Alþýðublaðið - 12.04.1961, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.04.1961, Blaðsíða 4
algengusf dánar- rsök til fertugs DAGUR Alþjóðaheilbriígðisstofmmarinnar var haldinn hátíðlegur 7. apríl s. 1. og var baráttumál dagsins slysavarnir og einkunnarorð dagsins voru: „Slys eru ekki óhjákvæmileg". Páll Sigurðsson, tryggingaj-firlæknir, flutti ræðu _í fréttáauka Ríkisútvarpsins í tilefni af degJnum sem hér fer á eftir: 1 dag. 7. apríl, er um allan heim haldinn dagur Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, .— sem stofnuð var 1948. Á þessum degi velur stofn- unin til athugunar og umhugs unar eitthvert málefni, sem talið er almennt vandamái meðal þjóða heims. í dag hefur stofnunin valið að baráttumáli slysavarnir, baráttu gegn slysum, og valið að einkunnarorðum dagsins, „Siys eru ekki óhjákvæmi- leg". Sú heillavænlega þróun hefuj' víðast orðið, að í kjöl- far aukinnar vélvæöingar og iðnvæðing hefur komið aukin slvsahætta og vaxandi slysa tíöni, — Orsakirnar til þessa má rekia til þess, að slysavarn ir og athuganir á orsökum slysa hafa ekki haldist í hend- ur við aukin vélakost og verk færa. og'-ekki hefur verið bvrj að afi revna að fyrirbvggja ha tturnar fyrr en þær sýndu sig áþrevfanlega með dæm um. Nú er víðast svo komið í menningariöndum að manns iát af völdum slvsa eru þriðja algengasta dánarorsök miðað við alla aldursflokka, og kem ur þar næst á eftir hjartasjúk dómum og krabbameini. Hér á landi reyndust manns lát af slysavöldum í 4. sæti dánarorsaka samkvæmt heil- brigðisskýrsium 1957, voru þá 79 talsins eða 68.3 af þúsundi allra mannsiáta það ár, næst á eftir hjartasjúkdómum, kraifbs.meini og heilablóðfalli. — Dg hér á landi eins og alls staðar annarsstaðar, þar sem slikar skýrslur eru tiltækar, há eru slys langalgengasta dánarorsök á aldrinum 1 árs til fertugsaldurs. TiJgamgur þessa dags Al- bjóðsheilbrigðisstofnunar innar er að beina athygli stjómarvaldanna og almenn- ings að þessari staðreynd, og vekja áhuga á þvf að reynt verði að finna leiðir til úr bóta. Við Islendingar höfum gjaxnan tilhneigingu til þess sð halda, að ástand heilbrigð ismála okkar sé betra en ger- ist maðal stórþjóða. þetta er ot’t háskalegur misskilningur. I grein er skólayfirlæknir Benedikt Tómasson ritaði að loknu þingi um slvsavarnir er Alþjóðaheilbrigðsstofnunin hélt í Belgiu 1958, og birtist með heilbrigðisskýrslum 1955, hefur hann dregið saman nokkrar niðurstöður athugana þessara mála, og ætla ég að rekia nokkrar þeirra hér í stuttu máli, því að þær varpa skýru ljósi á hver staða Is- lands er miðað við aðrar þj óðir. Við samanburð á slysa- dauða í öllum aldursflokkum á tímabilinu 1951—1953 þá kom í ljós að hundraðstala dauðaslysa af heildardánar- tölu var hér 7.5 og var sú hæsta er þá þekktist. Lægst var talan í írlandi 2.3, en á Norðurlöndum voru tölurnar þannig: í Noregi 5.4, i Sví- þjóð 4.1' og í Danmörku 4.7. Dauðaslys á 100 þús íbúa vöru á sama tímabili hér 55.6. Lægst var talan { írlandi 28.5, en hæst í Bandaríkjum NorðurAmeriku 61.4. Fyrir Norðurlöndin voru þessar tölur þannig: I oregi 45,6 Svíþjóð 39.8, og í Danmörku 41.9. í Englandi var talan að- eins 33.2 Bifreiðaslys á 100 þús. íbúa voru hér 8.1. Lægst var dán artalan vegna bifreiðaslysa á Spáni 1.2, en hæst í Banda- ríkjunum 24.1. Það ber þó að athuga við skoðun .