Alþýðublaðið - 10.01.1961, Blaðsíða 1
VARDSKIPEÐ Óöinn tók í
gærmorgiin belgískan togara að
veiðum innan fiskveiðiland-
helginnar. Þetta er lítill togari
frá Ostende og heitir Maria
Jose Rosette.
Óðinn kom að togaranum við
Ingólfshöfða, tæpar 3 mílur fyr
ir innan fiskveiðitakmörkin, og
fór með hann til Vestmanna-
eyja.
Þangað voru skipin væntan-
leg í nótt og verður mál laard-
helgisbrjótsins tekið fyrir í
Eyjum í dag.
Þetta er fyrsti belgíski tog-
arinn, sem staðinn er og tekinn
að veiðum innan 12 mílna
markanna. Hafa Belgir virt 12
mílurnar af stakri prýði.
Samkvæmt upplýsingum
Landhelgisgæzlunnar fer nú
heldur fjölgandi erlendum tog-
urum á miðunum umhverfis ís-
land. — a.
2 snáðar
meiðast
TVEIR litlir snáðar, 3—4
óra, urðu fyrir bifreið um kl.
14,20 í gærdag í Hafnarfirði.
Þetta gerðist á gatnamótum
Linnetsstígs og Austurgöu. —
Annar snáðinn marðist á hné,
en hinn fékk kúlu á hakkann.
Símaskráin
í 47-48000
eintokum
NÝJA símaskráin, sem verið
er að prenta og væntanleg er í
aprílmánuði, verður gefin út í
47—48 þúsund eintökum, að því
er Alþýðublaðið fékk upplýst í
gær. Skráin 1959 var prentuð
í 46 þúsund eintökum.
Annars er verið að ganga frá
viðbæti við símaskrána um
breytingar þær, sem nú eru að
gerast í bænum, svo og aukn-
ingu og eldri breytingar. Kem-
ur sá viðbætir væntanlega út
síðar í vikunni.
19500 í Reykjavík.
Símanotendur í Reykjavík
eru nú um 19500 að tölu og í
ráði er að bæta við 1000 númer
um einhvern tímann um næstu
áramót. Varðandi símaskrána,
sem verið er að prenta miðar
verkinu vel áfram og á að
verða lokið í apríl, eins og fyrr
segir. Búið er að setja allt nema
Reykjavík og verið er að prenta
þann hluta.
Félag íslenzkra prentsmiðju-
eigenda hefur bæði nú og síðast
tekið að sér að siá um setningu
og préntun símaskrárinnar. —
Prentsmiðjan Leiftur hefur
sett skrána nú, en Prentsmiðj-
an Oddi er byrjuð að prenta
hana.
Mikill kuldi
á Akureyri
Akureyri í gær.
íþróttafélagið Þór hélt hér
mikla álfabrennu í gærkvöldi.
Margt manna var við brenn-
una, sem tókst hið bezta þrátt
fyrir mikinn kulda. Hér hefur
verið 11 til 12 stiga frost á
hverjum degi, og er ísing mik-
il á götunum.
Bátarnir hafa verið hér úti á
Polli, en lítið er orðið um síld.
Margir bátanna eru nú farnir
að búa sig undir að fara suður.
G. S.
GAMAN O'G
ALVARA
HÉR eru tvær alls óskyldar myndir — sem þó hafa þetta sameiginlegt: eittlivað hefur
gripið athygli broshýru stúlknanna efra og íhugula mannsins til hægri. En þar með er
skyldleikanum lokið. Þar sem allt leikur í lynd i á stóru myndinni, er staðan greinilega tvísýn
á þeirri smærri. Stúlkurnar heita Kristín Halla Jónsdóttir og Valgerður Tómasdóttir. Þær eru
í 4. bekk Menntaskólans, og það segir frá þeim (ásamt öðrum) í Opnunni í dag. Nafn manns-
ins, sem gægist undir bílinn, vitum við ekki En hann var (ásamt öðrum) fenginn til að
flytja burtu það sem eftir var af bíinum, sem við erum með á baksíðu í dag.