Alþýðublaðið - 27.03.1962, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 27.03.1962, Blaðsíða 15
„Nei,” sagði Packer. „Aðeins tveir. Þú færð ekki byssu. Eg veit hvernig þér líður og ég myndi jafn fúslega skjóta Gut- hrie og villidýr. En þannig verð ur það ekki. Við verðum fyrst og fremst að hugsa um tvennt. að bjarga konu þinni og að 'handsama Guthrie og draga hann fyrir dómstólana.“ „Eg er lögfræðingur,“ sagði Ben. „Lögunum er stundum á- þótavant." Hann opnaði og kreppti lófann til skiptis. „Þér drepið hann samt, ef þér megið til.“ „Það fer eftir því, hvort hann slæst eða ekki.“ Ben kinkaði kolli. Aftur virtist hann einbeita sér. Svo sagði hann: „Eg er til.“ „Gott. Við tölum um þetta við lögregluforingjann. Mac Grath, þú kemur með, þetta er þín hugmynd." Hann gekk inn í svefnherbergið og kom aftur með spóluna og stakk henni í vasa sinn. „Vertu hérna, Drumm. Qg hringdu heim til Kratch og látlu þann, sem er á verði koma með frú Guthrie niður á lög- reglustöð. Segðu henni til hvers. Láttu hana taka föt með sér.“ Ernie sá um að Ben færi i frakka og setti á sig hatt áður en hann settist inn í bílinn hjá Packer. Hann ók bíl Bens — og setti hann inn í bílskúr lögregl- unnar, þar sem hægt var að at- lluga hvernig bezt væri að koma mönnunum fyrir og sjá svo um, að hægt væri að opna farangurs geymsluna innan frá. Hann fór upp á loft, hugur lians var þrunginn efasemdum, nú sá liann milljón vankanta á þessari gáfalegu hugmynd sinni. En Packer var búinn að tala um hana við lögreglustjórann og lögreglustjórinn var þegar far- inn að bæta við. „Við látum setja senditæki í haksætið svo maðurinn, sem er þar, geti sagt okkur hvað skeð- ur. Þá vitum við hvar þeir hitta hann og getum sent fleiri menn. Eg geri ráð fyrir að þetta verði utan borgartakmarkananna, svo við getum talað um það við hreppstjórann." Hann leit á landakort af sveit inni umhverfis Woodley. „Hérna er Sentryville. Guth- rie segist ekki vera þar, en það er harla ólíklegt, að hann sé langt undan. Eg geri ráð fyrir að hann sé einhvers staðar hérna. Lögregluforinginn teiknaði stóran hring á kortið. Ernie vissi, að þama var strjálbýlt, fá- cinar benzínstöðvar og mjög auðvelt fyrir Guthrie að leyn- ast. Jafnvel þó hundruð manna leituðu hans, gæti tekið marga daga að finna hann. Þeir ætluðu ekki að reyna það strax. Ekki fyrr en eftir næstu nótt, ef þess gerðist þá þörf. „En sagði lögreglustjórinn, við getum haft menn til reiðu allt í kring og þá verða þeir viðbúnir, þegar kallið kemur. Við getum liaft Guthrie svo um- kringdan, að engar líkur séu á því að hann sleppi.“ Hann tók upp símann og sagði: „Náið fyrir mig í Magnusson hrepp- stjóra." Ben Forbes sagði hvasst: „Þeir mega ekkert gera til þess að hræða hann.“ „Þeir munu ekki gera það. Þeir verða aðeins á næstu grös- um til að sjá um að hann sleppi ekki.“ Hann bað um að senda frú Guthrie inn. Hún kom að vörmu spori og Ernie fannst hún líta mjög illa út. Andlit hennar var þrútið og augu hcnnar bólgin og rauð og hún var beygð og kúguð að sjá. Hún leit ekki í augun á Ben. Packer sýndi henni kortið sem lögreglustjórinn hafði merkt hringinn á. „Minnist þér einhvers staðar á þessu svæði, sem þér og mað- ur yðar hafið dvalið á? Fór liann á veiðar? Fóruð þið í skógar- ferðir? Mihntist hann einhvern tímann á einhvern sem hann þckkti hér? Fóruð þið í öku- ferðir hingað?" Hún virtist hugsa sig ákaft um, en svör hennar voru ávallt neitandi. „Gott og vel,“ sagði Packer. „Við skulum fara niður og at- huga hvort við finnum tvífara yðar. Herra Forbes — “ Ben fór með honum og Ernie kom líka. „Þær eru allar of stórar", — sagði Lorene. „Og ekkert líkar mér.“ „Við getum lagfært það,” sagði Packer. Kratich sat úti í horni. Hann var alvarlegur á svipinn og’Er- nie sá að Lorene leit biðjandi á hann af og til og reyndi að brosa til hans. Hann bjóst við að hann vissi hvað hefði skeð. Það hafði ekki enn verið minnst á það við Lorene að hún' ætti að tala við A1 Guthrie annað kvöld. Hann velti því fyrir sér hvað hún myndi gera, þegar þeir segðu henni það. Hann horfði stanzlaust á hana og hugs aði að nú væri allt undir henni komið. Þeir höfðu þrjár lögreglukon- ur til að velja um, allt sjálf- boðaliða, allar fljótar að hugsa og góðar skyttur og allar of stór ar eins og Lorene hafði sagt. „Við getum látið þær vcra á sléttbotna skóm.“ sagði Packcr. „En ég er aldrei á sléttbotna skóm. A1 myndi sjá það.