Alþýðublaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 3
SÝÐUR UPP ÚR I S.- RHODHESIU? Salisbury, Suður-Rhodesíu, 21. sept. (NTB—Reuter) LÖGREGLA og hermenn gerðu viðtækar húsleitir í svertingja- hverfunum í Salisbury í dag, en í gær bannaði stjórnin þjóðernis- sinnaflokk svertingja. Jafnframt skýrir lögreglan svo Benbella sigraði Algeirsborg, 21. sept. (NTB—Reuter). MOHAMMED Ben Bella hefur tryggt sér og stjórnarnefnd sinni Sigur í þingkosningunum í Alsír. Kosningaúrslitin höfðu ekki ver- ið birt i kvöld, en formælendur. kjörnefndarinnar liafa skýrt svo frá, að frambjóðendur FLN hafi tryggt sér tvo þriðju atkvæða. Kjörsókn var verst í Algeirs- borg, aðeins 64.10% og mest í bæjum í Vestur-Alsír. Skýringin á liinni lélegu kjörsókn er sú, að mikill fjöldi manna af evrópskum ættum hefur flúið úr landi, en áð- ur var mikill hluti íbúa Algeirs- borgar af evrópsku bergi brotinn. Á föstudag eiga stjórnmálafor- ingjarnir að hafa lokið umræðum sínum um setningu þjóðþingsins í næstu viku og skipun nýrrar stjórnar í stað bráðabirgðastjórn ar Abderrahmana Farces. Enn er ástandið ótryggt í ná- grenni Algeirsborgar. Belgísk lijón fundust myrt i gær vestur af Algeirsborg og er leitað að morð- ingjunum. frá, að hermenn hafi verið sendir til Melsetter, nálægt landamær- um Mozambique, en þar hafa átt sér stað óeirðir að undanförnu. Margir menn úr hinum bannaða flokki hafa verið handteknir. Foringi flokksins, Joshua Nko- mo, sem um þessar mundir dvelst í Lusaka í Norður-Rhodesíu, fór þess á leit við brezku stjórnina í dag, að hún sendi hermenn til Suður-Rhodesíu, afnæmi stjórnar- skrána og stjórnaði landinu unz ný lýræðisleg stjórnarskrá hefði ver- ið samin. j Þetta er eina leiðin til þess að | við getum bjargað 4andi okkar frá jhörmungum, sagði hann. Ef Bret- ' ar fallast ekki á þetta og blóði ! verði úthellt nú verða þeir að !sæta ábyrgð. IWWWMMMWWMMWWM* TRÍDI Gaitskell í kosningaham GAITSKELL, foringi brezka Verkamannafiokksins, sagði í útvarpsræðu í gærkveldi, að næðist ekki samkomulag við EBE, sem tryggði hagsmuni samveldisins, væri ekkert á- unnið með inngöngu Breta í efnahagsbandalagið. Ef slíkt samkomulag næð- ist ekki, yrði að ganga til nýrra kosninga. Gaitskell kvaðst ekki vera í- vafa um, hver dómur kjósenda yrði. Hann kvað takmarkið vera það, að tengja samveldið og Evrópu, en það væri ekki kleift, ef samveldið liði und- ir lok. Fréttir frá Ottawa herma, að Diefenbaker forsætisráð- herra Kanada liafi hvatt til þess að haldin verði önnur samveldisráðstefna. >MWtWWMWWW*WWWWW Hörö landamæra- árás Kínverja Nýju Delhi, 21. sept. I (NTB—Reuter) ÞRÍR indverskir hermenn voru felldir í átökum við kínverskar hersveitir nálægt landamærastöð- inni Thag La í Norðaustur-Ind- | landi í gærkvöldi. Indverska stjórnin hefur sent Pekingstjórn- inni mótmælaorðsendingu vegna þessa atburðar. Samkvæmt upplýsingum ind- verska utanríkisráðuneytisins hófu Kínverjar skothríð þegar indversku hermennirnir höfðu skotið upp ljósmerkjum. Tveir kínverskir hermenn köstuðu þá handsprengjum á^ Indverjana. í ljósskininu sáu indversku her- mennirnir töluvert marga kín- verska