Alþýðublaðið - 18.02.1961, Side 7

Alþýðublaðið - 18.02.1961, Side 7
Framhald af 4. síðu. yrði að beygja sig fyrir þeirri ósk Sovétríkjanna aJ5 láta framkvæmdastjórn þessara samtaka vera rekna af þre- menningum, sem gætu ekki starfað og mundu öruggiega ekki láta í té það tæki iiinum hlutlausu þjóðum, sem þær þarfnast, og þetta mundi ger- ast á tíma, er mikil spenna ríkir og meiri kröfur eru gerð- ar til samtakamia en áður fyrr. Þannig hefur það gerzt,_ að um leið og Sovétríkin taka afstöðu, sem við eðhlegar að- staðar mundi hiklaust fá mig til að segja af mér, þá hafa þau um leið skapað ástand, er gerir mér ókleift að gera það. nema það kynni að vera ósk hinna hlutlausu þjóða að ég geri það vegna þeirra hags- muna og hagsmuna Samein- uðu þjóðanna. Á máli Sovét- ríkjanna hef ég til að bera þá ,.riddaramennsku“ að virða skoðun þess meirihluta þjóða, sem er hlutlaus, og — þó að ég noti orðið með nokkru hiki — þá get ég fullvissað Sovét- ríkin að ég hef til að bera það ,.hugrekki“ að taka fullum af- leiðingum þessa viðhorfs, jafn vel þó að það þýði, að ég neyð íst til að halda áfram störfum án þess stuðnings, sem þörf er á, og með tækjum, sem eru eegilega veik gagnvart risa- vöxnum kröfum. Ég vona, að mál. rriitt sé nægilega skýrt. í>að er allt og sumt, sem ég hef um málið að segja, og það er allt, sem ég þarf að segja um það. Ákvörð unin er þannig í höndum þeirra, sem Sovétríkin þykjast - tala fyrir. Hvaða ákvörðun, sem aoildarríki þéssara sam- taka kunna að taka í þessu máli, verður mér að sjálfsögðu lög. Ég sagði í ræðu þeirri á alis- harjarþinginu, sem ég minnt- ist á, að ég harmaði, að við- horf Sovétríkjanna hefur beinzt í þá átt að gera að persónulegu máli, atriði, sem i rauninni snertir heila stofn- un. Með því að gera þetta að nýju hafa Sovétríkin neytt mig til að ræða mitt eigið við- horf. Ég harma að hafa þurft að gera það, þar eð málið er enn mál, sem snertir stofnun- ina en ekki manninn. — Ég harma það jafnvel enn meir, jiegar ástandið er slíkt — að um miklu meira er að tefla ert þessa eða hina stoínun Sí> eða starfshóp SÞ. Vissulega hafa SÞ aldrei ver-ið og munu áldrei verða annað en tæki stjórna aðiidarríkj- anna í tilraunum þeirra til að 'eggja leiðina til lagareglu og friðsamlegrar sambóðar. Það er ekki maðurinn þar, ekki einu sinni stofnunin, það er sjálft starfið, sem nú hefur orðið fyrir árás. Það verður ljóst, að svo er, ef við lítum á raunveruleika vandamáls- ins. Um leið og ég læt niður falla frekari umræður um þau mál, sem ég hef í þessari ræðu neyðzt til að beina athyglinni að, vildi ég, áður en ég lýk máli mínu, segja nokkur orð um raunveruleikann, eins og hann birtist í ástandinu í dag. í sjö eða átta mánuði hef- ur þessi stofnun, með aðgerð- um, sem ganga langt út fyrir ímyndun þeirra, sem stofnuðu hana, reynt að standa gegn tilhneigingu til að færa átök stórveldanna inn í Afríku og fær hin ungu Afríkuríki inn í skugga kalda stríðsins. Hún hefur gert það með mikilli á- hættu, og gegn miklu ofurefli. Hún hefur gert það á kostn- að mikilla, persónulegra fórna mikils fjöída manna. í fyrstu tókust aðgerðirnar vel, og ég hika ekki við að segja, að starfsemi stofnunarinnar, grundvölluð á samstöðu Afríku hefur oftar en einu sinni komið í veg fyrir, að af hlytist stríð með afskiptum er lendra velda, eins og gerðist í Kóreu og á Spáni. Við svöruð- um með góðum árangri til- raunum frá öllum hliðum til að gera Kongó veiðisvæði þjóða-hagsmuna. Að standa í vegi fyrir slíkum tilraunum, er að gera sjálían sig að skot- spæni fyrir árásum allra, sem sjá áætlanir sínar verða að engu. í tilfellum sumra var andstaðan gegn afstöðu SÞ um stund undir yfirborðinu, en ekki leið á lörigu, áður en hún kæmi upp á yfirborðið. I öðrum tilfellum brutuSt von- brigðin yfir að rekast á þessa óvæntu hindíun þegar í stað út í ofsalegum og háværum MOBUTU árásum á samtökin. Frá bað- um aðilum var aðal-ásökunin skortur á hlutlægi. Sagnfræð- ingurinn mun-vafalaust finna í jafnvægi þessara ásákana sjálf sönnunina fyrir því hlut lægi, sem við erum sakaðir um að skorta, en einnig í þeirri staðreynd, að mjög mörg að- ildarríki hafa énn ekki fall- izt á þær takmarkanir á þjóð- Iega valdagirnd þeirra, scrA sjálf tilvera Sameinuðu þjóð- anna og aðild þeirra að sam- tökunum setja þeim. Nú erum við, við aðstæður, sem eru í grundvallaratriðumi hinar sömu, þó að á yfirborð- inu séu þær dramatískari, komnir að því, að vopnavið- skipti á einum stað ógna með hætti, sem mjög er líklegur til að leiða íil þess, að deilaa breiðist út á alþjóðlegan vett- vang. Ég hef engar nýjar lausnir að bjóða ykkur. Þó er það bjargföst skoðun mín, eina og í júlí og ágúst á s. 1. ári, að eina leiðin fyrir meginland! Aíríku og lönd þess til að snú- ast við hörmulegri þróun í átt ina til alþjóðlegrar deilu, er ef til vil mun ná til alls heima íns, er að fylkja sér um sam- eiginleg rnarkmið innan vé- banda SÞ. Samstaða Afríku innan SÞ var eina svarið við ógnunun- um á s. 1. ári; ég er sannfærð- ur um, að það er enn eina svarið. Það er þó ekki nóg að setja fram með almennum orð um slíka stefnu sem lausn vandans. Okkur er öllum skylt að kveða skýrt að orði, bæði að því er varðar takmörldn og því er varðar ráð til að há þeim takmörkum. Um þetta atriði hef ég líka lítið nýtt að bjóða, en ég vildi samt sem áður gjama draga saman í stuttu máli það, sem mér finnst vera ráðstafanir, er verði að stefna að af krafti og hugrekki. Framh. á 14. síðu. Framhald af ræðu Hammarskjöld sem hann flutti um K ongómálið í SÞ Alþýðublaðið — 18. febr. 1961 J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.