Lögberg-Heimskringla - 06.06.1963, Qupperneq 4
4
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. JÚNÍ 1963
Lögberg-Heimskringla
Published every Thursday by
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
Printed by
WALLINGFORD PRESS LTD.
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man.
Edilor: INGIBJÖRG JÖNSSON
EDITORIAL BOARD
Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Haraldur Bessa-
son, Rev. Valdimar J. Eylands, Carolipe Gunnarsson, Jóhann
G. Jóhannson, Thorvaldur Johnson, Jakob F. Kristjánsson,
Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Pétursson. Vancouver: Dr. S.
E. Bjömsson. Monlreal: Áskell Löve. Minneapolis: Valdimar
Bjömson. Grand Forks: Richard Beck. Reykjavík: Birgir
Thorlacius. Akureyri: Steindór Steindórsson. London: Dr. Karl
Strand.
Subscriplion $6.00 per year—payable in advance.
TELEPHONE WH. 3-9931
Authorized os second class mail by the Post Office Deportment, Ottawa,
and for pxayment of Posfage in cash.
Magnús Guðjónsson bæjarstjóri:
Menningarmál á Akureyri
S k ó 1 a r:
Alls stunda nám í skólum Akureyrar um 2500 nemendur,
og er það rúmlega fjórðungur bæjarbúa, sem eru um 9300.
Barnaskólar eru þrír í bænum með rúmlega 1200 nemend-
Elzti og fjölmennasti barnaskólinn er Barnaskóli Akureyrar
með um 750 nemendur, stofnaður fyrir 92 árum. Skólastjóri
hans er Hannes J. Magnúson. 1 Oddeyraskóla eru um 350
nemendur. Skólastjóri er Eiríkur Sigurðsson. í Glerárskóla
eru rösklega 100 nemendur. Skólastjóri er Hjörtur L. Jóns-
son.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri er annar fjölmennasti skóli
bæjarins. Nemendur eru á 6. hundrað. Skólastjóri er Jóhann
Frímann.
Iðnskólinn er með um 100 nemendur. Skólastjóri er Jón
Sigurgeirsson.
Tónlistarskóli Akureyrar hóf starfsemi sína 1946. Nem-
endur eru um 70. Skólastjóri er Jakob Tryggvason.
Námskeið ýmiskonar eru haldin s.s. í húsmæðrafræðum
(í Húsmæðrskólanum), námskeið fyrir stýrimenn, vélstjóra,
bílstjóra og ýmiskonar föndur- og tómstundavinnunámskeið
á vegum Tómstundaheimilis templara og Æskulýðsráðs Ak-
ureyrar.
Leiklist
Leikstarfsemi hefur löngum verið með blóma á Akur-
eyri, og þar hafa starfað og komið fram ýmsir þjóðkunnir
leikarar. Leikfélag Akureyfar var stofnað 1917, en áður
höfðu starfað tvö leikfélög í bænum allt frá árinu 1869. Nú-
verandi leikhús Akureyrar, „Samkomuhúsið", byggðu
templarar á Akureyri af miklum myndarskap og framsýni
árið 1906. Leikfélagið hefur jöfnum höndum sýnt leikrit
eftir innlenda og erlenda höfunda m.a. leikrit eftir akur-
eyrska höfunda s.s. Matthías Jochumsson (Skugga-Svein),
Pál Árdal (Tárið), Björgvin Guðmundsson (Skrúðsbóndann)
og Davíð Stefánsson (Munkarnir á Möðruvöllum, Gullna
hliðið).
Venjulega eru sýnd 2—3 leikrit yfir veturinn. Hvert leik-
rit er sýnt 10 til 15 sinnum. Félagið hefur haldið uppi
kennslu í leiklist.
Meðal helztu leikstjóra félagsins má nefna Harald Björns-
son, Svövu Jónsdóttur, Ágúst Kvaran, Jón Norðfjörð, Guð-
mund Gunnarsson og Ragnhildi Steingrímsdóttur.
T ó n 1 i s t:
Akureyringar hafa fengið það orð á sig, að þeir væru
söngglaðir. Um langan aldur hafa kórar starfað í bænum.
Um aldamótin var Magnús Einarsson, organisti, aðaldrif-
fjöður í söng og músíklífi bæjarins. Hann kenndi söng í
skólum, stofnaði og stjórnaði lúðrasveit og stjórnaði söng-
kórnum Heklu, er fyrstur íslenzkra. karlakóra fór utan í
söngferðalag til Noregs 1905.
