Alþýðublaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 23.09.1962, Blaðsíða 16
Trésmiðir! farinn á veiðar 43. árg. - Sunnudagur 23. sept. 19G2 - 209- tbl. HRINGFERÐ VITASKIPIÐ Árvakur er nú í feringferð kring um landið og er ▼erið að byrgja vitana upp af nauösynjum fyrir veturinn Ými.s verkefni bíða skipsins, feegar þessu er lokið. Eitt þeirra er að draga síldarlöndunarpramma frá SeyðiS' firði til Reykjavíkur. í sumar hafði verið ráðgert að byggja vita á ýmsum stöðum, m.a. á Sauðanesi við Súgandafjörð, Norðfjarðarhorni, Gjögri og víðar. Af þessu gat ekki orðið, þar eð vitaskipið kom seinna til landsins en búizt hafði verið við. Fyrir skömmu lagði Árvakur upp f hringferð kring um iandið til að' byrgja vitana upp af vistum og öðrum nauðsynjum fyrir veturinn Ýmis verkefni bíða Árvaks, þegar hann kemur úr þessari ferð, að þv i er vitamálastjóri tjáði blaðinu í gær. Meðal annars er ætlunin að Árvakur dragi síldarlöndunar- prammann, sem keyptur var til landsins í sumar, austan af Seyðis firði hingað suður. Pramminn mun verða notaður við vetrarsíldveið- arnar vxð Suðurland, þegar þær hefjast. ÞESSI mynd er af Hákon Daníelssyni fyrir utan fyrir- tæki sitt, Bílaleiguna Fal. Hann mun hafa níu bíla i gangi í vetur en er hann stofn aði Fal fyrir rúmum tveirn árum, byrjaði hann með tvo og hafði lítið að gera fyrir þá. Sjá frétt á forsíðu. KOSNINGAR til Alþýðusambandsþings í Trésmiðafélagi Reykjavíkur halda áfram í dag. Alþýðublaðið vill vekja athygli trésmiða. á þyú ,að góðar horfur eru á því að fella kommúnista í féláginu og.ef lýöræðissinnar leggjast á eittum að vinna kosning ariiar inun það takast. Trésmiðir! Árið 1957 misstu kommúnist Ár.báeði'lðju og .Ti;ésmiðafé|ágáð. Nú treysta kommúnistar sér jekki til þess að bíjóða frém. í Iðju lengur. Látið söguna frá 1957 'midúrtáká; sig og veitið kömmúnistum í Trésmiðafélaginu verð- , .uga ráðningu.Komið til starfa á kosningaskrifstofu B-listans í BergStáðástræti 61. Sífnár kosningaskrifstofunnar eru 20160, 20161 og 20162. Kosið verður kl. 10-12 f. h. og 13 — 22 e. h. . x-B-listinn. Togarinn Sigurður átti í gær að leggja af stað í þriðju veiðiferð sína. í sumar var Sigurður noi aður til flutninga á síld aust an af fjörðum og til Reykja- víkur. Undanfarið Ixefur ver ið unnið að því að hreinsa lest togarans eftir síldarflutn ingana. Skipta þurfti m.a. um einangrun í þili milli vél arrúms og lestar. . Skipstjóri á Sigurði verð- tu- Auðunn Auðunnsson, kunnur aflamaður, sem síð- ast var skipstjóri á Fylki. ... r G ísla reyndist vel í SR46 SÍLDARSJÓÐARINN, sem Gísli Haltdórsson verkfræðingur fann upp, var fluttur til Siglufjarðar í sumar og prófaður í SR 46 nú undir Iok sumarvertíðarinnar. — Sjóðarinn reyndist mjög vel og toéfur Gísli hug á að slíkum sjóð- urum verði komið í sem flestar /Bfldarverksmiðjur sem fyrst. ’Upphaflega átti að reyna sjóð- erann á Akranesi. Það reyndist ofciú unnt vegna rúmleysis, því .teiimingar af húsinu, þar sem koma átti honum fyrir, reyndust ekki í samræmi við veruleikann. Fyrir sérstaka velvild stjórnar og framkvæmdastjóra SR reyndist unnt að prófa sjóðarann í SR 46 á' Siglufirði. | Sjóðaranum, eða „mallaranum" er ætlað að taka við síldinni heitri úr forhitara eða sjóðara, og halda henni í sér í hæfilega Iang- i an tíma, svo efnið verði gegnum soðið. í SR 46 eru fjórir sjóðarar, sem sjóða með óbeinni gufu, hver í gegnum sína forsíu og pressu. — Mestu