Lögberg-Heimskringla - 23.05.1963, Qupperneq 1
Högberg - 2|eintékrtngla
Stofnað 14. ]an., 1888
Slofnuð 9. sept., 1886
77. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. MAÍ 1963
NÚMER 21
Góður gestur heiman um haf
Ríkisháskólinn í Norður-
Dakota (University of North
Dakota) í Grand Forks, og við
Islendingar á þeim slóðum og
norður í íslendingabyggðinni,
áttum nýlega góðum gesti að
fagna heiman af ættjörðinni,
þegar Árni Kristjánsson pí-
anóleikari, hljómlistarstjóri
íslenzka Ríkisútvarpsins í
Reykjavík, dvaldi nokkra
daga í Grand Forks. Var hann
þar að öðrum þræði á vegum
ríkisháskólans, en annars
gestur á heimili íslenzku
ræðismannshjónanna þar í
borg, dr. Richards og Mar-
grétar Beck.
Árni hefir síðan snemma í
apríl ferðast um Bandaríkin í
boði menntamálamenningar-
deildar Utanríkisráðuneytis
þeirra, til þess að kynnast
amerísku hljómlistarlífi' á
breiðum grundvelli, á háskól-
um og í öðrum menntastofn-
unum, hljómsveitum, kennslu
og útvarpsstarfsemi á því
sviði. Hann kom til Grand
Forks miðvikudagskvöldið 8.
maí frá háskólanum í Indiana
(University of Indiana),
Bloomington, Indiana, en þar
er merkur hljómlistarskóli.
Fimmtudaginn 9. maí var
Árni heiðsursgestur í hádegis-
verði á Ríkisháskólanum í N.
Dakota. Rektor háskólans, dr.
George W. Starcher, hafði
samkomustjórn með höndum,
en meðal þátttakenda voru dr.
William R. Boehle, forseti
hljómlistardeildar háskólans,
flestir aðrir háskólakennar-
arnir í þeim fræðum, dr. R.
Beck, og próf. William A.
Sigurdson, sem kennir vél-
fræðiteikningu á háskólanum.
Engar ræður voru haldnar, en
undir borðum svaraði Árni
greiðlega fjölda spurninga um
hljómlist og útvarp á íslandi.
Að loknum hádegisverðin-
um kynnti Árni sér starfsemi
hljómlistardeildar og útva
stöðvar háskólans (Station
KFJM), og ræddi við yfir-
menn þeirra. Átti fréttastjóri
útvarpsins stutt viðtal við
hann, er útvarpað var seinna
sérstaklega var beint til ís-
lenkra hlustenda, en þeir erc
margir í norðurhluta ríkisins.
Á fimmtudagskvöldið höfðc
íslenzku ræðismannshjónir
boð inni til þess að fagna hin-
mm.
síðarnefnda er jafnframt sjón-
varpsstöð, og kynnti sér
sér í lagi hljómlistarflutning
þeirra. Báðar gátu stöðvar
þessar ítarlega um heimsókn
hans í fréttum sínum; einnig
komu þeir, hann og R. Beck,
fram í sjónvarpi hinnar síðar-
töldu. Á föstudagskvöldið var
móttaka á heimili íslenzku
ræðismannshjónanna; þ a r
voru rektor og fleiri yfirmenn
háskólans, allmargt Islend-
inga og Norðmanna, meðal
gestanna forystufólk í hljóm-
listarlífi Grand Forks borgar.
Á laugardagsmorguninn 11.
maí lá leiðin norður í Islend-
ingabyggðina. I fylgd með
gestinum frá íslandi voru
ræðismannshjónin og William
Sigurdson prófessor. Var ekið
rakleiðis heim til foreldra
hans, Arinbjarnar Sigurdson
og konu hans, er búa góðu búi
í grennd við Hensel, N.Dak.