Karlakórinn Geysir var stofnaður 1922. Lengst af var
Ingimundur Árnason stjórnandi hans, en nú hefur sonur
hans, Árni tekið við söngstjórn. Karlakór Akureyrar var
stofnaður 1929 og laut lengi stjórn Áskels Snorrasonar, tón-
skálds. Núverandi söngstjórar eru Áskell Jónsson og Guð-
mundur Jóhannsson. Björgvin Guðmundsson, tónskáld, bjó
á Akureyri frá 1931 til dauðadags 1960. Hann stofnaði Kan-
tötukór Akureyrar 1932 auk þess sem hann kenndi lengi söng
í skólum bæjarins og var árum saman kirkjuorganleikari.
Auk kóra hafa starfað hér kvartettar, sem orðið hafa kunnir
s.s. M.A. kvartettinn og Smárakvartettinn.
Kunnust tónskáld á Akureyri eru: Björgvin Guðmunds-
son, Áskell Snorrason og Jóhann Ó. Haraldsson. Ýmsir fleiri
hafa að sjálfsögðu fengizt við tónsmíðar s.s. Sveinn Bjar-
man, Stefán Ág. Kristjánsson o. fl.
Tónlistarfélag Akureyrar
var stofnað 1942. Formaður
þess frá byrjun hefur verið
Stefán Ág. Kristjánsson. Fé-
lagið gengst árlega fyrir tón-
listarhaldi í bænum og hafa
ýmsir innlendir og erlendir
tónlistarmenn komið þar
fram. Auk þess heldur Tón-
listarskólinn árlega nemenda-
tónleika og tónleikar eru
stundum haldnir á vegum
annarra félaga og samtaka.
Lúðrasveit Akureyrar held-
ur tónleika á ári hverju og
leikur við ýmis tækifæri s.s.
á útihátíðum. Stjórnandi
hennar er Jakob Tryggvason,
sem jafnframt s t j ó r n a r
drengjalúðrasveit, er skóla-
stjóri Tónlistarskólans og org-
anleikari Akureyrarkirkju.
Guðrún Kristinsdóttir, pí-
anóleikari, er einn kunnasti
tónlistarmaður Akureyrar nú.
Þess má geta, að á síðast-
liðnu ári, var sett upp vandað
pípuorgel í Akureyrarkirkju,
sem er stærsta og vandaðasta
hljóðfæri sinnar tegundar á
landinu. Síðan hafa allmargir
sjálfstæðir orgelhljómleikar
verið haldnir í kirkjunni.
Bókmenntir og bókaútgáfa
Á Akureyri, svo sem annars
staðar á Islandi, hafa bök-
menntir löngum skipað önd-
vegi meðal listanna. Á Akur-
eyri hafa mörg skáld búið,
sum landsþekkt s.s. Matthías
Jochumsson, Davíð Stfáns-
son frá Fagraskógi, Páll J.
Árdal, Einar H. Kvaran o. fl.
— Af núlifandi skáldum og
rithöfundum má nefna auk
Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi, Guðmund Frí-
mann, Einar Kristjánsson,
frændurna, Braga Sigurjóns-
son og Heiðrek Guðmundsson
frá Sandi, Kristján frá Djúpa-
læk og Rósberg Snædal.
Bókaútgáfa hefur verið til-
tölulega mikil á Akureyri.
Prentsmiðja var fyrst stofnuð
1853 og önnur rétt fyrir alda-
mótin. Nú eru starfandi þrjár
prentsmiðjur í bænum. Fjög-
ur vikublöð eru gefin út af
stjórnmálaflokkunum: Dagur,
íslendingur, Alþýðumaðurinn
og Verkamaðurinn. Nokkur
tímarit eru gefin hér út svo
sem „Heima er bezt“, „Nýjar
kvöldvökur“ og „Heimili og
skóli“. Stærsti bókaútgefand-
inn er „Bókaforlag Odds
Björnssonar“.
S ö fn:
Amtsbókasafnið er nú rek-
ið af Akureyrarbæ. Það var
stofnað um 1820.
Elzta safn Akureyrar er
Amtsbókasafnið. stofnað af
Stefáni Thorarensen, amt-
manni á Möðruvöllum um
1820. Safnið var flutt til Ak-
ureyrar um 1840 og er nú rek-
ið af Akureyrarbæ. Bóka-
eign safnsins er nú um 40
þúsund bindi.
Náltúrugripasafni var kom-
ið á fót fyrir allmörgum ár-
um á Akureyri og vex það
með ári hverju.
Nonnasafn til minningar
um pater Jón Sveinsson, hinn
kunna barnabókarithöfund
var stofnsett í Nonnahúsi,
Aðalstræti 54, af Zonta-klúbb
Akureyrar og opnað 16. nóv-
ember 1957.
