Lögberg-Heimskringla - 29.09.1960, Qupperneq 1
Högberg - ^eimstmngla
Stofnað 14. jan., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
74. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 29. SEPTEMBER 1960
NÚMER 37
Áttræður
Séra Kristinn K, Ólafsson, | sonar biskups, „Ævi Jesú“, á
sem nú er búsettur í Man-
chester, Iowa, á áttræðisaf-
mæli á fimmtudaginn kemur,
þann 28. sept. Hinn 26. júní
s. 1. hafði hann verið prestur
í 56 ár, og þjónaði hann þá enn
prestakalli sínu að Rock City,
111. Hann sat á kirkjuþingi í
Argylebyggð s. 1. vor, og flutti
þar langan og fróðlegan fyrir-
lestur, sem brátt mun birtast
á prenti, samkvæmt ráðstöf-
un þingsins. Annars er séra
ensku, er þar um mikið bók-
menntalegt afrek að ræða.
Þótt séra Kristinn hafi yfir-
leitt verið lánsmaður um
langa ævi, hefir hann einnig
mætt þungum raunum. Hann
hefir misst tvær eiginkonur
og tvö börn sín uppkomin.
Lögberg-Heimskringla ósk-
ar afmælisbarninu til ham-
ingju og þakkar honum í nafni
Vestur - fslendinga fyrir vel
unnin störf.
Flutti magnaða ræðu
Séra Krislinn K. Ólafsson
Kristinn löngu þjóðkunnur
uieð Islendingum sem kirkju-
legur leiðtogi, snjall ræðu-
*naður, og á allan hátt merk-
ur prestur. Hann var forseti
felenzka-lúterska kirkjufélags-
ins í tuttugu ár, og þótti mik-
ið sópa að honum í því emb-
ætti. Foreldrar hans voru
Kristinn Ólafsson bóndi í
Uarðarbyggð í Norður-Dakota
og kona hans, Katrín Ólafs-
dóttir (Guðmundssonar). Á ís-
landi áttu þau síðast heima að
Víðigerði í Eyjafirði, og komu
þaðan vestur um haf árið
1873, en til Garðar fluttust
þau árið 1880; er séra Kristinn
fæddur og uppalinn þar. Fimm
ára gamall lærði hann að lesa
íslenzkd í foreldrahúsum, og
fítnm eða sex íslenzka stíla
skrifaði hann, og var sóknar-
Presturinn fenginn til að leið-
rétta þá. Aðra tilsögn fékk
hann ekki í íslenzku. Þó er
það alkunnugt, að hann hefir
uianna bezt vald á íslenzku
rnáli, bæði í ræðu og riti. Svo
haldgóð var íslenzka alþýðu-
menntunin í þá daga, en í
þessu tilfelli var nemandinn
líka óvenjulega bráðgjör og
skarpur til náms. Var allur
námsferill hans glæsilegur.
Auk prestsembætta á ýmsum
stöðum, hefir hann starfað
sem kennari við prestaskóla
og skrifað mikið um guðfræði-
leg efni. Hann hefir nú nýlega
lokið við að þýða hina merku
hók Ásmundar Guðmunds-
Á mánudagskvöldið flutti
forsætisráðherra K a n a d a ,
John Diefenbaker, ræðu á
þingi S.Þ., sem lengi verður
minnzt sem einnar hinnar
hreinskilnustu og skorinorð-
ustu ræðu, sem flutt hefir ver-
ið á þeim vettvangi.
Þegar það varð kunnugt, að
Nikíta Krushchef væri vænt-
anlegur á 15. þing S.Þ.,
kveikti það vonir á ný um að
aftur yrðu tilraunir gerðar til
að tryggja frið í heiminum.
Þessu vildu menn trúa, þrátt
fyrir það þótt Krushchef hefði
sprengt upp Parísarfundinn í
maí og léti síðan fulltrúa sína
á tíu þjóða afvopunarráð-
stefnunni í Geneva ganga af
fundi í júní, áður en Banda-
ríkin gátu lagt fram sínar til-
lögur.
Fyrsta meginræðan á þing-
inu var flutt af Dwight Eisen-
hower á fimmtudaginn og bar
ræða hans vott um sáttfýsi,
vilja til að veita Sameinuðu
þjóðunum og framkvæmdar-
stjóra þeirra aðstoð á allan
hátt í starfinu og vilja til að
hefja á ný tilraunir í þá átt
að tryggja friðinn.
Á föstudaginn flutti Nikíta
Krushchef yfir tveggja klst.
ræðu og var mikill hluti
hennar áróður um nýlendu-
ríkin svokölluðu og Bandarík-
in. Svo veittist hann harka-
lega að Hammarskjöld fram-
kvæmdarstjóra S.Þ. og vildi
afnema embætti hans og láta
þriggja manna framkvæmdar-
stjórn koma í staðinn: einn
frá kommúnistum, annan frá
Ri. Hon. John Diefenbaker
vestrænum þjóðum og hinn
þriðja frá hinum svokölluðu
óhlutdrægu Asíu- og Afríku-
þjóðum. Auðskilið var, fyrst
hann gat ekki náð S.Þ. á sitt
Ragnar Stefánsson
Bróðir kær, mér sæmir lítt að sitja,
og segja ei neitt þá stirðnuð er þín hönd.
Því óbætta þú vildir ekki vita,
þá vini er snert þín höfðu tryggðabönd.
Er gyðja vorsins leysti lón og engi,
úr læðing vetrar þíddi sunnuhlíð.
