Aftanskinið - 01.02.1906, Side 7
.1, 2. bl.
AFTANSKINIÐ
15
íæri ti! að svara lienm. Jón stóð eftir sem
þrumulosdnn og alveg ráðviltur; þetta hafði
honum sízt til hugar komið.
Hann hafði ekki hug á að ,elta hana inn
í eldbúsið, til aö spyrja hana hvernig A.þessu
stæði. o
Hann stóð grafkyr 1 sömu sþorum og var
að hrjóta heilann um, hvernig hann 1 ætti að
snúa sér í þessu. Honum fanst eins og hiininn
og jörð hofði hrunið. Hann fánnf að hann
gat ekki oorið þetta. Svo datt honum/ ait í
einu í hug, að segja skiíið við þénna heim.
Með því gat hann bezt sýnt Gunnu, hve heitt
hann hafði elskað hana. Þá þóttist hann viss
um að hana mundi iðra þessa — hún mundi
syrgja hann og gráta. Já, og hver gat vitað
nema hún mundi helzt kjósa að fylgja honum
eftir til ókunna landsins.
Og sokkabandið, trygðarpanturirm henrar
það skyldi verða snaran, sem hann hengdi
sig í. Þá gat Gunna notað hitt sokkabandið
ef hún mat ást hans og trygð að verðleikum.
Jón var ekki lengi að brjóta heilann um
þetta. Sokkabandið hafði hann við hendina.
Það var vafið inn í rauða Kína-auglýsingu
i hrjóstvasa hans. En þá var að finna ein-
hvern snaga tii að hengja sig á. Efst upp í
mæni í bæjardyrunum var digur skipsnagli,
sem hafður var til að hengja á söðulinn hennar
• Gunnu að vetrinum. Nú var hann auður, og
hann var meir en nógu sterkur til að halda
Jóni. Hann tók sokkabandið upp úr vasa
sínum, vafði utan af því bréfið, hnýtti saman
endana og bjó til lykkju. Meðan þessu fór
frara snaraðist Gunna fram úr eldhúsinu
og upp á lof't, með kaffiketilinn. Hún varaðist
að lfta við Jóni. Nú var um að gjöra, að
nota tækifærið, meðan bún var nppi, og svo
var hún sjálfsagt sú fyrsta, sem kom að hon-
um dinglandi í snörunni. Hann klifraði upp
á bitann, brá sokkabandinu í kappmellu um
hálsinn á sér og hinni lykkjunni um naglann.
Meðan hann var að hagræða þessn sat hann
á bitanura. En þegar hann var búinn að
koma því öllu vel í lag, herti hann lykkjuna
fast að hálsinum og rendi sér niður af bitanum.
Lykkjan hertist að hálsinum og honum flaug
í hug að iðrast eftir alt saman. Hann brauzt
um af sársaukanum og fanst sem haun væri
alveg að hengjast. Hann heyrði brest, og
þóttist þjóta af stað eitthvað út í genninn, svo
vissi hann ekki meira af sér. — — —
Þegar hann rakr.aði við aftur var hann
kominn í skaut Abrahams eða sama sem.
H&n > !á í faðmi fóstru sinnar sálugu, sem
hafði verið guðhrædd og góð kona og var nú
d,áin , fyrir átta árum. Þau yoru stödd i grænu
rjóðri f blómskrýddum skógi. Alt í kring um
þau ómaði yndislegur fugla söngnr og þægi-
legan iim lagði að vitum hans: Hann fór að
spyrja gömlu konuna hvernig á þvi stæðiyað
hann væri hér kominn, og það þrátt fyrir það,
þótt hanu hefði séð fyrir sér sjálfur. E'ri hún
sagði honum, að það væri fyrir þá sök, að
h&nn hefði fórnað lífi sínu á altari ástariunar,
þesc sem mest væri og sterkast f syndugum
heimi. — kærleikans. Jón botnaði ekkert í
því að hann skildi ekki muna eftir þvi að
hann hefði fundið Pétur eða lagt verk sín á
metaskálarnar. En honum lá nú annað þyngra
á hjarta en himnarikisvistin og það var —
Gunna. Hann fór að spyrja fóstru sína eftir
henni. Hvort hún vissi nokkuð hvernig henni
mundi bafa orðið við, þegar hún fann hann
dinglandi i sokkabandinu. Jú, það vissi gamla
konan ofur vel. Það hafði farið eins og hann
gjörði ráð fyrir. fíún hafði orðið aiveg frá-
vita af örvæntingu og hengt sig í hinu sokka-
bandinu. Jón spurði hvort hann fengi ekki
að hitta hana bráðuro. Nei þvi mátti hann
ekki húast við. Slíkum trygðrofum var annar
staður ætlaður. — Jón þóttist skilja hvar það
væri.
Honum þótti lítið koma til himnarikis-
vistarinnar fyrst Gunna fékk ekki að vera
þar hjá honum. Hann spurðí fóstru sína hvort
ekki væi’U nein ráð til þess, að hún fengi að
koma þangað til sin. En hún þvertók fyrir
það. Réttlætið varð að ske. Jón spurði hana
hvort hann gæti ekki fengið að fara þangað
til að finna hana, eða að minsta kosti að
senda henni línu. (Framh.)