Alþýðublaðið - 16.06.1962, Side 7

Alþýðublaðið - 16.06.1962, Side 7
1937 - - 1962 Aff því tiiefni að bókmenntafélagið Mál og menn- ing verður 25 ára 17. júní í ár hefur stjórn félags- ins og félagsráð ákveðið aff stofna til afmælisút- gáfu og hefur fengið til samstarfs nokkra helztu rithöfunda og skáld þjóðarinnar sem leggja til í þessa útgáfu ný frumsamin verk. Stjórnin vill að á útgáfu þessari sé myndarbragur, að það fari sam- an fjölbreytileg verk eftir góða höfunda og vönduð bókagerð, svo að útgáfan verði félaginu til sóma og að allir sem hana fá í hendur hafi ánægju af að eiga hana og varðveita. Allar bækurnar verða eftir íslenzka höfunda og verður leitað aðstoðar fremstu bókagerðar- og listamanna til að gera á þær kápur og sjá um útlit þeirra. Bækurnar sem Mál og menning hefur verið svo heppin að fá í afmælisútgáfuna eru þéssar — ítólfta bókin verður ákveðin síðar): Þórbergur Þórbergur Þórffarson: Kiljan Halldór Kiljan Laxness: Gunnar Rannveig Sverrir Jón Minningar úr Unuhúsi. Prjónastofan Sólin. Skrásettar eftir Stefán frá Hvítadal. Uriuhús var annað lieimili margra íslenzkra skálda og listamanna áratugum saman. Um þetta merkilega hús hafa margir íslenzkir ritliöfundar skrifað, • en einkum um þá „akademíu og veizlu“ sem þar stóð á þriðja og fjórða áratug aldarinnar. Minningar þær sem Þórbergur Þórðarson skráði eft ir Stefán frá Hvítadal 1923 má hinsvegar segja að fjalli um forsögu þessa skáldahúss, því þar er greint frá íbúum þess á árunum fvrir 1910. Elztu heíiukvæði Eddu Meff inngangi og skýringum eftir Jón HELGÁSON. Færra en skyldi hefúr verið ritað um eddukvæði handa ís- lenzkum almenningi. Jón pró- fessor Helgason er kunnur að djúpstæðri þekkingu á íornum skáldskap ög engu síður að ésr stökum hæfileikum cil að miðla lesendum af henni. Halldór Stcfánsson: Blakkar rúnir. Smásögur. F.ftir að hafa gefið út 2 skáld sögur á undanförnum árum kemur Halldór Stefánsson nú aftur að sérgrein sinni, smá- sagnagerðinni. I bókinni eru tíu sögur. Nýtt leikrit-. Halidór Kiljan héfur nú hvílt sig um stund frá sagna- gerð, en ryður sér kappsfull- ur nýja braut í leikritasmíð, og þar er ekki síður haft á honum vakandi auga. Stromp- leikurinn olli miklu umróti i hugufn léikhússgesta. Prjóna- stofan Sólin er flóknara leik- rit, öidin í grímubúningi, heimsviðburðir í hnotskurn, ragnarök gerast og liða hjá. Þessa leikrits er beðið með nýrri eftirvæntingu. Gunnar Benediktsson: Skriítamál uppgjafa- prests. í þessari bók eru elztu fyr- irlestrar og ritgerðir Gunnars Benediktssonar, frá þeim ár- um þegar orðið var of þröngt um hann innan kirkjunnar og hann hóf boðskap sinn um rétt • læti í þ'jóðfélaginu. Margir minnast þess umróts sem þess ar ritgerðir ollu á sínum tíma, en þær hafa ekki birzt áður í bökarformi. Bókin er helguð sjötugsafmæli höfundar. V Jón Helgason: Tuttugu crlend kvæði, þýdd og stæld. Af undirtektum þeim að dæma sem Jón Helgason hlaut þegar hann ias úr þessum