Alþýðublaðið - 16.06.1962, Page 7
1937 -
- 1962
Aff því tiiefni að bókmenntafélagið Mál og menn-
ing verður 25 ára 17. júní í ár hefur stjórn félags-
ins og félagsráð ákveðið aff stofna til afmælisút-
gáfu og hefur fengið til samstarfs nokkra helztu
rithöfunda og skáld þjóðarinnar sem leggja til í
þessa útgáfu ný frumsamin verk. Stjórnin vill að á
útgáfu þessari sé myndarbragur, að það fari sam-
an fjölbreytileg verk eftir góða höfunda og vönduð
bókagerð, svo að útgáfan verði félaginu til sóma
og að allir sem hana fá í hendur hafi ánægju af
að eiga hana og varðveita. Allar bækurnar verða
eftir íslenzka höfunda og verður leitað aðstoðar
fremstu bókagerðar- og listamanna til að gera á
þær kápur og sjá um útlit þeirra.
Bækurnar sem Mál og menning hefur verið svo
heppin að fá í afmælisútgáfuna eru þéssar —
ítólfta bókin verður ákveðin síðar):
Þórbergur
Þórbergur Þórffarson:
Kiljan
Halldór Kiljan Laxness:
Gunnar
Rannveig
Sverrir
Jón
Minningar úr Unuhúsi. Prjónastofan Sólin.
Skrásettar eftir Stefán frá
Hvítadal.
Uriuhús var annað lieimili
margra íslenzkra skálda og
listamanna áratugum saman.
Um þetta merkilega hús hafa
margir íslenzkir ritliöfundar
skrifað, • en einkum um þá
„akademíu og veizlu“ sem þar
stóð á þriðja og fjórða áratug
aldarinnar. Minningar þær sem
Þórbergur Þórðarson skráði eft
ir Stefán frá Hvítadal 1923 má
hinsvegar segja að fjalli um
forsögu þessa skáldahúss, því
þar er greint frá íbúum þess á
árunum fvrir 1910.
Elztu heíiukvæði Eddu
Meff inngangi og skýringum
eftir Jón HELGÁSON.
Færra en skyldi hefúr verið
ritað um eddukvæði handa ís-
lenzkum almenningi. Jón pró-
fessor Helgason er kunnur að
djúpstæðri þekkingu á íornum
skáldskap ög engu síður að ésr
stökum hæfileikum cil að miðla
lesendum af henni.
Halldór Stcfánsson:
Blakkar rúnir.
Smásögur.
F.ftir að hafa gefið út 2 skáld
sögur á undanförnum árum
kemur Halldór Stefánsson nú
aftur að sérgrein sinni, smá-
sagnagerðinni. I bókinni eru
tíu sögur.
Nýtt leikrit-.
Halidór Kiljan héfur nú
hvílt sig um stund frá sagna-
gerð, en ryður sér kappsfull-
ur nýja braut í leikritasmíð,
og þar er ekki síður haft á
honum vakandi auga. Stromp-
leikurinn olli miklu umróti i
hugufn léikhússgesta. Prjóna-
stofan Sólin er flóknara leik-
rit, öidin í grímubúningi,
heimsviðburðir í hnotskurn,
ragnarök gerast og liða hjá.
Þessa leikrits er beðið með
nýrri eftirvæntingu.
Gunnar Benediktsson:
Skriítamál uppgjafa-
prests.
í þessari bók eru elztu fyr-
irlestrar og ritgerðir Gunnars
Benediktssonar, frá þeim ár-
um þegar orðið var of þröngt
um hann innan kirkjunnar og
hann hóf boðskap sinn um rétt
• læti í þ'jóðfélaginu. Margir
minnast þess umróts sem þess
ar ritgerðir ollu á sínum tíma,
en þær hafa ekki birzt áður í
bökarformi. Bókin er helguð
sjötugsafmæli höfundar.
V
Jón Helgason:
Tuttugu crlend kvæði,
þýdd og stæld.
Af undirtektum þeim að
dæma sem Jón Helgason hlaut
þegar hann ias úr þessum ljóða
þýðingum í vor, er óhætt að
fullvrða að Tuttugu erlend
kvaéffi verði á sína vísu annar
eins bókmenntaviðburður og
fýrsta útgáfa ffumsaminna ljóða
Jóns fyrir tuttugu og þremur
árúm. Meðal margra dýrgripa
þessarar bókar er sérstök á-
stæða til að benda á fjögur af
frægustu kvæðum Franeois .
Villons, sem vérða nú i fj’rsta
skipti aðgengileg íslenzkum
almenningi.
Stefán Jónsson:
Vegurinn að brúnni.
Skáldsaga.
Þessi nýja skáldsaga Stef-
áns Jóhssonar er mikið verk.
sem höfundur hefur unnið að
síðustu árin. í sögu tveggja
bræðra. sem vaxa upp eftir
íyrri heimsstyrjöldina, eru
ofnir þættir úr örlögum þeirr-
ar kvnslóðar sém lifði þroska-
ár sín á krepputimunum.
Einar Olgeirsson:
Vort land er í dögun.
Útdrættir úr ritgerðum. Björn
Þorsteinsson annast útgáfuna.
Inngangur eftir Sverri Krist-
jánsson.
Enginn á frjórri hugmyndir
en Einar Olfeirsson um fram-
tíðarþjóðfélag íslendinga. í
þessari bók birtist kjarninn úr
ritgerðum hans um framkvæmd
sósialisma og lýðræðis, nýsköp-
un íslenzks þjóðfélags cg um
þjóðfrelsisbaráttu íslendinga.
Bókin er gefin út' að tilefni sext
ugs afmælis höfundar.
Sverrir Kristjánsson:
Ræður og riss
Fáir íslenzkir ritgerðahöf-
undar hafa kunnað betur en
Sverrir Kristjánsson að ydda
orð sín og senda skeyti sín
beint í mark; og fáir standa
jafn föstum fótum í jarðvegi
húmanískrar arfleifðar sem
hann. Það er því ekki vonum
fyrr að gefið er út úrval greina
hans um menn og málefni, póli
tík og bókmenntir síðustu tutt-
ugu ára.
Rannveig Tómasilóttir:
Andlit Asíu.
Ferðasaga.
I þéssari bók bregður hin
víðförli höfundur upp myndum
frá Indlandi, Nepal, Ceylon,
Kambodia, Tailandi, Uzbek-
istan og Kazakstan, hefur lagt
leið sína um frumsóga, eyði
merkur og upp að rótum
Himalaya. Barbara Á. Árnason
skreytir bókina í austurlenzk-
um stíl.
Jóhar.nes úr Kötlum:
Halldór
Einar
Ný ljóðabók.
Síðasta ljóðabók Jóhannes-
ar úr Kötlum, Sjödægra, flutti
með sér algera endurnýjungu
á ljóðastíl hans. Með þessari
bók brýtur skáldið enn nýtt
Hand, og er þá skeleggur og ó-
hlífinn sem jafnan fyrr.
Ákveðið hefúr verið að afmælisútgáf-
an vcrði í aðeins 500 eintökum og selj-
ast allar tólf bækurnar í einu lagi.
Af þessum 500 eintökum afmælisút-
gáfunnar verða 100 eintök í sérstaklega
vönduðum búhingi, tölusett og árituð
af liöfundum, og ætluð vandfýsnum
bókamönnum og búkasöfnurum.
Hin 400 eintök afmælisútgáfunnar
verða seld innbundin í góðan shirting,
allar tólf bækurnar á kr. 2.400. — eða
200 kr. bókin að meðaltali. Þær fást líka
héftar á kr. 2.000.— og ib. í skinn 2.720.
Safnað verður kaupendum fram til 1.
sept. n.k.
Hér verffur um aff ræ'ða einstaka sögu-
iega útgáfu á bókum eftir þjóffkunna
höfunda.
Tekiff á móti áskrifendum af afmæl-
isútgáfunni í bókabúff og skrifstofu Máls
og menningar Lai:gavegi 18 III. hæff,
simar 22973 og' 15955. Skrifstofan verff-
ur opjn kl. 2 — 10 e. h. laugardag og
sunnudag.
Stefán
OTEZB