Alþýðublaðið - 16.06.1962, Side 10
RitstjórL ÖRN EIÐSSON
Knattspyrna
á (safirði
17,
ALLMIKLAR annir hafa verið hjá
ísfirzkum knattspyrnumönnum yf-
ir hvítasunnuna.
A laugardag kom II. fl. KR og
lék við jafnaldra sína úr Herði og.
Vestra.
Leikurinn á laugardag var nokk
uð skemmtilegur á köflum, strák-
arnir frískir og harðir af sér og
léku oft á tíðum dálaglega, eink-
um brá fyrir laglegu samspili KR-
inga.
KR-ingar unnu leikinn með 2
mörkum gegn engu. Sigur þeirra
var verðskuldaður en eitt mark
hefðu heimamenn mátt fá og hefði
ekki talizt slembilukka.
KR skoraði bæði mörkin í fyrri
hálfleik, enda var seinni hlutinn
mun jafnari.
Á hvítasunnudag léku liðin aft-
ur.
Þessi leikur var ekki síður
Ekemmtilegur og'fengu bæði liðin
nokkur tækifæri, sem þó ekki nýtt
ust. All mikil harka var í leiknum
en kom þó ekki í veg fyrir skemmti
legan leik.
KR-ingar tóku forustu og skor-
uðu úr vítaspyrnu nokkuð
snemma í fyrri hálfleik. Var það
„ódýrt” mark, því sá, er tók spyrn-
una spyrnti frekar lausum bolta
beint til markmannsins, sem þó
ekki hélt boltanum, með þeim af-
leiðingum, að KR-ingur komst inn
fyrir og skoraði.
Nokkru síðar tókst ísfirðingum
að jafna. Markvörður KR mátti
kasta sér til að verja nokkuð gott
skot, en fékk ekki haldið knéttin-
um, og miðherji ísfirðinga, sem
fylgdi fast á eftir, sendi knöttinn
í netið. Bæði mörkin voru skoruð
í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleik lauk án þess
fleiri mörk yrðu gerð og lauk
leiknum því með jafntefli 1:1.
í dag fór svo fram I. deildarleik-
ur. ÍBÍ—Akranes. Skagamenn ger-
sigruðu í leiknum, settu sex mörk
gegn engu.
ísfirzka liðið var ákaflega mis-
tækt og mistökin hjá vörninni, sem
færði Fram sex mörk voru að
miklu leyti endurtekin í dag.
Fyrsta markið settu Akurnesing-
ar, er 24 mín voru af leik og á
næstu 15 mín bættu þeir þrem til
viðbótar, þannig að staðan í hálf
leik var 4:0. Seinni hálfleik unnu
þeir 2:0.
ísfirzka vörnin var eins og fyrr
segir í molum. Úti á velli náði lið-
ið oft dágóðu spili, en þá að mark-
inu kom rann allt út í sandinn,
skotin voru líkari sendingum en
markskotum og mörg tækifæri glöt
uðust vegna þess að ekki var fylgt
nóg á eftir.
Lið Akurnesinga var mun frísk-
ara og ákveðnara, og stjórnaði Rík-
harður liðinu úti á vellinum af
festu og öryggi. En það sem fyrst
og fremst færði þeim sigurinn var
virkur ieikur að markinu og föst og
ákveðin markskot. Var eitthvað
annað að sjá þau en máttlausa
bolta heimaliðsins.
Akurnesingar unnu verðskuldað
ar. sigur, enda þótt markamunur sé
hélzt til mikill og strákarnir
FYRRI hluti frjálsíþróttamótsins
17. júní verður í dag á Melavellin-
um og hefst kl. 16.00. Keppt verð-
ur í þessum greinum: 200 m. hlaup
— 3000 m. hlaup — 110 m. grinda-
hlaup — hástökk — sleggjukast
— spjótkast — langstökk.
Síðari hluti mótsins verður á
Laugardalsvellinum á morgun í
sambandi við þjóðhátíðarhöldin
þar og hefst mótið kl. 5.00.
Meðal keppenda í dag eru Val-
björn Þorláksson, sem keppir í há-
stökki, 200 m. hlaupi, 110 m. grinda
Klaupi og spjótkasti. Vilhjálmur
Einarsson keppir í langstökki,
Kristleifur Guðbjörnsson í 3000
m. hlaupi, Jón Þ. Ólafsson í há-
stökki.
heima hefðu átt skilið að fá 1 til 2
mörk. En það er víst ekki nóg að
eiga skilið að fá mark, og á meðan
að ísfirzka liðið ekki eignazt
menn sem geta skotið á mark svó
nokkru nemur verður það sjálf-
sagt tilviljanakennt hvenær þeir
skóra.
