALTESTED.
! Góð kjör!
Hleyniplöntur til sölu á 20 aura hver,
sem má senda óskemmdar út um landið, Gullregn
(Laburnum), liljur, iristegundir, sverð-
liljur (gladiolus), ancmone, alparósir (rhodo-
dendron).
Vallarstræti 4.
Guðm. Guðmundsson
læknir.
3, með eldhúsi, óskast til leigu strax.*
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár.