Lögberg-Heimskringla - 21.03.1963, Side 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 21. MARZ 1963
Úr borg og byggð
Fyrirlesíur
Hinn kunni jarðfræðingur
dr. Sigurður Þórarinsson flyt-
ur fyrirlestur um Öskju og
Dyngjufjöll á vegum Þjóð-
ræknisdeildarinnar „Frón“
n.k. mánudag (25. marz) kl.
8.30 e.h. í nýja salnum í Fyrstu
Lútersku kirkju á Sargent og
Victor. Einnig mun doktorinn
sýna skuggamyndir (slides) og
stutta kvikmynd.
Þar sem allmargir áhuga-
menn um jarðfræði, bæði frá
Manitobaháskóla og annars
staðar úr borginni hafa farið
þess á leit við stjórnarnefnd
,,Fróns“ að fá að sækja téðan
fyrirlestur, hefir dr. Sigurður
góðfúslega fallizt á að flytja
hann á ensku.
Frónsmenn og aðrir eru
beðnir að fjölsækja þennan
fyrirlestur. Aðgangur er
ókeypis, en samskot verða
tekin. Að loknum fyrirlestri
verður borið fram kaffi í neðri
sal kirkjunnar.
Stjórnarnefnd Fróns.
☆
Smorgasbord sponsored by
the Women’s Auxiliaries of
First Lutheran Church, 580
Victor Street, in aid of the
Parish Hall Building Fund,
will be held in the auditorium
of the church and in the
Parish Hall, on Saturday
March 23 from 5 p.m. to 8 p.m.
☆
Leiðrétling
Um leið og við þökkum
hjartanlega íslendingafélag-
inu í Chicago fyrir að senda
okkur sjö nýja áskrifendur
biðjum við afsökunnar á, að
línur brengluðust í vísú
Davíðs Stefánssonar, Þorra-
blót, er birtist í hátíðarblaði
L.-H. 31. janúar, en hún er
svona:
Hljóðs bið eg þá,
sem mig heyra og sjá.
Blóta vilja enn
hinir beztu menn.
Því skal þetta mót
vera Þorrablót.
Blessi ginnhelg goð
vort gestaboð.
☆
Athygli er hér með dregin
að því að nokkur eintök af
hinni vinsælu bók Sigur um
Síðir eftir séra Sigurð Ólafs-
son hafa verið send hingað frá
Islandi. Þar sem upplagið er
sent var í desember mánuði
seldist strax. Æði margar
pantanir eru fyrir hendi og
upplagið sem hér er, er mjög
takmarkað, væri því heppilegt
fyrir þá er hafa hug á að
eignast bókina að senda pant-
anir sem fyrst. Verð í bandi
$3.00.
Umsjón á sölu hafa:
Mrs. H. A. Austman
Box 317 Arborg, Man.
Mr. S. O. Bjering
322 Borebank St., Winnipeg
Mr. Gestur Johannsson
Box 523 Selkirk, Man.
Dánarfregnir
Thorsteinn O. Thorsteinson,
109 Riverbend Cresc., St.
James, lézt 13. marz 1963 á
Almenna spítalanum í Winni-
peg, 65 ára að aldri. Hann var
fæddur að Willow Island,
Man., en átti heima í Winni-
peg sl. 40 ár; hann var Loco-
motive Engineer hjá Can.
National Raliways. Hann lifa
kona hans, Berta; tvær dætur,
Mrs. Saul Bissky (Violet) í
Edmonton og Mrs. Gordon R.
Begley (Edythe) í Tacoma,
Wash.; átta barnabörn; einn
bróðir Eyvi Thorsteinson í
Westbourne, Man. og tvær
systur, Mrs. Thomas Adams í
Vancouver og Miss Bina Thor-
steinson í Portage la Prairie.
Útförin frá Bardal; séra Philip
M. Pétursson jarðsöng.
☆
Bjarni M. Loftson, níræður,
andaðist 14. marz 1963 að
Lundar, Man. Hann lætur
eftir sig fimm dætur, Mrs. F.
Einarson, og Mrs. M. Bjorn-
son að Lundar, Man., Mrs. F.
Treanor í Cooks Town, Ont.,
Mrs. M. Thompson í Vancou-
ver og Mrs. B. Dudar í Winni-
peg; þrjá syni, Barney, Mundi
og Konrad, allir búsettir í
Winnipeg; 24 barnabörn. Út-
förin frá lútersku kirkjunni
að Lundar.
☆
Kristján Jóhannes Björnson,
79 ára, lézt 16. marz á Gimli
spítalanum. Hann var fæddur
í Riverton, bjó þar alla sína
æfi, var jarðsunginn frá
lútersku kirkjunni og lagður
til hvíldar í grafreit byggðar-
innar. Hann lifa tveir bræður,
Emil og Alexander; tvær syst-
dr, Mrs. Jónína Rocket og
Mrs. G. E. Johnson (Sigríður)
öll búsett í Riverton; tvær
uppeldissystur, Mrs. Emily
Helgason og Mrs. Guðbjörg
Gray, báðar í Winnipeg.
