Lögberg-Heimskringla - 04.02.1971, Side 2

Lögberg-Heimskringla - 04.02.1971, Side 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1971 Frét+ir fró Seattle Framhald af bls. 1. voru fram. Svo tók hin nýja stjómarnefnd við: Lloyd Olason, forseti; Carl Anderson, féhirðir; E^h^1 Vatnsdal. skrifaxi; J. Marvin. Jónsson, vara-forseti; Ruth Sigurdson, viðskipta skrifari; Lýsti forseti yfir að nefnd- in mundi gera sitt bezta fyrir félagið og vonaðist eftir góðri samvinnu félagsmanna. Á fundinum var staddur Próf. Hans Bekker-Nielsen, hinn danSki íslenzku kennari við U. W. Hann gat þess að vænt- anlegur væri herra Andrés Björnsson f r á íslandi og mundf hann halda fyrirlestra á U. W. á vegum Icelandic Club., þann 8. marz n. k. ÍSLENZKU NÁM VIÐ U. WASHINGTON Var byrjað árið 1970, með námskeið 101. marz-júní. Þar kenndi ungfrú Laufey Stein- grímsdóttir frá Reykjavík, er var sjálf nemandi við háskól- ann í öðrum fræðum. Á þessu námskeiði nutu 34 nemendur kennslu í nútíma íslenzku máli (Modern-Icelandic). Var látið vel af þessari kennslu. En um haustið, sept-des. tók við kennslunni, próf. Hans Bekker-Nielsen. Voru þá 12 nemendur. Þessi kennari er einkennilega íslenzkur-dansk- ur maður, er minnir á Rasmus Christian Rask, er hjálpaði til að stofma hið íslenzka Bók- menntafélag og sem skáldin, Þorsteinn Erlingsson og Hann- es Hafstein, hafa ort makleg lofkvæði um, er gert haf'a manninn ógleymanlegan ís- lending. Nú stendur yfir þriðja nám- Skeiðið — 103 frá jan. til marz 1971 og er Bekker-Nielsen kennarinn. Því miður eru enn færri nemendur, bara átta. Kennarinn hefur bezta orðstír og er mjög fær Aðal ástæðan sýnist vera tímaleysi og pen- ingaleysi. Háskólaráðið vill halda áfram með þrjú nám- skeið á ári svo það er vonandi að fleiri muni nota þetta tæki- færi í framtíðinni, og það verði hægt að halda áfram. ÍSLENZKAR MESSUR HALDNAR í SEATTLE Um þetta hefur verið litið verið skrifað í L.-II. síðan að íslenzkur prestur hætti hér þjónustu árið 1955. Hafa samt verið» íslenzkar messur einu sinni á ári, oftast um jóla- leytið,. Þá predikaði séra G. P. Johlison fyrst framan af og svo tók við séra Kolbeinn Sæmundsson. Síðastliðið ár, 1970 voru haldnar tvær mess- ur, um páska og jólin. Fyrir þá seinni predikaði séra Eric Sigmar én séra Kolbeinn flutti þar einnig stutta ræðu. Tani Bjornson og frú Svava Sigm- ar sungu einsöngva sem sér- stáklega setti hátíðisblæ á messuna. NÝ ÍSLENZK PRESTKONA í SEATTLE Hún heitir Allene og er systurdóttir Halldóru Bjarna- dóttur, hinnar þjóðfrægu. Maður Allene’s heitir Walter Morris og er þjónandi prest- ur við Our Redeemer’s Luth- eran Church hér í Ballard. DÁNARFREGNIR Þann 2. desember, 1970 and- aðist að Elliheimilinu Staf- holt, Blaine, ekkjan, Margrét George, 96 ára. Hún var dótt- ir Karvels Gíslasonar og ætt- uð af ísafirði. Hana syrgja 3 börn, Dan og 2 dætur, Freda Rundle og Leona Gjosund, búsett í Seattle, en fjögur eru dáin. Hún var jarðsett í Seattle, kveðjumál flutti séra K. Simundsson. * * * Þann 1. nóv. 1970, andaðist að Elliheimilinu Stafholt í Blaine, Wash., Sigurður S. Thorðarson, 83 ára. Hann var jarðsettur í Blaine grafreit og flutti þar kveðjumál lútersk- ur prestur. Sigurður heitinn var fæddur í Rangárvalla- sýslu, faðir hans, Sigurður Thorðarson skósmiður en móðirin hét Guðríður. Hann lærði skósmíði á íslandi en fluttist til Vesturheims árið 1909, þá 22 ára. Hann hætti við skósmíði hér en stundaði ýmsa aðra atvinnu. Hann var einn af stofnendum íslenzku kirkjunnar í Seattle; var söng- elskur og stöðugur meðlimur söngflokksins. Tryggur með- liipur var Siggi í lestrarfélag- inu