Lögberg-Heimskringla - 31.03.1960, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. MARZ 1960
3
Völvur og galdramenn
Business and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA 1 VESTURHEIMI
ForaeU: DU. RICHARD BKCK
801 Llncoln Drlve, Qrand Forks, North Dakota.
StrrklB (éla«18 meB þvl aB (erut meðlimlr.
Arsgjald $3.00 — Tímarlt (élagsins frítt.
Sendlst tll (j&rm&larltara:
MR. GUÐMANN DKVY,
18E Iindsajr Street, Wlnnipeg 9, Manltoba.
Guðmundur Einarsson frá
Miðdal er ekki síður kunnur
ferðamaður en myndhöggvari
og málari. Flestir munu kann-
ast við bók hans Fjallamenn
og fleiri bækur, sem hann hef-
ir skrifað um ferðalög sín inn-
an lands og utan.
Fyrir skömmu frétti blaða-
maður Mbl., að Guðmundur
hefði í hyggju að halda til
Lapplands — en hann hefir
einmitt skrifað um Lappa í
bókum sínum „Bak við fjöll-
in“ og „Áfangastaðir um allan
heim“. Þar er ferðasaga frá
Lapplandi.
Blaðamaðurinn brá sér á
fund Guðmundar og bað hann
að segja lesendum blaðsins
lítils háttar af kynnum sínum
af þessum einkennilega kyn-
stofni. • I
Hvað viliu viia?
— Hvað viltu vita um
Lappa? spurði Guðmundur.
— Auðvitað hvort það sé
satt, að þeir séu göldróttir.
— Ætli að það trúi því
nokkur, þó ég segi svo? Menn
verða að kynnast þeim sjálf-
ir til að komast að raun um
það — og það getur tekið lang-
an tíma. Þeir eru ekkert fyrir
að flíka slíku.
— Hvenær kynntist þú
Löppum fyrst, Guðmundur?
— Það er langt síðan að ég
byrjaði að hugsa um Lappa.
Þetta er svo margvíst fólk og
einkennilegt, að það hlýtur
að vekja forvitni manns. Þeg-
ar ég fór til Skandínavíu fyrst
fyrir 30 árum, kynntist ég
Löppum í Noregi og Svíþjóð.
Lapparnir, sem ég kynntist
þar, voru farnir að ganga í
skóla og höfðu lagt niður sitt
opprunalega farandlíf. Ég
hafði samband við menn síð-
ar, sem þekktu Lappa, t. d. Per
Höst, og hann fullyrti, að ekki
væri til nema tvær Lappafjöl-
skyldur í Noregi, sem lifðu
sínu upprunalega lífi. Hann
sagði mér, að þeir Lappar, sem
eg væri að leita að, væru að-
eins til í finnska Lapplandi.
— Ég var einmitt að leita að
Löppum, sem kynni eitthvað
fyrir sér og lifðu sínu upp-
runalega lífi.
Finnska Lappland
— Þú hefirðu auðvitað far-
til finnska Lapplands?
— Já, þá fór ég að hugsa
Um ferðalög þangað, en það
var ekki hlaupið að því. Svæð-
sem Lapparnir lifa á í þess-
Ujn löndum, Noregi, Svíþjóð
°g Finnlandi, er stærra en allt
Island og lifa þarna milli 20
°g 30 þús. Lappar — lang-
íasstir í Finnlandi, sennilega
milli 3 og 4 þúsund. Þar er
strjálbýlast. Þeir, sem erfið-
fst er að komast til, búa nyrzt
i Finnlandi — svokallaðir
Hrein-Lappar, hinir eru kall-
^ðir Skóg-Lappar og Fiski-
Lappar. Þeir hafa tekið upp
^yokallaða menningarsiðu. —
rein-Lappar lifa sínu upp-
runalega hjarðlífi og hafa
ekki fasta bústaði. Það er erf-
itt að komast þangað sem þeir
halda sig — annað hvort verð-
ur maður að fara gangandi
óraleið, því bílvegir eru engir,
eða fara með vatnaflugvél. —
Fyrsta skiptið, sem ég heim-
sótti þá, fór ég gangandi. Síð-
an hef ég farið nokkrum sinn-
um með flugvél — og líka
gangandi.
: i ' r I
Hrein-Lappar
— Og þarna hefirðu fundið
jað, sem þú varst að leita að?
— Já, Hreinlapparnir lifa
mjög svipuðu lífi og á land-
námsöld okkar — ferðast með
hreindýrin allt sumarið til að
komast norður í fjöllin. — Þeir
skiptast í ættbálka og hver
ætt heldur saman. Gamal-
menni og ungbörn búa í
bjálkakofum við vötnin, með-
an ungu mennirnir fara með
hjarðirnar, sem geta talið þús-
undir, norður eftir til að flýja
mýbitið og fá betri hjarðlönd.
