Alþýðublaðið - 24.03.1962, Síða 13

Alþýðublaðið - 24.03.1962, Síða 13
— VILTU sterkan eða café au sino? — Ég vil viðtal. Hvers vegna .kallaðirðu kaffihúsið Mokka, Guðmundur? — Vegna þéss, að mér fannst það fallegt nafn. — Ætlaðistu til, að fólk ruglaði ,því saman við Mekka? — Ég bendi sjálfur á skyld leikann í Leikskrá Þjóðleikhúss ins Mokka er Mekka kaffifólksins' — Hvaða kaffi notarðu? — Það er hernaðarleyndarmál. — en ég játa, að það er alvcg sérstakt kaffi. — Og notarðu kannski sérstakí vatn? — Já, íslenzkt vatn. — Hvað vill fólkið helzt drekka? — Það selst mest af café au sino, — en þessir sterku eru allt af að vinna á Fólk byrjar á café -au sino og endar í sterkum. — Og svo fær það sér einn Napóleon? —- Já eða enska ávaxtaköku. Það er alltaf öruggt sala í henni — Hvernig ferðu að þvi að .sleppa við rónanna? — Ég tók fyrir það í byrjun, að þcir settust hérna upp, — og ég hef aldrei þurft að kalla á lögregluna. — En heldurðu ekki líka, að Iistin hérna á veggjunum geri sitt til að draga að sér stórmenni andans? — Efalaust, — og jafnvel fleiri Ég held að þessar sýningar hérna eigi sinn þátt í því að glæða á- huga fólks fyrir list. Þeir, sem ekki nenna að fara á Þjóðminja safnið, þeir koma hingað og sjá hér myndir fyrir einn kaffibolla — Verður ekki hægt að drekka úti á gangstéttinni í sumar? — Kannski! Mér hefur dottið það í hug, að setja nokkra stóla og borð út á gangstéttina. Það væri gaman að því, — en ég veit ekki, hvað heilbrigðisyfirvöldin segja. — En útikaffihús koma, hvort, sem það verður fyrst hjá mér eða öðrum. — Hvernig datt þér í hug að strigaklæða veggina hérna? — Mér datt í hug að hafa sér stakan stíí, — og ég hafði ágætan arkitekt mér til aðstoðar. Þetta hefur líka þann mikla kost, að það er enga stund verið að hengja hér upp myndir. — Ég hef heyrt að fólk hafi tekið þetta upp í húsum sínum, — eftir að striginn kom hér. — Koma fleiri Mok'.;,? — Það kostar ekkert að hugsa Ég er stundum að ímynda mér, að það væri hægt að koma hér á fót ítölskum restaurant með ó- dýrum mat og skemmtilegri inn réttingu. En bað kjstar peninga — Eru íslendingar smekkmenn á kaffi? — ítalskur sendiherra sagði, að íslendingar hefðu alltaf talað um, hvað þeir væru mikil kaffi þjóð, — en þeir væru bara hrifn ir af lítratalinu, en ekki bragðinu Þetta sagði hann. — Viltu líta í gestabókina mína, — meðan ég afgreiði kaffið .. „ „Gerilsnautt kaffi“ ... segir Sigurður, gerlafræðingur. .Bragrkaffi er Mokkakaffi", segir Bragi listmálari. „Coffea mihi maxime placuit“, segir Jón Júlíusson latínukenn ari. „Senn hverfa allir frá Hresso hingað upp á Expresso", segir Gunnlaugur Þórðarson, dr. juris. „c a f f e“ (í nótum) til minning ar um Johan Sebastian Bach ‘, segir Jón Leifs, tónskáld „Dúr kaffi er jafn fágætt og það er lystilegt“, segir dr. Hall grímur Helgason. „Vilji Andrés veita feér vænan skerf af þokka ætti karl að kaupa sér kaffisopa á Mokka“, segir Helgi Sæmundsson rit- stjóri ,Kókakóla er komið í skóla kemur svo hingað inn. Ég er að róla út um noia með ástarbólu á kinn“, segir Þórbergur Þórðarson rit höfundur. Qg á útlenzku stendur skrifað: „Að sitja hér með Sigurði Nor- dal er eins og ---- --- - — íakmarkanir hversdag-ms“. „Takk fyrir kaffið“, segir nó- belskáldið. En kannski er þetta allra liljóm fegurst: Om mani padme hum, — það segir Sun Wu Kungh. H. Framrni sitja spekingar, súpa einn sterlcan, — og andi lista og menningar svífur yfir kaffibollunum! Og Guðmundur stendur við vélina, sem bruggar kaffi, sem er svart eins og syndin — og heitt eins og æskuástin ... SIGRUN JONSDOTTIR syng ur í Glaumbæ með hljómsveit hins bráðsnjalla gítarleikara Jóns Páls. SI. þriðjudags- kvöld var auglýst ný hljóm- sveit í Næturklúbbnum und- ir stjórn Gunnars Ormslev ásamt Twist danssýningu. Á