Alþýðublaðið - 22.06.1961, Síða 9
ÖNNUR KONA var nýlega hér
á landi, sem fellur vel í þennan
kvartett, það er Jekaterina
Furtseva. Það sem hún er í dag
er eingöngu að þakka óbugandi
viljastyrk, þrjózku og stjórnmála
kænsku. Hún hefur þrætt sig upp
valdastigann í Sovétríkjunum og
stendur í dag í fremstu fylkingu
þess harða hóps, sem þar stjórn-
ar málum.
Jekaterina Furtseva er gift
sendiherra Sovétríkjanna í Jígó-
slavíu, Firyubin og eiga þau eina
dóttur, Svetlönu, sem var hér á
ferð með móður sinni eins og
menn muna.
Jekaterina Furtseva er hin
myndarlegasta kona ljóshræð, og
með sterk, Ijósblá augu, klæðnað
ur hennar er vel valinn og smekk
legur, einnig hún veit hvaða á-
hrif góður klæðaburður hefur á
fólk.
En á bak við virðulegt og
snyrtilegt ytra útlit, er kona, sem
hefur sterkan persónuleika og hef
ur mikla stjórnmálahæfileika.
ÞAR GALA
GAUKAR
HANN hafði verið alltof
lengi úti með kunningjun-
um — eins og vanalega.
Svo að hann var talsvert
þéttur — eins og vanalega.
Og nú var klukkan orð
in þrjú þó að hann hefði há
tíðlega lofað að vera kom
inn heim fyrir klukkan ell
efu. Hvernig í skollanum
átti hann að klóra sig út úr
þessu?
Hann átti lengi í brösum
við útidyralykilinn, lædd-
ist varlega inn og byrjaði
um leið að klæða sig úr föt
unum. Svo hélt hann á-
fram f áttina að svefnher
bergisdyru.num, en rétt þeg
ar hann var að komast að
þeim sló gauksklukkan
þrjú, og þá var það, að
hann fékk dásamlega hug-
mynd. Þegar gaukurinn
hafði galað þrisvar, tók
hann sjálfur við og galaði
upp að ellefu. Þetta mundi
konan hans ekki varast.
Hann opnaði varlega
dyrnar að svefnherberginu
og læddist upp í rúmið, án
þess að konan hans snéri
sér við, hvað þá meira.
Hann var úr allri hættu.
Þegar hann sat við morg
unverðarborðið með konu
sinni daginn eftir sagði
hún: „Heyrðu við verðum
að láta gera við gauks-
klukkuna í forstofunni“.
„Því þá það“? spurði
hann sakleysislega, „það er
ekki neitt að henni“.
,Ef til vill ekki, sagði
kona hans, „en hún hagar
sér í það minnsta einkenni
lega. Þegar ég lá og beið
eftir þér í nótt, galaði hún
þrisvar, svo hikstaði hún,
svo sagði hún: skrattinn
sjálfur, og svo galaði hún
fjórtán sinnum í viðbót.
Þreyta
ÞEKKTUR Knattspyrnu
dómari liafði dæmt mjög
umdéildan leik og var
spurður að því eftir á,
hvers vegna hann hefði vís
að einum af vinsælustu
leikmönnunum út af vell
inum.
„Hann var þreyttur“,
sagði dómarinn.
„Nei, hættu nú“, sagði
sá sem spurði, „var einhver
ástæða til að vísa lionum
út af þess vegna“.
„Já, svo sannarlega,
hann sagðist vera þreyttur
á því, hvernig ég dæmdi“.
WMWMMMWHWWMMWW
AMERÍSKI kvik-
myndaleikarinn Jeff
Chandler dó síðastlið
inn sunnudag í
sjúkrahúsi í Holly
wood. Hann var að
eins 42 ára, þegar
hann lézt.
Jeff Chandler
hafði legið marga
mánuði á sjúkrahúsi
vegna meinsemdar í
hryggnum. Þann 13.
maí í vor var hann
skorinn upp vegna
þess að brjóskhring-
ur milli hryggjarliða
hafði rofnað, en eftir
þann uppskurð fékk
hann innvortis blæð-
ingar og þurfti stöð
ugt að gefa honum
blóð.
Um tíma virtist
hann vera á batavegi
og læknarnir höfðu
von um að unnt væri
að bjarga lífi hans,
en fyrir nokkrum
dögum fékk hann
svæsna lungabólgu
og jafnframt kom í
ljós að hann hafði
fengið blóðeitrun.
Jeff Chandler var
mjög þekktur leikari
og hafði leikið aðal-
hlutverk í fjölda
mynda, sem mikilla
vinsælda hafa notið.
SÍLÐARFÖLK
Nú er síldarsöltun hafin á Norðurlandi.
Enn vantar oss síldarstúlkur, ásamt
matsmanni og beyki, á söltunarstöðvar
vorar á Raufarhöfn.
Upplýsingar í síma 19155 næstu daga
frá klukkan 9 til 19.
Kaupfélag Raufarhafnar
Borgir h.f.
Söltunarstöðin Skor
LEIGJU
út sali fyrir veizlur og fundahöld.
☆
Tölkum einnig að okkUr stóra og smáa ferðahópa
með fyrirvara.
☆
Aðeins fyrsta flokks þjónusta.
☆
Ailar nánari upplýsingar í símum 15533 cg 13552.
TJARNAiCAFÉ
Vonarstræti 10.
SÍLDARSTÚLKUR
vantar mig nú þegar til:
SIGLUFJARÐAR
RAUFARHAFNAR
V OPNAF JARÐAR
Söltun byrjuð.
GUNNAR HALLDÓRSSON
Sími 34580.
Alþýðublaðið — 22. júní 1961 g)