— Þetta hjarðfólk býr þá í
tjöldum, sem það flytur með
sér á hreinum, en þeir eru not-
aðir sem burðardýr á sumrin,
en fyrir sleða á veturna. —
Meðal þessa fólks eru ýmsir
gamlir siðir, þó það eigi að
heita kristið. — Þar má finna
völvur, spákonur, eins og við
þekkju múr gömlum sögum —
og einnig einsetumenn, vís-
dómsmenn, sem vita lengra
nefi sínu.
— Kanntu ekki eitthvað að
segja frá vísdómi þeirra?
— Ef hreindýr vantar í
hjörðina, falla þeir í dá og
finna dýrin. Þetta kalla þeir
að tala við feðurna. Samfara
þessu eru ýmsir helgisiðir.
Þeir berja t. d. trommur eins
og Grænlendingar og hafa
jafnvel fórnarsteina.
Konan mun deyja
— Ég hef sannanir fyrir
þessu. Einn slíkur einsetumað-
ur bjargaði vini mínum úr
bergvillu. Hann var á skíð-
um og rammvilltur á hættu-
slóð. Einsetukarl, vinur hans,
birtist honum — gekk við hlið
hans um stund og vísaði réttu
leiðina til byggða. Síðan hvarf
karlinn. — Hann leitaði að
sporum hans í sjónum, því
hann var sannfærður um að
þetta hefði ekki verið skyn-
villa — en fann auðvitað eng-
in spor. — Þessi sami kar
sagði þessum sama manni,
sem er þekktur vísindamaður,
að konan hans myndi deyja
næst þegar tungl yrði kringl-
ótt — nema hann gætti þess
að halda í hönd konunnar og
sleppti henni ekki. Hann tók
þetta ekki alvarlega, því hann
sá enga hættu. Hjónin bjuggu
í bjálkakofa við Tenoána. —
Svo skeði það næst þegar
tungl var fullt, að konan fór
að sækja vatn í vatnsból í
ánni. Hún féll niður um gat,
sem einhver Lappanna hafði
höggvið í ísinn og drukknaði
þar. — Upp frá þessu trúði
hann, að þessir vísdómsmenn
sæju fyrir óorðna hluti. —
Það gera völvurnar líka. Hver
hreinkóngur setur metnað
sinn í að hafa slíka völvu. Þær
spá fyrir um veður og fyrir
daglátum. Klæðnaður þessa
spákvenna gæti minnt á lýs-
ingu á völvum í norrænum
sögum.
Sagnaheimur
í sagnaheimi Lappa er
margt, sem maður kannast
við. Þeir hafa samband við
náttúruanda (kallaðir Uldar)
og feðurna og þurfa að blíðka
þá með fórnum — áður lögðu
þær mat á fórnarsteina — og
svo hafa þær ýmsa töfra- og
verndarhluti, sem hafa mikla
þýðingu. Fáar eru þær, sem
hafa mikla spádómsgáfu. Ég
ér ekki viss um, að þær séu
allar heiðarlegar, en þær sem
færastar eru sýna oft fram á
ýmislegt, sem er óskýranlegt,
á venjulegan hátt. — Frægur,
franskur vísindamaður, Crot-
tet að nafni, hefir mjög rann-
sakað sagnaheim Lappa og
leyndardóma, t. d. hvernig
þeir geta talað við dýrin, og
hann er sannfærður um, að
þetta sé rétt. Einn fræðimann
þekki ég, sem er búinn að
dveljast með Löppum í tólf
ár, og hann sagði mér, að það
tæki mjög langan tíma að
komast inn í þetta og fá tiltrú
Lappana. — Þó gestrisni
þeirra sé einstök, fara þeir
mjög dult með þessi gömlu
fræði.
Njálsá
— Annað, sem er einkenn-
andi við Lappana þarna norð-
ur frá er, að þeir tala um
heilög fjöll og vötn eilífðar-
innar, þeir fara þangað píla-
grímsferðir í laumi. Heilag-
asta fjallið heitir því ein-
kennilega nafni Aíligis, sem
minnir á íslenzka orðið heil-
agur.
— Varstu var við fleira, sem
minnir á íslenzka tungu?
— Já, eitt sinn kom ég ti
dæmis að á og spurði lapp-
neskan fylgdarmann minn,
hvað hún héti. — Níjaláve —
Njálsá — sagði hann. Ég
spurði hann, h v a ð Njáll
merkti, og hann sagði að það
væri algengt mannsnafn. Og
ég man fleira, sem er ein-
kennilega líkt, t. d. heitir
hjallur hjalli á upphaflegu
Lappamáli, eða svokölluðu lú-
líönsku-máli, sem fáir tala nú
hreint.
— Og nú ætlarðu að halda
til Lapplands á ný og rifja up
gamlan kunningsskap?
