Alþýðublaðið - 19.10.1962, Qupperneq 3
MÁNANS
KLST.
KANAVERALHOFÐA, 18. okt-
óber.
í KVÖLD var eldflaugin Ranger
5 á leiff til tunglsins með nálega
39.000 km. hraða á klukkustund.
Ef allt fer eftir áætlun, á geiinfar-
ið, sem vegur 342 kíló. að fara
liina 400.000 km. vegalengd á 70
klukkustund um.
Ranger 5 á að senda sjónvarps-
myndir af yfirborði tungl; ins aft
ur til jarðar auk margvíslegra upp
lýsinga. En allt er undir því kom-
ið hvort Ranger 5 he.dur rétlri
stefnu.
Áður en eldflaugin lendir, á að
skjóta geimhylki hlaðið vísinda-
tækjum frá henni og lendir það
eitt sér á tunglinu. Eiga tækin að
veita ýmsar uppiýsingar um yfir-
borð tunglsins, m. a. um land-
skjálfta, hitastig og geislun. Tack-
in verða notuð til þess að skera
úr um það, úr hvaða efnum mán-
inn raunverulega samanstendur af
og hvers konar efni eru á yfirborði
hans.
Þannig munu menn rannsaka
rækilega yfirborð tunglsins og ef
tílraunin með Ranger 5 lieppnast
;l
De Gaulle hótar
enn að fara frá
París, 18. okt.
(NTB-AFP)
í ÚTVARPS- og sjónvarpsræðu til
frönsku þjóðarinnar í dag cndur-
tók de Gaulle forseti hótun sína
um að segja af sér ef tillaga hans
um, að forsetar Frakka skuli
kosnir almennri kosningu í fram-
tíðinni, yrði ekki samþykkt í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni 28. októ-
ber n. k.
verður hér um mikinn sigur banda
rískra vísinda að ræða. Margra ára
starf liggur hér að baki.
Tveim stundum eftir geimskotið
ríkti mikill fögnuður í eftirlits-
stöðvunum í Bandaríkjunum. Full
trúar geimrannsóknarstofnunar-
innar skýrði svo frá, að allt hefði
gengið samkvæmt áætlun
Einnig var greint frá þvi. að
heyrzt hefðu greinileg merki í
mörgum stöðvum í Afríku. Ástra-
líu og á Atlantshafi. Ekki gátu
menn þó staðfest fréttir um, að
Ranger 5 rtéldi réttri stefnu. Fyrst
verður að rannsaka nýjar upplýs-
ingar frá geimskipinu.
Fyrstu . myndirnar af ytirborði
tunglsins, eru væntan’egar kl.
14:00 og 14:30 eftir ísl. tíma á
sunnudaginn. Geimskipið mun
sennilega lenda á mánanum kl.
15:00 eftir ísl. tíma á sunnudag.
INDVERJAR LÁTA
EKKI UNDAN SÍGA
★ WASHINGTON: Bandaríkja-
menn gerðu á fimmtudag tilraun
með kjarnorkusprengju nálægt
Johnstoni eyju á Kyrrahafi. —
Sprengjan var ein megalest og sú
30. síðan tilraunirnar hófust að
nýju.
★ RÓM: ítalir hafa lagt til að ut-
anríkisráðherrar ríkjanna sex í
cfnaliagsbandalaginu komi fljót-
lega sarnan til fundar.
Hann kvaðst einnig mundu segja
af sér ef tillagan yrði ekki sam-[
þykkt með nógu miklum meiri-
hluta atkvæða og aldrei taka við
forsetaembættinu á ný. I
Hann vísaði þeim fullyrðingum
stjórnarandstæðinga á bug, að
tillaga hans bryti í bága við stjóm
arskrána. Hann kvaðst styðjast við
stjórnarskrána og heimild þá, sem
hann hefði til þess að leggja hvers
konar tillögu um stjórnarskipuiag
fyrir þjóðina.
