Alþýðublaðið - 19.01.1962, Side 16
{BMMM)
43. árg..— Föstudagur 19. janúar 1962 — 15. tbl.
SKJALDBR
MEIRA SKE
EN ÆTLAD ¥AR
Bíllinn flaug
15 metra
í MIKLU óveðri, sem gerði
í Mýrdal um helgina voru 2
menn hætt komnir, er þeir
V-oru á leið til vinnu sinnar
a'ð ióranstöðinní á Reynisfjalli.
Þ'eiý fóru frá Vík í Mýrdal
eftir hádegi á sunnudag, en
er þeir voru komnir miðja
le»ð tókst bifreið þeirra á loft
í einum vindsveipnum, — og
þeyttist hún eina 15 metra án
þess að koma við jörðu. —
Mennirnir sluppu ómeiddir.
Óveðrið skall á á laugardag,
en náði hámarki á sunnudag-
inn. Slitnaði þá niður mikið
af símalínum, og var símasam
bandslaust við Vík þar til í
gærdag. Miklar skemmdir
urðu á símakerfinu, og tekur
viðgerð á því langan tíma.
Tveir menn, Guðmundur
ttwnwvwnnwwwwvw
Alþingi kemur
saman é ný
ALÞINGI hefur verið
kvatt til framhald3fund-
ar fimmtudaginn 1. febr.
1962 kl. 13,30.
Forsætisráðuneytið,
18. janúar 1962.
vvvw
Sigfússon og Ari Þorgilsson,
sem eru starfsmenn við loran
stöðina á Reynisfjalli lögðu af
stað á sunnudaginn í Station
jeppa, og ætluðu að aka út að
stöðinni, en þangað er ekki
nema 10—12 mínútna akstur
við eðlilegar aðstæður.
Er þeir voru komnir miðja
vegu milli Víkur og stöðvar-
innar, skall sterkur vindsveip
ur á bifreiðina, og skipti það
engum togum, að hún tókst á
loft og kom niður um 15 mtr.
frá veginum og þá á hliðina.
Mennirnir meiddust ekkert,
og gátu skriðið út úr bifreið-
I inni. Þá var veðurhæðin svo
| mikil, að þeir urðu að skríða
í áttina til stöðvarinnar, og
tók það þá um klukkustund
að komast þangað. Stundum
urðu þeir að halda sér í jarð
ifasta steina til að takast ekki
á loft.
Nokkru seinna fóru þeir
svo frá stöðinni, en þá aðra
leið og héldu sér þá í sér-
staka línu, sem hefur verið
selt upp til að auðvelda göng
una þarna { slæmum veðrum.
Þegar línunni sleppti, tók veðr
ið þá, og þeytti þeim til og
frá. Er Alþýðublaðið ræddi í
Framnald á 14 síðu.
Bingó!
600 miðar seldust í gær af
þeim 983 miðum, er seldir
rerða á Bíla—Bingóið { Há-
skólabíóinu á sunnudags-
kvöldið. Var þetta þó aðeins
fyrsti söludagur miðanna.
Um myndina er það að segja
að um hana er auðvitað ekk
ert að segja annað en það,
sem stendur í fyrirsögninni,
nefnilega: BINGÓ !
Stykkishólmi í gær.
ÞAÐ hefur nú komið í ljós,
að skemmdirnar á Skjaldbreið
eru miklu meiri og alvarlegri
en ætlað var í fyrstu. Frosk-
menn hafa fundið mörg göt á
báðum síðum skipsins, og eru
skemmdirnar allar fyrir ofan
hinn tvöfalda botn þess.
María Júlía kom hingað í
morgun með annan froskmann
þannig, að þeir eru nú orðnir
] tveir, og hafa þeir unnið í dag
við að fylla upp í gölin, svo
hægt verði að draga skipið til j
Reykjavíkur. Búið er að dælaj
úr lestinni, og hún orðin að ]
mestu leyti þurr. |
Unnið var að því í dag aðj
færa til vörur, sem voru í lest;
inni, en Skjaldbreið átti eftir
að flytja töluvert magn af alls
konar varningi til Flateyjar og
Ólafsvíkur, og er það allt
meira eða minna skemmt.
Eftir skemmdunum að
dæma hefur skipið aðeins rek
ist utan í skerið, en ekki farið
yfir það. Síðan er það losnaði,
snérist það, og hefur þá rekið
hina síðuna utan í, þannig að
göt eru á báðum hliðunum.
Áhöfnin af Skjaldbreið, sem
var í Grafarnesi kom hingað
í dag, og mun öll áhöfnirx
dvelja saman um borð.
Helztu ástæðurnar fyrir
strandinu eru taldar þær, að
sundið, sem það sigldi um er
mjög þröngt eða 1,7 sjómila
og einnig, að þar eru sterkir
straumar og lítið má bera út
af á siglingunjii, svo ekki farl
illa. Sjópróf munu verða hald-
in er Skjaldbreið kemur til
Reykjavíkur. — Ásgeir.
Betra en ekkert
Ea Eimskipafclagifí m«n ;«> §
ÍsjáÍIsógðn sk' ra frá þvi, !<«;- :
ar þat ah kcsnar, hver ráðinn ]
vcrówr framkvæmdastjóíL
Klausan birtist í Vís] í gær.
STOR EYJABATU
HÆTT KOMINN
KÁRI VE—47 var hætt kommn
við Geirfuglasker í gær. Leki
kom að bátnum frá biTuðu röri
við botnkrana, Voru skipsmenn
að draga inn línuna og ætluðu
að halda til lands þegar mikill
sjór var kominn í bátinn. Sjór-
inn var kominn í miðja vél og
var hún stöðvuð og síðan beð.ð
um aðstoð-
'Þetta gerðisj. um kl. 5 í gær-'
dag. Lóðsinn { Eyju.m, hafnar-
•báturinn, fór á vettvang, en áð-
ur en hann kom að Kára hafði
tekizt að dæta sjónum sem vél-
in virðist hafa dælt inn, er kran
inn opnaðist. Ágætt veður var
á þessum slóðum, en telja má
að skipsmenn haf{ bjargazt með
því að stöðva vélina, og að bát
ur nn hefði sokkið ef það hefði
ekki verið gert.
Lóðsinn dró síðan Kára til
Eyja og var komið þangað um
kl. háiftíu í gærkvöldi. Þar var
lokið við að dæla ur bátnum
og gera við hann. Var það fljót
gert og mun Kári hafa farió á
sjó í nótt.
Þetta var fyrsti róðer Kára
á vertíðinni og þegar slysið
vildi til var þúið að veiða 8—9
tonn. Kári er 60 tonna og kkip-
stjóri á þátnum er Guðjón Krist
isnson.
HINN 16. janúar 1962 var
Þorleifur Thorlacius, deildar-
stjóri { utanríkisráðuneytinu,
skipaður forsetaritari frá 15.
s. m. að telja, í stað Haraldar
Kröyer, sem tekur við öðru
starfi.
*www*wwwww>,«twww
Banna sam-
neyti við
sjómenn
Isafirði, 18. janúar.
Heilbrigðisnefnd ísa
fjarðar samþykkti á fundi
síniim f gærdag, að banna
bæjarbúum allt ónauðsyn
legt samneyti við sjó-
menn á enskum og þýzk
um skipum. Er sjómönn
um á þessum skipum
bönnuð lan-lganga.
Héraðslæknir liefur
bólusett hjúkrunarfólk
sjúkrahússins, hafnsögu-
menn, lögregluþjóna, toll
gæzlumenn og starfsmenn
í verksmiðjunni Þór. Bjv.
WWWWWWWMWWWW