Lögberg-Heimskringla - 23.05.1963, Síða 5

Lögberg-Heimskringla - 23.05.1963, Síða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. MAÍ 1963 5 gjaEEiaEISMfilSEJSMSMSEEMSEMSEJSISISJaiiíMSEEJSJBEMaEMSMSEiaiEMtJ^ Bókaþáttur Próf. Haraldur Bessason: Haugaeldar ekki sízt þegar þess er gætt að öll urðu börnin þjóðkunn meðal Islendinga, bæði aust- an hafs og vestan. Af þeim hópi lifa nú aðeins þeir bræðurnir, Gísli í Winni- peg og séra Sigurjón á Is- landi. Síðasti kafli bókarinnar „Formálsorð bóka“ er frá ýmsum tímum, og m. a. rituð fyrir bókum, sem höfundur hefir sjálfur gefið út. Hér hefir aðeins verið grip- ið niður af handahófi í stóru verki. Heildarsvipur þessa verks ber höfundinum fagurt vitni. Enda þótt hann dveld- ist í fjarska við ísland, rækt- aði hann sínar íslenzku erfðir, sneið af og bætti við að hætti þeirra manna, sem sjá fósturjörðina og eigin æsku úr fjarska. Hér er á ferðinni maður, sem hefir á langri ævi verið sífellt að vaxa og hálf- níræður skrifar hann ef til vill sitt bezta verk. Slíkum mönnum er gott að kynnast, enda þótt þeir séu alltof fá- gætir. Ritgerð dr. Stefáns Einars- sonar um höfundinn við bók- arupphaf er einkar vönduð. Theodora Thoroddsen: Auð sæti Gísli Jónsson frá Háreks- stöðum, Ritsafn — Bóka- útgáfan Edda, Akureyri, 1962. Hér er á ferðinni eitt af vönduðustu ritverkum, sem ég hefi lengi séð, fullar fjögur hundruð og þrettán blaðsíður að stærð og þó einni betur. í bókinni eru hvorki meira né minna en þrjátíu og sjö greinar og hefir höfundur skipt þeim í deildir sem hér segir: I Tónskáld; II Ritgerðir og erindi; III Samtíðarmenn lífs og liðnir; IV Formálsorð bóka. Flestar hafa ritgerð- irnar áður birzt hér vestra. Höfundinn þarf ekki að kynna. Hann hefir í meira en tvær mannsævir (miðað við meðalaldur um síðustu alda- mót) verið í hópi ritfærustu manna hér vestra og lagt mikið af mörkum bæði í bundnu máli og óbundnu. Hjá mörgum kynni það að vera talið til elliglapa að gefa út stóra bók þremur árum fyrir níræðisafmælið. Ekki verður þó höfundi umrædds verks borið slíkt á brýn. Er skemmst frá því að segja, að hann sómir sér vel sem lausa- málshöfundur, eins og raunar ‘var vitað. Að öllum greinun- um er fengur, og þær eru ekki einungis prýðilega ritaðar, heldur stórfróðlegar og bera vott um víðtæka menntun, sem höfundur hóf snemma að afla sér og hefir smábætt við síðastliðin áttatíu ár. Ég er ófróður um tónlist, og einmitt þess vegna er ég Gísla Jónssyni þakklátur fyrir þátt- inn um tónskáldin. Það er og e k k e r t launungarmál, að fyrsta grein þess þáttar, sem fjallar um dr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson er meðal beztu greina sinnar tegundar, sem samdar hafa verið á ís- lenzka tungu. Að baki þeirr- ar ritgerðar liggur mikil vinna. Hefir höfundur sýni- lega verið mikið í mun að láta fornvin sinn, dr. Svein- björnsson ekki liggja lengur óbættan hjá garði, en orðið vár á aldarafmæli þess síðar- nefnda árið 1947. Allir hugs- andi íslendingar mega vera höfundi þakklátir fyrir þessa grein, því að með henni reisti hann höfuðskörungi íslenzkr- ar tónlistar þann minnis- varða, sem ekki verður um bætt. Þá er og að finna í téðum þætti viðamiklar greinar um Schubert, Grieg og Mendels- sohn, og þátturinn um Vestur- íslenzku tónskáldin er grein- argott yfirlit um það framlag vestur-íslenzkrar menningar, sem er miður kunnugt heima á íslandi. Annar þáttur bókarinnar „Ritgerðir og erindi er fjöl- breytilegur að efni og hefur m. a. að geyma