Alþýðublaðið - 11.03.1962, Page 4
AMUMMMHMMMMUMMMMMMMHtMltMMHMMMMHMM
Ritgerðasamkeppni skólabarna:
m tannhirðingu
. >
i r
. *
■i
AÐ máltíð lokinni þarf að
l.jieinsa burt matarleifar,
sém enn sitja í tönnunum.
Það verður bezt gort með
tánnbursta. Tannbursti á að
vfera nægilega lítill, til þess
að auðvelt sé að koma hon-
um öllum flötum tannanna
að utan og innan. Tennur
skal bursta upp og niður, en
tyggingarfleti fram og aftur.
Þess skel. gætt við burstun
jaxla að utan, að munnurinn
sé hálflokaður. Þá slakknar
á kinnum, og auðvelt er að
beita burstanum rétt. Bezt er
að eiga tvo bursta, nota þá
til skiptis. hreinsa þá og iáta
þá þorna vel mllli notkunar.
Ef tannbursti er ekki við
hendina, þegar máltíð er lok-
ið, er þó mikil hjálp í að
skola munninn vel með vatni.
Aldrei má þó gleymast að
bursta tennur vandlega, áð-
ur en farið er að sofa.
í nágrannalöndum okkar er
algengt, að bætt sé efni, sem
kallast flúor, í drykkjarvatn,
og er talið, að það minnki
tannskemmdir um helming.
Þetta hefur ekki verið gert
ennþá hér á landi. Þó er al-
geugt, að þetta efni sé borið
á tennur með góðum ár-
angri.
,Þótt neytt sé hollrar fæðu,
tennur burstaðar reglulega
og flúor borið á þær, má
samt búast við tannskemmd-
um. í sumum tilfellum geta
bakteríur komizt inn um lít-
ið skarð í glerungnum og
valdið stórri skemmd í tann-
beininu, án þess að við verð-
um þess vör, að smærri hol-
urnar er erfitt að sjá. Þvl
minni sem skemmdin er, því
sársaukaminni verður við-
gerðin, og því endingarbetri
verður fyllingin. Minna reyn
ir á Iitla fyllingu en stóra,
þegar tuggið er.
Af þessu er ljóst, að nauð
synlegt er, að gert sé við all
ar skemmdir sem fyrst. Því
er það góð regla að láta
skoða tennurnar og gera við
þær skemmdir, sem finnast,
reglulega tvisvar á ári. Ef
ekki liður lengri tími milli
viðgerða, er ósennilegt, að
skemmdirnar nái að verða
svo stórar, að tönnin sé í
hættu.
Svona fer þótt ekki tap-
ist nema ein tönn. Þarna hef-
ur vinstri sexársjaxlinn í
neðri góm verið tekinn. All-
• ir jaxlar þeim meginí munn-
inum skekkjast, bæði að ofan
og neðan. Meiri hætta er á
auknum tannskemmdum.
HÉR er framhald listans yfir nokkur þeirra verðlauna,
sent veitt verða fyrir góðar ritgerðir:
| Þórir Þrastarson
i Tataratelpan
! Árni og Berit I., II., III.
Vinir frelsisins
• Sleipnir
Skriðuföll og snjóflóð
Sterkir steinar
> Annika
ísland í máli og myndurn
' Tunglflaugin
Gefendur:
Bókagerðin Lilja
ísafoldarprentsmiðja hf.
ísafoldarprentsmiðja hf.
Bókagerðin Lilja
Norðri
Norðri
Norðri
Bókagerðin Lilja
Helgafell
ísafoldarprentsmiðja hf.
Haldið fræðslugreinunum saman. Klippið þær úr blöðun-
um. Geymið þær. '
Fyrsta greinin birtist laugardaginn 17. febrúar. Næsta
grein og hin síðasta verður birt laugardag 17. marz.
(Frá fræðslunefnd Tannlæknafélags íslands.)
• >mmmmmmmmmmm%mvimmmmmm%mmmmmmmmmmw
8ngó8fs-Café
Gcmlu dansarnir í kvöld kl.
Söngveri: Sigurður Óiefison.
