Alþýðublaðið - 09.04.1961, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 09.04.1961, Qupperneq 4
elg Blómaúrval Verður Sinfóníu- ✓ / a utvaro SVO SEM blöð hafa skýrt frá, á Sir<fóníuhijómsveit íslands við mikla erfiðleika að stríða, og hefur starfsemi . hennar legið niðri af þeim sökum. Kostnaður við hljóm- • sveitina hefur farið langt fiam úr tekjum, og skuldir hafa hlaðizt upp, auk þess sem hljóðfæraleikarar eiga í deilu við hljómsveitina og hafa lagt niður vinnu. Enda þctt mikið hafi ver- ið deilt tun, hvort íslendingar eigi að stefna svo hátt að ihalda uppi sinfóníuhljóm- sveit, og það hafi gengið ærið skrikkjótt undanfarinn ára- tug, hefur hljómsveitin unn- ið sér hraðvaxandi viðurkenn ingu, og væri mikið skarð í mer.nngarlíf þjóðarinnar, ef hún hyrfi. En fyrirtækið er dýrt, og þar stendur hnífurinn í ' kúnni. Það kostaði síðastliðið " ár um 4.5 milljónir að reka hljómsveitina, en tekjur hennar af sölu aðgöngumiða voru aðeins 177.000 krónur. Undanfarin ár hafa ríkið. Heykjavíkurbær, Ríkisútvarp ið og Þjóðleikhúsið greitt það, sem á vantar, eftir sérstöku Samkomulagi. Nú hefur sá rammi spnangið. Mun talið vonlítið, að þessir aðilar treysti sér til að tryggja nema liðlega 3,6 milljónir, og vant <ar því 8—900.000 krónur til að ná þeim kostnaði, sem varð við hljómsveitina í fvrra. Þvi miður hefur farið svo, að stjórn hljómsveitarinnar hefur gefizt upp og samþykkt <að biðia Ríkisútvarpið að taka ‘ við sveitinni. Er það raunar ekki nýt.t, að gengið sé í sjóði útvai'psins til að hjálpa öðr- um stofnunum, án þess að hugsað sé fvrst og.fremst um hag þess sjálfs eða útvarps- hluster.da. Má það furðulegt ■teljast. ef Ríkisútvarpið verð ur látið taka að sér þennan rekstur, þegar 'aðrir hafa gef izt upp. og standa undir halla, sem getur fljctlega numið hundruðum þúsunda til við- bótar við stórfé, sem útrarpið þegar greiðir til sinfóníunn- -ar. Sennilega er hægt að reka hljómsveitina betur en gert het'ur verið og lækka kostnað inn eitthvað frá 4,5 milljón- um. En það mundi reynast ó- hjákvæmilegt, að greiða af dagskrárfé ekki aðeins eina milljón til hljómsveitarinnar, eins og reiknað hefur verið með, heldur stórar upphæðir þar til viðbótar. Nú er allt dagskrárféð aðeins 4 milljón- ir og hlýtur slíkur baggi að skerða mjög fjárhagsgetu út- varpsins til annara dagskrár liða, að ekki sé talað um nauð- svniegar nýjar sendistöðvar, sjónvarp eða önnur óleyst verkefni þess. Sinfóníuhljómsveitin var stofnuð fyrir liðlega áratug með ríflegri hjálp útvarpsins og naut fyrstu árin rausnar legs stuðnings þess. Ái'ið 1953 lagðist starfsemin niður vegna fjárhagserfið- leika, og var þá, nákvæmlega eins og nú, vandanum dembt í fang útv'arpsins. Var talið, að útvarpið þyrfti ekki að borga nema 500.000, en opin berir styrkir voru þá komnir til skjalanna. Einu ári seinna var kostnaður útvarpsins af hljómsveitinni orðinn 900.000 og hún tók helminginn af öllu dagskrárfé. Þar að auki varð útvarpið að greiða á tveim ár- um 743.000 króna haila af hljcmsveitinni. Endirinn v'arð sá, að eftir tveggja ára rekst ur reyrrdist hljómsveitin út- varpinu fjárhagslega ofviða, og starfsemi hennar lagðist öðru sinni niður. Ætla mætti eftir þessa reynslu, að brennt barn forðaðist eldinn, en svo vúrðist ekki vera. Það er sjálfsagt, að Ríkis- útvarpiö styrki ýmsa þætti menningarlífs í landi.nu eftir getu, og hlýtur hljómsveitin að vera þar framarlega í flokki. Þetta hefur útvarpið gert ríflega, auk þess sem gjöld af sölu útvarpstækja hafa runnið frá útvarpshlust endum' til hljómsveitarinnar. En að gera útvarpið eitt á- byrgt fyrir rekstri sveitarinn- ar, þar með öllum halla hennar