— Já, ég hef aldrei verið
þar, þegar hreindýrin bera, og
langar mig til að vera við-
staddur það í vor. Ég helc
málaverka- og höggmynda-
sýningu í Helsingfors í maí og
fæ þá tækifæri til að skreppa
norður um leið og hitta gamla
vini, m. a. bjarndýraskyttuna
Palto og konu hans, Aikiu. Á
vorin, er bjarndýrin fara úr
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykh&(ar, öruggast*. eldovörn,
og &valt hrelnlr. Hltaeinlngar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldl-
vtB, heldur hlta (r& atl rjðka flt
meB reyknum.—SkrlflB, slmlB U1
KEIXY 8VEINSSON
823 Wall St. Wlnnlpeg
Juat North oí Portage Ave.
SPruoe 4-16S4 — SPruoe 4-16S4
A. S. BARDAL LTD.
rUNIRAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkklstur og annast um flt-
farlr. Allur fltbúnaBur s& beztt
StofnaB 1894 SPruce 4-7474
P. T. Guttormsson
BARRISTtR. SOLICITOR,
NOTARY PUBLIC
474 Orela Kacheaee BM§.
147 Unberd ftreet
Offloe WHltehaU 3-482B
Residence GL 3-1820
SPruce 4-7866 ESTIMATE8
FRKE
J. M. Ingimundson
Reroof Aphalt Shlnglee. Roof
repalre. inatall venta, alumlnum
wlndowe, doora. J. Ingimundaon.
SPruce 4-7866
632 Simooe St. Wlnnlpeg S, Man.
Thorvaldson, Eggertson,
Saunders & Mauro
Barrirterí and Solictfor*
200 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage and Garry St.
WHltehaU 2-8291
S. A. Thorarinson
BarrUter ond BoUdtor
2nd Floor Orown Trnnt Bldg.
S64 MAIN ST.
Offlce WHltehall 8-7061
Residence HU 9-6488
Dunwoody Saul Smiih
& Company
Chartered AccovntanU
Winnipeg, Toronlo, Vancouver.
Ft. William, Kenora, Fl. Fran-
cet, Dryden, Atikokan, Oak-
ville, CornwaU, Welland.
The Business Clinic
Anna Larusson
Offlce at 207 Atlantlc Ave.
Phone JU 2-8648
Bookkeeplng — Income Tax
Insuranoe
Dr. ROBERT BLACK
SérfrsClngur 1 augna, eyrna, nef
og h&lssjflkdömum.
401 MKDIOAD ARTO BIiDO.
Graham and Kennedy Bt.
Offlce WHltehall 2-8861
Retidence: HU 9-3794
híðum, er gott að athuga háttu
þeirra. Sérstaklega er lit i
lappneski björninn skemmti-
legur. Hann er dvergvaxinn
með totu á trýninu, afar kát-
legur og geðgóður.
Mbl., 25. febr.
Minnist
BETEL
í erfðoskrám yðar
G. T. Jonasson. Pres. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
TRESH AND FROZEN TISH
16 Martha St WHltéhall 2-0021
PARKER, TALXJN. KRIST-
JANSSON, PARKER AND
MARTIN
BARRISTERS — SOUCITOBS
Ben C. Parker. Q.C.
(1910-1951)
B. Stuart Parker. Cllve K. Tallln,
Q.C., A. F. Krlstjansson, Hugh B.
Parker, W. Steward Martin
5th n. Canadian Bank of Commerce
Bullding, 389 Maln Street
Winnipeg 2, Man. WHltehall 2-3581
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managlng Dlrector
Wholesale Dlstrlbutors of Fresh and
Frozen Ftsh
311 CHAMBERS STREET
Offlee: Bes.:
SPruee 4-7451 BPruce 2-3617
DE GRAVES, EGGERTSON
8t EGGERTSON
Barriiten ond Sollclton
WILFRED R. DE GRAVES, BA., LL.B.
ERLINGUR K. EGGERTSON, BA„ LL.B.
GUNNAR O. EGGERTSON, B.A., LL.B.
500 Power Building, Purtage ot
Voughon, Wlnnlpep 1.
PHONE WH 2-3149.
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Controctor & Bullder
•
Office ond Worehouse:
1410 ERIN ST.
Ph. SP 2-6860 Res. Ph. SP 2-1272
Off. SP 2-9509 • SP 2-9500
Res. SP 4-6753
Opposite Moternlty Hospitol
Nell's Flower Shop
700 Notxe Dame
Wedding Bouquots - Cut Ftowors
Funerol Detlgns - Corsoges
Bedding Plonts
S. L. Stefonsson — JU. 4-722«
Mn. Albert J. Johnton
ICELANDIC SPOKEN
GUARANTEED WATCH & CLOCK
REPAIRS
SARGENT J EWELLERS
' H. NEUFELD, Prop.
Wotches, Dlomonds, Rings, Clocks,
Sllverware, China
884 Sorgent Ave. Ph. SU 3-3170
Inveslors Syndicale
of Canada, Limited
\ H. Brock Smith
Manager, Winnipeg Region
280 Broadway Avo. WH 3-0361