Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 2
filtstjói'ari Glsll J. Astþórs-son (áb) og Benedikt Gröndal,—Aðstoðarrltstjön Björgvin Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. A uglýsingasimi: 14 906 — ASsetur: AlþýOulnislO. - Prentsmiðja AiþýOublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald Jtr. C5.00 6 mánuði. 1 lauaasöiu kr. 4.00 eint. (Jtgefandi: Aiþýðuflokkurina — Fram- kvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson Lán frá Lundúnum RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp um heimild til að taka 220 milljón króna lán á frjálsum peningamarkaði í Lundúnum, og . er ætlunin að (verja fé þessu til margvíslegra fram kvæmda á grundvelli þeirrar framkvæmdaáætlun ar, sem verið er að ganga frá þessar vikur. Má vænta þess, að nýjar hafnir, nýr fiskiðnaður og raf orkuframkivæmdir fái bróðurpartinn af þessu fé, ]þótt fleira komi til greina. Þessi lántaka er að ýmsu leyti merkileg. í íyrsta lagi er nú ekki leitað til erlendrar ríkisstjórn ar, eins og við höfum gert undanfarin ár. I þess stað hefur viðreisnin styrkt fjárhagskerfi þjóðar- ínnar svo mjög, að við getum gengið inn á lána- markaðinn í City í Lundúnum og fengið stórfyrir- íæki til að bjóða út íslenzkt lán. Þessi staðreynd sýnir, hvernig viðreisnin hefur gert íslendinga sjálfstæðari en þeir voru í skuldafeni og sukki fyrri ! sríkisstjórna. Stj órnarandstaðan hefur þegar tekið þessu ' máli illa. þótt fulltrúar hennar 1 efri deild hafi ekki getað borið fram neinar veigamiklar mótbárur. 1 Helzt finna þeir að því, að ríkisstjómin sé að taka ! íil sín vald, sem heyri til Alþingi’, er hún áskilur sér rétt til að úthluta lánsfénu. Vinstri stjómin ' skapaði í þessu efni fordæmi, er hún úthlutaði tug- iim milljóna af tekjuafgangi ríkisins sjálfs, og hef- ' 1ur þingið sýnilega meiri íhlutunarrétt um það fé en 1 Sánsfé. Færa má veigamikil rök fyrir því, að rík- ' i'sstjórnir eigi að taka slíkar ákvarðanir, enda stend • ur þingmeirihluti á bak ivið hverja stjórn. Hins veg ar mun þingið fjalla um framkvæmdaáætlunina 1 og þar geta haft þau áhrif, sem það óskar á notk- 1 rni þessa lánsfjár. Efnahagskerfi þjóðarinnar er nú mjög hátt spennt, mikill skortur á vinnuafli og lánsfé eftir- ' sótt sem fyrr. Þess vegna verður að fara með gætni, þegar bætt er við stórlánum. En þetta verður að gera, þvi lánin munu koma upp stórframkvæmdum eins og höfnum, fiskiðnaði og raforku, og verður að láta sííkt ganga fyrir öllu öðru. Með tilliti þessa verður það helzt sett út á Iánið, að það sé alltof Sítið, en vonandi skila innlendar lánastofnanir stór- um iánum tíl viðbótar. Takist þessi lántaka vejl ætti einnig að vera unnt að bjóða út fleiri slíkar i sneð skömmu millibili á næstu árum fyrir seinni áfanga fimm ára áætlunarinnar og næstu áætlun á eftir. 