afköst nýrra slíkra sjóð- ara eru talin 3500 mál á sólar- hring. Pressumar í SR 46 afköst- uðu frá 1500 til 2000 málum á sól- arhring. Með því að skjóta mall- aranum inn í milli suðukers nr. I. á annan bóginn og pressu I. og pressu II. á hinn bóginn. Reynd- ist auðvelt að nota aðeins eitt suðuker fyrir báðar pressurnar ÁRVAKUR í og með þessu móti urðu afköst suðukers og mallara 3.800 mál. — Hitastig í pressukökunum hélzt þó í 82 til 83 gráðum. Reynt var að auka afköstin upp í 4500 mál, en það reyndist kerinu ofviða. Gísli telur þó ekki ólíklegt, að ná mætti 4.200 mála afköstum. Gísli Halldórsson segir, að einu verulegu erfiðleikarnir í notkun mallarans eða sjóðarans hafi legið í því að erfitt reyndist að stilla úthlaupslokuna, þannig, að rennsli héldist jafnt og yfirborð héldist rétt. Þetta er hins vegar auðvelt að lagfæra og er nú verið að smíða snúningsmatara til að bæta úr þessu. í þessari tilraun á Siglufirði, tók mallarinn að sér hlutverk ó- beins suðukers, sem kostar 600-800 þúsund, en mallarinn kostar hins vegar ekki nema um 100 þúsund krónur. Afköst suðukersins, sem Framh. á 15. síðu 480 hvalir hafa veiðzt í sumar í SUMAR hafa veiðzt 480 hval- ir, og er það mjög gott miðað við vertíðina í fyrrasumar, því þá veiddust ekki nema 350 hvalir allt sumarið. Vertíðin í fyrra var tal- in óvenjulega léleg. Frá þessu skýrði Loftur Bjarna- son, er blaðið átti stutt samtal við hann í gær. Loftur sagði, að ver- MALBIKAÐ í KEFLAVÍK í KEFLAVK er nú verið að vinna að því að undivbúa Vatns- nesbraut undir væntanlega malbik un síðar í haust. í ráði er að malbika 600-700 m. langan kafla, og yrði það þá gert síðari hluta októbermánaöar, ef tíðarfar leyfir. Samningar standa nú yfir við íslenzka Aðalverktaka um að þeir sjái um malbikunina. Samningar eru að komast á Ioka- stig. Umferð er allmikil um Vatns, nesveg, einkum til og frá höfninni og fiskvinnsluhúsunum. tíðin í sumar hefði verið einstök að því leyti, að frátafir vegna veðurs hefðu verið sáralitlar, — ekki nema 2-3 dagar. í fyrra var veiðunum hætt 26. september, og gerði Loftur ráð fyrir að hætt yrði um svipað leyti í ár, nema tíðarfar og veiði gæfi tilefni til að halda lengur áfram. í sumar hafa komið á land 480 hvalir, mest langreyður, en einnig búrhveli og sandreyður. | Veiðarnar eru nú stundaðai? með fjórum bátum. Á hverjum bát er fimmtán manna áhöfn. ~ r- Arásum svarað ★ BELGRAD: Júgósl.avnesk blöö hafa svarað fiásum Kínverja á Júgóslavíu og hvetja til bættra samskipta við Rússa. Blöðin kalia árásir Alþýðudagblað'sins í Pekiug ómerkilegar móðganir í garð Júgó slavíu og Titos forseta og segja, að hroki og áróður faafi einkennt skrif blað'sins um Júgóslavíu. Merkar knatt- spyrnufréttir! BREZK eftirlitsskip hafa komið til Reykjavíkur af og til síðustu mánuði tit að taka vatn og vistir. Hafa sjóliðarn ir þá notað tækifærlð og far ið í knattspyrnuleiki, og þá stundum keppt við flokka ur íþróttafélögunum hé '. Nær undantekningarlaust hafa Bretarnir tapað þar til í gær dag, að Duncan-menn gerðu jafntefli við 1. flokk KR á Melavellinum. — Bretunum til mikillar gleði. Leikar fóru 2-2. Aðrar merkar knattspyrnu- fréttir eru þær, að starfs- menn hjá stjórnarráðinu og tollstjóra kepptu í gær, og fór tollurinn með sigur af liólmi 2-1 í marki fyrir stjórn arráðið, var deildarstjóri varnarmáladeildar, Hörður Helgason. IMMMMMMtMMUMtMHtMM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.