RÖÐLI hefur Sirrý Geir lok- ið söng sínum að sinni, en áfram er þar hinn ágæti söngvari Harvey Árnason, á- samt hljómsveit píanóleikar- ans Árna Elfar. í LIDÓ er mest um félagsböil og Bingó. Þar er hinn vinsæla hljóm- sveit Svavars Gests, ásamt söngfólkinu, Ragnari Bjarna- syni og Heienu Eyjólfsdóttur. Hinn gamalkunni gítarleik- ari og útsetjari ÓLAFUR GAUKUR, hefur það nú á samvizku sinni að margar hljómsveitir leika útsetning- ar hans, en allir eru örugg- lega ánægðir að njóta að- stoð'ar slíks verkmanns sem Gaukur er, vinnubrögð hans eru tii fyrirmyndar. KLÚBB URINN við Lækjartorg hef- ur framlengt samning við þýzku söngkonuna Margit Calva, en hún syngur með hinu ágæta Neo-tríói, einn- ig er Haukur Morthens og hl.iómsveit hans í Klúbbnum. GÖMLU DANSARNIR eru af- ar vinsælir í Þórscafe, en hljómsveit Guðmundar Finn- björnssonar Ieikur þar. UNG- LINGA HLJÓMSVEITIRN- AR í bænum hafa haldið böll í Sjálfstæðishúsinu undan- farnar vikur, ein söngkona hefur komið þar fram, er það Kristiana Magnúsdóttir. — BJÖRN R. EINARSSON og hliómsveit hans hafa leikið á Hótel Borg í mörg ár og er þar enn, Björn hefur ávaiit haft góðar hljómsveitir og svo er enn. K. IC. HUGSAR lítið um hljómsveit eins og stendur, en því meir um verzl un sína og Verðlistann. Nem endur í DANSSKÓLA EDDU SCHEVING dansa Twist með Twistbeltum, sem ekki að- eins aðstoða og auðvelda Twist dönsurum að dansa Twist, heldur eru einnig fal- leg og ódýr. Þá ætla Sjálf- stæðismenn að fara að breyta húsi sínu VIÐ AUSTUR- VÖLL. Eitt sinn var þetta glæsilegasta húsið — eða fyr- ir 15 árum, ættu að vera möguleikar að gera húsið smekklega úr garði. •rt'SE!, gert er um undirleik er að < ræða, og þó sérstaklega undir söng Elisu (Völu Kristjáns- son), þannig að strengirnir hurfu, enda sjálfsagt, því þeir samlagast svo hárri en veikri rödd illa, kom því rödd henn- ar ágætlega vel fram. Sem sagt glæsilegt kvöld í Þjóð- leikhúsinu. SEMUR VINSÆL LOG Irvilig Berlin, sá sami og samdi lagið „White Christ- mas” verður 74 ára 11 maí. Vinnur meir en nokkru sinni fyrr. Er að ljúka við að semja lög í söngleikinn „Mr. Presi- dent“ hefur nú þegar lokið við 15 lög, og tilbúinn með viðbót, ef þörf krefur. BLÆS EKKI AH SINNI í hvíld. Louis Armstrong sagði nýlega í blaðaviðtali, að hann væri að hugsa um að fá sér hvíld síðast á þessu ári. Og lofa hinum að blása svo- lítinn tíma. Ég hef áhuga á að hlusta á þá, sjá og heyra hvað þeir eru að gera. VILL HALDA í AUSTURÁTT Söngvarinn, sem söng lagið Big Bad John, og var heims- frægur fyrir þetta lag, var þó búinn að syngja í um það bil 15 ár, sá heitir Jimmy Dean, hefur verið' heppinn á ný, nú með lag sem heitir, Dear „Ivan“, Jimmy hefur verið í London undanfarið, og sagði í blaðaviðtali að sig langaði til Rússlands. SNI! UNGSDANSAR Jón Valgeir dansari í „My Fair Lady“ á skilið mikið lof fyrir sitt framlag í að gera sýningu á þessum skemmti- lega söngleik að þeim sér- deilis glæsileik, sem hann er. En leikarar allir skiluðu og sýndu einkar vel, en dansarn- ri eru glæsilegir, og er því synd að það skuli ekki vera möguleikar að sjá dansara eins og Jón Valgeir oftar á sviði hér. Hljómsveitin lék af miklum næmleik, sem skal ÞAÐ er eins meS Ellu Fitz- gerald og víniff. Ella verffur betri meff aldrinum, sögffu ensku blöffin eftir hljómleika Ellu í London í febrúar. Ella . Fitzgerald söng sín lög í þeim stíl sem henni er einni mögu- legt um leiff og hún sýndi mikla kimnigáfu er hún söng. „Mack the Knife“ og stældi gamla Armstrong lítiff eitt þá hefur Ella sett Twistiff m. a. á hljómleikaskrá sína, því ekki þaff segir Ella, Twist er skemmtilegt. WWWWmWWWWWWWWWWWWWWWWMMW ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. marz 1962 13 t i:

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.