“ Éin lögreglukvennanna, lag- leg, dökkhærð stúlka, sem hét Virginia Dalby, stakk upp á bomsum. „Þær fela hælana. Og það er ekki einkennilegt að vera í bomsum uppi í sveit. Lorene bjóst við að það gæti gengið. Hún hafði tekið föt með sér. Lögreglukonurnar fóru hver í sínu lagi út og komu aftur ein og ein eftir að hafa skipt um föt og stóðu og gengu fyrir framan Forbes og Packer. Loks völdu þeir Virginiu Dalby. Ernie vissi að það var ekki í fyrsta skipti, sem hún hafði verið notuð sem agn. Hún hafði verið notuð til að handtaka tvo ræningja og ræningja hóp, sem hafði það fyrir sérgrein að ræna konur. Ernie vonaði að þeim tækist líka að nota hana til að handsama A1 Guthrie. „Þú þarft að fá púða hér og þar,“ sagði Packer. „Og við verðum að gera eitthvað við and litið á þér, svo þú verðir ör- lítið kringluleitari hérna og varaþykkri." Dalby bjóst við að það gæti gengið. „Þú átt að vera tilbúin annað kvöld,“ sagði Packer. „Eg vil að þú farir heim með frú Guthrie. Fylgstu vel með öllu háttemi hennar. Mundu að þessi maður getur verið morðingi og við get- um ekki verndað þig nema að litlu leyti. Þú verður að leika það vel á hann að hann skjóti ykkur Forbes ekki umsvifa- laust.“ „Eg skil það.’ „Farðu þá og skiptu um föt. Og komið þér með mér frú Gut- hrie. Eg þarf að tala við yður. Nei, herra Kratich, komið þér líka.“ Ó, ó, hugsaði Ernie. Þar kem- ur að því. Hann hallaði sér upp að veggn um og reykti og virti Lorene fyrir sér. Andlit hennar liafði verið fölt fyrir en nú varð það grátt. Munnur hennar opnaðist og lokaðist svo aftur og hún gaut augunum hræðslulega til Kratich og svo á Ben og tókst loks að kreista fram eitthvað sem líktist jái. Packer hélt á- fram að tala við hana og brýna fyrir henni nauðsyn þess að vera sannfærandi þegar hún tal aði við A1 Guthrie en Ernie ef aðist um að hún hefði heyrt nokkuð nema fyrstu orðin. Síminn hringdi og Ernie svar aði. „Já“, sagði hann. „Ég skal segja honum það.“ Hann lagði símann á og leit á Packer. „Þetta var gamli maðurinn, sem leigði Guthrie liúsið. Hann er niðri öskureiður". „NÚ?“ sagði Packer. ,,Hvers- vegna?“ „Hann segir að Guthrie hafi stolið teppum sem séu fimmtán dala virði. Hann vill að við hand tökum hann umsvifalaust". 21 Það var aftur dagur. Carolyn hélt fyrst að hún væri enn i litla svefnherberginu í hús inu sem hún hafði verið svo ó- endanlega lengi í. En rúmið var of hart og hún var bundin öðru vísi. Hún varð að muna eitt- bvað. Ifún starði framundan sér og djúp hrukka myndaðist milli augna hennar. Glugginn var allt öðruvísi. Teppið var farið. Hann hafði sett lilera fyrir gluggann en hlerinn var gisinn og ljósrákir lagði inn. Henni var kalt. Hana verkj- aði í líkamann. Hún snéri sér við í hörðu rúminu. Hún var ekki í rúmi. Hún lá á gólfinu. Fjalirnar voru breiðar og opnar. Þær mynduðu brúnh' sem voru svo harðar og bilið milli þeirra var svo breitt að það sást í jörðina milli þeirra. Þau voru þakin ryki. Hún fann lyktina af rykinu og bragðið að því. Þarna var.annar gluggi. í hinu herberginu hafði aðeins verið einn gluggi. Hún hrukkaði enn- ið vesældarlega og reyndi að muna hvað hafði skeð, skelkuð vegna þess að hún gat það ekki. Enn einn gluggi. Sex gluggar alls, þrír á hverri hlið, hlerar fyrir þeim öllum. Dyr, læstar dyr. Stór rauður ryðgaður ofn og tóm kolastía. Koddaver og kassar hér og þar. Hún sjálf á gólfinu. Og A1 Guthrie var líka á gólf inu, hann sat við vegginn. Hann var vafinn í teppi. Hann drakk úr bjórdós og talaði. „Alla ævi“, sagði hann. „Gera mér erfitt fyrir. Allir að gera mér erfitt fyrir“. Andlit hans var þrútið. Neðri vör hans stóð úr rök af bjór. Hann talaði. „Ég hef aldrei gert neitt af mér. Ég vildi bara ekki láta traðka á mér, það var allt og sumt. Hver maður hefur sinn rétt. En þ.eir voru alltaf að gera mér erfitt fjTÍr, alltof erfitt". Hann var ekki að tala við Car olyn. Hún lá kyrr og virti hann fyrir sér með hálflukt augun. Hann drakk meiri bjór og kveikti sér í sígarettu og taut- aði: nú verður það erfitt fyr ir þá. Ég er að verða búinn. í nótt sé ég til hvað mig langar t.il að gera. Bölvaðir hundingj- ar — “ Þetta er skrítið, hugsaði Car- oly. Ég er ekki lengur hrædd við liann. Ég er of þreytt. Ég er ekki einu sinni svöng. Ég er bara þreytt. Hægt og hægt mundi hún hvað hafði skeð. Enskt dúnhelt verð kr. 82.00 meter. Sængurveradamask frá kl. 50. 50 meter. — Lakalérett — Myndaflónel o. m. fl. Verzlunin Snót Vesturgötu 17. AÐEINS 298.00 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 27. marz 1962 J5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.