Alþýðublaðið - 18.09.1962, Blaðsíða 16
ELDSVOÐIÁ
KJALARNESI
STORBRUNI VARÐ á sunnu-
dagskvöld á bænum Sjávarhólum
á Kjalarnesi. Þrjú útihús brunnu,
tfjós, hlaóa og geymsluhús. Eldur-
Inn kom uPP í heyhlöðu, Jjar sem
íteymdir voru 800 hestar af heyi.
í Sjávarhólum búa Haraldur Jós-
efsson, kona hans og börn þeirra
Éimm að tölu.
Nágrannar urðu eldsins fyrst varir,
og var þegar í stað gert boð eftir
elökkviliði úr Reykjavík og af Ála-
Éossi,-einnig dreif að fólk af næstu
Hestur
drepinn
í áreksfri
bæjum og hjálpaði það til við að
ráða niðurlögum eldsins.
Mjög erfitt var um vatn þarna
og stíflaðist dælan á slökkviliðs-
bílnum úr Reykjavik fljótlega og
varð þá að senda annan á stað-
inn.
Hlaðan sem eldurinn kom upp í
var nýleg, og rúmaði hún 1200—
1400 hesta af heyi. Talið er að
minnsta kosti helmingur þess heys,
sem í hlöðunni var, hafi eyðilagzt
Fjósið, sem brann rúmaði 24
kýr. Geymsluhúsið var áður hlaða
og þar í voru geymdar nokkrar
birgðir af fóðurmjöli, nokkrir
pokar af tilbúnum áburði og mat-
vara frá heimilinu, aðailega kjöt.
Eldur var um tíma kominn í
þakskegg íbúðarhússins, en þó
tókst að varna að eldur næði að
festast í því.
Ábúendur jarðarinnar hafa orðið
fyrir miklu og tilfinnanlegu tjóni.
Byggingarnar, sem brunnu, munu
hafa verið lágt vátryggðar.
SEINT á Iaugardagskvöldið var
ekið á hest skammt fyrir austan
Selfoss. Fólk, sem átti leið um
veginn, ók fram á hestinn þar sem i
fiðnn lá á miðri brautinni og þáj
daaiður. Tilkynnti það lögregl-jf
unni á Selfossi um atburðinn, en
fíað mun eitthvað hafa dregist hjá
þeim sem ók á hann, að gera við-
vart.
Það var stór vörubíli, sem ók á
hestinn, og sagðist bílstjórinn ekki
liafa séð hann fyrr en hann kom j
tnn í 1 jðsgeislann frá bifreiðinni.;
Var höggið mjög mikið og skemmd
fct bíllinn töluvert, en liesturinn í
drapst samstundis. ' I
Arekstrar
á Akureyri
Akureyri í gær.
TVrO DAGA í röð hafa orðið hér
bifreiðaárekstrar nákvæmlega á
sama stað og sarna tíma.
Á laugardaginn varð árekstur á
mótum Byggðavegar og Þingvalla-
strætis. Þetta skeði um klukkan
16. Á nákvæmlega sama tíma á
sunnudaginn varð mjög harður á-
rekstur á þessum sömu gatnamót-
um. Við áreksturinn valt annar
bíllinn á liliðina. Meiðsli á fólki
urðu ekki alvarleg. G. St.
Olympíumótið í Varna:
ÍSLAND VANN
FRAKKLAND
HALVARD
LANGE
SEXTUGUR
HALVARD LANGE, utanríkis-
ráðherra Norðmanna, varð sex-
tugur s. 1. sunnudag. Hann hef-
ur verið utanríkisráðherra
lands síns í sextán og hálft ár
og hefur á þeim tíma sett sinn
svip á utanríkisstefnuna meira
en nokkur annar einstaklingur,
Lange er íslendingum að góðu
kunnur af heimsóknum sínum
hingað.
Lange hefur setið í mið-i
stjórn norska Alþýðuflokksins
síðan 1933 og tekið mjög virk-
an þátt í fræðslustarfscmi
verkalýðshreyfingarinnar. AI-
þýðuflokkurinn og Alþýðublað-
ið árna hinum sextuga heiðurs
manni allra lieilla.
