Alþýðublaðið - 22.11.1961, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.11.1961, Blaðsíða 7
kona, sem sýni hvatf í henm býr, í þessn hrseSUeg'a hlut- verki. En ekki skyldi gleyma þætti le kstjórans, de Síca, sem stjórnaS hefur mörguni mestu listaveikum kvikinyntl anna. -..tan, *J:V : Ályktanir bæjarstjórnar ísafjarðar ísafirði, 17. nóvember. Á FUNDI bæjarstjórnar ísa- fjarðar 15. þ. m. óskuðu bæj- arfulltrúar meirihlutans, þ. e. 3 Alþýðuflokksmenn, 1 Al- þýðubandalagsmaður og 1 Framsóknarmaður, eftir því að inn á dagskrá fundarins yrðu teknar tillögur varðandi ,,ísa- firðingsmálið“, þ. e. a. s. hinar einstæðu ráðstafanlr og ,leigu‘ meirihluta stjórnar ísfirðings h.f. á hraðfrysthúsi félagsins og tilheyrnadi véluin og áhöld um. Til þess að slík afbrigði séu leyfð, þarf % atkvæða innán Ibæjarstjórnarinnar eða 6 atkv. Þratt fyrir það, að oft hefur verið deilt hart innan bæjar- stjórnarinnar á ísafirði, þá er það nær óþekkt, að reynt sé að hindra umræður um deilu- mál með því að notfæra sér þetta ákvæði fundarskapanna. En svo mikið feimnismál er „leiga“ þessi hjá þeim aðilum, sem þessu réðu, að allt kapp er á það lagt aö reyna að slá þagnarmúr umhverfis athæfið í þeirri von, að allt gleymist og unnt sé að leika ævintýrið til enda með aðstoð voldugra vina, áður en almenningur og almennir kröfuhafar átta sig á því hvað hér er á ferðinni. En rödd bæjarstjórnar ísa- fjarðar varð ekki kæfð nema í einn sólarhring, því bæjarfull trúar meirihlutans óskuðu skrlflega eftir aukafundi bæj- arstjórnarinnar um málið. Sá fundur var svo haldinn Samsæti heiburs Egilsdóttur * VERKAKVENNAfélag- ið FRAMSÓKN gengst fyr ír samsæti til heiðurs Jó- hönnu Egilsdóttur, form. félagsins, í tilefni áttatíu ára afmælis hennar lang- ardag.nn 35. nóvember. Samsætið verður í Iðnó og hefst klukkan 7 síðdeg- is með sameiginiegu borð- haldi. Allir vlnir og vel- unnarar Jóhönnu eru vel- komnir. Allar upplýsingar við- víkjandi hófinu eru gefn- ar á skrifstofu Verka- kvennafélagsins, sími 12931, og hjá Pálínu Þor- f nnsdóttur, Urðurstíg 10, sími 13249. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 24. þ. m. s. 1. fimmtudag í Alþýðuhús- inu. Eftirfarandi tvær tillögur voru samþykktar á fundinum með 5 atkv. gegn 4 atkv. Sjálf- stæðismanna. Það vakti óskipta athygli, að tve r bæjarfulltrúar Sjálfstæð • isflokksins á fundinum eru í hópi aðalhluthafa „leigúfélags ins“, og grelddu því atkvæði í eigin hagsmunamáli, enda mun flokkurinn hafa átt í miklum erf.ðleikum með að fá fulltrúa sína til að mæta í máli þessu, og þar áf leiðandi voru þeir t lneyddir fil að ger- ast eigin verjendur og málsvar ar. „Bæjarstjórn ísafjarðar lýs- ir yfir fyllsta stuðningj sínum við afstöðu þeirra Jóns Á. Jóhannssonar ng Stefáns Stefánssonar stjórnarmeðlima ísf rðings h.f., ísafirði, á stjórn arfundi félagsins 29. október 1961, þar sem þeir lögðu til, að félagið yrði gefið upp til gjaldþrotameðferðar eigi síðar en 1. nóv. s. 1., og mótmæltu jafnframt því, að eftirsóttasta og verðmætasta eign félags ns, hraðfrystiúsið með tilheyrandi vélum og áhöldum, yrði leigt