framyfir núverandi tekjur, er óverjandi með öllu frá sjónarmiði Ríkisútvarps- ins og útvarpshlustenda. Það er ódrengiieg fram- koma af tónlistaraðilum, sem þetta mál snertir, að setja Ríkisútvarþið uup viö vegg og segja: Ef útvarpið ekki borgar það,. sem á vantar nú og í framtíðinni, er það að drepa hljómsveitina. Enginn aðili hefur varið jafn mörg- um miiljónum til sveitarinnar og útvarpið, og það er ekki síður hlutverk annara opin- berra aðila og einstaklinga að leysa þetta mál en útvarpsins. Tvær höfuðleiðir eru til að tryggja framtíð sinfóníu- hljómsveitar hér á landi. — Hin fyrri er að láta hana vera sjálfseignarstofnun, eins og hún hefur verið með styrk frá ríki, bæ, leikhúsi og útvarpi. Dugandi einstaklingar ættu að geta lækkað reksturskostn- að sveitarinnar og þeir ættu að skipuleggja margþætta fjáröflun. Og spyrja mætti: Sendur samtökum tónlistar- áhugafólks t. d. Tónlistarfé- laginu, ekki nærri að taka ein hvern þátt í að bjarga hljóm- sveitarmálinu? Getur sin- fónían ekki fengið hóp styrkt arféiaga eins og karlakóram- ir? Væri ekki hægf að fá 500 fyrirtæki og einstaklinga til að greiða styrktargjöld og fá þannig nokkur hundruð þús- und? Vilja tónskáldin í Stefi, sem fá 700.000 kr. á -ári frá út- varpinu, leggja eitthvað af því í hljómsveitina? Er ekki hægt með fiörlegri rekstri að fá meira en 177.000 í tekjur af aðgöngumiðum? í Bandaríkjunum eru, sam kvæmt upplýsingum- Sam- bands sinfóníuhljómsveita þar í .landi, um 700 hljóm- sveitir, flestar í litlum horg- um, og fá enga ríkisstyrki. — Hvernig fara þær að lifa? Er AfsOoorin blóm, Rósir, Tulipanar, Páskaliljur, íris o. fl. — Pottablóm alls konar — Pottamold -— Blómsturpottar — Blómaáburður — Blómagrindur o. m, fl. .... Blóma- og grænmetismarkaðurinn Laugavegi 63. Blómaskáiinn | við Nýbýlaveg- og Kársnesbraut Ath.: Blómaskáiinn er opinn frá kl. 10—10. Góö afgreiðsla — Reynið viðskiptin. BLÓIV3ASKÁLINN Slysavarnadsijdin Hraunprýði heldur fund þriðjudaginn 11. apríl kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu* Venjuleg fundarstörf. — Skemmtiatriði úr kvöldvökunni o. fl. — Kaffidrykkja. — Konur fjölmennið. Stjórnin, Áskriftarsímh n er 14900 ekki hægt að læra eitthvað af þeim — i stað þess að gefast upp? Hin leiðin er að gera hljóm sveitina að opinberu fyrir- tæki, setia um hana lög og láta ríkisvaldið taka að sér ábyrgð á að sjá henni far- borða. Sú leið er farin víða um lönd, og þarf ekki að hindra, að bær, útvarp og leikhús leggi ríflega til sveit arinnar. Alþingi hefur reynzt •rausnarlegt við tónlistina og veitir nú á aðra milljón til ýmissa aðila hennar, auk 10 % skemmtanaskatts og hluta a£ ágóða viðtækjaeinkasölu til sinfóníunnar, sem einnig er á aðra milljón. Væri til dæmis noklcuð eðlilegra en að skatt ar og tollar af hljómplötum, og hljóðfærum rynnu til sveitarinnar? Af öllu þessu er augljóst, að hér er ýmissa kosta völ, en hinn óréttlátasti og' óhyggileg asti er sá, sem nú er verið að reyna: að leggja vandann all- an á útvarpið og takmarka þannig möguleika þess til að veita hlustendum sínum þá margvíslegu aðra þjónustu, sem því ber. CULDMEDALJE Itlt MANDALSUTSTILUMCEN CULDMEDALJE ItM TILONÖELACSUTSTILLINCEN, Orund 1.1775 Mandals Reberban Grundll775 Christiansen&Co.i Uarrmrrhs Uarx»m«rkj» - UTGERÐARMENN - Höfum ávallt fyrirliggjandi: 5 mm línuás 7 mm iínuás 9 mm færaefni létt-tjargað Sísalbindigarn, 3 þætt og 4 þætt 6 mm línuás Uppsetta línu Netatóg, allar stærðir Spyrðubandaefni Verzfíð þar sem verSið er hagkvæmast. L. ANDERSEN H.F. Hafnarhúsmu — Reykjavík — Sí Tiar 13842 og 38210. 9. apríl 1961 Aljríöublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.