Alþýðublaðið - 23.02.1961, Blaðsíða 2
Bitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rit-
stjórnar: Sigvaldi Hjáimarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfis-
götu 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint.
Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson.
Pólitískir aæðinaar flæma
sérmenntaða úr iandi
Lúövík hleypur á sig
VIÐUREIGN þeirra Emils Jónssonar og Lúð-
j víks Jósefssonar, núverandi og fyrrverandi sjáv
| arútv-egsmálaráðherra, hefur verið eins og fram-
íhaldssaga í sölum alþingis undanfarið. Þeir hafa
deilt um verð og verðlagningu fidkjar, og dylst
! engum, sem á hefur hlýtt, að Emil hefur hvað
: eftir annað hrakið fullyrðingar og áróður Lúð-
] víks. Ú't af þessu hefur Þjóðviljinn valið þann
kost að reyna að styðja sinn mann með persónu
! legum árásum á Emil.
Sannleikurinn er, að Lúðvík hefur marg-
Maupið á sig á alþingi síðustu vikur. Fullyrðing
! _ar hans um miklu hærra fiskverð í Noregi en
hér á landi hafa ekki staðizt, og svo flutti hann
: í>á furðulegu tillögu, að gerðardómur skuli skera
| úr um fiskverð. Þar sem sjómenn eiga laun sín
j að mestu leyti undir fiskverðinu, er hér augljós
! lega um að ræða tillögu um gerðardóm í vinnu-
deilum sjómanna. Hafa kommúnistar reynt mjög
að bjarga sér frá þessari stórkostlegu skyssu
Lúðvíks, en tekst það því miður ekki. Hann hef
ur leikið af sér —- í Ihendur atvinnurekenda-
; valdinu.
I Þjóðviljinn hælir Lúðvík mjög fyrir, að ver-
j tíð hafi ekki stöðvazt í hans ráðherratíð, en a'llt
logi í verkföllum og framleiðslutapi undir s'tjórn
Emils. Blaðið forðast þó að skýra frá, hvernig
Lúðvík fór að í kjaramálum. Hann gaf atvinnu-
i rekendum loforð um, að þeir mættu hækka verð
lag, ef þeir gengju inn á hærra kaup. Hann lof-
aði útgerðinni hærri uppbótum, ef hún hækk-
; -aði kaup. Þannig voru málin leyst á almennilngs
kostnað, kauphækkanirnar skjótlega teknar aft-
: ur.
Slík starfsemi ráðherra er helzt sambærileg
i við að moka í botnlausa tunnu. Stefna Lúðvíks
var að kasta olíu á verðbólgubálið, auka með
ihverjum mánuði upplausn og örvinglan efnahags
1 lífsins. Tilgangur hans var að skapa ástand, sem
kæmi öllu atvinnulífinu á ríkisframfæri, neyða
, þjóðina til að taka stórlán í kommúnistaríkjun-
um og selja þangað allar afurðir, og tryggja svo
; valdatöku kommúnilsta.
Hvaða íslendingur lastar Emil Jónsson fyrir
að fylgja ekki þessari stefnu Lúðvíks? Hvaða
hugsandi maður lastar hann, þótt hann neiti að
halda áfram þeim skollaleik, að stuðla að kaup-
hækkunum, sem teknar eru aftur af fólkinu inn
an fárra vikna? Er það Emil — eða eru það
kommúnistar — sem reyna nú með stefnu sinni
að umturna efnahagskerfinu og fella stjórnina?
ÞAÐ ER haft fyrir satt í
min eyru, að þér hr. alþ.m.
og ritstj. hafið m. a. flutt til-
lögu til þingsályktunar, er feli
í sér að rannsaka beri brott-
flutning fólks úr landinu, og
þá sérstaklega tæknimenntaðs
fólks, og um leið hvað muni
hægt að gera til að koma í veg
fyrir slíkan brottflutning.
Ég kann yður hr. ritstjóri
ibeztu þakkir fyrir flutning
þessarar tillögu, en langar til
að benda um leið á eftirtalin
atriði:
Sérmenntaðir menn hafa
ekki flutzt úr landi eingöngu
♦
JÓN BERGÞÓRSSON
HAFNARFIRÐI.
Afmæliskveðja frá Sigur-
borgu á áttræðisafmæli.
Línur fáar fýsir mig
flétta smáar saman.
Heilan nái hitta þig
hripað frá mér gaman.
Afl og máttur aukist þér,
yndi þrátt svo vaki,
með tuga átta ár hér
æviþátt að baki.
Um æsku þinnar ísavor
ekki sinnir kvarta.
Einatt finnir afl og þor
við endurminning bjarta.
rp’
1
Hugur bindi bjarta tíð,
blíðar lindir hjala,
fagrar kindur fjalls í hlíð,
fegurst yndi dala.
Lífs í hríð var huggun mér
hjálpin lýða sanna.
