Alþýðublaðið - 23.02.1961, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 23.02.1961, Blaðsíða 11
sigr Framhald af 10. síðu. Hin liðin, sm mættust í und- anúrslitum,. voru K. F. R. og í. S. Þessi leikur var einnig jafn og spennandi og mikið skorað af beggja hálfu. Liðin skiptust á að skora og í háif- leik sfóð 22:19 fyrir K. F. R. Síðari hálfleikur var harður en þó allvel leikinn. Tókst í. S. ekki að jafna metin, þrátt fyrir góða spretti og vann K. F. R. leikinn 39:34. Segja má, að K. F. R. hafi unnið leikinn á vitaskotunum, sem þeir nýttu mjög vel. Skoruðu þeir 9 stig úr vítum af 11, sem þeir tóku, eða yfir 80%, en í. S 2 stig af 9 mögulegum eða aðeins rúm 20%, sem er hörmulegt. Langbezti maður K. F. R. var Einar Matt., sem vann mjög vel og skoraði auk þess 18 stig. Einnig átti Marinó góðan leik, og gerði margt lag- legt. Lið í. S. er mjög jafnt, og ætti að geta orðið sterkt á ís- landsmótinu. Mest skoruðu þeir Hrafn Johnsen 8 stig. Þórir Arinbj. 8, og Hafsteinn 6 stig. — Síðasti leikur kvöldsins var úrslitaleikurinn milli Ármanns og K. F. R. Leikurinn var frá upphafi æsispennandi fvrir á- horfendur, liðin ýmist skipt- ust á forystu eða þá voru jöfn. Báðir aðilar léku allfast og það mátti stundum sjá hraustleg- ar sviptingar undir körfunni. Fyrri hálfleikur endaði 18:17 fyrir K. F. R. en í leikslok stóð 35:35 og varð að framlengja leiknum um 5 mínútur. Tókst K. F. R. þá að skora 4 stig gegn 3, og unnu leikinn 39:38, og þarmeð þetta skemmtilega mót. Einar var eins og áður bezti maðurinn, hreyfanlegur í sókn og vörn og hitti miög vel, skor- aði 23 stig og eftirtektarvert er, að hann hittir allt að 90% úr vítum, sem er mjög gott. Ingi er alltaf traustur í vörn og sókn. í liði Ármanns bar mest á Lárusi, sem gerði margt lag- legt og skoraði 12 stig, Birgi (11 stig) og Ingvari (6 stig) — Eins og áður er sagt voru leik- irnir mjög jafnir og spenn- andi og úrslit oftast óviss. Er það vissulega spor f rétta átt hjá K. K. í. að koma þessu móti á og mættu fleiri mót gjarnan fyigja. Dómarar dæmdu yfir- leitt vel, og sízt ver en þeir dómarar, sem stundum hafa verið „fluttir inn“ frá Keflavík urflugvelli. Krjóh. Heim nr. 2 í síðustu lerkjum í Allsvensk an í handknattleik sigruðu Vikingarna Redbergsglid með 22:21, en Hcim tapaði fyrir Karlskrona með 22:24. Vikrng arna hafa því tryggt sér sænska meistaratitilinn í ár3 en Heim varft nr. 2. fugl, strút- urinn Höfðaborg í Oudtshoorn héraðinu um 400 km. aust- an við Höfðaborg er mrkið strútaræktarsvæði. Flestir hinna 40 þúsund strúta sem ræktaðir eru — eru hafðir á hrnum láglendu kjarri- vöxnu sléttum þessa héraðs og eru einn aðalatvinnu- vegur íbúa þess. Auk hinna frægu strúts- fjaðra fæst af strútnum dýrmætt leður í liandtösk- ur, þurrkað kjöt og egg. — Hamurinn af þeim er mjúk- ur, voðfelldur og mjög eftir- sóttur í handtöskur af ,lúxus‘ gerð, skó og kassa. Kjötið er seigt nýtt, en er mjög vinsælt þurrkað í Suður- Afríku, þar sem það geng- ur undrr nafninu „Bolt- ong“, sem er innlent og þýðir þurrkað kjöt. Hin risastóru strútsegg eru eft- irsótt af bökurum. Eitt egg selzt fyri'r sama verð og tylft hænueg'gja, en