Ef svar ykkar við tillögunni
verður neikvætt, eins og gömlu
flokkarnir vilja til þess að koma
aftur hinu ólánlega stjórnarskipu-
lagi sínu á, eða ef meirihluti já-
atkvæða er lítill og ótryggur, er
það sjálffundið, að hlutverki
mínu yrði þá lokið fyrir fullt og
allt því að hvað gæti ég síðar gert
án hlýlegs trausts þjóðarinnar?
sagði forsetinn.
Ég er viss um, að þið munið enn
einu sinni svara mér játandi og
það með miklum meirihluta, og þá
mun ég hafa fengið staðfestingu
allra á hlutverki mínu. Þá yrði
Frakklandi tryggð mikil framlið,
sagði hann.
Nýju Dehli, 18. okt.
(NTB—Reuter)
NEHRU forsætisráðherra Ind-
lands sagði í kvöld, að Indverjar
mundu ekki láta undan árás Kín-
verja á landamærunum heldur
þvert á móti verja land sitt hvað
sem það kostaði og hverjar svo sem
afleiðingarnar yrðu. Ef Indverjar
hrekja ekki árásarmennina burtu
getur það orðið tii þess að þjóðin
steypist niður í óþekkt hyldýpi,
sagði hann.
Nehru, sem talaði í veizlu, er
haldin var til heiðurs Dej, forseta
Rúmeníu, lagði á það áherzlu, að
þessi afstaða merkti ekki, að Ind-
verjar mundu hætta við stefnu þá
sem leitast við að finna friðsam-
lega lausn á alþjóðlegum deilu-
málum.
Yið erum andvígir hernaðar-
bandalögum, sagði Nehru og vilj-
um, að allar þjóðir þróist í vel-
sæld hlið við hlið í lieimi án
vopna og vígbúnaðar.
Formælandi indverska utanrik-
i isráðuneytisins skýrði frá því í
dag, að kínverskar hersveitir hefðu
gert árás á tvær varðstöðvar Ind-
verja í Dhola-héraði í norðauslur
landamærahéruðum Indlands.
Indverskar hersveitir svöruðu
skothríðinni og ekkert mannfall
varð í liði þeirra. Formælandinn
kvaðst ekki vita, hvort mannfall
hefði orðið í liði Kínverja.
Hann vísaði þeim orðsendingum
Kínverja á bug, að indverskar
flugvélar hefðu flogið í kínverskri
lofthelgi. Hann sagði, að indversku
flugvélarnar hefðu aðeins flogið
yfir landssvæði, sem Kínverjar
hafa eignað sér á ólöglegan hátt.
í Washington skýrði formælandi
landvarnaráðuneytisins svo frá í
dag, að Indverjar hefðu gefið í
skyn, að þeir hefðu áhuga á að
kaupa bandarískár flutningavélar,
en Indverjar hefðu ekki beðið
formlega um þær. Indverjar hafa
heldur ekki beðið formlega um
annan herbúnað, sagði formæl-
andinn.
KRÚSTJOV
BÚIZT VIÐ KRÚSTJOV
í HEIMSÓKN VESTRA
(NTB-Reuter).
ÞÓTT á það væri lögð álierzla af
opinberri hálfu í Bandaríkjunum
í dag, að ekkert lægi fyrir um'
fyrirliugaða heimsókn Krústjovs
forsætísráðherra til Bandaríkj-
anna, hafa áreiðanlegar heimiidir |
og blöð í Bandaríkjunum enn
mikla trú á því, að Krústjov koiui
í heimsókn til SÞ og þar sé ekkert
því til fyrirstöðu, að þeir Kennedy
og Krústjov haldi fund með sér. I
Haft er eftir áreiðanlegum heim
ildum, að Krústjov hafi tjáð Koh-
ler, sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu, að Rússar vilji halda á-
fram viðræðunum uin Berlínar-
málið. Jafnframt er gefið í skyn,
að forsætisráðherrann sé fús t.il 'að
breyta kröfum sínum í Berlínar-
málinu. Nokkrir túlka þetta þann-
ig, að hann hafi gert sér Ijóst, áð
vesturveldin séu staðráðin í að
ieggjast gegn hugsanleguin brot-
um á réttindum sínum í Berlín
með valdi.
