Alþýðublaðið - 08.03.1961, Blaðsíða 10
Ritstjóri: Örn E i ð s s o n.
Sagt eftir leikinn
Hallsteinn: Svíar voru miklu
betri en gegn Frökkum. Mark-
verðir þeirra eru frábærir. —
Okkar menn heldu þungir í
kvöld, sennilega þreyta. Sýndu
þó ágæta kafla.
Birgir: Alls ekki slaem út-
koma, þó að margt hefði mátt
betur fara. Þetta er allt í átt-
ina. Markvörður Svía afburða-
góður. Dómrainn sæmilegur.
Ásbjörn: Góð útkoma, lékum
betur en . gegn Dönum, mark-
vörður Svía framúrskarandi.
Hannes: Lið Svía það sterk-
asta, sem við höfum mætt hing-
að til. Þegar Svíar leika svona
eru þeir ósigrandi. Markvörður
Svia langbezti maður vallarins.
Okka lið lék ágætan leik eftir
atvikum.
Wadmark: Svíar gleðjast
mjög yfir framförum íslend-
inga. Þið lékuð mjög vel, jafn-
vel betur en gegn Tékkum. Okk
ar lið sýndi sinn bezta leik i
langan tíma. Við höfum mjög
góða mös'uleika á að komast í
úrslit. Markverðir íslendinga
mjög góðir, einnig Ragna'r’ óg
Karl. — Valgeir.
UGGLEGA 18=1
• LEIK íslands og Svía var
lýst lítillega í sænska útvarp-
inu. Útvarpsmaðurinn sagði
að nú hefðu Svíar sýnt sinn
bezta leik á mótinu til þessa.
Ef liðið sýnir svipaðan eða
betri leik á móti Tékkum má
gera sér góðar vonir um sig-
ur. Sænski útvarpsmaðurinn
fór lofsamlegum orðum um ís-
lendinga, sérstaklega síðast í
síðari hálfleik.
Útvarpsmaðurinn átti stutt
viðtal við Hannes Sigurðsson
form. ísl. landsliðsnefndarinn-
ar. Hannes var ánægður með
leik íslendinganna, þrátt fyr-
ir þennan 8 marka mun. ís-
lendingar hefðu að vísu ekki
sýnt eins góðan leik og gegn
Tékkum og slíkt væri ekki
óeðlilegt. íslendingar væru ó-
vanir að standa í svona stór-
ræðum með stuttu miliibili.
Hannes var sórstaklega ánægð
ur með gott úthald liðsins. —
Svíinn varð mjög undrandi
þegar Hannes skýrði frá hinni
slæmu aðstöðu íslenzkra hand
knattleiksmanna til kenoni og
taldi furðulegt, að slíkir af-
reksmenn sem íslenzka" liðið
gæti náð svona langt við hin
frumlegu skilyrði til æfinga
og keppni.
-fc Essen, gærkvöldi.
Enikaskeyti til Alþýðubl.
HEIMSMEISTARANIR í
handknattleik, Svíar, sigruðu
íslendinga hér í kvöld í glæsi-
legum leik, þeim langbezta, sem
þeir hafa sýnt í heimsmeistara-
keppninni til þessa. Lið íslands
var skipað sömu mönnum og
gegn Tékkum, nema að Her-
mann lék í stað Karls Ben., en
hann og Magnús Jónsson voru
sendir til Krefeld til að ,njósna‘
um leikaðferð liða þar, en fs-
land mun mæta einhverju liði
í þeim riðli, þegar keppt verður
um sæti.
Lið Svía var skipað þraut-
reyndum leikmönnum, sem tek-
ið hafa þátt í heimsmeistara-
keppni oftar en einu sinni og
SIÐARI HÁLFLEIKUR.
^Svíar byrjuðu síðari hálfleik-
inn glæsilega og eftir fimm
mínútur er staðan 9:3 fyrir Svía
— Hjalti var í marki eftir hlé
og varði vel sem fyrr. Gunnlaug
ur skorar á 7. mín. og Karl á
9. mjög fallegt mark. Svíar
halda Ragnari fruntalega um
miðjan hálfleik og aðeins dæmt
aukakast, mjög vægur dómur.
Svíarnir leika af sama hraða
og sýna fullkominn handknatt-
leik — taflan sýnir 14:7 á 20.
mín. Síðustu 10 mín. voru mjög
jafnar og þá léku íslendingarn-
ir bezt, • svo að ekki virðist
vanta úthald. Úrslit: 18:10 er
verðskuldaður sigur Svía.
Svissneskur dómari, Freivog-
el dæmdi leikinn yfirleitt mjög
vel, en hefði þó mátt vera
strangari.
Mörk íslendinga: Gunnlaug-
ur 4 (2 víti), Kristján 3, Einar,
Karl og Ragnar 1 hver.
Svíar: Aimquist 4, Ahrling',
Johnsson, Danielsson 3 hver,
Kampenrahl, Knarrström tvö
hver, Olsson 1. Svíar sýndu
mjög góðan leik, allt annað en
gegn Frökkum. —Enginn stend
ur þeim á sporði eins og þeir
léku í kvöld.
Segja má að við höfum slopp
ið vel. Sterkustu manna okkar
úr undanförnum leikjum var
mjög vel gætt. Okkar menn eru
nokkuð skapmiklir og léku ekki
nógu yfirvegað í kvöld.
* OVÆNTUSTU úrslit heims-
meistarakeppninnar í gær var
sigur Rúmena yfir Þjóðverjum
12:9, en það dugði þeim til að
tryggja sér rétt til að keppa um
hein^smeistaratitfllnn. ' Danir
sigruðu Norffmenn í æsispenn-
andi leik 10:9
uðu“ Frakka með 25:6.
Tékkar ,,burst-
UM FÁTT er nú
meira talað en handknatt-
leik og hinn ágæta árang-
ur íslenzka Iandsliffsins,
sem þátt tekur í heims-
mcistarakeppninni í Vest-
ur-Þýzkalandi þessa dag-
ana. Erlend blöð lofa mjög
íslenzka liðið, hinn mikla
keppnisvilja þess og ótrú-
lega gott spil, þegar teltið
er tillit til þess, að engin
frambærileg íþróttahöll af
löglegri stærð er hér. Enn
aðrir benda á það, að ís-
landi þreyti sjaldan lands-
leiki við aðrar þjóðir og
þess vegna skorti liftið að
sjálfsögðu þá miklu reynslu
— sem önnur hafa.
Alltaf er lofið gott, en
við megum ekki gleyma því
að nú verður krafist meira
laf okkur í handknattleik á
alþjóðavettvangi. Forystu-
menn, þjálfarar og leik-
menn mega ekki slaka á í
gleðivímunni yfir frábær-
um árangri. Það verður að
halda áfram á sömu braut,
þessari aðalbraut íþrótta,
til þess að ná sem lengst á
alþjóðavettvangi. Þcssi að-
albrant er æfing, æfing og
aftur æfing, það er hún
sem fyrst og fremst skapar
árangur í fþróttum. Ekki
má heldur gleyma því að
hanira á því við forystu-
menn þjóðmála og bæjar-
ins, að þörfin fyrir sóma-
samlegt keppnishús hér í
höfuðstaðnum er orðið mál
málanna fyrir íþróttaæsku
bæjarins. Það mál verður
að ná fram að ganga Hið
fyrsta, annars eru frekari
framfarir óhugsanlegar,
eins og formaður landsliðs
nefnd'ar, Hannes Þ, Sigurðs
son, sagði í viðtali við
fréttamann íþróttasíðunnar
á HM. — ö.
Enn var Karl Jóh. beztur.
(leikið fjölda landsleikja. Svíar
sögðu, að þeir gætu ekki stillt
upp sterkara liði. Virtust Sví-
ar vera taugaóstyrkir íyrif leik
inn vegna hinna óvæntu
frammistöðu íslendinga gegn
Tékkum.