Daiisstjóri: Sigurður Runólfsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8 — sími 12826
íbúð fyrir lýðveldið
ÞAÐ verður sennilega byggt
fyrir 12-1400 milljónir króna í
landinu á þessu ári. Þetta er
mikill peningur, enda mun eng-
in þjóð á jarðríki verja eins
miklu af tekjum sínum til hús-
bygginga og við gerum. Til þess
eru skiljanlegar orsakir. Fyrri
kynslóðir gátu ekki byggt vegna
fátæktar, og núverandi kynslóð
vill byggja dýrt vegna um-
hleypingasamrar veðráttu —
og almennrar velmegunar.
En hvað fáum við fyrir alla
þessa peninga?
íbúðarhúsin taka auðvitað
bróðurpartinn, sennllega 7—800
mllljönií. Það er eins og vera
ber. Þó er mikið fé eftir. At-
vinnuvegir eiga að fá öll þau
hús, sem þeir þurfa á að halda.
Svo koma opinberar byggingar,
en þar eru skólar og sjúkrahús
stserstu óg sjálfsögðustu lið-
irnir.
Þegar frá eru drégnar þær
byggingar, sem allir eru sam-
mála um, verða sámt eftir stór-
ar upphæðir. Það eru kvik-
rriyndahúsin, ýms verzlunar- og
skrifstofuhús, og sitthvað ann-
að. í þennan síðasta flokk hef-
ur undanfarin ár vantað alger-
lega eina tegund bygginga, en
það er húsnæði fyrir æðstu
stofnanir þjóðfélagsins.
I þessum efnum hefur vant-
að reisn á það, sem við eigum
allir saman, íslenzka lýðveldið.
Það risa stórhýsi fyrir dagblöð,
banka og heildsölufyrirtæki.
Bændahöllin kemst upp og Há-
skólinn byggir bió. DAS byggir
bíó. En það bólar ekki á nýja
stiórnarráðinu, nýju alþingis-
húsi, ráðhúsi höfuðborgarinnar.
Við verðum að setja handritin
i bráðabirgðageymslur, þegar
þau koma.
Orsökin er sú, að fyrst toga
allir fyrir sig og svo er togað
fyrir byggðarlög og stéttir og
hagsmunafélög. Þannig er tog-
aður hver eyrir út úr ríkiskass-
anum, en ráðamenn okkar eru
ábyfgi'r og láta býggingar, semé
þá sjálfa langar til að byggja,
sitja á hakanum. Svona má
þetta ekki ganga lengur. Við
verður að setja það fram fyrir,
sem varðar reisn og virðingu
íslenzka ríkisins.
Höfuðkostur við stórafmæli
er sá, að þá gera menn hluti,
sem þeir annars gerðu ekki.
Þannig var þjóðminjásafnið
reist í tilefni af endurreisn lýð-
veldisins.
Nú er stórafmæli fram-
undan. — íslandsbyggð mun
eftir 12 ár, 1974, eiga 1100 ára
afmæli. Eru ýmsir farnir að
hugsa til þessara tímamóta á
bak við tjöldin, enda ekki seinna
vænna að taka ákvarðanir um
stórátök, sem ljúka skal fyrir
afmælið.
Ef byrjað er ofan frá og tald-
ar þær þjóðbyggingar, sem hér
vantar, mætti byrja á alþingis-
húsi og stjórnarráði. Þar næst
má telja þjóðarsóma í veði, ef
ekki verður byggt glæsilega
yfir handritin og annað, sem
þeim mætti fylgja undir þak.
Loks hlýtur ráðhús höfuðborgar
innar að verða ofarlega á slíkum
lista.
Húsnæðismál Alþingis eru
komin í hreint óefni. Þrengsli í
sölunum eru svo mikil, að þing-
menn geta varla hreyft sig úr
sætum sínum, án þess að nudda
saman ýstrunum. Þégar borgar-
ar leita á fund þingmanna, verð-
ur fyrir augum þeirra örvingl-
an, sem minnir á fjárrétt. Nái
þeir í þingmanninn, er heppni
að finna stól eða krók, þar sem
hægt er að tala saman. Að hafa
næði er varla hugsanlegt. Loks
er aðalinngangur þinghússins
notaður sem kaffistofa, og er það
eitt fráleitt með öllu.