um þriggja ára tíma. Bæjarstjórnin áréttar þá skoð jn, að samkvæmt. ótvíræð um fyrirmælum í lögum um gjaldþrotaskipti, ber stjórn ís- f rðings h.f. skylda til að gefa félagið upp til gjaldþrota- skipta nú þegar. Fyrirsjáanlegt er, verði fé- lagið ekki tekið til gjaldþrota- meðferðar, að sívaxandi skulda söfnun þess haldi áfram, sam- fara því, að mikill hluti af elgn um þess fellur jafnframt veru- lega í verði, og rýrnar þar með hlutur kröfuhafa að nriklum mun frá því sem nú er. Verði ekki farið að fyrir- mælum laga um gjaldþrota- skipti varðandi umrætt félag, lýsir bæjarstjórn ísafjarðar því yfir, að hún telur að viðkom- andi aðilar taki þá um leið að sér að fullnægja skuldbinding- um fyrirtækisns. Þar sem bæjarsjóður ísa- fjarðarkaupstaðar er í ábyrgð fyrir nokkrum hluta af skuld- um ísfirðings h.f. samþykkir bæjarstjórn'n að fela lögfræð- ingi að fylgja þessu máli eftir og taka jafnframt að sér að gæta hagsmuna bæjarsjóðs og annarra stofnana ísafjarðar- kaupstaðar í þessum efnum“. „Bæjarstjórn Isafjarðar mót mælir því sem ótvíræðri lög- leysu, að me'rihluti stjórnar ísfirðings h.f. skuli hafa leigt hraðfrysthús félagsins ásamt með tilheyrandi tækjum og á- höldum til 3ja ára, þar sem fyrirtækið í heild er gjaldþrota með öllu, svo að ekki verður um deilt, og því lagaieg skylda félagsstjórnarinnar að gefa fé- lagið upp til gjaldþrotaskipta. Þetta tiltæki er þeim mun vítaverðara, þar sem sumir starfsmanna félagsms nota að- stöðu sína til þess að leigja lilutafélag:, sem þeir eru sjálf- ir hluthafar í, verðmætustu eign ísfirðings H.f.“ Kvikmýnd SVIÐIÐ er Suður-ítalía. Sagan gerist í síðari heims- styrjöldd nni. — Hersveitir bandamanna sækja fram, herir möndulveldanna hörfa. Á ,,einskismannslí>nd!“, á landamærum lífs og dauða, eiga hinir hörmulegustu at- burð r sér stað. ítalir geta aldrei gleymt því, þegar ávextiv illskunn- ar féllu þungt til javðar og eitruðu fyr;r þjóðinni. — í skáldsögum og kvikmyfidum er iðulega brugðið upp mynd um frá nótíum hinna löngu hnífa og ógnum hinna d'mmu daga. Skáldið Alberto Moravia hefur ífert þetta í skáldsög- unni-La Cioeiara, en kvik- mynd Vlttorio de Sica um það efni hefur á dönsku ver- ið nefnt „Tígrisynjan“. sem ekki kvað ná frummálinu bókstaflega, en þykir engu að síður e'ga vel við efnið. Sophia Loren er tígrisynj- an, sem ver sig og sína með öllum ráðum, klóm og kjafti, ef svo má að orði komast. — Hún leggur á flótta á þessu vití'rringartimabili ásamt dóttur sinni, -og er förinni heit'r í suður — til fæðing- arbæjar síns. En þar er eng an frið að finna, þær flýja aftur — í norður. Og ógæfan eltir þær. Hámark kvikmýndarinnar er nauðgunarsena á k;rkju- gólfi, þar sem bæði móðir og dóttir eru fórnarlömbin. — Bergman hefði ekki getað gert þá sviðsmynd viðbjóðs- legri. Sophia Loren hefur hlotið ágæta dóma fyr.r leik sinn í þessari kvikmynd, sem sögð er skilja mikið eftir lijá á- horfendum. Þykir þessx it- alska kynbomba þ.'tina vera vaxin ur grasi sem leikkona, meira að segja ágæt leik- Alþýðublaðið — 22. nóv. 1961 V

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.