Alþýðublaðið - 16.06.1962, Síða 3
I
NÝJAR ÁKÆRUR
GEGN SALAN
og Bidault sviptur þinghelgi?!
NÝJAR ákærur á hendur OAS-for-
íngjunum Raoul Salan, fyrrver-
andi hershöfðingja, geta haft dauða
refsingu í för með sér, og ekki er
talið útilokað, að honum vsrði
stefnt fyrir rétt á nýjan leik, að
því er haft er eftir heimildum úr
franska dómsmálaráðuneytinu.
Ákærurnar varða verknaði, sem
Salan var ábyrgur fyrir eftir að
liann hafði verið dæmdur í lífstíö-
ar fangelsi. Það var hinn sérlegi
herdómstóll, sem dæmdi Salan til
dauða.
inni, sem svarið hafi að hefna af-
töku tveggja hryðjuverkamanna
OAS í París fyrir nokkrum dögum,
þeirra Claude Piegts og Albert
Dovecar.
VÍÐTÆKT
EFTIRLIT
TJm það bil 6 þúsund menn úr
uppþotslögreglunni leita OAS-
mannanna, sem komizt hafa undan
þrátt fyrir öflugt eftirlit lögregl-
unnar á svæðinu þar sem ráða átti
de Gaulle forseta af dögum.
Hermenn eru hvarvetna á verði.
OAS-ÁRÁS
Á SJÚKRAHÚS
f Algeirsborg sprengdi OAS í
loft upp skurðlækningadeild
stærsta sjúkrahúss Afríku, Mu-
stapha-sjúkrahúsins í Algeirsborg.
Fleiri skemmdir urðu, en enginn
meiddist í skemmdarverkum þess-
um. Tjónið er geysimikið, og meta
ýmsir tjónið á 50 millj. nýfranka
(um 450 millj. ísl. kr.)
FLÓTTAMANNA-
STRAUMUR
BRÉF FRÁ
SALAN
Dómstóll þessi hefur nú verið
leystur upp. De Gaulle forseti var
mjög óánægður með dóminn, og
liann er sagður hafa íhugað þann
möguleika, að mál verði höfðað
gegn Salan á nýjan leik.
Heimildarmenn í dómsmálaráðu
neytinu gefa í skyn, að hinar nýju
ákærur á hendur Salan standi í sam
bandi við það, að Salan hafði sam-
band við hina nýju forystu OAS
frá klefa sínum í Fresnesfangelsi.
T. d. mun hafa fundizt bréf frá hon
um í fórum yfirmanns OAS í
Frakklandi, Andre Manal, sem
liandtekinn var fyrir nokkru.
BIDAULT
FYRIR RÉTT?
Hæstiréttur Frakklands hefur
snúið sér til þjóðþingsins og kraf-
izt þess, að Georges Bidault, fyrr-
verandi forsætisráðlierra, verði
sviptur þinghelgi þannig að hægt
verði að stefna honum fyrir réít
sem yfirinanni leynisamtaka liers-
ins, OAS, eins og fyrri fregnir
liermdu.
IIÖTAR AÐ STEYPA
De GAULLE
Frá þessu var skýrt í París, en
þaðan livarf Bidault fyrir nokkr-
um mánuðum. Tilefnið var það,
að áður liafði Bidault sagt í viðtali
við belgískt dagblað, að OAS hafi
það að markmiöi að steypa de
Gaulle og stjóm hans og koma á
nýjan leik á grundvallarmannrétt-
indum í Frakklandi.
Fyrr um daginn höfðu yfirvöld-
in skýrt svo frá, að' hafin væri rétt-
arfarsleg undirbúningsrannsókn í
málum nolikurra manna, sem tal-
ið er að vinni með OAS. Sagt er,
að fundizt hafi nokkur skjöl, sem
sýni, að Bidault er flæktur í málið.
DE GAULLE
Á FERÐALAGI
Meðan þessu fór f~~,>n hélt de
Gaulle forseti áfram f ,: alagi sínu
uin Suðaustur-Frakkland eins og
’’ ekkert hefði' í skorizt, cg er for-
setans mjög vel gætt. Eftir áreið-
anlegum hcimildum er liaft, að
meðal 21 OAS-manns, sem lögregl-
an leitar, séu nokkrir fyrrverandi
hermenn úr Útlcndingaliersveit-
Georges Bidault
Lögreglan hefur rannsakað
livern cinasta bóndabæ á þessu
svæði og rýmt þorp og þéttbýlar
götur þar sem de GauIIe ekur um.