☆
Stefán Jóhannson (Johnson),
93 ára, dó að Deer Lodge spít-
alanum 17. marz 1963. Hún-
vetningur að ætt. Hann átti
lengi heima í Glenboro, en
síðan 1920 í Winnipeg. Hann
var í herþjónustu í fyrri
heimsstyrjöldinni og missti
í þeim hildarleik son sinn.
Hann lætur eftir sig tengda-
son, Lorne Lyndon og einn
dótturson, Ralph. Útförin frá
Bardals, séra Philip M. Pét-
ursson jarðsöng.
☆
Miðvikudaginn 27. febrúar
1963, andaðist á elliheimilinu
„Stafholt“, að Blaine, Wash.
öldungurinn Sigurjón Björns-
son, rúmlega 90 ára að aldri,
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska Idrkfa
St. V. J. Eylands. Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku: kl. 9.45 f. h.
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
ágætur félagsmaður og sann-
ur íslendingur.
Hann var jarðsunginn, laug
ardaginn 2. marz frá útfarar-
stofu McKinney, Blaine,
Wash., að viðstöddu mörgu
fólki.
Séra Guðmundur P. John-
son og séra Albert E. Krist-
jánsson, töluðu yfir moldum
þessa merka sæmdarmanns.
Hans verður nánar minnst
síðar í Lögberg-Heimskringlu.
G.P.J.
☆
Civil Defence says: —
If you are evacuated yóu
will be sent to a selected Wel-
fare Centre. It may suit you
better to go to friends or rela-
tives. Make these arrange-
ments now.
Fréttir frá íslandi
Prá bls. 1.
Flóð í Blöndu u
Blanda í Langadal hefir að
undanförnu flætt mjög yfir
bakka sína, og hefir öll um-
ferð um dalinn teppzt af henn-
ar völdum.
☆
Merkur borgari látinn
Nýlega er látinn Hallgrímur
A. Tulinius stórkaupmaður í
Reykjavík. Hann var fæddur
á Eskifirði 14. febrúar 1896 og
því rúmlega 67 ára gamall.
☆
Merks vísindamanns
minnzt
Nýlega var afhjúpuð á til-
raunastöðinni á Keldum mynd
úr eir, gerð af Siglarjóni Ólafs-
syni af dr. Birni heitnum Sig-
urðssyni frá Veðramóti og
stofnanda stöðvarinnar, en dr.
Björn var einn af fremstu
vísindamönnum í vírussjúk-
dómum, sem Islendingar hafa
nokkurn tíma átt. Styttan var
---------------------------' >
afhjúpuð sunnud. 3. marz, en
sá dagur var afmælisdagur dr-
Björns og þann dag hefð|
hann orðið fimmtugur, hefð'
honum enzt aldur.
Ekki er ráð nema í tíma se
tekið.
Árnaðaróskir
Undirriiaðir hafa seni Lögberg-Heimskringlu kveðj-
ur og afmælisgjafir í lilefni 75 ára afmælis Lögbergs.
Heill sé beim!
The Sigmars,
Camas, Kelso and Vancouver
Dr. B. T. H. Marteinsson,
> 925 West Georgia Street, Vancouver, B.C.
Mrs. Leonard Olson,
519 South Third Street, Stillwater, Minnesota
Metropolifan Corporation of
Greater Winnipeg
CIVIL DEFENCE
For the past several weeks this news-
paper has been publishing Civil Defence
hints and is continuing to do so. This has
been done as a public service, which is
gratefully acknowledged.
Have you taken advantage of these
hints and made a survival plan for your
family?
Have you obtained your copy of
"Eleven Steps to Survival" and other
pamphlets?
If not, you may do so now by contact-
ing:
METROPOLITAN CIVIL DEFENCE
1767 PORTAGE AVENUE, ST. JAMES, WINNIPEG 12.
TUrner 8-2351
ÞJÓNAR Á
SVO MARGAN HÁTT
The Red Cross
leitar til yðar
Mannúðarstörf Red Cross eru komin upp á
örlæti yðar. Dollarar yðar veita og halda
uppi hinni nauðsynlegu Red Cross þjónustu
og skipulagningu í yðar umhverfi.
Á þessu ári — hugsið um á hve margan
hátt Red Cross aðstoðar yður og nágranna
yðar — og ráðgerið svo fjárframlag yðar
og loforð eftir því sem efni yðar leyfa.
Rausnarleg fjárveiting mun gera svo mikið
fyrir svo marga á árinu 1963.
Red Cross
þorfnast
aðstoðar yðar nú