þessara síðastnefndu talna, að talan ■ein segir -ekki aila sögu, held ur þarf einnig að taka tillit til ^fjölda bifreiða og ekinna kíló- metra, en þær upplýsingar voru ekki fyrir hendi. Af þessu sést að hinn raunveru- legi slysadauði á íslandi er með því mesta sem gerist hjá menningarþjóðum þar sem til þekkist miðað við mannfjölda, og mun meiri en hjá ná- grönnum okkar á Norðurlönd um og á Bretlandi. Ef athuguð er skipting dauðaslysa eftir aldursflokk- um þá kemur í Ijós, að rösk- lega þriðja hvert barn sem deyr á íslandi á aldrinum 1— 14 ára, lætur lífið af slysför- um, og algengasta dánaror- sök fram að fertugsaldri er slys. Slysadauði er miklu algeng ari á körlum en konum, einkum eftir 5 ára aldur, og það er meiri munur á þessu hér á landi en annars staðar. Á tímabilinu 1951.—1953 dóu fleiri kai'lmenn af slysförurn á íslandi en í nokkru öðru landi, sem kunnugt er um, miðað við fólksfiölda. Á ár- unum 1946—1950 dóu alls að meðaltali á ári á aldrinum 1 —40 ára 110.6 karlar, þar af 44.8 eða 40.5 (/< af slysum. Á sama tíma dóu alls að rneðal tali á ári i þessum sömu al- dursflokkum 62.6 konur, þar af 10.2 eða 16.2cr af slysum. Á árunum 1951—1953 dóu alls að meðaltali á ári á aldr inum 1—40 ára 88.0 karlar, þar af 42.0 eða 47.7 c'c af slys förum. Á sama tíma dóu alls að meðaltali í sömu aldurs- Páll Sigurðsson. T" flokkum 46.3 konur, þar af 6 eða 12.9'jo af slysförum. Af þessu sést að enda þótt dauðs föjlum hafi fækkað á síðara tímabilinu miðað við það fyrra þá hefur dauðsföllum af slysum ekki fækkað að sama skapi, og því er hlut- fallstala þeirra hærri síðara timabilið. Flokkun dauðaslysa eftir skrá Alþj óðaheilbrigðisstof n- unarinnar var fyrst tekin upp hér á landi 1951, og þá fyrst hægt að bera slysadauða i einstökum flokkum saman við aðrar þjóðir, Við athugun og samanburð á þessu á tímabilinu 1951— 1953, þá kemur í Ijós, þegar athuguð eru dauðaslys á 100 þúsund manns í aldursflokk- unum 1—19 ára, að bifreiða og flutningaslys eru algeng- asta dánarorsök karla hér, eða 32.4, en hjá konum er hliðstæð tala 6.3. Önnur al- gengasta dánarorsök karla var slysadrukknup eða 14.4, en kvenna slys af eldi 3.8. Framh. á 14. síðu. IIVAÐ skeður ef vistq- maður er skyndilega iátinn svífa til jarðar úr flugvél yfir héimskautslöndunum að vetararlagi og verður al gerlega að hugsa þar um sig sjálfur. Kannsókn ’ á þessu fór nýlega fram á veg um Sfanfordháskóla i Bandaríkjimum og voru til raunir g.erðar í Alaska. — Tveim mönnunt var varpað niður á ísiþakta jörð og urðu mennirnir að dúsa þar matarlausir í fimm xlaga. — Þeir vorn ekki látnir v>ta hvenær þeir yrðu sóttár. Fyrst tóku þeir éftir þvi hve lííið þurfti tii a5 erta þá og vaitla smá rifriidum á miiii þeirra, auk eirðarleys is sem þjáði þá fvrstis dag- ana. Ekki varð séð að það heíði eftir á nttkkur slæm áhrif á niennina að fasta í fimm daga. f>eir téttust um 6 kíló liver en náðu þeim þunga fljótt aftur. Þeir kom ust einnig að því að mögu legt er að lifa á bræddum snjó ef menn hafa vit á því að spara annars kvafta sína og halda sem msst kyrru fyrir. Með tilraun þessari telja vísindamennir.nir geta reiknað lit hve lengi menn geti lifað irptarlausir ef hyggilega er að farið. N'ær allan timann héldu meimirnir kyr u fyrir í tjaidi en kveiktu sér þó ehl úti fyrir en liösðu þegar á leið ekki rænu á að klæða sig úr yfirhöfnunum svo hit inn kæwi þeim að gagni. Matarlystin virtist óseðj andi f.vrst eftir tiiraunina og þyngdist annar maðurinn um 6 kíió á 27 klst. Þótt liann boríaði eins og hann gat í sig látið, var sjúklegri matariyst hans samt ékki fulinægt. Mýndin er íekin þegar þöim var „bjargað.i;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.