hermenn skammt frá landa- mærastöðinni. í dag birti indverska utanríkis- ráðuneytið textann að orðsend- ingu þar sem Indverjar fallast á að ræða við Kínverja um landa- mæraatburðina. Viðræður þessar eiga að hefjast í Peking' 15. októ- ber og seinna verður þeim haldið áfram í Nýju Delhi. í gær sagði formælándi ind- verska utanríkisráðuneytisins, að nokkrar hinna kínversku hersveita, sem nýlega sóttu inn yfir landa- mærin Thag La, hefðu hörfað úr landinu á ný. Indverskar hersveitir hafa sótt EINN SVfANNA FÉLL í ÁRÁSINNI í N.-KATANGA Stokkhólmi, 21. sept. (NTB—Reuter) Óvissa og efi breyttist í fögnuð á níu sænskum heimilum síðdegis í dag, er ljóst var, að allir Sþ-flug- mennirnir tíu, að einum undan- skildum, sem voru í flugvélinni, er skotin var niður í N.-Katanga, hefðu komizt lífs af. Flestir höfðu gefið upp alla von um, að nokkur hefði komizt lífs af, þar sem úr lofti hafði ateins flugvélarflakið sézt og ekkert kvikt þar að sjá. Sá eini, sem ekki komst lífs af, hinn 35 ára gamli vélamaður, Per Olav Solvestad, dó úr skotsárum, en fimm aðrir hiutu einnig slík sár. Einn þcirra hafði hlotið alvar legt sár á maga. Sanikvæmt upp- lýsingum herráðsins í Stokkhólmi fengu 2 hinna særðu læknishjálp hjá kongóskum hermönnum í þorpunum Kitenga og Nýunsu í Norður-Katanga í dag. Flestir flugmanna, sem komust af, voru fluttir í dag til Kamina- herstöðvarinnar, þar sem þeir voru yfirheyrðir um atvik skot- árásarinnar. Ekki liafði herráðinu í Stokkhólmi borizt neinar fregn- ir í dag um það, hverjir skotið hefðu flugvélina niður. Af opinberri hálfu voru við- brögð manna í Stokkhólmi á þá lund, að atburðurinn muni auka spennuna í Kongó og torvelda til- raunir til þess að finna lausn á Kongó-deilunni. Stjórnmálamenn í Stokkhólmi telja, að atburðurinn verði til þess, að umræðurnar um þátttöku Svía í aðgerðum Sþ hefjist að nýju. Ýmsir hafa gagnrýnt það, að hlutlaust ríki eins og Svíþjóð skuli • eiga svo mikinn þátt í að- gerðunum í Kongó. Blöðin í Svíþjóð hvetja til þess að Sþ hefjist handa um að leysa Kongó-málið af þrótti og festu. Aftonbladet segir, að umræddur atburður sé sá versti, er gerzt hafi til þessa. Sænska flugvélin var skotin nið- (ur næstum því réttu ári eftir að Dag Hammarskjöld aðalfram- kvæmdastjóri og átta sænskir starfsmenn Sþ fórust í flugslysi við Ndola í N.-Rhodesíu. Reuter segir, að nokkrar þyrl- ur hafi fundið Svíana. í fylgd með þyrlunum var orrustuþota Sænska flugvélin var skotin nið- ur við Kamunzu, um 300 km. norð- austur af Kamina. Ekki er vitað hverjir hafa skotið vélina niður. Kat.angamenn segja kongóska her- menn hafa gert það. Áður en leitin hófst í dag varaði Sþ þá Adoula forsætisráðherra og Tshombe forseta við afleiðingum bess, ef á þyrlurnar yrði ráðizt. Orrustuþotan mundi þá hefja skot- hríð. Sænska flugvélin var á veniulegu könnunarflugi til þess að fylgjast með því, hvort her- sveitir Kongómanna og Katanga- manna hefðu hætt vopnaviðskipt- um á hinu umdeilda landssvæði, Norður-Katanga. inn í Chcdonghérað, sem Indverj- ar segja, að myndi landamærin við Kína. Einn kínverskur Iiðsfor- ingi var felldur og einn hermaður særðist. Fréttastofan