Fulltrúar handarísku stjórnar-
innar hafa hvað eftir annað lagt á
það áherzlu að undanförnu, að bú-
izt sé við nýju hættuástandi í Ber-
lín eftir þingkosningamar í Banda
ríkjunum.
Talið er, að MacmiIIan forsætis-
ráðherra Breta haldi til Bandaríkj
anna ef Krústjov fer þangað til
þess að sitja Allsherjarþing SÞ.
ENN FJALLAÐ UM
SIGLINGAHÖMLUR
Washington, 18. okt.
(NTB—Reuter)
SALINGER, blaðafulltrúi Kenne-
dys forseta sagði í dag, að stjórn-
in f jallaði enn um hömlur þær er
hún hyggst setja á siglingar skipa.
er flytja vöru frá kommúnista-
ríkjum til Kúbu, og sennilega
yrði ekki gripið til þeirra í þess-
ari viku.
Ummæli Salingers koma á ó-
vænt þar eð ságt var þegar fyrst
var skýrt frá fyrirhuguðum höml-
um 4. október sl., að gripið yrði
til þeirra eftir 10—14 daga. Helzti
lögfræðiráðunautur utanríkisráðu-
neytisins, Abraham Chayes ræðír í
París við bandamenn USA í NATO
um lögfræðileg vandamál í sam-
bandi við fyrirhugaðar hömlur.
Þrenn verðlaun
í læknisfræði
STOKKHÓLMI, 18. október,
(NTB).
TVEIR brezkir vísindamtnu og
einn bandarískur fengu í dag lækn
isverðlaun Nóbels fyrir rannsóknir
á gerð kjarnasýru sameindanna.
Rannsóknir þeirra hafa leitt í
ljós gerð kjarnasýru þessarar og er
uppgötvun þessi mikilvæg fyrir
læknisfræðivísindi og lífefflisfræði,
einkum með tilliti til crfða. ,
Vísindamennirnir eru Banda-
ríkjamaðurinn James Dewey Wát-
son, Bretinn Maurice Hugh Fred-
erick Wilkins, sem ér 45 ára að
aldri og Bretinn Francis Haily
Vompton, sem er 46 ára að aldri,
Bretarnir hafa báðir numið við há-
skólann í Cambridge.
Vísindamenn um allan heim,
vinna að framhaldsrannsóknum, er
þeir byggja á starfi þessara'
manna. Er hér um að ræða rann-
sóknir á formi og starfi aRs lífs-
efnis, hvers vegna ein tegund er
öðru vísi en önnur og hvernig
standi á mismun einstaklinganna
innan tegundanna.
vwwvwvwwwvwwwm
Happdrætti
verkalýðs-
málanefndar
HAPPDRÆTTIÐ cr í full-
um gangi, en það þarf að
herða söluna, markmiðið er
að allir miðarnir scljist upp.
Allir sem hafa undir hönd-
um miða frá happdrættinu
eru góðfúslega beðnir að
gera skU svo fljótt, sem þeim
er unnt.
Þá eru þeir, sem ekki hafa
fengið miða, beðnir alveg •
sérstaklega að koma á skrif-
stofn Alþýðuflokksins og
taka miða ’ eða hringja í
sima 16724 — 15020 og við -
sendum miða samstundis.
Við minnum á hina glæsi-
.legu vinninga: Húsgögn kr.
10.000,00 Eldhúsáhötd hr.
5.000,00. ísskápui- kr. 8.425,00 í
Rafmagnseldavél kr. 4.750,00.
Hrærivél kr. 2.757,00.
Miðinn kostar AÐEINS kr. i;
10,00. Dregið 20. desembcr
1962.
Verkalýðsmálanefnd Al- ]«
þýðuflokksins.
VVWMVVWWWWWWWVWVVW
ALÞÝDUBLAÐIO - 19. október 1962 $
';ík: : -• •. í • • •o'.-ú [