Voru móttökurnar þar fram-
úrskarandi í alla staði, og
meðal annars ýmsir íslenzkir
réttir á borð bornir. Var
skemmtilegt og fróðlegt að
ræða við Arinbjörn bónda um
búskap og sveitamál, en hann
er maður greindur og glögg-
skyggn í senn, og íslenzkur
vel.
Eftir að Vídalínskirkja í
nágrenni Hensel hafði verið
skoðuð, en hún er myndarleg
sveitarkirkja og vel við hald-
ið, var ekið til Mountain í
heimsókn á íslenzka elliheim-
ilið „Borg“ 'þar í bæ. Þótti
Árna það vera með miklum
myndarbrag og aðbúnaður
allur prýðilegur.
Heilsað var upp á vistfólk
það, er til náðist, og var sér-
staklega ánægjulegt að geta
litið inn til frú Guðríðar
Thorfinsson (ekkju Þorláks
Thorfinsson), en hún hafði
stuttu áður átt 100 ára afmæli;
Framhald á bls. 2.
Fréttir fró íslandi
íslenzkir fiskimenn
skara langl framúr
Islendingar brautryðjendur
á sviði veiðitækni — segir í
skýrslu frá S.Þ.
Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
FAO, hefur skýrt frá því, að
Islendingar veiði, borði og
selji meiri fisk á hvern íbúa,
en nokkur önnur þjóð í ver-
aldarsögunni.
Árið 1961 veiddu íslending-
ar 703 þúsund tonn af fiski.
Það eru um það bil fjögur og
hálft tonn á hvern Islending.
Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunin skýrir frá því, að
íslendingar flytji út 99 af
hundraði af fiskafla sínum,
sem sé bezta tegund af þorski,
ýsu, síld, kola, lúðu og karfa
eða „red fish“, sem sé sérstök
íslenzk fisktegund.
Árið 1961 hafi þjóðin fengið
75 millj. og 67 þús. dollara
fyrir fiskafurðir sínar. Islend-
ingar séu því 14. í röðinni af
þjóðum heimsins, hvað snerti
heildaraflamagn og 6. í röð-
inni miðað við útflutnings-
tekjur af fiski.
Hinir 6000 íslenzku fiski-
menn afla meira en 115 tonn
af fiski hver á ári. I Banda-
ríkjunum er meðaltalið um 25
tonn og er það talið mjög hátt.
Meðalafli hvers fiskimanns í
heiminum á ári er minni en
3 tonn.
Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunin segir að íslendingar
séu fremstir þjóða heimsins
við að reyna og nota ný og ný-
tizkuleg veiðarfæri og tæki.
Að baki hverjum íslenzkum
fiskimanni sé 10 þús. dollara
fjárfesting í sterkbyggðasta
fiskiflota heimsins.
Fró Vancouver, B.C.
8. maí síðastliðin hélt
Karlakór íslendinga í Van-
couver sína árlegu skemmti-
samkomu í neðri sal lútersku
kirkjunnar, undir stjórn Mr.
Sigurbjörns Sigurðsonar. Veð-
ur var ágætt þetta kvöld og
margt fólk samankomið.
Mr. Herman Eyford, forseti
kórsins setti samkomuna með
stuttri ræðu og bauð alla vel-
komna. Því næst kom Mr.
Sigurðson fram og kallaði á
menn sína upp á pallin, og var
þá byrjað með því að syngja
„O Canada“, og „Ó Guð vors
lands“. Að því loknu sungu
kórmenn eftir fylgjandi lög:
„Sveinar kátir syngið; Nú
máttu hægt; Þey, þey og ró,
ró; Tárið; Lífið hún sá í ljóma
þeim.“
Næst á prógraminu var
„Thunderbird Barber Shop
quartette“, þaulæfðir söng-
menn, sem sungu nokkur lög
á ensku.
Svo kom séra Ingþór Ind-
riðason fram og söng þrjú
lög: „íslands lag; Heiðar rós-
in; og Sólskríkjan."