Matthíasarsafnið var opnað
sumarið 1961 í Sigurhæðum,
húsi. sr. Matthíasar Jochums-
sonar. Fyrir stofnun safnsins
gekkst Matthíasarfélagið, sem
stofnað var 1958.
Norðlenzka byggðasafnið á
Akureyri var formlega stofn-
að 1962 og því fengin rúm-
góð húsakynni í Kirkjuhvoli,
Aðalstræti 58. Muna til safns-
ins hefur verið safnað um 15
ára skeið.
Önnur menningarmál:
Vegna takmarkaðs rúms
gefst ekki tækifæri til að
rekja önnur menningarmál
s.s. starfsemi hinna ýmsu
félaga, er sinna menningar-
málum. Þó skal þess getið, að
á aldarafmæli Akureyrar-
kaupstaðar, 29. ágúst 1962
stofnaði bæjarstjórn Akur-
eyrar Menningarsjóð Akur-
eyrar, sem nú þegar er orð-
inn um 1 milljón krónur.
Hlutverk sjóðsins er að
styrkja og styðja listastarf-
semi og aðra menningarstarf-
semi á Akureyri. Bæjarsjóður
Akureyrar mun leggja sjóðn-
um árlega til fé. Má mikils
af starfsemi sjóðs þess vænta,
í framtíðinni.
Letter From Seattle
May 28, 1963.
Dear Editor:
I have written an article
and have had it translated,
the contents of which will
speak for itself.
My wife, whose maiden
name was Erika Thorlakson,
daughter of the late Rev. N. S.
Thorlakson, who served a
parish at Selkirk, Man., Can-
ada, and I are taking an air-
plane trip with a group of
friends from Vancouver, B.C.
on June 13th and will arrive
in Reykjavík, Iceland the
following day. We will tour
Iceland and visit the home-
land of her father who emi-
grated to America sometime
during the 1870’s.
He had a long and interes-
ting career, first starting out
as a farmer, later a school
teacher, and even served as
Justice of the Peace at Moun-
tain, North Dakota where his
elder brother, Paul Thorlak-
son, has been recognized in
the Encyclopedia Britanniea
as the founder of an Icelandic
colony at that town in Pem-
bina County. Paul Thorlakson
became a Lutheran pastor and
was ordained after complet-
ing his theological training in
a seminary at St. Louis,
Missouri. Through his influ-
ence my father-in-law, N. S.
Thorlakson likewise entered
the call of the ministry and
was enrolled as a college
student at the Lutheran Col-
lege in Decorah, Iowa, and
after completing his college
training went to Oslo, Nor-
way where he enrolled iri the
Theological Department of
the University of Norway and
during his student days in
Oslo met Erika Rynning and
they were married. Rev,
Thorlakson accepted a call to
the Lutheran congregation at
Mineota, Minnesota and after
serving an Icelandic parish
in Mineota, he accepted a call
to serve a Norewegian Lut-
heran congregation at Park
River, North Dakota, and
within a few years accepted
a call to the Icelandic Lut-
heran congregation at Selkirk,
Man., Canada.
They are the parents of four
sons and two daughters,
namely, Rev. S. O. Thorlak-
son, who was a missionary to
Japan for 25 years and is
presently living at San Carlos
in the San Francisco Cali-
fornia area where he serves
as the Icelandic Consul and
does considerable clerical
work in that area; daughter,
Margaret, who is the wife of
Rev. Dr. Haraldur Sigmar and
resides at Kelso, Washington;
son, Dr. P. H. T. Thorlakson,
who is the head of and chief
surgeon for the Winnipeg
Clinic, Winnipeg, Man.; son,
Dr. Frederiek H. Thorlakson,
one of ’the eminent eye
doctors residing at Seattle,
Washington; son, Halfdan
Thorlakson, businessman and
one of the executives of the
Hudson’s Bay Store who re-
sides in Vancouver, B.C., and
who has been awarded the
Order of the Falcon and has
served as the Icelandic Consul
at Vancouver; daughter,
Erika, now Mrs. Harold M.
Eastvold, whose first interest,
besides her home, is in the
field of music, who took her
first piano lesson at the age
of four from her mother and
at the age of 16 was organist
in her father’s church.
I mention these facts only
to let you know that she and
I have a purpose in visiting
Iceland this summer and to
walk on the ground where her
father spent his boyhood in
Iceland and, also, in Norway
where her mother was born.
My father was born at
Sandnes, Norway, a town
near Stavanger, Norway, and
that is the reason we are
going to include Norway as
part of our trip.
Mr. and Mrs. Halfdan
Thorlakson of Vancouver,
B.C. will accompany us on
our trip to Iceland and Nor-
way.
Here in Seattle all of the
Scandinavian countries join-
ed together in the year 1952