ÍTMMTÁNDA Ólympíuskákmótið
var sett í borginni Varna í Búg-
earíu sl. laugardag og fyrsta um-
íslenzka kennd
í Færeyjum
ÞORSHOFN. Gagnfræðaskóla-
nemendur í Færeyjum eiga að
læra fimm erlend tungumál skv.
«ý|um- skólalögum, dönsku, ens-
ku. sænsku, þýzku og íslenzku.
Hinn 8. nóvember fara fram
llosHingar til Lögþingsins. Kristj-
én Djurhuus, sem hefur verið
einn helzti foringi Sambands-
ílokksins, um árabil, hefur ákveð-
18-að verða ekki í framboði á Suð-
«rey-.~ Hann var lögmaður á ár-
unum 1D50-58. '
ferð var tefld í gær. í forkeppni
lenti ísland í riðli með 9 öðrum
löndum. og er töfluröðin í riðlin-
um þessi: Frakkland, Júgóslavía,
Tókkóslóvakía, Luxemburg, Finn-
land, Kýpur, Holland, Uruguay,
Pólland og ísland.
í fyrstu umferð tefldu ísl'end-
ingar við Frakka og fóru leikar
þannig að íslenzka sveitin vann
mcð tveimur og hálfum gegn ein-
um og hálfum. Friðrik Ólafsson
vann Boutosello, Arinbjörn Guð-
mundsson vann Bergraser, Jón
Pálsson tapaði fyrir Thiellement,
en Björn Þorsteinsson gerði jafn-
tefli við Hora.
Önnur úrslit í riðlinum urðu
þau að Júgóslavía vann Pólland
með 2Vz gegn einum og hálfuni
Tékkóslóvakía vann Uruguay með
SV2 gegn hálfum, Holland vann
Luxemborg með 3 gegn einum og;
Finnland vann Kýpur á öllum,
boroum.
itMWWWWMMMMWWMW
Götur steyptar
í Neskaupstað
Neskaupstað í gær.
VERIÐ er nú að steypa götur hér
í bænum. Steyptur verður 80 m.
kafli af Egilsbraut, viðbót við það,
sem steypt var í fyrra. Einnig
vérður steyptur liluti af Stekkjar-
götu.
Óþurrkar hafa verið miklir í
sumar. í síðustu viku var tíð þó
sæmileg og náðu bændur þá inn
miklu af lieyjum.
Berjaspretta hér virðist vera
lítil í ár. G. A.
tmmD
43. árg. - Þriðjudagur 18. sept. 1982 - 204. tbl.
STAM
LlFSHÆTTU
MAÐUR nokkur var á ferð yfir
Ilellisheiði á sunnudagskvöldið
rétt fyrir klukkan tíu. Skýndil'ega
kom maður á hesti inn í ljósgeisl-
ann frá bifreiðinni, og voru það
eingöngu góðar bremsur og snör
handtök, sem björguðu liesti og
manni frá limlestingu eða dauða.
Hestamaðurinn kom ríðandi eft-
ir miðjum vegi, og var mikið undir
áhrifum áfengis, og virtist ekki
gefa umferðinni nokkurn gaum.
Skömmu áður liafði bílstjórinn ek-
ið fram á nokkra hestamenn, sem
riðu eftir veginum. Á þessum tíma
var mikil umferð um Hellisheið-
ina, og varð hver bílstjórinn á
fætur öðrum að snarhemla og
sveigja frá hinum drukkna reið-
manni.
Það er orðið mikið ,,sport“ með-
al Reykvíkinga að eiga hesta og
fara í útreiðatúra um helgar. Það
hefur lengi verið mikill hörgull á
góðum reiðgötum í nágrenni bæj--
arins, og hópar hestamanna því
orðið að fara eftir þjóðvegunum.