ljóða þýðingum í vor, er óhætt að fullvrða að Tuttugu erlend kvaéffi verði á sína vísu annar eins bókmenntaviðburður og fýrsta útgáfa ffumsaminna ljóða Jóns fyrir tuttugu og þremur árúm. Meðal margra dýrgripa þessarar bókar er sérstök á- stæða til að benda á fjögur af frægustu kvæðum Franeois . Villons, sem vérða nú i fj’rsta skipti aðgengileg íslenzkum almenningi. Stefán Jónsson: Vegurinn að brúnni. Skáldsaga. Þessi nýja skáldsaga Stef- áns Jóhssonar er mikið verk. sem höfundur hefur unnið að síðustu árin. í sögu tveggja bræðra. sem vaxa upp eftir íyrri heimsstyrjöldina, eru ofnir þættir úr örlögum þeirr- ar kvnslóðar sém lifði þroska- ár sín á krepputimunum. Einar Olgeirsson: Vort land er í dögun. Útdrættir úr ritgerðum. Björn Þorsteinsson annast útgáfuna. Inngangur eftir Sverri Krist- jánsson. Enginn á frjórri hugmyndir en Einar Olfeirsson um fram- tíðarþjóðfélag íslendinga. í þessari bók birtist kjarninn úr ritgerðum hans um framkvæmd sósialisma og lýðræðis, nýsköp- un íslenzks þjóðfélags cg um þjóðfrelsisbaráttu íslendinga. Bókin er gefin út' að tilefni sext ugs afmælis höfundar. Sverrir Kristjánsson: Ræður og riss Fáir íslenzkir ritgerðahöf- undar hafa kunnað betur en Sverrir Kristjánsson að ydda orð sín og senda skeyti sín beint í mark; og fáir standa jafn föstum fótum í jarðvegi húmanískrar arfleifðar sem hann. Það er því ekki vonum fyrr að gefið er út úrval greina hans um menn og málefni, póli tík og bókmenntir síðustu tutt- ugu ára. Rannveig Tómasilóttir: Andlit Asíu. Ferðasaga. I þéssari bók bregður hin víðförli höfundur upp myndum frá Indlandi, Nepal, Ceylon, Kambodia, Tailandi, Uzbek- istan og Kazakstan, hefur lagt leið sína um frumsóga, eyði merkur og upp að rótum Himalaya. Barbara Á. Árnason skreytir bókina í austurlenzk- um stíl. Jóhar.nes úr Kötlum: Halldór Einar Ný ljóðabók. Síðasta ljóðabók Jóhannes- ar úr Kötlum, Sjödægra, flutti með sér algera endurnýjungu á ljóðastíl hans. Með þessari bók brýtur skáldið enn nýtt Hand, og er þá skeleggur og ó- hlífinn sem jafnan fyrr. Ákveðið hefúr verið að afmælisútgáf- an vcrði í aðeins 500 eintökum og selj- ast allar tólf bækurnar í einu lagi. Af þessum 500 eintökum afmælisút- gáfunnar verða 100 eintök í sérstaklega vönduðum búhingi, tölusett og árituð af liöfundum, og ætluð vandfýsnum bókamönnum og búkasöfnurum. Hin 400 eintök afmælisútgáfunnar verða seld innbundin í góðan shirting, allar tólf bækurnar á kr. 2.400. — eða 200 kr. bókin að meðaltali. Þær fást líka héftar á kr. 2.000.— og ib. í skinn 2.720. Safnað verður kaupendum fram til 1. sept. n.k. Hér verffur um aff ræ'ða einstaka sögu- iega útgáfu á bókum eftir þjóffkunna höfunda. Tekiff á móti áskrifendum af afmæl- isútgáfunni í bókabúff og skrifstofu Máls og menningar Lai:gavegi 18 III. hæff, simar 22973 og' 15955. Skrifstofan verff- ur opjn kl. 2 — 10 e. h. laugardag og sunnudag. Stefán OTEZB

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.