Alþýðublaðið - 28.01.1961, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 28.01.1961, Blaðsíða 9
svæðis ir? — ; liður lý upp n'gerð? iaillar- ?: agaill- ðnings skera eykst Dómstóll í Torino á It- alíu hefur fengið erfitt mál til meðferðar. Samkvæmt ítölskum lög um eru „ástríðufullir koss ar“ bannaðir á opinberum sföðum og eru þung viður- lög við slíku. Dómstóllinn á nú að ákveða hvort bíll sé opinber staður og hvort þeir, sem staðnir verða að kossum í bíl eigi að hljóta refsingu. Lögreglan og ríkissak- sóknarinn halda því fram, að það sé saknæmt að kyssast í bíl, sem ekki stendur í bílskúr eða einka lóð. Ungt par, sem lét á- stríðuna bera skynsemina ofurliði og kysstust „á- stríðufullt“ í bíl, sem kyrr stóð á götu og lögreglu- þjónn stóð að verki, voru því dregin fyrir lög og rétt. Þegar málið kom fyrir rétt, voru dómarinn og rík issaksóknarinn á einu máli um það, að fram skyldi fara „prufa“ á kossasen- unni. Það þýðir það, að far- ið verður með parið í sama bílinn og á sama stað og þau látin kyssast að nýju eins og hinn örlagaríka dag, er lögreglan truflaði faðmlög þeirra. Mun dóm- stóllinn draga niðurstöður sínar af prufunni og á- kveða hvort þau eru sek eða saklaus. iginn kosningabaráttunni. S rank Færði hann upp s Pat fyrir hann heilmikið s ið er dansiball daginn sem ' s Sem hann var dubbaður s /eitti til forseta. Var mynd s / öfl- in tekin við það s í í tækifæri. s HVlT koma í Bulawayd, Suður-Rhodesíu, var dæmd í fimm mánaða fangelsi eft ir að hafa játað, að hafa haft kynferðismök við svertingja nokkurn. Var hún dæmd sam- kvæmt 57 ára gömlum lög um, sem banna, að hvítir hafi tök við svarta. 1 réttar höldunum skýrði hún frá því, að hún hefði ekki ver- ið sér þess meðvitandi, — þegar atburðurinn gerðist, að hún hefði framiö refsi- vert athæfi. Henni hefði fundist þetta vera Guðs- vilji. Játaði hún sekt sína. Dómarinn lýsti því yfir, að ekkert það sem hinir á- kærðu hefðu sagt frá rétt- lætti mildari refsingu. — Svertinginn fékk þó mild- ari dóm en konan, eða fjög urra mánaða fangelsi. Lög Suður-Rhodesíu banna ekki, að hvítur maður hafi kynferðisleg mök við svertingjakonur. Yfirmaður samgöngu- máladeildar Sameinuðu þjóðanna hefur nýlega skýrt frá því, að árlega farist um 60 þús. manns í Evrópu af völdum um- ferðarslysa. Langstærsti hópurinn, eða 45% eru hjólreiða- menn eða þeir, sem aka skellinöðrum og mótor- hjólum. Tala þeirra sem deyja eða hljóta meiðsli í um- ferðarslysum er þrisvar sinnum hærri í Evrópu en í Bandaríkjunum. Ef flugur byggju við fyrsta flokks lífsskilyrði í eitt ár eða svo yrði allur heimurinn hulinn 16 metr. af flugnalagi. Að minnsta kosti segja fjandmenn flugna þetta, en á hverjum vetri finna þeir upp nýjar leiðir til þess að berjast gegn hinum illa vágesti, húsflugunni. Undir vissum kringum- stæðum, segja sérfræðing- arnir, gætu orðið til nógu' margar flugur til þess að grafa allar stórborgir heims. En sem betur fer fyrir okkur gerir köld veðr átta og fleira þetta ómögu- legt. Hver kvenfluga verpir 800 eggjum. Innan þriggja vikna verða þær fullþrosk- aðar flugur. Svo að heim- urinn hefur meira en nóg af þessum illa vágesti. Krakkaröfl FORELDRAR mega prísa sig sæla ef börn þeirra slást hvort við annað. Ef þau öskra, sparka, hár- reita og kalla hvort annað öllum illum nöfnum boðar það ekkert nema gott. Ef foreldrarnir hafa áhyggj- ur af slíkum innbyrðis erjum ættu þeir frekar að hugleiða hvað þetta er mik- ilvægur þáttur í uppeldi barnsins. — Þetta er haft eftir dr. Otto Pollak, prófessor í þjóðfélagsfræði við Penn- sylvaníuháskóla, sem er sérfræðkigur í heimilis- vandamálum og barnaupp- eldi. Segir hann það sína reynslu, að vegna þess hve foreldrum sé annt um að friður sé ríkjandi á heim- ilinu, sjáist þeim oft yfir þá staðreynd, að flest rifrildi barna séu tilraunir til að leysa árekstra. Þetta rökstyður dr. Pol- lak nánar með því, að eftir að börn hafi rifizt stutta stund, reyni þau oftast að sættast. Þetta sé nauðsyn- legur undirbúningur fyrir hæfileika, sem verði að fá að þróast svo að þeim. auðn ist að leysa úr þrætum og árekstrum seinna á lífsleið- inni. — Börn sem meiða hvort annað, þegar þau rífast, en sættast á eftir verða að öllum líkindum í andlaga meira jafnvægi á fullorð- ins árunum en þau, sem ekki hafa haft tækifæri til að rífast við börn, á svip- uðum aldri og þroskaskeiði segir dr. Pollak. Dr. Pollak ræður for- eldrum eindregið frá því að einblína um of á áf!og barna. Ráðleggur hann þeim að skoða þetta sem „vaxtarverki“ og þátt í lífs reynslu og uppeldi barna. Foreldrar ættu frekar að fylgjast með því, hvað á eftir áflogunum kemur. J Nýsviðin svið Kjötverzlunin BÚRFELL Skjaldborg v. Skúlagöíu. — Sími 1-9750. Endurnýjum gömlu sængurnar eigum hólfuð og óhólfuð dún og fiðurheld ver. FIÐURHREENSUNIN Kirkjuteig 29. — Sími 33301. Skatfframföl Aðstoðum við skattaframtöl í dag til kl. 7 og á morg un frá kl. 1—7. Fasteigna og lögfræðistofan Tjarnargötu 10.— Sími 19729. Vörubílstjórafélagið Þróttur Aðalfundur yörubílstj órafélagsins Þróttar verður haldinn í húsi félagsins, sunnudaginn 29. þ. m. kl. 2 e. h. Dagskrá: 1- Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. ' Stjórnin. Alþýðublaðið ' vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif- enda í þessum hverfum: Höfðahverfi Lindargötu, Laugaveg efri. Afgreiðsla Alþýðublaðsins, sími 14900. Stangaveiðifélag Reykjavíkur ✓ verður haldin í samkomu- og veitingahúsinu LIDO (Skaftáhlíð 24), laugardaginn 4. febrúar 1961 kl. 18. F«lagsmenn geta vitjað aðgöngumiða í skrifstofu S.V.F.R., Bsrgstaðastræti 12 B í dag laugardaginn 28. jan. M. 2—7 e. h. og 30.—31. jan. M. 5,15—7 e. h. Og verður á sama tíma gengið frá borðaniðurröð- un. — Sími 1-95-25. Alþýðublaðið 28. jan. 1961 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.