Næst skemmti hljómsveit
„string ensemble" — H. Ford-
ham, E. Anderson, J. Jóhann-
son, Chris og Herman Eyford,
og spiluðu þeir nokkur lög.
Einnig spilaði H. Tordham
fíolín sóló. Síðan kom kórinn
aftur fram og söng þá: „Hvöt;
Kveðja hermannsins; Kirkju-
hvoll; Aleinn reika ég; Skarp-
héðinn í brennunni."
Mér fannst prógramið allt
bara ágætt, og hin bezta
skemmtun. Ég veit að mér er
alveg óhætt fyrir hönd íslend-
inga í Vancouver að þakka
Mr. Sigurðson og kórnum
innilega fyrir stundina, og
fyrir ótal margar ánægju
stundir sem þeir hafa veitt
okkur með söng sínum. Það
er ekki svo lítið verk að koma
saman og læra og æfa al-ís-
lenzkt prógram, sem hér er
um að ræða; fyrir menn sem
vinna alla daga, og margir
þeirra hvorki skilja né lesa
íslenzkt mál. Heiður og þökk
sé þeim!
Mér fynnst það mætti kalla
það góða þjóðrækni. Samskot
tekin á þessari samkomu
gengu til kirkjunnar. Konur
kórmanna báru fram kaffi-
veitingar fyrir alla.
Á sunnudaginn 12. maí,
komu þeir svo Mr. Sigurðson
og kórmenn á Höfn, og end-
urtóku prógramið. Þetta var
á „mæðradaginn“, og í því til-
efni las M. K. Sigurðson hið
fagra kvæði Davíðs Stefáns-
sonar „Móðir mín“. Já, kvæð-
ið er fallegt, og þegar Mr.
Sigurðson les það, þá er sem
viðkvæmir strengir hjartans
titri af hrifningu, svo áhrifa
mikill er lestur hans. Hafðu
þökk fyrir, og þú gleymir
ekki íslenzkunni vinur, þó að
þú verðir í Tokýó í nokkra
mánuði, og verðir þá að nota
það rnál sem sú þjóð talar —
og þú nú hefur lært. Við mun-
um öll sakna þín á meðan þú
ert í burtu. I lok samkom-
unnar afhenti söngstjórinn
Mrs. McDowell forstöðukonu
Hafnar eitt „long play record“
með söng kórsins á.
Þetta kvöld messaði séra
Ingþór Indriðason á Höfn,
John Henrickson var við-
staddur og söng einsöng, „A
prayer for Mother" og „Bless
this House“, öllum til gleði.
Gestkomandi á Höfn meðal
margra fleiri þennan dag, var
Miss Sigríður Hjartarson frá
Gimli, Man., forstöðukona
Betel heimilisins.
Guðlaug Jóhannesson.
Taka sæti í ritnefnd Lögbergs-Heimskringlu
'y l11 ■>' m f I £ ^jjgr
Dr. Karl Strand
Jakob F. Kristjánsson
Jóhann G. Jóhannsson
Stjórnarnefnd Icelandic
Canadian Club
Mjög fjörugt og sigursælt
starfsár hefir nú runnið inn í
sögu Icelandic Canadian Club.
Það kom fram í skýrslum er
lagðar voru fram á ársfundi
félagsins 20. maí.
1 stjórnarnefnd voru kosn-
ir: Fyrrverandi forseti, Gunn-
ar Eggertson; forseti, A. R.
Swanson; vara forseti, Grettir
Eggertson; skrifari, Mrs. H. F.
Danielson; féhirðir, Helgi
Olsen. Aðrir í nefndinni eru:
W. Finnbogason, Helgi John-
son, Mrs. Lara B. Sigurdson,
Mrs. V. J. Thorlakson, Caro-
line Gunnarsson, Mrs. W.
Kristjansson, Judge W. J.
Lindal, T. J. Beck. —C.G.