Kemur í
septemher
EINS og '• Alþýðublaðið sagði
frá í gær, er von á forsætisráð-
l'Crra ísraels í heimsókn hingað
til lands.
í gærdag barst blaðinu eftirfar
andi fréttatilkynning frá forsætis
ráðunevtinu:
. Forsætisráðherra íslands hefur
boðið Ben Gurion. forsætisráð-
herra ísraels, í heimsókn til ís-
;nds Hefur forsætisráðherra þeg
;g boðið og mun koma til Reykja
víkur í spetembermánuði og dvelj
ast hér þrjá daga.
Enn streyma Alsírbúar af frönsk
um ættum úr landinu. Jafnframt
er það greinilegt, að OAS-menn
eru staðráðnir í að eyðileggja allt,
sem byggt hefur verið í Alsír úr
frönsku efni. Fyrir framan sferif-
stofur flugfélaga hafa myndazt
langar biðraðir. OAS-menn frömdu
ýmis skemmdarverk í Óran, Sidi
Bel Abbes, Bab-el-Oued hverfinu
í Algeirsborg og víðar í Alsír í
dag.
TILRÆÐIÐ
OAS hefur neitað því, að samtök
in beri ábyrgðina á tilræðinu við
yfirhershöfðingja Frakka á Oran-
svæðinu í gær. Franskur læknir
beið bana og hershöfðinginn og
aðmíráll nokkur særðust alvarlega.
ÍKVEIKJUR
Níu skólar í Sidi Bel Abbes voru
brenndir til grunna. í Algeirsborg
Ioguðu tveir eldar og verka-
mannaskrifstofan í Bab-el Oues
evðilagðist í plastsnrengjuárás. Ó-
bekktir hryðjuverkamenn drápu
tvo Serki og einn mann af evrópsk
uin ættum í Óran í dag.
„VIRKI” OAS
Vöruhílar, hlaðnir mönnum af
evrnnskum ættum streyma til Oran
svæðisins skv. áskorun OAS í gær
hess efnis, að menn af evrópskum
ættum safnist saman í sévstökum
hæjum, sem varðir verða með vopn
um. * '
92 ÞÚS. FLÝJA
Af 92.000 mönnum, sem að sögn
APF hafa flúið til Frakklands frá
Alsír i bessum mánuði hafa 5S.000
knöiið flugleiðis.
T Algeirsborg var í kvöld til-
kvnnt. að einn áhrifamesti ráð-
herra alsírsku bráðabirgðastjórn-
arinnar, Boudiaf varaforsætisráð-
herra. sé kominn til Rochet Noir
«1 viðræðna.
V**MMtMMMMHMUUtHMU
ISÁTTAFUNDUR í deilunni j!
um síldveiðikjörin stóð enn 1>
yfir, þegar blaðið fór í prent !>
un í gærkvöldi og var ekkert j!
nýtt að frétta af fundinum. j!
VMMVmnMHVUUHHWUM
AB sendir írá sér
tvær góðar bækur
ÚT ERU komnar hjá Almenna
b< kafélaginu bækur mánaðarins
fyrir maí og júní. Er maíbókin
myndskreytt bók um Ítalíu, þýdd
af Einari Pálssyni, en júníbókin
Fuglabók AB í þýðingu og umsjá
dr, Finns Guðmundssonar.
Ítalía er þriðja bókina í bóka-
flokk AB Lönd og þjóðir. Höfund
ur hennar er rithöfundurinn Her
bert Kubly, maður, sem dvalizt
hefur langdvölum á Ítalíu. Er
þessi bók lík að útliti og þær tvær
bækur, sem áður hafa komið út í
þessum flokki, lesmál um landið
og þjóðina, sögu hennar og dag-
legt líf, og hátt á annað hundrað
myndir, margar þeirra litmyndir.
Myndasíður bókarinnar eru
prentaðar í París, en að öðru leyti
er bókin unnin í prentsmiðjunn.
Cdda og Sveinabókbandinu.
Fuglar íslands og Evrópu er
eftir 3 heimsfræga fuglafræðinga,
Ameríkumanninn Rober Peterson
o[. Englendingan Guy Mountfort
og P. A.D. Hollon, en inngang fyr
ir bókinni ritar Julian Huxley.
Þf.tta er viðurkennd einhver allra
merkilegasta fuglabók, sem út hef-
ur komið.
Bókin fjallar um 573 fuglateg-
undir, en í henni eru yfir 1200
myndir, svo að fleiri en ein mynd
er af hverri tegund — bæði sum
ar- og vetrarbúningi þeirra, ef
þær skipta litum, karlfugli og
kvenfugli, ef kynin eru ólik o. s.
frv.