'Augiýsingasíminn er 149 06 OTARYSTYRK VEITTUR VERKFRÆÐBNG Einar Bjarnason, ríkisondursko'ð andi, sem er umdæmissljóri Rot- ary International hér á landi á starfsárinu 1962-1963, hefur tjáð blaðinu að í þessari viku, sé starf semi Rotaryfélagsskaparins hélguð námssjóðnum Rotary Foundation, sem stofnaður hafi verið til efling ar vináttu og kynningar þjóða á milli árið 1947. í byrjun vikunnar, 12. þ.m., var tilkynnt liverjir hefðu hlotið hinn reglulega námsstyrk fyrir árið 1963-1964 og var meðal þeirra ís- lenzkUr námsmaður, sem Maut styrkinn eftir tilmælum Rotary- klúbbs Reykjavíkur. Jón Birgir Jónsson, Reykjavík, hefur fengið námsstyrk úr Rotary Foundation sjóði, cftir því sem að alritari Rotary International, Ge- orge R. Means, hefur tilkynnt. Jón fer til framhaldsnáms í byggingarverkfræði í Californíuhá- skóla í Berkeley í Californíu. Til þessa hafa 1590 styrkþegar úr Rotary Foundation numið í 54 Iöndum og hefur meðalársstyrkur til hvers þeirra numið $2600.00 og samanlagt hafa styrkirnir numið yfir 4 milljónum dollara. Á þessu ári munu 134 námsmenn írá 27 þjóðum sækja nám í vegum sjóðsins í 36 löndum Jón B. Jónsson er fæddur 23. apríl 1936, sonur hjónanna Jóns Benjamínssonar, Freyjugötu 34, Reykjavík og Kristinar Jónsdóttur. Hann tók fyrri hluta próf í verk- fræði frá Háskóla íslands 1959 og lauk síðan námi í Danmarks tekn- iske höjskole í Kaupmannahöfn. Hann hefur áður hlotið námsstyrk úr minningarsjóði Jóns Þorláksson ar, auk ríkisstyrks. Hann hefur undanfarið unnið hjá Vegagerð ríkisins og hann er félagi í danska verkfræðingaféjaginu og Verkfræð ingafélagi íslands. Rotaryklúbbur Reykjavíkur mælti með styrkveitingunni til Jóns. Af slíkum styrkjum veitir Rotary Foundation sjóðurinn reglu lega styrki og aukastyrki og hlaut Jón liinn reglulega styrk 1963-1964 Frá og með skólaárinu 1964-1965 yerða reglulegir styrkir einvörð- ungu veittir ógiftu fólki á aldrin- um 20-28 ára að báðum árum með töldum, en aukastyrkir eru ekki bundnir aldursskilyrðum. Hinir reglulegu styrkþegar þurfa að vera vel að sér í tungu þess lands, sem þeir ætla að nema í, en skóla geta þeir valið sér í hverju hinna 128 landa, sem Rotaryklúbb ar eru í. Aukastyrkirnir eru ekki bnndnir I sömu kröfum til málakunnáttu, en | þeir eru bundnir við ákveðin lönd Umsókir um styrki úr Rotary Foun dation þurfa að fara um liendur einhvers Rotaryklúbbs. Rotaryklúbbar og einstakir Rot aryfélagar hafa lagt fram féð í Rotary Foundation með frjálsum samskotum. Námsmenn á vegum Rotary Found ation hafa sótt nám í 53 löndum en með liinni nýju styrkveitingu, fyrir árið 1963-1964 bætast 5 lönd við, sem ekki hefur verið sótt nám í fyrr, Ethiopia, Sudan, Marocco, Talkennsla fyrir börn INGIBJÖRG Stephensen hefur talkennslu í vetur fyrir böm inn- an 7 ára aldurs og þau skólabörn, sem skólaskyld eru utan Reykja- víkur. Undanfarin tvö ár hefur IngI-< björg annazt þessa kennslu víða vegar um landið, kenndi t. d. s. I, septembermánuð á vegum bama- skólanna á Akureyri. Hingað til liefur þessi starfsemi miðast við börn á fræðsluskyldualdri, en nú er börnum innan 7 ára aldurs £ fyrsta skipti gefinn kostur á aS verða þessarar sérkennslu aðnjót- andi. í vetur verður kennt í Laugar- 'nesskólanum. Viðtalstími Ingibjargar er þriðju daga og föstudaga kl. 17 — 19 í síma 1 42 38. / Siglufirði 12. nóv. j Leiðrétting ~I FRÉTT um bókina „100 ár í 1 þjóðminjasafni”, sem birtist í blaðinu fyrir skömmu, var það mis sagt, að Prentmyndir h.f. hefðu gert myndamót að myndunum í bókinni. Það var fyrirtækið Prent mót h.f., sem gerði myndamótin. