Alþýðublaðið - 03.12.1960, Síða 3

Alþýðublaðið - 03.12.1960, Síða 3
Lýðveldi sem fyrst í Alsír « j! Sfjórnarkjör | / Sjómanna- I féíaginu STJÓRNARKJÖR í Sjó mannafélagi Rvíkur stencl ur nú yfir. f dag verður kosið frá kl. 1—7 e. h. en aðra daga er kosrð kl. 3— G e. h. Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs er A- listi, og er hann skipaður margreyndum og þekkt- um forustumönnum sjó- manna. Sjómenn’. Standið vörð um félag ykkar og kjósið sem fyrst. — X-A. Deilur um stjórn Bjarg- ráðasjóðs PARÍS — 2. des. FRANSKA ríkisstjórnin var á fundi í dag og bárust henni þá fyrirmæli frá de Gaulle Frakklandsforseta um að hraða undirbúningi að stofnun lýð- veldis í Alsír, er tengt verði Frakklandi með samningi. Mun hann vilja að mál þetta verði komið all-langt áleiðis er hahn heldur til Alsír innan skamms.' Mun hann ferðast um landið í fimm daga, flytja þar ræður um stefnu sína í Alsírmálinu og ræða hana við fjöldann all- an af Alsírbúum. Reuter-fréttastofan telur, að það er nú hefur gerzt, bendi til þess, að de Gaulle hyggist nú herða mjög baráttu sína fyrir lýðveldisstofnun í Alsír. Frétt þessi hefur valdið mikl , um ugg og kvíða meðal Evrópu manna, einkum Frakka, í Alsír, I Hins vegar hefur hún eflt mjög vonir Serkja Um að Alsírmál j inu verði loks skipað í viðun- i andi horf og friði þar með kom ' ið á í landinu. Talið er, að að- eins fimmtungur evrópskra Alsirbúa séu alvarlega mót- snúnir fyrirætlunum forset- ans. fvOKKRAR deilur urðu í Efri deild alþingis í gær um skipan stjórnar Bjargráðasjóðs Islands, en frumvarp um hann var til 3. umræðu í deildinni. Gert er ráð fyrir fjögurra manna stjórn ,en stjórnarand- stæðingar lögðu til að stjórnin yrði skipuð finim mönnum. Til máls tóku við umræðuna Alfreð Gíslason, læknir (tvis- var), Sigurvin Einarsson( tvis- var), Friðjón Skarphéðinsson og Jón Þorsteinsson. Breyting- artillögur stjórnarandstæðinga voru báðar felidar með 9 at- kvæðum gegn 7, en frumvarp- ið í heild samþykkt með 14 samhljóða atkvæðum og vísað til Neðri deildar. Óttazt um trillubat í ÉTVARPINU seint í gær kvöldi auglýsti Slysavarna lag íslands eftir trillubát frá Stykkishólmi, sem farið liafði í róður í fyrrinótt, en ekkert spurzt til síðan.. Voru skip og bátar á Breiðafirði beðin að svipazt um eftir bátnum og að stoða hann, ef með þyrfti. Þeg ar blaðið fór í prentun, var bát urinn kominn fram og á leið inn Grundarfjörð, þegar síðast fréttist. Churchill fær köku CHURCHILL gamli er ekki dauður úr öllum æð- um þrátt fyrir háan aldur Hann átti 86 ára afmæli á miðvikudaginn og var ekkr betur séð en að hann væri búin að ná sér eftir rófubrotið, scm hann varð fyrir á dögunum. Hefur hann ábyggilega hlotið verri byltu fyrr á ævinni. Myndin er af afmælístert unni, sem bakarar í Lon- don færðu honum í tilefni dagsins. MHMWHWHMMHnMmm Keflavík FULLTRÚARÁÐ Alþýðu- flokksins í Keflavik heldur fund n.k. mánudagskvöld á VÍK (uppi) kl. 9. Lumumba fer fyrir herrétt LEOPOLDVILLE, 2. des. EINS og áður hefur verið skýrt frá í fréttum hafa her- menn Bobutu, ofursta og vald manns í Kongó, tekði höndum Patrice Lumumba forsætisráð- herra í Kongó. Ásamt honum var Kasiamura, upplýsinga- málaráðherra hans, einnig handtekinn. Báðir voru þeir félagar handteknir í Norður- Kasai-héraði. Mobutu ofursti segir, að hermennirnir hafi viljað skjóta fangana umsvifa laust, en hann hafi persónu- lega komið í veg fyrir það. Hermennirnir munu væntan lega koma með fangana til Leo poldville eftir nokkra daga. Mun þá herréttur taka mál þeirra fyrir og verður Lum- muba sakaður um að hafa egnt herrinn gegn Mobuta. Því var mótmælt í dag af herstjórn SÞ, að Ghana-her- menn úr liði SÞ í Kongó hafi gert tilraunir til að hindra handtöku Lummuba LONDON, 2. des. ÞEIR páfi og erkibiskupinn af Kantaraborg ræddust við í Páfagarði í dag Stóð fundur þeirra í 55 mínútur og fór fram í bókasafni páfans. — Þetta er í fyrsta skipti í aldaraðir sem fundur manna í embættum þessum fei' fram. Þykir hann því miklum tíðindum sæta. • rtMHHHHWWHWVWWHMHWMWWHW HMMMWWHHWHMHHMIWMMMHMMWHMWHMMMMWWVHMVMMMMWHMMMHMHVHMWWHMMMW FORDÆMD HÁTÍÐANEFND stúd- enta 1. dcseniber vill taka fram eftirfarandi vegna liins ósæmileg atburðar, er varð á hátíðasamkomu liá- skólastúdenta 1. descmber: 1. Hátíðanefndin harmar þá óvirðingu og fullkomna skort á virðingu ,sem nokkrir samkomugesta sýndu forseta íslands, hr. Ásgeiri Ásgeirssyni, er hann gekk í hátíðasalinn, 2. Hátíðancfndiin fordæn('r þá framkomu nokkurra samkomugesta að ganga af hátíðasamkoiuu í Há- skólanum með háreysti 4. og svívirða þar með há- skólann sem slíkan og þann lakademiska anda, sem liingað til liefur ríkt innan þcirrar stofnunar. Nefndin vill leggja á- herzlu á það, að meiri- hlutí þeirra, er gengu út, voru ekki háskólastúdent 'ar, lieldur fólk utan úr bæ, sem hingað til hefur ekki sýnt fullveldishátíð stúdenta 1. des. neinn á- huga, enda „smalað11' af ákveðnum pólitískum öfl um. Rétt er að benda á vegna villandi ljósmyndar í einu af dagblöðum bæjar ins, að undanfarin ár lief ur þessi hátíðasamkoma ekki verið fjölmenn, enda verið útvarpað. Á um- ræddri mynd sjást að minnsta kosti ekki tveir öftustu bekkir salarins, sem voru þéttsetnir af há tíðargestum. Hátíðanefndin væntir þess, að liáskólastúdentar !al rnennt fordæmi þessar aðfar ir utanaðkomandi afla og hvetur þá til að standa trygg an vörð um sæmd og virð- ingu íslands. mmmmmmwmmmwmmmmwmmmmmwmmmmmmmmw mmmmmwmmmmmmmmmmmmmvmmmmv mmmm*mmmmmmmmmm*mmmm*mvmmw Alþýðúbláðrð — 3. des. 1980 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.