Alþýðublaðið - 20.12.1962, Page 7
MERKIR ISLENDINGAR
MERKIH ÍSLEXDINGAR. NÝRsonar Jórsalafara eftir séra Jan-
FLOKKUR I. Jón Guðnason bjó i us Jónsson. Jóni Aðils lætur naum-
til prentunar. Bókfellsútgáfan last að fjalla um Pétur Havstein
Prentsmiðjan Oddi. Reykjavík 1 amtmann, og ég varð fyrir von-
1962.
RITSAFNIÐ „Merkir íslend-
ingar“ kom út í sex bindum árin
1947-1957 undir umsjá dr. Þor-
kels sáluga Jóhannessonar.
Flutti það um eitt hundrað ævi
sögur merkra manna, en þær
liöfðu flestar birzt áður á prenti,
einkum í Andvara. Nokkrar voru
þó teknar eftir gömlum handritum
og höfðu ekki áður komið fyrir
almenningssjónir. Nú hefur nýr
flokkur þessa ritsafns göngu sína,
og býr séra Jón Guðnason fyrrver-
andi skjalavörður hann til prent-
unar.
Ég hef einhvern tima sagt, að
svona bækur yrðu til með skærum,
en samt hafa endurprentanir úr
gömlum og fágætum blöðum og
tímaritum ærið gildi, þegar vel og
skipulega er valið. Fáir aðrir en
fræðimenn myndu leita uppi sum
ar þessar ævisögur, en þær eiga
sannarlega erindi við íslenzka
lesendur eins og ráða má af vin-
sældum þeim, sem „Merkir íslend
ingar“ hafa notið. Hins vegar
ættu forráðamenn útgáfunnar að
lhuga, hvort ekki muni unnt að
fá frumsamdar ævisögur f tilefni
þessarar útgáfu — tvær eða þrjár
í bindi. Andvari og Skírnir hafa
ekki haft undan að minnast
merkra manna látinna síðustu ára
tugina, svo að af nógu er að taka.
Hér er því fyrir hendi það verk-
efni að fylla skarð, sem ella stend-
ur opið.
Nýja bindið af „Merkum ís-
lendingum" flytur tólf ævisögur,
en þar af eru tíu endurprentanir.
Allar eru þær mjög fróðlegar og
eiga meira en skilið að komast á
bók. Aftur á móti munu skoðanir
verða skiptar um ritsnilli og mann
lýsingar höfundanna. Mér þykja
beztar ævisögur Þorle'fs Guð-
mundssonar Repp eftir Pál Eggert
Ólason, Péturs Jónssonar á Gaut-
löndum eftir Sigfús Bjarnarson,
Jóns Borgfirðings eftir Jón Aðils
og Magnúsar Guðmundssonar ráðh.
eftir Jón Sigurðsson á Reynistað.
Einnig er góður fengur að æv-isög-
um Jóns Áx-nasonar biskups eftir
Grím Thomsen og Guðmundar
Magnússonar prófessors eftir Sæ
mund Bjarnhéðinsson, svo og
báðum ævisögunum eftir Sighvat
Gr. Borgfirðing, þar eð þær birt
ast hér fyrsta sinni á prenti 05
lýsa dável þeim svipmiklu mönn
um, séra Snorra Björnssyni á
Húsafelli og Hannesi Stephensen
prófasti á Ytra-Hólmi. Hins veg-
ar kann ég ekki að meta svokall-
aðar ævisögur Skafta Þórodds-
sonar lögmanns og Björns Einars
brigðum af grein Þórólfs Sigurðs-
sonar um Þorgils gjallanda. Hún
er sýnu líkari minningarorðum í
dagblaði en vandaðri tímarits-
grein. Hér kemur auðvitað til sög
unnar sú staðreynd, að annar hef-
ur gert ævi og starfi Þorgils
gjallanda ólíkt meiri og betri skil,
en þar á ég við frábæran hlut
Arriórs Sigurjónssonar.
Kannski er hér mestur við-
burður að ævisögu Péturs á
Gautlöndum eftir Sigfús Bjarnar-
son. Höfundur hennar kann tii
verks í líkingu við Guðmunc. á
Sandi og Indriða á Fjalli. Manni
finnst gamla þingeyska alþýðu-
menningin rísa hátt við slíka
grein. Sigfús viðar að sér efn-
inu að hætti þjálfaðra fræði-
manna og vinnur úr þvi eins og
þrautriayndur rithöfundur.