Nýja Kína segir, að ástandið á Iandamærun- um sé orðið svo alvarlegt, að stríð geti skollið á þá og þegar á landa- mærasvæðinu. Indverska stjórnin heldur því fram í áðurnefndri orðsendingu, að Kínverjar séu staðráðnir í að halda árásarstarfsemi sinni á- fram, beita valdi til þess að færa landamæralínuna og notfæra sér samningaviðræður til þess að leyna raunverulegum tilgangi stjórnarinnar. Indverjar segja, að þótt þeir muni taka þátt í viðræðum i Pek- ing og seinna í Nýju Delhi, verði ríkin tvö fyrst og fremst að miða að því að skýra aðgerðir, er grípa verður til til þess að koma á aft- ur „status quo“. Ekki sé hægt að halda viðræður þar sem unnið yrði að endanlegri lausn fyrr en ríkin öðluðust að nýju traust hvort á öðru, segir í orðsending- unni, sem Indverjar hafa sent Pek- ingstjórninni. Peking-stjórnin hefur sent Ind- verjum orðsendingu og krafizt þess, að indverskar hersveitir hætti árásum og hörfi frá Che- donghéraði. Peking-stjórnin á- skilur sér rétt til þess að krefjast skaðabóta og grípa til nauðsyn- legra varnarráðstafana. Indverjar verði að bera ábyrgðina af afleið- ingunum. Framh. af 1. síðu Flestum skrifstofum var lokað og starfsfólkið sent heim. í fréttatilkynningu, sem Onga- nia sendi frá höfuðstöðvum sinum í nótt segir, að hernaðaraðgerðuu- um verði haldið áfram unz and- stæðingarnir hafi verið sigraðir. e- - - - SK23E Blaðafulltrúi forsetans skýrði frá því í morgun, að flotinn og JOSE MARIA GUIDO, flugherinn virtu vopnahléssamning þann, er gekk í gildi aðfaranótt fimmtudags. Flugherinn mun hafa gert áraás á sendistöð Belgranosútvarpsins. sem uppreisnarmenn notuðu. Upp- ireisnarmenn halda því hins vegár fram, að flugherinn styðji þá, en að flotinn styðji forsetann. í alia nótt var setið á samninga- fundi að aðsetri forsetans. Til- kynnt var að lokum, að stjórnin og helztu herforingjarnir hefðu sagt af sér. Vonazt hafði verið til, að deilan mundi leysast á föstudags- morgun, þegar forsetinn hafði skipað hermönnunum að hverfa i til búða sinna. Seinna bárust frétt- irnar um, að tveir æðstu herfor- ingjarnir, Lorio og Barnadino La- bayru, hershöfðingi hefðu neitað að fara frá, og 36 stríðsvagnar uppreisnarmanna hefðu brotizt i gegnum vígstöðvar stórskotaliðs, sem er hliðhollt stjórninni. Upp- reisnarmenn misstu þrjá stríðs- vagna. Seinna í dag kom stríðs- vagnadeildin til höfuðstöðva upp- reisnarherliðsins við Campo de Mayo. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Haldnir voru í dag nokkrir fund- ir, þar sem kaupsýslumenn, full- trúar kirkjunnar atvinnulífsins og heraflans í Buenos Aires ræddu hið alvariega ástand. í Campo de Mayo-héraði suður af höfuðborg- inni voru fallhlífarhermenn að grafa skotgrafir í kvöld og koma upp fallbyssuhreiðrum. í Buenos Aires lilaða hermenn hollir stjórn- inni götuvígi á götunum, sem liggja suður á bóginn. Flestum búðum og fyrirtækjum var lokað í dag og starfsfólkið sent heim. Guido virðist ekki hafa stjórn á ástandinu, að því er síðustu fregu- ir herma. u ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. sept. 1962 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.