GANGUR LEIKSINS:
Svíar skoruðu fyrstu mörk
leiksins á 1. og 2. mín. Síðan
kom nokkuð jafn kafli. Ragnar
var frír við markteig Svía á 8.
mín. en var hindraður gróflega
af varnarleikmanni Svía og víta
kast var dæmt, sem Gunnlaug-
ur skorar örugglega úr. Á 10.
mín. var staðan 3:1. Tveim mín.
síðar skorar Kritsján glæsilegt
mark 3:2. Um miðjan hálfleik
qr staðan 5:2. Markvörður Svía
varði frábærlega og Sólmundur
— sem var í marki íslands í
fyrri hálfleik bjargaði einnig
mjög vel. Sviar skora á 25. mín.
og Einar fyrir ísland á 27. mín.
Staðan í hálfleik 7:3 fyrir Svía.
Svíar leiika mjög fast, íslend-
ingarnir voru taugaóstyrkir og
skutu nú oft í tíma og ótíma.
Karls Jóhannssonar var mjög
vel gætt. íslendingar reyndu
um of að senda á línu í gegn
um vörn Svía og misstu boltann
Unglingarnir
sigruðu 56:47
' oft þannig,
ío 8. marz 1961 — Alþýðublaðið
Hið nýstofnaða Körfuknatt-
leikssamband íslands stóð
fyrir keppni í körfuknattleik
að Hálogalandi á mánudags-
kvöld. Var um að ræða fjáröfl-
unarleik vegna fyrirhugaðrar
utanfarar landsliðs í þessarri
grein. Liðin, sem kepptu að
þessu sinni voru úrval „öld-
unga“ 19 ára og eldri gegn úr-
vali unglinga. — Þegar leikur
hófst og liðin röðuðu sér inn á,
kom vel í ljós, að unglingarnir
voru að jafnaði hálfu höfðinu
(hærri en þeir fullorðnu, og
hafði það vissulega mikla þýð-
] ingu. Leikurinn byrjaði mjög
skemmtilega. Strax á fyrstu
mínútu skoraði Guðm. Þor-
steinsson fjrrir unglinga, en
og sá fyrri, með sprettá ungl-
ingaliðsins, sem skoraði 6 stig
komust í 8—2, en þá fóru hinir
að átta sig og bilið minnkaði.
Um miðjan fyrri hálfleik var
staðan 18:18, en þá sprettu þeir
ungu aftur úr spori og hálf-
leikurinn endaði 27:24 þéim í
vil. Þessi hálfleikur var heldur
vel leikinn af beggja hálfu,
hraður, en ekki grófur. Víta-
köst nýttust misjafnlega. T. d.
tók hinn annars ágæti Hörður
(Á) 4 í röð, en ekkert fór í. —
í hálfleik sýndi Júdóflokkur
Ármanns listir sínar og höfðu
menn mikið gaman af.
Síðari hálfleikur hófst, eins
og sá fyrri, með spretti ung-
lngaliðsins, sem skoraði 6 stig
áður en þeir gömlu áttuðu sig.
Var nú sótt og varist af kappi
á báðar hliðar, og þurftu dóm-
arar að hafa sig alla við til að
haida leiknum niðri. Þessi háíf
leikur var ekki eins vel leik-
inn og sá fyrri, þó að hann væri
spennandi. Liðin skiptust á
hröðum upphlaupum, en stund
um varð hraðinn þeim ofviða,
og knötturinn hrökk út fyrir
eða til varnarleikmanna. Ung-
lingamir héldu forskOtinu, sem
þeir fengu í byrjun hálfleiks-
ins og leikurinn endaði með
réttlátum sigri þeirra 56:47.
Liðin voru mjög svipuð að
getu, en unglingarnir réðu bet-
ur við hraðann, og höfðu auk
þess stærðina fram yfir. í liði
unglinga bar einna mest á Þor-
sten, sem skoraði 13 stig og átti
hlut í fleirum Birgir Birgis skor
aði 17 stig og Einar Matth. með
10 stig. í liði öldunga skoruðu
mest þeir Hólmsteinn 9 stig
Kristinn 9 stig og Lárus með
8 stig.
Leikurinn sýndi, að menn
eru í góðri æfingu, og enn-
fremur að mjög vel hefur tekizt
með val manna í úrval lands-
liðsnefndar. — Dómarar voru
þeir Ásgeir Guðmundsson og
Guðmundur Georgsson. Þeir
höfðu nóg að starfa, (dæmdu 38
víti í leiknum) og sluppu ágæt-
lega frá því.
Krjóh.