Alþýðublaðið - 08.03.1961, Qupperneq 14
ENDURNÝJUM GÖMLU Vilja ófiið
SÆNGURNAR
Eigum dún og fiðurheld
ver. Einnis gæsadúns- og
æðardúnssængur.
Fiðurhreinsunin,
Kirkjuteig 29.
Sími 3-33-01.
Framhald af 1. síðu.
Þá ræddi utanríkisráðherra
ýmis efnisatriði lausnar land-
helgisdeilunnar. Hann nefndi
fyrst efasemdir stjórnarand-
stöðunnar um að Bretar raun-
verulega viðurkenndu 12 míl-
urnar. Hann minnti á álit laga-
deildar Háskólans, en las að
því loknu upp ummæli brezkra
ráðherra úr báðum deildum
brezka þingsins, þar sem þetta
kom einnig skýrt fram, enda
hefði Einar Olgeirsson óskað
eftir að heyra álit Breta á
þessu atriði. Einnig vísaði Guð-
mundur í mörg brezk blöð, sem
hefðu ótvírætt túlkað málið
svo, að Bretar viðurkenndu 12
mílurnar.
Bretar hafa í mótmælaorð-
sendingum sínum kallað 12 míl
urnar „markleysu að alþjóða
lögum“. Þessu falla þeir skil-
yrðislaust frá, sagði Guðmund-
ur. Þeir hafa kallað einhliða
útfærslu okkar ólöglega. Þessu
falla þeir skilyrðislaust frá.
Þeir hafa áskilið sér rétt til að
hindra töku skipa innan 12
mílnanna, og því falla þeir skil-
yrðislaust frá. Um þetta atriði
verði því ekki efazt.
Þá hrakti Guðmundur þá
fjarstæðu Lúðvíks Jósefssonar,
að það hafi verið vegna and-
stöðu Alþýðuflokksins, sem
grunnlínur voru ekki færðar
út 1958. Lúðvík hafi verið lát-
inn um það atriði, en ekki fært
út. Svo hafi stjórnarandstaðan
undanfarna daga lagt fram
breytiingatillögur, en engar
gert enn við grunnlínurnar.
Þeir hafi því algerlega vanrækt
þessi atriði í þrjú ár, sem þeir
telja okkur eiga.
HVERNIG VERÐUR
FREKARI ÚTFÆRSLA?
Guðmundur ræddi framtíð-
ina og kallaði það mestu fjar-
stæðu, að við fórnuðum nokkr-
um rétti. Við ætluðum að til-
kynna Bretum með 6 mánaða
fyrirvara um sjálfa útfærslu
okkar, en ékki ákvörðun um út-
færslu (eins og Bretar hefðu
viljað orða það, en ekki verið
gert).
Þegar að frekari útfærslu
k-æmi, mundum við gefa út
reglugerð um hana, þannig að
útfærslan tæki gildi eftir sex
mánuði. Bretum yrði tilkynnt
þetta og gætu þeir þá kært til
alþjóða dómstólsins, ef þeir
vildu. Reglugerðin mundi koma
til framkvæmda, nema dómstóll
inn hefði á sex mánuðum kveð-
ið udd einhvern úrskurð er
ónvtti hana.
Fyrir réttarríki er engin
hætta falin í því að ganeast
undir alþjóða dómstól. Það er
sama og að segja, að þegnarn-
ir séu réttlausir, þótt þeir lúti
dómstólum landsins.
Loks ræddi ráðherrann það
atriði, hvort Bratar mundu
gera nýiar kröfur að loknu
þriggja ára tímabili. Kvað hann
stjórnina hafa óskað eftir lof-
orði Breta um það atriði vegna
gagnrýni stjórnarandstöðunnar
innanlands. Þessi yfirlýsing
hefði fengizt og las Guðmundur
það skjal unn orðrétt, svo að
þignmenn þyrftu ekki að efast
um tilveru þess. Það væri hins
vegar eftir andstöðunni að ráð-
ast síðan á stjórnina f.yrir að fá
þessa yfirlýsingu, sem fengin
er eingöngu vegna andmæla
andstöðuflokkanna.
Rafsuðumenn
geta fengið atvinnu hjá oss nú þegar
HF- HAIV3AR
Lögreglusþ jónsstaða
í Hafnarfirði er laus til umsóknar. — Umsóknir ;
sérstök eyðublöð er fúst hjá lögreglustjórum, send
ist undirrituðum fyrir 20. þ. m.
Lögreglustjórinn í Hafnarfirði.
Skagfirðingar í Reykjavík
:Spilað verður í Breiðfirðingabúð föstudaginn 10.
niarz kl. 20.30.
Stjórnin.
Húsasmiðir
Umsóknir um fasteignalán úr lífeyrissjóðn-
um, þurfa að hafa borist skrifstofu sjóðsins,
eigi síðar en 15. marz n.k.
Lífeyrissjóður húsasmiða.
Móðir okkar
ÞORA EIRÍKSDÓTTIR
andaðist 7. marz að heímili sínu Skerseyrarvegi 2, Hafnar
ifirði.
Guðlaug Magnúsdóttir Guðrún E. Magnúsdóttir
Jarðarför föður míxns tengdaföður og bróður
GARÐARS II. STEFÁNSSONAR
sem andaðis't að Landakotsspítala 27. febr. fer fram í Foss-
vogskapellu fimmtudaginn 9. þ. m. kl. 19,30 f. h.