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. Helgafell Framhald af 3. síðu. undanfarið starfað sem auglýsinga teiknari í Hamborg. Ragnar Jónsson kvað Helgafell hafa fleiri listaverkabækur í und- irbúningi og á næsta ári ætti að gefa út bækur um Kjarval, Sigur- jón Ölafsson og Gunnlaug Schev- ing. Meðfylgjandi mynd er af einnl af myndum Asgríms, en er ac! sjálfsögðu aðeins svipur hjá sjón þar sem litaauðgina vantar og er hún héðan úr Vesturbænum. A.S.Í. Framh. af 16 síðu breytingar og einnig yrðu rædd skipulagsmál ASI. Um Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, sagði Hannibal, að mál þeirra yrði afgreitt á venju legan hátt, þ. e. að umræður færu fram og síðan gengið til atkvæða BÖKAÚTGÁFAN Heims- kringla hefur gefið út bók, er nefnist Sovétríkin. Höfundur bókarinnar er Nikolaj N. Mik- haílov, en þýðinguna hefur Gísli Ólafsson gert. Bókin skiptist í nokkra aðal kafla, sem nefnast: Náttúrufar, Atvinnuvegir, Lýðveldi Sovét- ríkjanna, þar sem hvert lýð- veldanna er tekið fyrir sig. Þjóðskipulag og lifnaðarhættir og stærstu borgir Sovétríkj- anna. I bókinni eru margar mvndir bæði af mannvirkjum og lands lagsmyndum, m. a. frá hinum fjarlægari hlutum Sovétríkj- anna. Arni Böðvarsson ritar for- mála. Bókin er 180 blaðsíður að stærð, prentuð í Prent- smiðjunni Ilólum. FlFLDJARFIR flugræningj- ar er fyrsla bókin í bókaflokki um Hauk flugkappa - lögreglu loftsins. - Höfundur bókanna eru hinn þekkti rithöfundur Eric Leyland og T. E. Scott Chard, sem er yfirflugstjóri BOAC. Þekking og reynsla T. E. Scott Chard á-flugi, og hin spennandi frásögn um flug, á sinn drjúga þátt í þeim miklu vinsældum, sem þessar bækur hafa lilotið víða um heim með- al unglinga. Gísli Ölafson þýddl bókina. Hún er prentuð í Prentverki Akraness h.f. Utgefandi er Hörpuútgáfan. Asgrimur... Framh. af 3. síðu of oft eru skrýdd sálarsljóvgandi myndarusli.“ Ætlunin er að þeir sem fá myndirnar að gjöf, nefnilega börn- in og unglingarnir komi eftir Z rnánuði, ef þeir kæra sig um og fái þá aðra mynd í skiptum fyrir þá, sem þeim var gefin. „Þetta er hugsað sem leið til að fá ungl- ingana til að festa sér myndimar í minni, Iíkt og menn læra lö* eða kvæði, hafa raunverulega til- einkað sér list þeirra og fengið ást á þeim,“ sagði Ragnar. Áður en lýkur ættu ungling- arnir þá að hafa kynnst allmörg- um vcrkum hins ágæta málara. Hér er um mjög merka nýjung að ræða og vonandi er, að æsku- fólk kunni að meta þetta og not- færi sér það. Myndirnar kosta kr, 350 og 475 og fást í Unuhúsi. Aðalfundur Framhald af 3. siðu. ópólitísku menningarefni, atkvæða tölurnar, sem listar félagsins fengu í þeim kosningum urðu jafnaðar mönnum í röðum stúdenta mikil hvatning um að vinna vel í vctur, og mun hin nýkjörna stjórn gera sitt bezta til að starf félagsins megl verða sem fjölþættast og blómleg ast í vetur. , ^ 2 18. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.