Dómari í leiknum var Einar
Kjartansson og mætti út af fyrir
sig helga honum sérstakan kapí-
tula, þótt ekki verði gert hér.
Sig. Jóh.
Hinir Austurrísku
J.ý'/.ý
hjólbarðar
væntanlegir næstu tlaga.
Hagstætt verð.
G. Helgason & Melsted h.í.
Rauðarárstíg 1. — Sími 11644..
Útboð um hitaveilulagnir
í Hlíðarhverfi
4. áfangi.
Hér með er óskað eftir tilboðum um hitaveitulagnir, utan-
húss í eftirtaldar götur í Hlíðarhverfi:
Meðalholt, Stórholt, Stangarholt og hluta af Skipholti, Nóa
túni, Lönguhlið, Háteigsvegi og Einliolti.
Útboðsgögnin verða afhent í skrifstofu vorri Tjarnargötu
12, 3 hæð gegn 3.000.— króna skilatryggingu.
Innkaupastofmm Reykjavíkurborgar.
Athugasemd írá
knattspyrnudómara
Undanfarna daga hafa verið sett nokkur heimsmet og Evrópumet
í frjálsíþróttum en alls 13 það sem af er árinu. Myndin cr af Banda
ríkjamanninum Beatty, sem setti nýlega heimsmet í 2ja mílna hlaupi
— 8.29,8 mín. Ovansejan Sovét. hefur sett heimsmet í langstökki
8,31 m. Nikula Evrópumet í stangarstökki 4,85 m. og rússnesku stúlk
urnar T. Press í kúluvarpi 18,55 og Tschelkanova í langstökki 6,53m.
I-Ierra ritstjóri ! j
Það er elcki á hverjum degi,
knattspyrnudómari óskar eftir að
fá að birta athugasemd við skrif
og framkomu íþróttafréttaritara,
svo ég vona, að þér sjáið yður
fært að taka þessar fáu línur
tií birtingar.
Eg undirritaður er dæmdi leik-
inn Tékkar — Akureyri, verð að
láta í ljós undrun á framkomu
Frímanns Helgasonar íþrótta-
fréttaritara Þjóðviljans, sem hef-
ur þar að auki unnið sig upp í
að verða knattspyrnudómari. I
fyrri hálfleik dæmdi ég tvær víta
spyrnur, aðra á Tékka og hina á
Akureyri og með því var ég að-
eins að framkvæma mín skyldu-
störf. Vítaspyrnan á austantjalds
menn hefur komið mjög við fínu
taugarnar á fréttaritara Þjóðvilj-
ans.
Þegar leikhlé var kom Frí-
mann með tárin í augunum og
þrútinn í framan af reiði inn í
dómaraherbergið. Hiá mér voru
mættir nokkrir blaðajnenn og gaf
ég þeim skýringar við því, sem
þeir óskuðu eftir. Þeir voru við-
mótsþýðir að undanskyldum Fri-
manni, sem vart var viðmælandi
fyrir bræði. Hver var ástæðan
fyrir bræði Frímanns? Hún var
sú. að ég hafði dug til að fara
að lögum og dæma á stórveldið
vítaspyrnu.
Frimann hélt því fram, að víta-
spyrnan væri röng og bví til sönn-
unar sagði hann, að Tékkar hefðu
mótmælt henni (bað var þá mæli-
kvarði). Ég lét Frímann vita, að
bæði ég og annar línuvörðurinn
hefðum séð Tékkann slá knöttinn
viljandi með héndi.
Þarna hélt Frímann því fram,
að okkur hefði skjátlast, því að
spurningin væri, hvort að hann
hefði grætt á því, að slá knöttinn,
en þar sem svo liafði ekki verið,
hafi átt að láta brotið falla niður.
í knattspyrnulögunum stendur,
að það sé lögbrot, að slá eða snerta
knöttinn viljandi með hendi og því
beri að refsa.
Það væri ekki gott, ef að leik-
maður mætti koma að mótherja
og sparka í hanr. viljandi og svo
væri ekki hægt að koma yfir hann
Framhald a 11. síöu.
Tilraunalandslið landsliðsnefnd-
ar Knattspyrnusambands íslands,
sem leika á við tékkneska ung-
lingalandsliðið n. k. mánudags-
kvöld, er þannig skipaö:
Heimir Guðjónsson
Arni Njálsson
Bjarni Felixsson
Hörður Felixsson
Garðar Árnason
Ormar Skeggjason
Kári Árnason
Skúli Ágústsson
Grétar Sigurðsson
Gunnar Felixsson
Þórður Jónsson
Varamenn:
Einar Helgason, Akureyri
Þorsteinn Friðbjófsson
Sveinn Jónsson
Ellert Schram
Sigþór Jakobsson
10 16. jú.ní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