Einar Þór Garðarsson
Geir Stefánsson
Kristín Guðlaugsdóttir
Hjálmar Steindórsson.
miðviUiidagur
SLlaavAKtíSXOf AiS erOf-
m dllan solarhringinn. —
Læknavörður fyrir vitjanii
i nama *tað kl 18—8
Bókasafn Dagsbrúnar
að Freyjugötu 27 er opið
sem hér segir: Föstudaga kl.
8—10, laugardaga kl. 4—7 og
sunnudaga kl. 4—7
Að gefnu tilefni skal það tek-
iið fram, að fréttum um
tollþjóninn, sem birtist í
blaðinu á laugardaginn, er
ekki frá fréttaritara Al-
þýðublaðsins á Sauðár-
króki.
SSSSSSi
I
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell er
væntanlegt til
Helsingfors í dag
frá Rostock. Arn-
arfell er á Akur-
eyri Jökulfell er
væntanlegt til Calais í dag frá
Hull. Dlsarfell losar á Húna-
flóahöfnum. Litlafell losar á
Austfjarðahöfnum, Helgafell
kemur í kvöld til Reyðarfj.
frá Hamborg Hamrafell fór
24. þ. m. frá Rvk áleiðis til
Batum.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er á Austfjörðum á
suðurleið. Esja fer frá Rvk á
hádegi í dag austur um land
í hringferð. Herjólfur fer frá
Rvk kl. 21 í kvöld til Vest-
mamnaeyja. Þyrill er á Norð-
Lirlandshöfnum. Skjaldbreið
er á Skagafirði á leið til Ak-
ureyrar. Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleið.
Hallgrjmskirkja: Föstumessa
í kvöl'd kl. 8,30. Séra Sig-
urjón Þ Árnason.
Neskirkja: Föstumessa í
kvöld kl. 8,30. Séra Jón
Thorarensen.
Laugarneskirkja: Föstumessa
í kvöld kl 8,30. Séra Jón
Þorvarðarson, prédikar. Sr.
Garðar Svavarsson.
Fríkir.kjan: Föstumessa í
kvöld kl. 8,45. Ath. breytt-
an messutíma. Séra Þorst.
Björnsson.
Spilakvöld Borgfirðingafél.
verður fimmtudaginn 9. þ.
m. í Skátaheimilinu og
hefst kl. 21 stundvíslega.
Húsið opnað kl. 20,15 Góð
verðlaun. Mætið stundvís-
lega.
Félag Frímerkjasafnara: Her
bergi félagsiins að Amt-
mannsstíg 2, II hæð, er op-
ið félagsmönnum mánudaga
og miðvikudaga kl. 20—22
og laugardaga kl. 16—18.
Upplýsingar og tilsögn um
frímerki og frímerkjasöfn-
un veittar almenningi ókeyp
is miðvikudaga kl. 20—22.
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilanda-
flug: Hrímfaxi
fer fil Giasg.
Qg Kmh kL
08,30 í dag. —<
Væntanleg aft-
ur til Rvk kl.
16,20 á morg-
landsflug: I
un — Innan-
dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Húsavíkur, ísa-
fjarðar og Vestmannaeyja. —•
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Eg-
ilsstaða, Falteyrar, Kópaskers
Patreksfjarðar, Vestmanna-
syja, Þingeyrar og Þórshafn-
ar. • |
Loftleiðir h.f.:
Miðvikudag 8 marz er
Snorri Sturluson væntanleg-
ur frá New York kl. 08,30. —
Fer til Stafangurs, Gautaborg
ar, Kmh. og Hamborgar kl,
10,00.
Samúðarspjöld minningar-
sjóðs Sigurðar Eiríkssonar
og Sigríðar Halldórsdóttur
eru afgreidd í Bókabúð
Æskunnar.
Tæknibókasafn IMSÍ: Útlán:
kl. 1—7 e. h. mánudaga til
föstudaga og kl. 1—3 e. h.
laugardaga. Lesstofa safns.
ins er opin á vanalegum
skrifstofutíma og útláns-
tíma.
Minningarspjöld
Kirkj ubyggingarsj óðs Lang
holtssóknar fást á eftirtöldum
stöðum: Goðheimum 3, Álf-
heimum 35, Efstasundi 69,
Langholtsvegi 163 og Bóka-
búð KRON, Bankastræti.
Miðvikudagur
8. marz:
12,00 Hádegisút
varp. 12,50 „Við
vinnuna“: Tón-
leikar. — 15,00
Miðdegisútvarp
18,00 Útvarps-
saga bannanna:
„Skemmtilegur
dagur“ eftir Eví
Bögenæs II. —
(Sigurður Gunn
arsson kennari).
18,30 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar.
19,30 Fréttir. 20,00 Fram-
haldsleikrit: „Úr sögu Fors-
ytættarinnar“ IV. kafli, 3.
bókar: „Til leigu“. — 20,45
Föstumessa í Fríkirkjunni -—•
(Preatur: Séra Þorstéinn
Björnsson). 21,30 ,Sagamm‘
æskuminningar Paderewksys
— V. (Árni Gunnarsson fil.
kand). 22,00 Fréttir. 22,10
Passíusálmar (32). 22,20 Upp
lestur: Tvö ævintýri frá Lapp
landi, skráð af Robert Crott-
et (Haraldur Björnsson leik-
ari þýðir og les). 22,45 Jazz-
þáttur (Jón Múli Árnasoin).
23,15 Dagskrárlok.
8. marz 1961 — Aiþýðubiaðið