Vestri og stofnandi í Ice- landic Club of Greater Seattle. Hann var í fyrra heimsstríð- inu en kom ómeiddur heim. Siggi var snyrtimenni og vin- sæll, en ókvæntur. Nánir ætt- ingjar eru fimm hálfsystur, allar búsettar hér á Kyrra- hafsströnd. Jón A. Magnússon. Fréffir frá fslandi Framhald af bls. 1. og hefur svo verið allt frá stríðslokum. Friðrik tók síðast þátt í þessu móti í hitteðfyrra. Margir sterkir skákmenn verða meðal þátttakenda á móti þessu. Alls bárust á land 719.600 lestir af fiski á árinu 1970. Þorskafli nam þar 469.000 lest- ir, loðna 190.950 lestum, síld 45.000 lestum og annar afli var rækja humar, hörpudisk- ur, grásleppa og fleira. Bol- fiskaflinn var um 20 þús. lest- um meiri 1970, en árið áður. Vestmannaeyjar eru sem fyrr langhæsta verstöðin með liðlega 170 þúsimd lestir af fiski, en þar af er bolfiskur liðlega 70 þús. lestir, loðna tæplega 100 þús. lestir auk annars. Lætur nærri að 25% alls ársafla landsmanna komi frá Vestmannaeyjum í ár. Önnur hæsta verstöðin er Grindavík með um 46 þús. lestir af bol- fiski og nokkur þús. lestir af loðnu. Þriðja hæsta verstöðin er Sandgerði. Búizt er við talsverðri aukn- ingu í aðsókn brezkra togara á íslandsmið á þessu ári, eink- um síðari hluta ársins. Er reiknað með að brezkir út- hafstogarar hætti að mestu veiðum við Noreg eftir fyrstu tvo mánuði ársins, bæði vegna breyttrar fiskgengdar og breytinga á landhelginni, en snúi sér þess í stað að miðum við ísland og Bjamarey, og á Barentshafi, n o r ð u r af Noregi. Konur á íslandi mega til jafnaðar reikna með að verða 76,2 ára gamlar. Það er þó ekki hæsti meðalaldur í heim- inum heldur næsthæsti. Ör- litlu eldri verða konur í Sví- þjóð og Hollandi, en þar er meðalaldur 76,5 ár. 1 Noregi, Frakklandi og Úkraníu er meðalaldur kvenna 75 ár. Þetta kemur fram í árlegri manntalsskýrslu Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 1969. íslenzka írímerkjasýningin, sem Islands-klubben og Mot- iv-klubben gangast fyrir í Gautaborg var opnuð fyrir stuttu. Aðalræðismaður ís- lands, Bjöm Steenstrup, opn- aði sýninguna, sem er hluti af íslandskynningu hér en auk hennar eru Loftleiðir hér með kynningu og sýndar eru ís- lenzkar ullarvörur. íslands- kynning þessi er haldin í til- efni 350 ára afmælis Gauta- borgar og verður líka sýnd íslenzk list. Tómas Guðmundsson skáld átti sjötugsafmæli 6. janúar. V a r afmælisins minnzt á margan hátt af vinum og að- dáendum skáldsins. í öllum dagblöðunum var skáldsins minnzt og ennfremur helgaði Ríkisútvarpið honum dagskrá sína. Þá e f n d i Leikfélag Reykjavíkur til samkomu í Iðnó, þar sem nokkrir lista- menn fluttu ljóð eftir skáldið, bæði með upplestri og söng. Var húsið troðfullt og urðu fjölmargir frá að hverfa. Voru samkomugestir á ý m s u m aldri, en áberandi var þó hversu margt ungt fólk sótti samkomuna. ICELAND - CALIF0RNIA C0 Bryan (Brjann) Whipple Import and Sale of lcelandic Woolens, Ceromic, Etc. 1090 Sonsome, San Fronciseo CA94111 Wanted for cash: Older lcelandic Stomps and Envelopes LOPI - WOOL NOW AVAILABLE IN CANADA From: HOUSE OF YARN 939 Portage Ave., WINNIPEG. PHONE 783-3139 » FRAN'S YARN SHOP 303-33rd Street W. SASKATOON, SASK. PHONE 652-1492 • YARN PARADISE ARBORG, MAN • Approximate cost for one Sweater $12-$15 Patterns Available. Mail Orders Welcome. EINARS0N - ENTERPRISES WINNIPEG, CANADA (Á „Yum dögunum" fer fram kynning í fylkinu á hinum margvíslega mat og drykk sem framleiddur er í Manitoball!) Manitoba Department of Industry & Commerce o HON. LEONARD S. EVANS, Minister LEONARD REMIS, Deputy Minister

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.