Alþýðublaðið - 27.03.1962, Page 12
JB6 HföSR IKXS, DtN
FALOBR SMimi ONMQ
vbjs - osr buvér ut>r
H&rAröÁTiíSAúe
TIL LUFTHAVNFN Á
KOM HFLLiBE TILSA&E 06
tfmr OS ALLFSAMMSN /
AFTEN - VI SXAL ARSéJOé
HBIB DA6EN
si BLIVee OETALTS&
ÁRETS SENSAT/OM !
DET VAR HER, JE6 SATTE DEN
UN6E S6N0K1TA AF I 6ÁR -
SKAL JE& VENTE PÁ DéM ?
■CHAUFF0REN SASOS, AT
MINEN £R FORlAOr -
BÍLSTJÓRINN sagði, að náman væri yf-
irgefin . . . Þá verður það frétt ársins . . .
Hér var það, sem ég skildi við ungu seno-
rítuna í gær. Á ég að bíða eftir yður? —
Komið heldur í kvöld og sækið okkur öll
Við þurfum að vinna í allan dag . . .Ég vona
bara, að bíllinn detti ekki í sundur á leiðinni.
Það er of heitt til að ganga til flugvallarins.
— Það er enginn hér. Kannski hafa þeir
fengið sér miðdegisblund í skúrnum.
Sagan um unga kónginn
í Hversdagslandi
Ráðherrarnir voru grafalvarlegir á svipinn.
„Yið vitum ekki, yðar hátign, hvað er þarna fyr-
ir vestan, því enginn maður hefur í manna minn
um klifrað yfir girðinguna, sem liggur á milli
okkar lands og Vesturskóga. Að því er við bezt
vitum eru Vesturskógar eyðimörk, þar sem norn-
ir einar búa“.
„Ef til vill er það gott land með mjúku, ilmandi
grasi, þar sem eintómar fallegar kóngsdætur húa“,
sagði kóngurinn.
„Á morgun ætla ég að fara á veiðar í Vesturskóg
og vita hvers ég verð vísari“.
„Herra, það er bannað“, hrópuðu ráðherranir
skelfingu lostnir“.
„Bannað?“ sagði Jón kóngur hugsandi, og um
Ieið mimdi hann það, sem honum hafði verið bann
að frá því að hann var lítill, en hafði gleymt, þegar
hann stækkaði. Foreldar hans höfðu varað hann
við að voga sér nokkru sinni inn í Vesturskóga.
„Hvers vegna?“ hafði hann spurt móður sína.
„Þar eru svo margar hættur“, hafði hún sagt.
„Hyaða hættur?“
Eg: fer ekki að sofa fyrr en þú ert búin að lesa eina sögu fyrir
tröllið, eina fyrir Dúkku-lísu, — eina fyrir Kláus og eins fyrir . ..
„Það get ég ekki sagt þér, því að ég veit það ekki
sjálf“, sagði hún.
„Hvernig veiztu það, að þar eru einhverjir vætt
ir, mamma?“
„Það vita það allir, hver einasta móðir í land-
inu varar börn sín við Vesturskógum á sama hátt,
°g ég geri. Það er eitthvað dularfullt í Vesturskóg-
um“.
★ HVAÐ oft má dragra 12 frá
150? (Svar neðst á síðunni).
Leikhúsdagur
FramhaM at i. síðu.
Þjóðirnar munu nú loks
kynnast gersemum hver annarr-
ar, fyrir tilstilli alþjóðlegu leik-
húsdaganna, og munu starfa sam-
an að hinu háleita friðarverkefni.
Nietzsche sagði: Hugmyndir,
sem breyta svip heimsins, koma
til vor á dúfufótum. Ef til vill
getur það orðið eftir leið, sem
hingað til hefur um of takmark-
ast af því einfalda áformi að
vera til gamans, að æska heims-
ins hafi hag af að sækja glíéstan
og lifandi háskóla, þar sem fyr-
irlesararnir eru gæddir holdi og
blóði og þar sem snilldarverk
allra þjóðtungna eru sýnd í sín-
um upprunalega ofsa, ekki út-
þynnt af amstri hins éinmana
nemanda. .
Ég vil ennfremur segja þetta:
Því er haldið fram að vélamenn-
ingin hafi greitt leikhúsinu bana-
höggið. Því trúi ég ekki eitt and-
artak og þar sem Alþjóða leik-
húsmálastofnunin hefur falið mér
að tala í sínu nfni, lýsi ég yfir,
svo sem forðum var gert, er kon-
ungar vorir áttu í hlut, — -ég
■breyti •forskriftinni aðeins óveru-
lega: Ef leikhúsið er dáið, lengi
lifi leikhúsið.
12000 vinningar d dri
Hæsti vinningur í hverjum flokki
1/2 milljón krónur
Dregið 5. hvers mánaðar
' ‘ ' 8£I luunig'j BJJ
BSeap ge jsæn -tuuis nuia
sumgv :i9f-iqTinoH S!A HVAE
12 27■ marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