merka rit- gjörð „Um rit Jónasar Hall- grímssonar og um „Fimm aldir prentlistarinnar". Minn- ir síðar greind fyrirsögn les- Gísli Jónsson andann á það, hvert ævistarf höfundar var og einnig þá staðreynd að virðast myndi prentarastarfið mörgum lítt fallið til að lyfta andan- um í hæðir, en prentverkið hefir Gísli stundað sem list- grein og látið sér vel líka. Að öðrum kosti hefði hans and- lega fjör ekki haldizt jafn- óskert og ritgerðir hans bera vott um. Þriðji kaflinn „Samtíða- menn“ hefst á greininni „Heiðarbærinn og ættmenn hans“, sem eigi hefir áður birzt. Þessi kafli, sem fjallar um æskustöðvar höfundar og nánustu ættmenn er með af- brigðum góður. Látlaus stíll fellur hér að efni, sem höf- undi er kært. Frásögnin er sannorð, og yfir henni hvílir blær fallegrar ræktarsemi. Þetta er „saga óaflátanlegs strits, sorga, mannrauna og vonbrigða, — óefað þó margra fullnægju- og ánægjustunda — og við síðustu reiknings- skil óviðurkennd sigursaga" (bls. 306). Mynd sú sem fylgir grein- inni, sýnir, að hvorki hefir verið hátt til lofts né vítt til veggja á Háreksstöðum á Jökuldal, og víst voru engin gósenlönd þar á dalnum um 1875, enda safnaði Jón bóndi Benjamínsson ekki verald- legum auði, en „Uppeldi níu barna til þroskaaldurs var þó engin smáræðis auðsöfnun", „Það er alls staðar einhver,. sem grætur," segir í sögu eftir Einar Hjörleifsson, og nú á þessum tímum hörmung- anna er sjálfsagt margur, sem grætur. Við hérna norður í höfunum höfum að vísu því láni að fagna að vera undan- skildir því böli að gráta vini og vandamenn fallna á blóð- vellinum mikla. En samt er án efa margur einn í kringum oss, sem grætur. Ekki ör- grannt, að einhverri í félag- inu okkar kunni að hrökkva tár svona í ljósaskiptunum, þó allt sé slétt og fell't, þegar búið er að kveikja, því við erum sterkar og státnar og eigum ekkert með það að kasta áhyggjuefnum okkar á glæ. Það eru aðeins börn og fátæklingar, sem slíkt geta gert átölulaust. Eitt slíkra amakefla mann- félagsins var það, sem barði að dyrum hjá mér seint í sumar eð var og gerði boð fyrir mig. Það var roskin kona. Ég þekkti hana vel, því hún vann fyrir mig tiltekna vinnu öðru hverju, og að þessu sinni var hún að sækja sér verkefni. Að öðru leyti vissi ég þau ein deili á henni, að hún var ekkja eftir mann, sem var henni miklu eldri og lézt af slysi fyrir rúmu ári. Hann hafði oft komið heim til mín og þá alla jafnan leitt með sér stúlkubarn, stálpað nokkuð, sem kallaði hann afa. Konan, sem ég á við, var venjulegast fáorð og alvöru- gefin, en að þessu sinni virtist mér hún grátin. Ég bauð henni að koma inn og tylla sér niður, meðan ég greiddi erindi hennar, en hún tók því fjarri og sagðist helzt vilja hraða sér heim. „Eruð þér lasin?“ sagði ég. „Onei.“ „Það amar eitthvað að yð- ur,“ sagði ég, „viljið þér ekki segja mér vandræði yðar, kannske ég geti eitthvað bætt úr því.“ „Það gengur ekkert að mér, og ég vildi helzt fá þetta, sem ég á að gera, sem fyrst.“ „Það er kannske einhver veikur hjá yður?