Fyrst og síðast þakka þér
og þínum blíða svanna.
Niðja fjöld og frúnni með
fagurt kvöldið lifir.
Heila öld þitt hjarta gleð
og himins tjöldin yfir.
S.B.
vegna þess að störf séu betur
launuð erlendis, heldur og
ekki síður vegna þess að þeir
hafa ekki fengið starf við sitt
ihæfi, þ. e. a. s. ekki starfa á
því sviði, sem þeir hafa aflað
sér sérþekkingar.
Margir menn hafa næstum
að segja verið flæmdir úr
landi af þessari ástæðu. Það
hefir verið á næstu grösum
við þann, sem starfann átti
að veita, einhver gæðingur á
pólitískum skeiðvelli, sem án
lærdóms og fyrirhafnar labb-
aði beint í embættið, oftlega
til mikils skaða og kostnaðar
fyrir þjóðina.
Þrátt fyrir þetta eru þó til
margir menn, sem hugsa sig
tvisvar um áður en þeir yfir-
gefa land sitt og þjóð, og þurfa
meira en eitt spark áður en
gripið er til þess ráðs.
En það snart mig óþægilega
að í heiðruðu blaði yðar þ.
26. f. m. birtist grein varðandi
flugmálastjórnina á Keflavík-
urflugvelli, grein full mis-
sagna og blekkinga, grein sem
er í ósamræmi við þá hugsun
er liggur að baki ofanreindrar
þingsál.till.
í grein þessari segir: Ríkið
sparar 1,2 millj. á vellinum og
,,eingöngu var farið eftir
starfsaldri og þekkingu við
fækkun á mönnum". Náttúru-
lega hefir blaðinu verið sagt
þetta af einhverjum, en nán-
ari upplýsinga ekki leitað. Ég
get ekki látið ónotað lengur
tækifærið til að leiðrétta mis-
sögn þessa, úr því að enginn
annar hefir gerst til þess. Ég
er nefnilega meðal þeirra
ungu og þekkingarsnauðu
manna, sem sagt hefir verið
upp starfi á Keflavíkurflug-
velli. Ég hef unnið þar í nær
14 ár, þar af nær 10 seinni
árin hjá íslenzka ríkinu.
Menntún mín er flugvallar-
fræði, þ. e- háskólapróf í þeim
fræðum er lúta að rekstri og
stjórn flugvalla. Tel ég rétt
að þetta komi fram nú, svo
að skattþegnar íslenzka ríkis-
ins þurfi ekki að reka upp
stór augu í forundran þó að
sumir þessir ungu og mennt-
unarlausu starfsmenn ríkisins
leiti réttar síns eftir þeim leið
um, sem tiltækar eru.
Ef þér hr. ritstjóri og alþ.m.
hefðuð áhuga á því, sem að ó-
reyndu skal ekki dregið í efa,
get ég sýnt yður og sannað
með tölum hvernig unnt er að
spara milljónir á Keflavíkur-
flugvelli án þess að segja
þurfi upp fólki.
Ég vil að lokum tjá yður að
ég harma það, að mál mitt hef-
ir komist inn á vettvang blað-
anna, hefði talið hagkvæmara
fyrir aðila, að það hefði leysts
án þess að dragast inn í hring-
iðu stjórnmálanna, en ekki
verður við því gert héðan af,
Ég vil að lokum nota tæki-
færið í trausti þess að þér birt
ið bréf þetta hr. ritstjóri, og
votta öllum þakklæti mitt,
öllum þeim sem hafa veitt mér
traust og stuðning í máli þessuí
og endurtek að ég harma að
það skuli komið á opinberan
vettvang.
Með þökk fyrir birtinguna.
Héðinn G. Jóliannesson
flugvallarfræðingur.
mMWWWMVVVMWWWW
Fegurðar-
drottningar
valdar í blaði
ALGJÖR breyting verð
ur gerð á fyrirkomulagi
valsins á fegurðardrottn-
rngum íslands. Einar Jóns
son, sém er umboðsmaður
erlendra fegurðarsam-
keppna, hefur gert samn-
ing við Vikuna, um að þar
verði birtar myndir af
þátttakendum í keppn-
inni.
Lesendur blaðsins munu
dæma um það með dóm-
nefnd, hverjar farr í úr-
slitin, sem fara væntan-
lega fram í Austurbæjar-
bíó.
Lesendur blaðsins geta
einnig bent á stúlkur, sem
þeim finnst til greinakoma
sem þátttakendur. Sá, sem
bendrr á þá sem sigrar
fær verðlaun.
KLÚBBURINN
Opið í hádeginu. —
Skandinaviskt kalt borð
— einnig valið um 50
heita og kalda sérrétti.
KLÚBBURINN
Laugateig 2 - Sími 35355
»■1
2 23. febr. 1961 — Alþýöublaðið
UHMUUIlMBIlIgSEaS