það er í réttu hlutfalli við stærð- armuninn. Bændur í S-Afríku vita manna bezt að strúturinn er hvorki vejkluleg né hros- leg skepna sem stingur höfðinu niður í sandinn, þegar hættu ber að hönd- um. Fullvaxinn strútur er um 240 em. á hæð og vegur um 150 kg. Hann getur hlaupið á við hraðlest og sparkar hraustlegar en nokkur hest ur. Hann hefur í fullu tré við lijarðir antelópa og zebradýr á hlaupum, getur öskrað eins og ljón og drukkið vatn á við úlfahla. Vel tamrnn með beizli og hnakk getur liann borið fullvaxinn mann. Hbnn grufur höfuð jisitt' aldrei í jörðu þegar hann skynjar hættu á ferðum. Sá misskilnrngur er talinn stafa af því hve auðvelt hann á með að grafa upp fæðu úr jarðveginum. Þegar ferðamenn sáu liann við það héldu þeir að hann hefði stungrð höfðinu í sandinn. Fullvaxinn strútur gefur af sér 24 skrautfjaðrir á níu mánaða fresti auk þess sem klipptar eru af honum tylftir smærrr fjaðra. Aldir strút- ar eru ekki eins margir nú og þeir voru snemma á öld inni,) (þegar hviltar /strúts- fjaðrrr voru mest í tízku. Strútsræktin hófst á þessu svæði og var mjög mikil um tíma, en er nú nokkru minni, og hefur ver ið það nokkuð lengi. Fjöldi strúta gengur einnig viltur á sléttunum, en þeir sluppu úr girðingum hér fyrr á tím- um. verk stæði, er stillir dieseivélar HÉR í bæ er nýstofnað die- selstillingar verkstæði undir nafninu Diesill, við Garða- stræti 9, og er eigandi þess og stjómandi Magnús G. Marteinsson vélvirki. Verkstæðið hefur keypt nýjustu gerð af dieselstilling- arvélum frá Englandi og eru þær af sömu gerð og notuð er til kennslu í Vélskólanum í Reykjavík. Magnús fór á síðasta ári til þess að læra að fara með þess ar vélar, auk þess var hann um 2ja ára skeið í Þýzkalandi og Hollandi að kynna sér með- ferð dieselvéla. Þessar vélar eru notaðar til þess að prófa og stilla olíu- verk í dieselvélum og er það mjög þýðingarmikið atriði að olíuverkið sé rétt stillt, bæði fyrir endingu vélanna og sparar það líka eldsneytis- notkunina. Þá hefur verkstæðið einnig stillitæki af nýjustu og full- komnustu gerð til þess að stilla eldsneytisloka. Verkstæðið hefur tenging ar og önnur tæki til þess að prófa og stiUa flestar þær dieselvélategundir sem eru í notkun hér á landi. Verkstæðið mun smíða há- þrýstirör eftir pöntunum. Jafnframt mun verkstæðið annast diagram-mælingar síðar meir. Diesill mun kappkosta að veita viðskiptamönnum sínum fullkomnustu þjónustu eins og hún gerist bezt erlendis á þessu sviði. - Félagslíf - Körfuknattleiksmót ÍFRN. Leikjatafla: Föstudag 24. febr., 2. fþ karla, kl. 1 G.-Aust.' : G.- Vonarstr. fcl. 1,50, MR:G. Vogask. kl. 3,30, Verzlunar- skólinn — Hagaskóli. 1. flo. Karla, Kl. 4,20, MR — ML. kl. 5.20, Iðnskólinn — VerzlunarskóÞ- inn. Laugardagur 25. febr.: Kvennafl. Kl. l. G. Vestb. — Haga- skóli, kl. 1,40. MR — VerS. unarskólinn. 1. fl. karla: Kl. 2,20, HÍ — Kennarask. kl. 3,20, sigurvegarar fiÁ föstudegi. II. fl. karila: kl. 4,20 og 5,10 sigurvegarai' frá föstudegi. Sunnudagur 26. febr. Úrslit í öllum flokkum. Lið mætt 40 mln. fyrip leik. Alþýðublaðið — 23. febr. 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.