Bókin er gúllfalleg af hálfu
prentsmiðju, bókbands og útgeí-
anda, en hér reynist ekki aðeins
völ á vönduðum ytri búningi. Efni
bókarinnar gerir hana dýra.
Ilelgi Sæmundsson.
Tækifærisgjafir
Og
jólagjafir
hinna vandlátu er original mál-
verk. — Höfum myndir og
málverk eftir marga listamenn
Málverkasalan
Týsgötu 1.
Sími 17602. Opið frá kl. 1.
RAFMAGNSVERÐIÐ
Framh. úr opnu
HEIMILISRAFMAGN DÝR-
ARA í REYKJAVÍK
Hér að framan hafa verið færð
rök að því, að rafmagn til heimilis-
nota þurfi ekki að hækka. Þessu til
viðbótar má svo geta þess, að Raf-
magnsveita R.víkur selur heimilis
rafmagn hærra verði en ýmsar
aðrar rafveitur. svo sem fram kein
ur í eftirfarandi yfirliti: Er mið-
að við verð á rafmagni eins og það
var eftir síðustu hœkkun í R.vík
þ.e. 1. ágúst 1961.
pr. kwst.
Reykjavík 0.79
Hafnarfjörður 0,701)
Keflavík 0.75
Akranes 0.65
Akureyri 0.50
i) Hafnarfjörður hækkaði í sama
og Rvík 1/10. 1961.
Á þessu ári hafa Akranes og
Akureyri hækkað verðið, sá fyrri
í kr. 0,73 frá 1. jan. ’62, en hin síð-
ari í kr. 0.65 frá 21. febr. ’62.
Þrátt fyrir þessar hækkanir er
verð á rafmagni til heimilisnota
dýrara i Reykjavík án hækkunar
nú, hvað þá ef tillögur R. R. yrðu
samþykktar.
Sama verður uppi á teningn-
um ef gerður er samanburður við
borgir á Norðurlöndum, en rúms-
ins vegna skal því skeppt hér.
ÁBTJRÐAR-
VERKSMIDJAN
Ekki verður svo skilist við raf-
magnsverðið í Reykjavík, að ekki
sé minnst nokkuð á orkusölu til
Áburðarverksmiðjunnar hf. í Gufu
nesi.
Þetta ágæta fyrirtæki hefur frá
upphafi vega sinna keypt raforku
í heildsölu af Sogsvirkjuninni,
sem eins og kunnugt er, er sam-
eign Reykjavíkurborgar og ríkis-
. JOHNSON &KAABER
B/r:
Palínolive rak-krem
og raksápa
SÆTÚNI 8
ins. Við stofnun verksmiðjunnar
var gerður samningur milli herrn-
ar annarsvegar og Sog-.virkjuriar-
innar hins vegar um orkukaupin
og gildir sá samningur til ársins
1968. Uppsagnarfrestur er 5 ár og
þarf uppsögn að eiga sér stað fyr-
ir 1. september 1963, ef af upp-
sögn á að verða.
Samkvæmt samningi þessum
kaupir Áburðarverksmiðjan svo-
nefnda forgangsorku (3100 kw) á
sama verði og Rafmagnsveitan, þ.
e. 4.25 aura kílówattstund, en af
gangsorku á 2.025 aura sömu ein-
ingu.
Árið 1961 keypti verksmiðjan
141.751 MWh, eða 31.6% af allri
orkusölu Sogsvirkjunarinnar. —
Fyrir þetta greiddi verksmiðjan
ca. 5.5 millj. króna, eða um 3 aura
að meðaltali fyrir kílówattið!
Þetta samsvarar því, að verk-
smiðjan, sem notar 31.6% ork-
unnar, greiði um 10% af tekjum
Sogsvirkjunar í heild.
Reykjavíkurborg (RR) keypti
1961 samtals 157.7 MWh., eða
36,2%, en greiddi fyrir þetta
magn kr. um 35 millj kr., sem
nemur um 70% af öllum tekjum
Sogsvirkjunar af orkusölu!