Þá eru í bókinni 380 útbreiðslu
kort, er gefa til kynna sumar- og
vetrarheimkynni langflestra fugla
tegundanna.
Dr. Finnur Guðmundsson hefur
þýtt og staðfært fuglabókina og
hefur raunar átt þátt í henni frá
upphafi að því er ísland varðar,
eins og fram kemur í formála höf
fundanna.
Fréttir frá for-
sætisráöuneytinu
ALÞÝÐUBLAÐINU bárust í
gær eftirfarandi fréttir frá forsæt
isráðuneytinu:
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, kom í gær úr för sinni
til útlanda og hefur á ný tekið við
stjórnarstörfum.
Ríkisstjórnin tekur á móti gest
um í Ráðherrabústaönum, Tjarnar
götu 32, þjóðhátíðardaginn 17.
júní, kl. 4—6.
Menntaskólanum slitið
MENNTASKÓLANUM í Reykja
vík var slitið í gær í 116 skipti.
í ár útskrifast 125 stúdentar frá
skólanum, af þehn eru fjórir ut-
anskólanemendur. Aðeins einu
sinni hafa útskrifast fleiri stúd
entar frá Menntaskólanum í einu,
það var árið 1953, þá brautskráð-
ust 132 stúdentar. í fyrsta sinn í
sögu skólans voru nú fleiri stúd-
entar úr stærðfræðideild heldur
en máladeild. Stærðfræðideildar
stúdentarnir voru 64 að tölu, en
máladeildarstúdentarnir 61.
Rektor ávarpaði nýstúdenta og
afhenti þeim skírteini. Því næst
fór fram verðlaunaafhending og
fengu fjölmargir verðlaun bæði
úr verðlaunasjóðum skólans, og
eins frá aðilum utan skólans.
Þrír lilutu ágætis einkunn á
stúdentsprófi og voru þeir allir
úr stærðfræðideild.
Þorkell Helgason 6. Y ág. 9,31.
Baldur Símonarson 6. X, ág.
9,10.
Gunnar Sigurðsson 6. X, ág.
9,09.
í máladeild lilutu þessi hæstar
einkunnir:
Einar Már Jónsson 6. B I 8,85.
Ólafur Davíðsson 6. B I 8,84.
Auður Þorðardóttir 6. A I 8,62.
Allir þessir nemendur fengu
verðlaun og sumir fleiri en ein.
Af hálfu þeirra stúdenta sem
brautskráðust frá skólanum fyrir
aldamót, liélt séra Sigurbjörn Á.
Gíslason ræðu.
Af þeim munu nú vera átta á
lífi. Séra Sigurbjörn varð stúd-
ent árið 1897 og átti því 65 ára
stúdentsafmæli núna.
Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv.
Hagstofustjóri hélt ræðu fyrir
liönd þeírra sem útskrifuðust árið
1902.
Forseti íslands, Hr. Ásgeirs Ás-
geirsson, hélt ræðu fyrir hönd
fimmtíu ára stúdenta, og greindi
frá því að þeir mundu gefa fjár-
hæð í Bræðrasjóð.
Gunnlaugur Briem, ráðuneytis-
stjóri, talaði af hálfu 40 ára stud
enta, sem einnig færðu Bræðra-
sjóði peningagjöf.
Af hálfu þeirra sem útskrifuð-
ust fyrir 25 árum talaði Vilhjálm
ur Guðmundsson. Skýrði hann frá
því, að 25 ára stúdentar færðu
skólanum vandaða smásjá að gjöf,
sem notast skyldi við náttúru-
fræðikennslu.
Að þessum ræðuhöldum loknum
sagði Kristinn Ármannsson rektor
skólanum slitið.
Ungu stúdentarnir héldu síðan
niður í Alþingishúsgarð, þar sem
ljósmyndararnir biðu þeirra.
[) Sjá 5. síðu
Síldarnýjung
Framhald af 1. síðu.
hæfa að mesta losun á einum sól-
arhring hafi verið þrjátíu þúsund
liektólítrar.
Ákveðið er að stöðin verði á
Seyðisfirði, og- að vertíð lokinni
er fyrirliugað að flytja hana til
hafna við Faxaflóa.
Verksmiðjurnar við Eyjafjörff
Siglufirði eru nú í óða önna aff
tryggja sér skip til síldarflutninga
og Síldarverksmiðjur ríkisins á
að austan. *
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. júní 1962 $3