Á þessu verður að ráða bót, enda
er þetta stór hættulegt ástand og
hafa slys oft hlqtizt af. Verst er
þetta á haustin eftir að dimma fer,
Þá finnst sumum hestamönnúni
tilheyra að hafa fleyg með í vas-
anum, og endar ferðin þá oft þann-
ig að hesturinn, en ekki maðurinn,
ræður ferðinni. Yfirleitt eru þetta
sömu mennirnir, og þegar rætt er
um drykkjuskap í „útreiðartúr-
um“, líður allur fjöldinn fyrir gerð
ir nokkurra manna.
Skípzt á gj
að skilnaði
Þrír sækja um
Norðfjarðar-
prestakaJI
UMSÓKNARFRESTUR um Norð-
fjarðarprestakall í Suður-Múla
prófastsdæmi var útrunninn 15.
þessa mánaðar. Umsækjendur eru'
þrír: Séra Árni Sigurðsson Hofs-I
ósi, Séra Sigurjón Einarsson, og i
Séra Trausti Pétursson prófastur j
u Djúpiavogi.
HEIMSÖKN forsætisráðherra ís-
raels ög frúar hans lauk á laug-
ardafiskveldiö. Haföi veriff ákveö-
iff að þau hjónin og föruneyti
þein-a héldu heimleiðis morgun-
inn eftir. Brottförinni var þó frest-
að um einn sólarhring aff ósk Ben-
Gurions. Á sunnudaginn hvíldu
ráðherrahjónin sig, enda hafa
þau verið á ferðalagi undanfarn-
ar fjórar vikur.
í liófinu, sem Ben-Gurion liélt
síðastliðið Iaugardagskvöld í
Þjóðleikhúskjallaranum, bauð
hann Ólafi Thors og konu hans í
opinbera Iieimsókn til ísraels. —
Hafa þau þekkst boðið.
Til minningar um komuna til
íslands gaf Ólafur Thors Ben-Gu-
rion ljósprentað og áletrað eintak
af Flateyjarbók. Kona hans, frú
Paula Ben-Gurion fekk að gjöf
silfurafsteypu, sem Leifur Kaldal
hefur gert af Þórslíkneskinu, er
fannst að Eyrarlandi árið 1815 og
er talið einn verðmætasti gripur-
inn í Þjóðminjasafninu.
Dóttir ráðhevrahjónanna, frú
Renana Ben-Gurion Leshem,
hlaut að gjöf könnu.og. bikara úr
brenndum leir, gjörða af frú Stein
unni Marteinsdóttur.
Frú Paula Ben-Gurion gaf frú
Ingibjörgu Thors fagra skál með
skjaldarmerki ísraels og nafni
sínu, en Ben-Gurion gaf Ólafi
Thors 2200 ára gamlan skraut-
vasa í öskju úr olíuviði.
Á öskjunni er málmplata, sem
letrað er á að gjöfin sé til Ólafs
Thors, sem vottur vináttu og virð-
ingar frá David Ben-Gurion.
Gestirnir héldu heimleiðis
klukkan ellefu í gærmorgun með
þotu frá E1 Al, sem staðnæmdist
hér á leið sinni frá tí. S. A. til ís-
rael.
•UM KLUKKAN 18 í gærkveldl
barst Ólafi Thors forsætisráð-
herra skeyti frá David Ben-Gu-
rion, forsætisráðherra ísraels, sem
þá var staddur í Ziirieh í Sviss á
leið til ísrael.
1 skeytinu þakkaði Ben-Gurion
alúðlegar móttökur ok kvaðst
bíða með eftirvæntingu þeirrar
stundar, er Ólafur Thors og kona
hans kæmu í heimsókn til ís-
rael.
Samkomulag
hjá Prent-
myndasmiðum
Á SAMNINGAFUNDI í gær-
kveldi hjá samninganefndum Fé-
lags prentmyndagerðarmanna ann
ars vegar og Prentmyndasmiðafé-
Iags íslands hins vcgar náðist sam-
komulag um nýja kjarasamninga,
og veröur það lagt fyrir á félags-
fundi til samþykktar. Prentmynda
smiðafélag íslands hafði boðað
verkfall frá 1. okt. n. k., ef samn-
ingar hefðu ekki tekizt fyrir þann
tíma.