Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 16
AFLAKONGUR
í SVÍÞJÓÐ
tl
EGGERT GÍSLASON skipstjóri
' á aflaskipinu Víði II. úr Garði,
fór til Svíþjóðar á föstudagsmorg
nn. Eggert mun dvelja úti um
tima til þess að fylgjast með
siiiíði nýs báts, sem Guðmundur
á Rafnkelsstöðum, eigandi Víðis,
er að láta smíða í Svíþjóð.
Báturinn mun fara niður úr slipp
innan skamms, og verður senni
lega tilbúinn til afhendingar
snemma á næsta ári.
Ueilan leyst
á Hellisandi
Hellissandi í gær.
TEKIZT hafa samningar í
sfldveiðideilunni hér og var sam-
><£ um hið sama liér og á Akra-
ipesi. Tveir bátar, Arnkell og
Skarðsvík fóru á síld héðan í
gær.
Einn stór bátur rær héðan, afli
T»efur verið heldur tregur en er
‘ BÚ að glæðast.
Nokkrar trillur eru einnig á veið
um.
Talsverð vinna er í landi. Verið
er að leggja jarðsíma um þorpið
«g út að Rifi.
43. árg. — Sunnudagur 18. nóvember 1962 - 255. tbl.
4500 MÁL TIL
AKRANESS í GÆR
HALLVEIG MEÐ
FÆRANLEGA BLÖKK
!»V. HALLVEIG FRÓÐADÓTT-
"iR kom inn til Reykjavíkur að-
faranótt laugardagsins, en undan-
fárna daga hefur skipið verið á
síldveiðum undan Jökli. Blaðamað-
«r og ljósmyndaði Alþýðublaðs-
íns brugðu sér urn borð í Hall-
reigu í gærmorgun og hittu þar
oð máli Guðbjörn Þorsteinsson,
skipstjóra. í sumar var Guðbjörn
•neð Leif Eiríksson, sem Bæjar-
útgerð Reykjavíkur á, en Leifur
Wrð eitt af aflahæstu skipunum
S sfldarvertiðinni í suniar.
Gúðbjörn sagði, að þær breyt-
Sngar, sem gerðar hefðu verið á
Baflceigu væru án efa til mikilla
bóta. Kraftblökkin er nú á renni-
óraut, og verður það, til þess að
laótin fer mikið aftar út, og er því
winni hætta á að hún lendi í
Bkrúfu eða stýri. Eitt skip islenzkt
ftrrir utan Hallvegu Fróðadóttur,
er búið slíkri færanlegri kraft-
tolökk,
Guðbjörn sagði, að þeir hefðu
kastað nokkrum sinnum, og það
•tefði allt saman gengið vel, mikið
betur en í sumar, og væri það án
efa þessum breytingum að þakka.
Aflinn í þessum köstum hefði
ekki orðið mikill, því síldin hefði
staðið svo djúpt, að næstum ó-
gerningur hefði verið að ná henni.
Það er án efa hægt að veiða mik-
ið af síld, með þessuin útbúnaðl,
sagði Guðbjörn, en til þess verður
veður að vera gott, og síldin verð-
ur að vera fyrir hendi og má ekki
standa of djúpt.
— Við komum í land, vegna
þess að nótin rifnaði lítillega, og
eins átti eftir að gera ýmsar smá-
lagfæringar á útbúnaði sklpsins,
sagði Guðbjörn blaðamanninum.
Guðbjörn bjóst við að þeir héldu
úr höfn aftur strax í gærkveldi
eða í nótt, þegar lagfæringunum
væri Iokið. Við hér um borð erum
allir mjög bjartsýnir á að þetta
sé hægt, og munum gera okkar
bezta til að svo verði, sagði Guð-
björn að lokum.
Myndin er af Guðbirni Þor-
steinssyni skipstjóra á bv. Hall-
veigu Fróðadóttur. Fyrir ofan hann
hangir kraftblökkin, sem er færau
leg, er hún þarna á enda renni-
brautarinnar. — Ljósm. Rúnar.
ÞING ASl VERÐUR
SEn Á MORGUN
★ BRUSSEL: Formaður
ráðherranefndar EBE segir,
a'ó sanjningar um aðild Breta
.' múni seunilega takast fyrir 1.
janúar 1964.
ÞING Alþýðusambands íslands,
hið 28. í röðinni, hefst á morgun
klukkan 4 í KR-húsinu við Kapla-
skjólsveg. Á þinginu verða fyrst
og fremst rædd kjaramál verka-
Iýðsins, atvinnumál, lagabreyt-
ingár og skipulagsmál samtak-
anna.