Bygging þinghúss getur ekki
dregizt lehgi. Standa yfir nokkr-
ar deilur um staðarval, en þær
mega ekki drepa málið enn í ára
tugi. Er margra góðra kosta völ,
t. d. meðfram Kirkjustræti til
vesturs, þar sem bæði er mjög
rúmt til bygginga og þinghús
stæði þá á bæjarhlaði Ingólfs.
Húsnæðismál stjórnarráðsins
eru alkunn. Tveir ráðherrar og
nokkrar skrifstofur eru í gamla
fangelsinu við Lækjartorg, aðr-
ar i Arnarhvoli, en skrifstofur
dreifðar víða um bæ. Ríkið er
með leigu að greiða upp fjölda
húsa fyrir einstaklingá og félög.
Mikill undirbúningur hefur
þegar verið að byggingu nýs
stjórnarráðs milli Bankastrætis
og Amtmannsstígs, og nokkuð
fé hefur þegar verið lagt til
hliðar. Ekkert skortir nema fjár
muni til að byrjað verði á bygg-
ingunni. En íslenzka ríkið hefur
ekki enn getað það, sem Búnað-
arfélag íslands og Stéttarsam-
band bænda geta á Melunum.
Mikill undirbúningur hefur
einnig verið að byggingu ráð-
húss og mikið deilt um stað-
setningu þess. Þó hafa allar at-
huganir endað í Tjarnarendan-
um og bæjarstjórn samþykkt ein
róma þann stað. Verði húsið
þar, er vonandi að ekki komi á
það fyrirferðarmikill turn. Slík
eftiröpun er alls ekki nauðsyn-
leg. :
Þá er eftir fjórða byggingin,
sem nefnd var. Öllum er ljóst,
að þjóðin verður að reisa veg-
lega byggingu fyrir handritin>
þegar þau komá heim. í því sam
bandi er rétt að minna á, að Al-
þingi hefur fyrir fimm árum
samþykkt saméiningu á Lands-
bókasafni og Háskólabókasafni,
enda er ofrausn að ætla að
byggja upp tvö vegleg bókasöfn
í ekki stærri bæ. Nú þarf mikið
safn handbóka og visindarita að
vera nátengt handritunum, og
því hefur sprottið upp sú hug-
mynd, að byggja eitt hús fyrir
allt þetta, sannkallaða þjóðar-
bókhlöðu.
Þau fjögur hús, sem hér hafa
verið nefnd, eru íbúðarhús ís-
Ienzka lýðveldisins og mestu
menningardýrgripa þjóðarinnar,
handrita og bóka. Enda þótt
fjölmörg önnur verkefni kalli að,
og ekkert þeirra sé vanmetið,
hafa þessi hús sérstöðu.
Með verðlagi dagsins í dag
mundu þessar fjórar byggingar
kosta 200—250 milljónir króna.
Það er mikið fé, sem ekki má
taka frá íbúðabyggingum, at-
vinnuvegum, skólum eða sjúkra
húsum. Hins vegar eru 12 ár
til 1100 ára afmælisins, og væru
þessi hús byggð eftir áætlun á
þeim tíma, þarf að útvega 20
milljónir á ári. Af þessu sér
borgin um ráðhúsið og bókhlöð-
una ætti að byggja fyrir frjáls
framlög einstaklinga og félaga,
þannig að ekki þyrfti allt að
koma á fjárlög.'
Ef til vill finnst lesendum
þetta vera draumórar. En far-
sæld þjóðarinnar mun fara meira
eftir því, hvað við gerum sam-
eiginlega, en hinu, hvað við get-
um potað hver fyrir sig.
Hafnaríjöriur!
Hafnarfjörður!
Almennur félagsfundur
verður haldinn í Alþýðuflokksfélagi Hafnarfjarðar annað
kvöld, mánudag kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu.
DAGSKRÁ:
Tekjuöfiun bæja- og sveitafélaga: Birgir Finnsson,
alþipgismaður.
Vetrarstarfið: Þórður Þórðarson, bæjarfulltrúi.
Allt alþýðuflokksfólk velkomið á meðan liúsrúm leyfir.
Stjórnin.
HafnarfjörSur!
4 li- marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