Alþýðublaðið - 12.04.1961, Page 1
SLAGSMAL
Einkaskeyti til Alþýðublaðs
ins. Grimsby í gær.
TOGARINN Boston Vangu-
ard rauf verkfall yfirmanna
kl. 4 í dag. Urðu af því tilcfni
ógurleg læti hér við höfnina,
eins og vænta mátti. M. a.
börðu verkfallsverðir stýri-
mann og háseta á Vanguard.
Boston Vanguard er fyrsti
togarinn sem brýtur verkfallið
í Grimsby, en nokkrir togarar
frá Hull rufu verkfallið þar
meðan á því stóð, eins og kom
ið hefur fram í fréttum.
Geysileg- læti voru Mér í dag
út af þessu verkfallsbroti og
cru yfirmenn á togurum eink-
um reiðir.
Kyrrt var hér í dag, þegar
Hafnarfjarðartogarinn Ágúst
lagðist að bryggju. Togarinn
mun landa kl. 12 í kvöld,
þriðjudag, og er búizt við að
löndunin fari fram án þess að
til átaka komi. — Björn.
íslenzkur
í Grimsby
Mynd þessi er frá Grims
by og birtist í Times,
London 7. apríl. íslenzkur
togari liggur við bryggju
tilbúinn til að landa.
Mcnnirnir sem standa á
hafnarbakkanum eru yf-
irmenn á brezkum togur-
uni og fulltrúar togara-
fyrirtækja. Sem sjá má
eru lögreglumenn einnig á
gangi á bryggjunni.
WWWWWW/^ftWWIWWWÉÍ^
Ekkl bung
hergögn
New York, 11. aprál.
(NTB—AFP).
Öryggisráð SÞ ákvað > dag
að biðja Israelsmcnn að nota
ckkj þung hergögn í hinni fyr
irhuguðu hersýningu í Jerúsa
lem 20. apríl næstk. 8 voru
með, 3 sátu hiá. Arabíska sam
bandslýðveldið og Ceylon báru
tillöguna frani- Vopnáhlés
nefndin fyrir Palestínu hefur
Iíka borið fram slíka beiðni.
Grimsby-
menn æptu á
íslendinga:
BLAÐAMAÐUR Alþýðublaðs
ins, Björn Jóhannsson, símaði
eftirfarandi frá Grimsby í gær:
ÞIÐ ERUÐ EKKI VEL
KOMNIR hér öskruðu
sjómennirnir á brezka tog
anum Grimsby Town, er
Þorkell máni mætti togar
anum á leið sinni til
Grimsby í gær. Létu
brezku sjómennirnir ým
is óákvæðisorð falla í
garð skipverja á Þorkatli
mána.
Þorkell Máni lagðist upp að
bryggju um kl. 1 eftir hádegi.
Var þá mikið kurr í löndunar
mönnum og mikil óvissa ríkti
um það hvort þeir myndn fást
tii þess að losa Þorkel Mána
eða ekki. Þórarinn Olgeirsson
átti langan fund með löndunar
mönnum strax um morguninn og
fékk hjá þeim loforð fyrir því,
að þeir myndu landa úr togaran
um. En síðar um daginn, eftir
að Þorkell Máni var kominn
inn, virtlust löndunarmenn vera
að snúast aftur, en Þórarni tókst
þá aftur, að fá þá til þess að
halda fast við loforð sitt um að
landa.
HÖFNINNI
LOKAÐ
Miklar varúðarráðstafanir
Framhald á 15. síðu.
ÞAÐ er mikið um að vera
hjá nemendum 12 ára
bekkjar Kópavogsskóla í
gær. Þá fór fram hin árlega
skemmtun þeirra sem fulln
aðarprófi ljúka, Meðal
skemmtiatriða var leikritið
„Draumurinn hennar
Dísu“ . Leppalúði vakti
mikla athygli, en hann var
leikinn af Steini Hermanns
syni, Hérna sjáum við hann
fetta sig og bretta fyrir
framan spegilinn í búnings
herberginu, áður en hann
fór, inn á sviðiö.
wwwMwwwwwwm
Góð sala
Víkings
TOGARINN Víkingur frá
Akranesi seldi afla sinn í Hull
í gærmorgun. Var Víkingur me®
4006 kits og fékk 16,027 stei*
lingspund, sem er ágætis salia.
BlaSið hefur hlerað:
AÐ Flugfélag íslands hafi
í hyggju að taka á
leigu í Bandaríkjua
um Skymasterflugvél
til að annast Græn
landsflugið.