Alþýðublaðið ræddi í gær, við
Hannibal Valdimarsson, forsetá
A S í , og spurði hann frétta af
væntanlegu þingi. Hann kvaðst
ekki geta sagt, hvað þingfulltrúar
yrðu margir, en taldi að kjörbréf
yrðu 320-330.
Hann sagðist hafa skipað kjör-
nefnd, eins og lög mæla fyrir um,
og átti hún að taka til starfa í
gær. í henni eru Snorri Jónsson
Sigurður Stefánsson og Öskar
Hallgrímsson. Hann sagði, að aðal
verkefni þingsins yrði að ræða um
kjaramál svo og atvinnumál, laga
Framh. á 2. síðu
SÆMILEG síldveiði var í nótt
45-50 mílur nndan Jökli og eins
var nokkur veiði út af Reykja-
nesi. Búizt var við nm 4500 mál-
um síldar til Akraness í gær, var
þar bæði um að ræða síld í sölt-
un, frystingu og í bræðslu.
Batnar
samhúðin ?
* GLASGOW: Home lá-
varður, utanríkisráðherra
Breta, sagði í ræðu á föstu-
dag, að hann væri sannfærð-
ur um, að sambúð vesturs og
austurs mundi batna úr þessu.
Kúbudeilan muni hafa orðið
til þess, að leiðtogar Rússa
sjái nauðsyn þess, að friðsam
legri Iausn verði náð í alþjóða
deilum.
MHHMHMMVHHHWWUHV
Hæstu bátarnir sem í gær lönd
I uðu á Akranesi í gær voru þessir:
’ Haraldur 900 mál, Höfrungur 900,
, Keilir 700, Höfrungur II. 55, og
j Keilir 500 mál. Höfrungur, Keilir
|og Skipaskagi fengu síldina út a£
jReykjanesi, er hún mjög blönd-
luð, mikið er af smásíld í henni,
j og fer hún öll í bræðslu. Þar stóð
síldin töluvert grynnra en á svæð
j inu út af Jökli. Nokkur brögð voru
að því að hún ánetjaðist í nótun-
um, og munu skipverjar á sum-
um bátanna, sem þarna voru, —
hafa lent í nokkrum erfiðleikum
þess vegna.
Síldin, sem veiddist undan
Jökli var hins vegar öll stór og
góð, og vel fallin til söltunar eða
frystingar. A þeim slóðum stóð
síldin hins vegar mjög djúpt, þeir
bátar, sem þama fengu síld munu
hafa fengið hana fljótlega eftir að
dimmt var orðið á föstudagskvöld
áður en tunglið kom upp.
2 spennistöðvar
í Kringlumýri
BORGARSTJORI svaraði á borg
arstjórnarfundi sl. fimmtudag fyr
irspurn frá Óskari Hallgrímssyui
varðandi byggingu spennistöðva í
Kringlumýrarhverfi.. Sagði borg-
arstjóri, að um næstu mánaðarmót
yrðu í notkun tvær spennistöðvar
í umræddu hverfi.
- Borgarstjóri sagði, að undanfar-
ið hefðu verið talsverðir erfiðleik-
ar í hverfinu vegna þess, að verk
takar þeir, er tekið hefðu að sér
hyggingu spennistöðvanna hefðu
ekki staðið við gerða samninga og
hefði Rafmagnsveita Reykjavíkur
að lokum orðið að taka verkið að
sér. Umræddar spennistöðvar eru
að Álftamýri 8 og Háaleitisbraut
36. Borgarstjóri sagði, að 101 — 15.
desember yrði þriðja spennistöðin
byggð í hverfinu en hún verður að
Álftamýri 36.
En ráðgert er að í framtíðinni
verði 7 spennistöðvar í svokölluðu
Kringlumýrahverfi, þ. e., hverfi
því sem er í byggingu norðaustan
af gatnamótum Miklubraútar og
Kringlumýrar við Álftamýri, Safa
mýri, Starmýri og Háaleitisbraut.
Óskar Hallgrímsson borgarfúll-
trúi Alþðuflokksins þakkaði borg
arstjóra greið og góð svör.
DANSK-ÍSLENZKA félagið
heldur kvöldskemmtun sunnudag-
inn 18. nóv. (í KVÖLD) kl. 9 e.
h. í Glaumbæ. Byrjar félagið
vetrardagskrá sína með þessarl
skemmtun, en í maí í vor hélt' fé-
lagið síðast samkomu, þar sem
efnahagsmálaráðherra Dana, dr.
Kjeld Philip, talaði. >
FUJ-félagar
F.U.J. félagar! Munið mál-
fund Félags ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík n.k. mánu
dagskvöld í Burst, Stórholti 1
kl. 20.30
MMUMMMMMMMMMMMMH