Þú mundir alltaf unga smaladrengi,
sem áttu samleið stutta bernskutíð.
Þú dáðir þá, sem dýpst og fegurst sungu
og dreymdu um þroskað líf í mannsins sál.
Því ljóðadísin lagði þér á tungu
þá list að skilja þeirra huliðsmál.
Þú föðurlandi og frelsishetjum unnir,
og fýsti að skilja lífsins dularþrár.
Að hræsna fyrir öðrum ei þú kunnir,
en oft er sannleikurinn vinafár.
Hvíldu rótt við faðminn fósturjárðar,
fegurð lands og þýðan lækjanið.
Inn til dals og út til Húnafjarðar
útsýn blasi sjónum þínum við.
G. St.
band, þá ætlaði hann sér að
reyna að koma þessari friðar-
stofnun fyrir kattarnef.
Á mánudagsmorgun mælti
Mr. Hammarskjöld nokkur
orð til fulltrúa og sagði þeim,
að það væri ekki vegna sinnar
eigin framtíðar, heldur vegna
framtíðar S.Þ., að hann vildi
benda þeim á, að ef þeir sam-
þykktu tillögu Krushchefs,
myndi það sennilega marka
endalok S.Þ. sem virkrar
stofnunar. Allflestir fulltrú-
anna hylltu Mr. Hammar-
skjöld með miklu lófataki ut-
an Krushchef og hans fylgilið,
þeir börðu hnefunum svo fast
á borðin, að allt lék á reiði-
skjálfi, svo aldrei hefir annað
eins sézt þar á þingi. Hinn
prúði og hægláti Nehru, for-
sætisráðherra Indlands, sem
nýkominn var á þing, sneri
sér við og horfði undrandi og
agndofa á þessi ólæti á þess-
um virðulega stað.
Þann morgun kom og röðin
að Mr. Diefenbaker, og var
hann fyrstur af vestrænuní
fulltrúum til að svara árásar-
ræðu Krushchefs. Hann benti
honum meðal annars á, að síð-
an á stríðsárunum hefðu
Frakkland og Bretland 'veitt
yfir 30 af fyrrverandi nýlend
um sínum fullkomið sjálf-
stæði og skilið þannig við
þær, að þær hefðu ekki ein-
ungis verið viðbúnar að taka
við sjálfstjórn, heldur halda
áfram vinsamlegu sambandi
sem fyrr við Bretland og
Frakkland. Hins vegar hefðu
Sovétríkin á sama tímabili
svipt margar þjóðir sjálfstjórn
og innlimað þær í ríki sitt, og
taldi hann upp' þessar þjóðir:
Pólland, Tékkóslóvakíu, Rú-
meníu, Albaníu, Búlgaríu,
Latvíu, Estoníu og margar
fleiri ;og minntist hann sér-
staklega á hvernig Krushchef
bældi niður frelsisuppreisn
Ungverja með vopnavaldi
1956. Skoraði hann á Krush-
chef að leysa þessar þjóðir úr
ánauð.
Mr. Diefenbaker kvað til
lögu Mr. Krushchefs um
þriggja manna framkvæmdar
stjórn S.Þ. heimskulega og í
þeim tilgangi gerða að gera
stofnunina óvirka, því ólík-
legt væri að þeir gætu oi'ðið
sammála um nokkrar fram
kvæmdir, eftir því að dæma
hve oft Sovétríkin hefðu not-
fært sér neitunarvald sitt
Öryggisráðinu.
Margt fleira sagði Mr. Dief-
enbaker Mr. Krushchef, sem
mál var til komið, að hann
fengi að heyra, og er ólíklegt
að Mr. Diefenbaker verði boð-
ið til Moskvu fyrst um sinn,
íslenzkur prestur
í Selkirk
Séra Wallace M. Bergman,
sem þjónað hefir lútérska
söfnuðinum í Minneota síðan
1958, hefir nýlega gerzt prest-
ur íslenzka lúterska safnaðar-
ins í Selkirk og verður form-
lega settur í það embætti af
forseta íslenzka lút. kirkjufé-
lagsins, séra Eric Sigmar,
sunnudaginn 2. október.
Séra Wallace er sonur Mr.
og Mrs. G. F. Bergman, sem
fyrrum áttu heima á Gimli og
í Winnipeg, en eru nú búsett
Victoria, British Columbia.
Séra Wallace er fæddur í Ár-
borg, en ólst upp á Gimli og
naut þar miðskólanáms. Árið
1955 lauk hann Bachelor of
Arts prófi við Manitobahá-
skólann og stundaði síðan
nám við Northwestern Lu-
theran Theological Seminary
og útskrifaðist þaðan 1958.
Hann er kvæntur Helen M.
Cairns frá Riverton (íslenzk í
móðurætt). Þau eiga tveggja
ára dóttur, Karen Diane.
Níræður
Skúli Sigfússon
Næstkomandi laugardag, 1.
október, verður Skúli Sigfús-
son, fyrrverandi þingmaður,
níræður. Vinir hans og aðdá-
endur í kjördæmi hans hafa
ákveðið að halda þessum
aldna merkismanni samsæti í
tilefni þessara tímamóta. Af-
mælishófið verður haldið í
samkomuhúsinu á Lundar
sunnudaginn 2. október, kl.
1.30 e. h. Allir þeir, sem taka
vilja þátt í þessu samsæti, eru
velkomnir. Umsögn um þenn-
an ágæta Vestur-íslending og
fregnir af samsætinu verða
birtar síðar.
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
Eina íslenzka vikublaðið í
Norður Ameríku
Slyrkið það,
Kaupið það