“ „Það er enginn til að vera veikur,“ sagði hún og grét sáran. Ég sá, að þarna var eitthvað meira og stærra en svo, að ég gæti úr því bætt. Ég flýtti mér að afgreiða hana, og svo kvaddi hún mig og fór leiðar sinnar. Þegar hún var farin, settist ég fyrir og tók vinnuna mína, en hugurinn var allur hjá konunni, sem var nýgengin frá mér. Hvað var það, sem venju fremur amaði að henni? Mér datt í hug dýrtíðin. Ég vissi, að hún var fátæk, hana vanhagaði máske um eitt- hvað, sem hún gat ekki veitt sér, og fann þá svo mjög til þess, hve forstöðulaus hún var og mikill einstæðingur. Já, hún kom einmitt til þess að sækja sér vinnu. Þetta litla handarvik, sem maðurinn hennar hafði gert fyrir okkur og tekið 40 aura fyrir og hún svo haldið áfram eftir hann látinn. Fjörtíu aurar, ekki var upphæðin stór. Þó hafði hún hraðað sér að sækja verkefn- ið, en ekki gat hún skilað verkinu fyrr en næsta dag og peningana þurfti hún að fá í dag. Ég vissi, hvar hún átti heima, lengst vestur í bæ. Ég lagði frá mér vinnuna og hélt af stað. Ég hafði staðið í þeirri meiningu, að hún byggi uppi á lofti, en raunin varð sú, að mér var vísað á kjallaraíbúð. Ég barði að dyrum og gekk inn. Allt var þar þokkalega umgengið, þó húsbúnaðurinn væri fátæklegur. Konan sat á rúmi sínu og prjónaði sjóvett- ling og var nú allhress í bragði. „Nei, eruð þér komin sjálf, blessuð frúin,“ sagði hún og bauð mér sæti. Ég settist á kistil. „Ójá, ég fór að íhuga það í dag, er þér voruð farin, að yður hefði kannske vanhagað um eitthvað, sem ég gæti bætt úr með þessu,“ sagði ég, um leið og ég rétti henni lítil- ræðið, sem ég hafði meðferð- is. „Þakka yður fyrir, en ég þarf þess nú samt ekki. Ég get, guði sé lof, bjargað mér ennþá, og það var ekki fjár- skorturinn, sem angraði mig áðan. Ég vildi ekki ganga frekar Framhald á bls. 7. Vinsamlegt bréf Kæri ritstjóri, Ingibjörg! Ég ætla að leyfa mér að senda blaðinu nokkrar línur, því mér finnst að við sem fá- um Lögberg-Heimskringlu, ættum að minsta kosti einu- sinni á ári að þakka blaðinu fyrir að koma til okkar í hverri viku. Það er eins og maður bíði eftir góðum göml- um kunningja, að koma inn til að hjala dálítið stund um ým- islegt, sem virðist stundum vera að deyja af næringar- skorti. Það er sem ný spíta sé lögð á glæðurnar, sem eru kannske að mestu útbrunnar. Þessi nýji logi gefur birtu og yl sem ýtir myrkrinu og kuldan- um svolítið í burtu um stund. Svo við getum nú setið og horft á litlu logana sem nú eru að leika sér í kringum spítukubbinn. Það er sem þeir séu að teygja fingur til að að benda okkur á eitthvað þar úti í myrkrinu. Já það er margt þar í skugganum, sem við héldum að nauðsynlegt væri að leggja til síðu eða kannske alveg að gleyma, án þess að skilja að þetta er partur af okkur sjálf- um. Svo til að reyna að gleyma er það sama sem að afneita sjálfum sér, afneita því fagra sem við möttum, líka því sem við höfum elsk- að alla ævi. Þú leiðir mig heim um litla stund og lýsir upp bæinn gamla. Þar æskan hún bíður með opna mund En ellin er þrá minni hamla. Svo þakka ég Lögbergi- Heimskringlu fyrir komuna. Og vona að blaðið haldi á- fram að koma til íslendinga frá öld til alda. Paul B. Björnson, 1414 — St. 4th Ave„ Maywood, 111. Bréf frá London Framhald írá bls. 4. virðulegs aldurs að baki. Slík- ir endurfundir eru ánægju- legir. Eins og fyrirsögn þessa bréfs bendir á er það skrifað í London, þar sem sá er þetta ritar dvelur nú. Ætlunin er að senda Lögbergi-Heims- kringlu stutt bréf héðan við og við, þar sem jöfnum hönd- um verður drepið á þau mál- efni, sem sérstaklega varða íslendinga hér í landi og ís- lenzk viðhorf, og að öðrum þræði almennt rabb um dag- inn og veginn eins og fyrir augað ber hér í London. Að þessum efnum verður snúið í næsta bréfi, en samkvæmt gefnu loforði í upphafi skyldi þessum inngangsorðum skor- inn þröngur stakkur. Því verður hér látið staðar numið. London, 9. maí 1963. K.S.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.