Alþýðublaðið - 19.02.1961, Page 3
NAÐARNEFND
OÐI SVlA
FJÖLMENN sendinefnd for
ustumann’a íslenzks iðnaðar
og a. m. k. cinn bankastjóri
dvelst þessa viku í Svíþjóð.
Var nefnd þessi boðin í heini
sókn þanffað af samtökum
sænskra iðjuhölda. Svensk
Industriförbund, og munu
nefndarmenn kynnajst ýms-
um hliðum sænsks iðnaðar.
Al'þýðublaðið fékk í gær
staðfest á skrilfstofu Félags
íslenzkra iðnrekenda, að
nefnd þessi hefði farið utan
í boði Svía, en ekki fengust
upblýsingar um nöfn þeirra,
sem eru í förinni. Sendi-
nefndin mun vera væntan-
tteg hekn í þessari vi'ku,
í sambandi við hin rausn
arlega boð sænsku iðnaðar-
samtakanna til íslendinga
'hafa verið nokkrar vangavelt
ur meðal ráðamanna í
Reykjavík. Eru uppi tilgátur
KR kaupir
32 notaöar
dráttarvélar
Hvolsvelli, 18. febr.
HINGAÐ eru komnar 15 not
aðar Ferguson diesel dráttar-
vélar, sem Kaupfélag Rangæ-
ing liefur fest kaup á erlendis
frá og gerrr upp á verkstæði
sínu hér. Alls er von á 32 vél-
um hingað að þessu sinni.
Dráttarvélar þessar eru, að
því er bezt verður séð, ágætis
verkfæri og nú fer fram á þeim
viðgerð hér, sem verksmiðj-
urnar ákveða, svonefnd tveggja
stjörnu viðgerð. Eru vélarnar
af árgerðunum 1953—’55 og
hafa þegar verið seldar allt
norður í Strandasýslu.
í fyrra voru keyptar hingað
nokkrar notaðar dráttarvélar,
sem gert var við ytra, og
reyndist kostnaðarverð vera
um og yfir 46 þús. kr. Nýjar
dráttarvélar af sömu gerð kosta
nú tæpar 100 þús. kr. i». s.
KIRKJUHLJÓMLEIK-
AR Guðrúnar Tómasdótt-
dóttur, söngkonu (sópran)
verða í dag í Krists-
kirkju, og hefjast kl. 9.
Guðrún syngur kirkjuleg
verk eftir Hiindel, Duran-
te, Scarlatti og Bach. M.
a. syngur Guðrún „Er
wcidet seine Herde“ úr
óratoríunnr „Messías“
eftir Hiindel.
um. að sænskur iðnaður
kunni að hafa í hyggju fjár
festingu á íslandi og vilji
'byrja á að kynnast forustu-
mönnum íslenzks iðnaðar í
því sambandi.
Fjölda-
morðingja
leitað
(NTB-REUTER).
Frankfurt 18. febr.
SKRIFSTOFA ríkissaksókn-
arans í Frankfurt hefur heit-
ið þeim nærri 200 þúsund krón
um, sem getur gefið (upplýs-
ingar sem leiði til handtöku
Dr. Josefs Mengele, sem áður
var yfirlæknir við Auschwits
fangabúðirnar.
Mengale gerði margs konar
tilraunir og rannsóknir á fön,g
um, sem biðu þess að vera
drepnir. Grunur lei'kur einnig
á, að hann hafi myrt fjölda
fanga, þar á meðal börn, sem
fencl inngjöf. Hann er einn
;g grunaður um, að hafa myrt
þúsundir sígauna með gasi að
fararnótt 1. ágúst 1943.
Interpol tekur þátt_ í leit-
inni að Mengele. í fyrra
gengu það sögur, að hann
héldi si2 í Suður-Ameriku.
Ai-gentína (hefur lofiað að
framselja hann finnist haxm
þar í landi.
Hitabylgju-
myndirnar
vekja athygli
it UM ÞESSAR mundir
sýnir Jón Engilberts
nokkrar myndir á Mokka-
kaffi. Er þar um að ræða
myndir, sem hann gerði
til skreytingar á bókrnni
„Hitabylgja“ eftir Baldur
Óskarsson. Bók þessi kom
út í nóvembermánuði, og
ollu myndirnar í bókinni
strax miklu umtali.
