Alþýðublaðið - 04.01.1962, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 04.01.1962, Blaðsíða 13
.MMMMMMMUMHMMMMMHM AÐALFUNDUR Stúdenta félags jafnaðarmanna var haldinn í 3. kennslustofu Há- skóla íslands í nóvemberlok. Formaður félagsins, Hrafn- kell Ásgeirsson, stud. jur., sett; fundinn og skipaði Björn Friðfinnsson, stud. jur, fund arritara. Formaður flutti skvrslu stjórnar, fyrir sl. starfsár Starfsemin hafði verið tö!u- verð á síðastliðnu ár, og hafði aukizt mjög verulega frá árinu áður. Á síðastliðnu ár; gekk Stúdentafélag jafn- aðarmanna til samstarfs með Vöku í sambandi við und'r- búning að hátíðahöldum fyr- ir 1. desember á bví ári. Eins og kunnugt er, var fuilveid- isdagurinn þá helgaður iand- helgismál nu. í nefnd til að undirbúa hátíðahöldin var kosinn Hrafnkell Ásgeirsson, stud: jur., og til vara Hrafn Bragason, stud. jur., frá félag inu. Jónatan Sveinsson, stud. jur., var kjörinn í r tnefnd 1. des. Stúdentablaðs frá Stúdentafélagi jafnaðar- manna. Haldnir voru nokkrir fund ir á árinu á vegum félagsins. Vor-u fengnir margir forystu- menn Alþýðuflokksns á stjórnmálasviðinu til að ræða við félagsmenn um ýmis mál sem voru efst á baugi hverju sinni. Á aðalfundi félags ns 1960 var samþykkt tillaga frá Bolla Gústavssvni, stud. theol., þar sem stjórn félags- ins var fal-ð að ræða vtð önn ur stjórnmálafélög nnan há- skólans svo og Stúdentafélag Háskólans um það, að lifi yrð; að nýju blásið i h ð síð- astnefnda, og tæki það aftur sess málfundafélags innan há skólans eins og fyrrum, og gætu stúdentar þar rætt stjórnmál, vísindi og listir. Stúdentafélag jafnaðar- manna skr faði fyrrnefndum félögum um þetta mál Svar kom ekk; frá Félagi réttækra eða Félagi frjálslyndra ,en Vaka hafn. málaleUun þess- ari. Svar Stúdentafélags Há- skólans var, að þatí hélt tvo fundi á síðastliðnum vetri. annan um áfenga ölio en hinn um aðskilnað ríkis og kirkju. Málgagn féiagsins Stúd- entablað jafnaðarmanna. kom einu sinn; út á síðasta vetri. ungá IrnlCTÍTM STJÓRN Stúdentafélags jafnaðarmanna. Talið frá vinstri: Hrafn Bragason, stud. jur., Björn Friðfinnsson, stud. jur., Hrafnskell Ásgeirsson, stud. jur., Óttar Ingvarsson, stud. jur., Guðjón Stef- ánsson, stud. polyt. AÐALFUNDUR STÚDENTA- FÉLAGS JAFNAÐARMANNA Ritstjóri var Hrafn Bragason stud. jur. Nú í haust gekk félagið að nýju t l samstarrs við Vöku um undirbúning að há- tíðahöldum 1. desember í ár. Var fullveldisdagurinn að þessu sinn; helgaður vest- rænni samvinnu. í hátiðar nefnd fóru frá félaginu þe r Björn Friðfinnsson, stud. jur. og Óttar Yngvason, stud jnr Frá félaginu fór í ritnefnd 1. des. Stúdentablaðs Björn Matt híasson, stud. oecon., og til vara Hákon Árnason, stud. jur. Björn var á fyrsta fundi ritnefndarinnar kjör tin rit- stjóri blaðsins. í vetur beitti félagið sér fyrir stofnun málfundaklúbbs Laugardagsklúbbsins. For- maður klúbbs ns var kjörinn Björn Friðfinnsson, stuid. jur. Heldur klúbburinn fund í félagsheimil; FUJ í Reykja- vík að Stórholti 1 , annan hvorn laugardag. Ýmislegt fleira lét félagið 11 sín taka á árinu. LAGABREYTINGAR. Á aðalfundinum i fyrra voru þeir Óttar Yngvason, stud. jur. og Hrafnkell Ás- geirsson, stud. jur. kosnir í nefnd til að endurslcoða lög félagsins. Lögðu þeir nú frarn ítarlega samið lagafrumvarp. Óttar fylgdi því úr h'að og skýrði. Urðu töluverðar um- ræður um það, og var það síðan samþykkt sem lög fé- lagsins. KOSNING STJÓRNAR. RITNEFNDAR STIJD- ENTABLAÐS JAFNAÐ- ARMANNA OG END- URSKOÐENDA. Stjórnin var að mestu end- urkjörin, en hana sklpa: — Hrafinkell Ásgeirsson, stud. jur., formaður; varaformað- ur og ritstjóri Stúdentablaðs jafnaðarmanna Hrafn Braga- son stud. jur. Aðrir í stjórn þeir Guðjón Stefánsson, stud. polyt., Björn Friðfinnsson. stud. jur. og Óttar Yngvason, stud. jur. í ritnefnd auk ritstjóra: Guðmundur Sigurðsson, stud. med. og Þorsteinn Ge rsson, stud. jur. Endurskoðendur voru kjörnir: Pétur Axel Jónssor., stud. jur. og Björn Matthías- son, stud. oecon. Að kosningum loknum urðu fjörugar umræður um starf félagsins á komandi starfsári og fleira. Annað Áfanga heftið af komið út ANNAÐ hefti af Áfanga, tímariti Sambands ungra jafnaðarmanna um menn- ingar og þjóðfélagsmál er ný lega komið út. Af efni ritsins má nefna: Hugleiðingar um nýja vinnumálalöggjöf, viðtal við Jón Þorsteinsson alþm, Kennaraskorturinn og rétt- indi Kennaraskólans eftir Ágúst Sigurðsson. Bogesen í verkfalli eftir Gísla J. Áslþórsson ritstj. Listkynning, Sigríður Soffía Sandholl, með myndum eftir listakonuna. „Hið gamla verður að víkja fyrir því nýja, viðtal við Freystein Gunnarsson. Maðurinn er gullið, eftir dr. Eric Fromm, en greinin er úr uppkasti að nýrri stefnuskrá fyrir þanda- ríska jafnaðarmanna- flokkinn. Greinarnar í Áfanga eru prýddar fjölda mynda og er allur frágangur ritsins hinn vandaðasti. Ritstjórar Áfanga eru þeir Högni Egilsson og Sigurður Guðmundsson. Setberg sf. prentaði. Eintakið kostar 25 kr. í lausasölu, en 20 krónur í á- skrift. Alþýðublaðið — 4. janúar 1962 |,3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.