Með þessari einstæðu orkusölu
eru Reykvíkingar í raun og veru
að greiða niður verð á innlendri
áburðarframleiðslu, ofan á það að
greiða niður verð á innfluttum á-
burði!
Enginn má skilja orð mín svo,
að ég sé andvígur orkusölu til Á-
burðarverksmið j unnar; síður en
svo.
Ég tel ekki óeðlilegt að slíkur
iðnaður njóti nokkurra forrétt-
inda.
En hér er að mínum dómi allt-
of langt gengið. Reykvískir raf-
magnsnotendur hljóta að krefjast
þess að gildandi samningi við Á-
burðarverksmiðjuna verði sagt
upp strax og uppsagnarákvæði
leyfa og verksmiðjan látin greiða
eðlilegt verð, sem vart mætti vera
Iægra en 12—15 aurar pr. kwst.
Myndu þá tekjur Sogsvirkjunar-
innar aukast um 10—17 millj. kr„
og ætti raforkuverð hennar að
lækka að sama skapi. Eðlilegast
væri ennfremur að Rafmagnsveita
Reykjavíkur seldi Áburðarverk-
smiðjunni orkuna, þar sem verk-
smiðjan er á orkuveitusvæði R. R„
en ekki Sogsvirkjunarinnar.
Þau rök eru færð fram fyrir
þessari einkennilegu orkusölu, að
magn það, sem Áburðarverksmiðj-
an kaupir sé að nokkrum hluta af-
gangsorka, sem ekki hafi verið
unnt að selja ella.
Þetta er ekki nema að nokkru
leyti rétt, sem sé það, að hér sé
um afgangsorku að ræða. Hitt, að
ekkl hafi verið unnt að selja þessa
orku með öðrum hætti, er umdeil-
ánlegra.
Öll þau ár, sem Áburðarverk-
smiðjan hefur starfað, hefur Raf-
magnsveita Reykjavikur svo til al-
veg neitað að selja afgangsorku
(nætuirafmagn) til hitunar.
Þessi neitun hefur leitt til þess,
að þær þúsundir Reykvíkinga, sem
ekki hafa átt kost á hitaveitu til
upphitunar húsa sinna, hafa orð-
ið að kynda hús sín með oliu.
Það er því með öllu ósannað
mál, hvort ekki hefði mátt selja
afgangsorkuna a. m. k. að veru-
legu leyti til upphitunar húsa á
því tímabili, sem verksmiðjan
hefur starfað. Ef þetta hefði ver-
ið gert í stað þess að selja orkuna
til Áburðarverksmiðjunnar, hefði
vafalaust fengizt mun hærra verð
fyrir orkuna, öll nýting Rafmagns-
veitunnar orðið hagstæðari og það
sem meira er, orkuverð til al-
mennra notenda hefði vafalítið
getað lækkað.
Nægir í þessu efni að benda á
Rafmagnsveitu Akureyrar, sem
hefur nokkuð mikla sölu á nætur-
rafmagni til hitunar, þar er raf-
magn til heimilisnota lægst á
landi hér.
Ég hef gert rafmagnsverðinu
svo ýtarleg skil, vegna þess hve
viðkvæmur liður það er í afkomu
hverrar fjölskyldu í borginni. Að
lokum endurtek ég það sem raun-
ar er áður sagt: heimilisrafmagn
iff á ekki og xná « kki hækka Þeir
sem nú greiða óeðlilega lágt orku-
verð eiga að bera hækkunina. Að
öðru leyti vísa ég til tillagna
minna í sambandi við þessi mál,
undir meðferð þess í borgarstjórn,
sem birtar hafa verið hér í blað-
inu.
Óskar Hallgrímsson.
Auglýsið í Aiþýðublaðinu
Auglýsingasíminn 14906
Áskriffasíminn er 14901
Kuldaúlpur
Estrella
skyrtur
Herrahanzkar
Náttföt
Nærföt
Sokkar
Frakkar
Blússur
Sloppar
Old Spice
snyrtikassar
Drengjahanzkar
Drengjanáttföt
Drengjasokkar
Drengjaskyrtur
Verðandi
Tryggvagötu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
'fctKJé t U'MjA
20. des. 1962 y
Sóti .rtb ti ;t