Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 18.12.1981, Qupperneq 7

Lögberg-Heimskringla - 18.12.1981, Qupperneq 7
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981-7 Hátíðir og merkisdagar Framh. af bls. 6 það séu eldri sagnir en hinar. Annars er það margra manna mál, að þeir eigi ekkert skylt við Grýlu eða hennar hyski. Sumir segja þeir séu ekki nema níu, og bendir til þess þula þessi: -Jólasveinar einn og átta ofan komu af fjöllunum- o.s. frv. Fram að 1770 var þríheilagt á öllum stórhátíðum, en þá var það numið úr lögum. Þegar fjórheilagt varð, ef aðfangadaginn eða fjórða í jólum bar upp á sunnudag, hétu það brandajól. Síðan heita brandajól, ef þríheilagt verður, en brandajól hin stóru nefndu menn þá hina fornu fjórhelgi, og eins jafnvel, ef Þorláksmessuna bar upp á sunnu- dag. Fram að 1744 var messað á jólanóttina, og þóttu það svo mikil hátíðabrigði, að þá fóru allir til kirkju, sem vettlingi gátu valdið, ef fært var með nokkru móti. Var þá oft aðeins ein manneskja heima til þess að gæta bæjarins. En víða vildi það verða hættuspil, því að huldufólkið sótti í það, að koma heim á bæina og halda þar danza sína og veizlur, og stundum komu líka tröllin til þess að ná í þann, sem heima var. En hver sá, sem lét huldufólkið sjá sig eða að minnsta kosti gaf sig nokkuð í danzinn og gleðina með því, var annaðhvort dauður eða æðisgenginn að morgni eða með öllu horfinn. Margar sagnir eru til um þesskonar óhöpp. Þess vegna var ráðlegra að fela sig vel, ef vart varð við huldufólk, en stundum virtist þó nóg að varast að skipta sér nokkuð af því - láta sem maður sæi það ekki; sakaði þá ekki. Stundum hafði huldufólkið það líka til, að vilja nema fólk til álfheima á jóla- nóttina. Tíðast var það, ef ekki var farið til kirkju, að jólalesturinn var lesinn um kl. 6, þegar búið var að kveikja á jólanóttina og allir voru búnir áð þvo sér og greiða og fara í betri fötin. Þegar lestri var lokið, var farið fram og borinn inn jólamaturinn: magáll, sperðill og ýmislegt hnossgæti og einar 3-4 laufakökur; ekki var venja að skammta hangiket á jólanóttina, að minnsta kosti sumsstaðar nyrðra, og svo eftir að kaffið kom til, var kaffi og lummur seinna um kvöldið. Stundum var líka hnausþykkur grjónagrautur með sýrópi út á (rúsínugrautur seinna meir). Þótti þetta allt mesta sælgæti, sem von var. Ekkert mátti leika sér á jóla- nóttina, hvorki spila né danza; er til saga um börn, sem voru ein heima á jólanóttina, að þau fóru að spila sér til afþreyingar. En þá korrumaður til þeirra og spilaði með þeim, þangað til eitt barnið gekk úr og fór að raula sálmvers, þá hvarf maðurinn, en það var kölski sjálfur. Ekki mátti heldur danza og því síður rífast eða blóta. Þá var kölski vís til að sökkva öllu saman. Jólanóttin var ársins helgasta stund í augum almennings og er það víða enn í dag. Þá var víða siður og er sumsstaðar enn að kveikja ljós um allan bæinn, svo að hvergi bæri skugga á, þegar búið var að sópa hann allan, og gekk þá hús- freyjan kring um bæinn og um hann, "bauð álfum heima" og sagði: "Komi þeir, sem koma vilja, veri þeir, sem vera vilja, fari þeir, sem fara vilja, mér og mínum að meinlausu." Annars mun þessi venja hafa verið tíðari á gamlárskvöld. Sumir létu ljós lifa í bænum alla nóttina, og sjálfsagt í baðstofunni, og hefir það sumsstaðar haldizt við fram á vora daga og er til enn í dag. Sagt er um Svein ' á Þremi, alkunnan sér- vizkukarl í Eyjafirði (dó áttræður 1827), að hann hafi sett 3 ljós í baðstofuna á jólanóttina; kerti, sem stóð upp úr rúmslánni, lampann í rúmstafinn og fjóskoluna á ílátsbotn einn þar á gólfinu niðrundan. Þessi ljós þýddu þrenninguna. Sérstaklega voru jólin og eru enn hátíð fyrir börnin. Þá var nú bæði, að þau fengu góða fylli sína að borða, en svo hefir það verið gamall siður á íslandi að gefa þeim kerti. En kertaljósin voru dírindisljós, á meðan lýsislamparnir og grútarkolurnar voru aðalljósin á bæjunum. Víða var líka öllu fólkinu gefið sitt kertið hverjum; var þá ekki lítið um dýrðir, þegar mörg börn kveiktu hvert á sínu kerti, og brá svo ljósbjarmanum um alla baðstofuna. En annað þurftu þau líka að fá, ef vel átti að fara — þau Framh. á bls. 8 JOIN ICELANDIC CANADIAN FRÓN Send membership fee of $3.00 singie or $5.00 couple to Post Office Box No. 1 St. James Post Office Winnipeg, Man. R3J 0H0 Við óskum öllum Gleðilegra Jóla og Farsæls komandi órs FROM THE RESIDENTS, STAFF AND THE BOARD OF DIRECTORS tt & 9£ Merry Christmas and Happy New Year to Friends and Customers SPORTSMAIM'S INN Lundar, Manitoba Phone 762-5555 Seasons Greetings To Friends &■ Clients TAYLOR, BRAZZELL, McCAFFREY 4th Floor, Manulife House 386 Broadway Avenue, Winnipeg, Man. R3C 3R6 Telephone (204) 949-1312 Telex 07-57276 Mr. Clenn Sigurdson attends in Cimli and Riverton on the first and third Fridays of each month. Gimli Office- 3rd Ave. and Centre St., Telephone 642-7955, Hours 9:30 a.m. to5:30p.m. Riverton Off ice - Riverton Village Office, Hours 1:00 p.m. to 3:00 p.m. Óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári From Dennis & Jeannette Johnson & Staff RESTAURANT LICENSED DINING R00M 3354 P0RTAGE AVENUE PHONE 888-3361 » » » 55 BETEL HOME FOUNDATION 96-lst Avenue, Gimli, Manitoba 212 Manchester Avenue. Selkirk. Manitoba KNIT YOUR OWN ICELANDIC LOPI SWEATER! HUGHEILAR JÓLA OG NÝÁRSÓSKIR 55 55 55 55 55 55 55 , » 55 | •55 55 I NAME_ ADDRESS. TOWN ___ PROV. CODE To order send cheque or money order ($1.00 for postage) to: lcelandic I Imports & Exports Canada Limited I 2094 Gottingen Street, Halifax, Nova Scotia B3K 3B3 Telephone: 422-5937 DEALER INQUIRIES INVITED

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.