Þessi sýning á Mokka
liefur þegar vakið mikla
athygli, og streymir þang-
að fólk allan daginn til að
skoða þær. Myndirnar eru
allar til Sölu, en um verð-
ið verður að ræða við Eng-
ilberts.
Myndin hér að ofan, var
tekin á Mokka í gær, og
sjást þar nokkrar af mynd
unum. Myndin lengst til
hægri heitir „Vísað til veg
ar“.
•MMMMMWVIMimMMWHIHUMHUHHMHiHtMMHMIHHHHMIHHHHIMWMHIHMW
Samþykktin sem
Timinn birti ekki
TÍMINN sagði nýlega frá á
lyktunum, sem gerðar voru
á héraðsþingi Ungmennasam
Fjórfaldur
ÞEIR Þórarinn Þórarinsson
og Halldór E. Sigurðsson flytja
tillögu þá til þingsályktunar
um alþingishús, sem hér fer á
eftir; .....
„Alþingi ályktar að kjósa
fimm manna nefnd, er vinni að
því í samráði við ríkisstjórn-j
ina að gera tillögur um stækk-
un alþingishússins eða bygg-
ingu nýs þinghúss «ftir því,
hvort betur þykir leysa þörf
alþrngis fyrir viðunandi hús-,
næði. Nefndin skal skila til-1
lögum til alþingis eigi síðar enj
haustið 1962.“.
Múrarar x A
ALL undarlegur árekstur
varð síðdegis í gær á Snorra-
braut. Bifreiðinni R-7268, sem
er af Pontiac-gerð, var ekið
norður Snorrabraut og hugðist
ökumaður beygja til hægri og
leggja bíl sínum á bílastæðið
milli akbrautanna.^ í sama
mund og hann beygði til hægri
bar að R-7529 sem er af Chevro
let-station-gerð, lenti R—7529
á hægri frambretti á R—7268.
Við áreksturinn kastaðist R—
7529 upp á bílastæðið milli ak
brautanna og lenti þar á R—
5327, sem er af Ford-gerð. Við
liöggið kastaðist Forbíllinn á
Y—488, sem er af Wolkswagen-
gerð. Allir bílarnir fjórir
skemmdust talsvert.
bandsins Skarphéðins, sem er
héraðssamband allra ung-
mennafélaga í Árnes- og
Rangárvallasýslum. Er þetta
virðingarverð fréttaþjónusta,
með einni undantekningu.
Það vantar eina af samþykkt
unum.
Samþykktin, sem Tíminn
sleppir, var um landhelgis-
mál, og liljóðaði á þessa leið:
„Héraðanlsþing Skarphéðins
lialdið 21. 0(r 22. janúar 1961,
minni,. á fyrri samþykktir í
landhelgismálinu og skorar á
þingi og ríkisstjórn að hvika
hvcrgi frá settu marki í því
máli. Jafnframt fagnar þiug
ið þeim tilraunum, sem gerð
ar hafa verið til að fá óaftur
kallanlega viðurkenningu á
sérstöðu íslands ennfremur
verði unnið að friðun land-
grunnsins alls“.
Tillaga um að seinni hluti
tillögunnar orðaðist svo: „Og
semji ekki um landhelgina"
náði ekki fram að ganga.
Eins og tillagan var afgreitt
hlaut hún 18 atkvæði gegn
16, en allmargir voru fjar-
verandi eða greiddu ekki at
kvæði.
Það gefur góða mynd af
fréttaflutningi Tímans, að
hann skyldi sleppa þessari
tillögu einni, þegar hann
sagði frá ályktunum Skarp-
héðinsfundarins.
mimmmuummmihmmmiim
180.000
km i'fúr-
lægð
MOSKVA 18. febr.
(NTB-AFP).
SOVÉZKIR vísinda-
menn hafa reiknað út, að
eldflaugin, sem skotið var
í áttina að Venusi í fyrri
viku, komi til með að fara
fram hjá plánetunni í 180
þúsund kílómetra fjar-
lægð frá miðdcpli hcnnar
einhverntíma í Isíðari hluta
maímánaðar. Þessi fjar-
lægð er minni en helming
ur fjarlægðar tunglsins
frá jörðu, sem er 384 þús-
und kílómetra.
MMMMMMMMWWMMMMM
Alþýðublaðið
19. febr. 1961 3