Alþýðublaðið - 29.01.1963, Blaðsíða 1
BIDAULT
í LONDON!
Þó að sjálf Rauða akurliljan hefði birzt á myndinni, hefði
það ekki komið mönnum meira á óvart. Maðurinn hér neðra er
semsagt Georges Bidault, foringi frönsku OAS-mannanna, sem
lögregla De Gaulle liefur eltzt við mánuðum saman. Það var
brezkur blaðaljósmyndari sem þóttist þekkja Bidault á götu
í London og „smellti“ á hann. Hvaðan kom hann — og hvert
fór hann? Það veit enginn.
FRAMSÓKN OG ÍHALD
AFTUR f EINA SÆNG
í HAFNARFIRÐI!
Framsóknar- og Sjálfstæðis-
menn í Hafnarfirði hafa nú aft-
ur tekið saman höndum um
stjórn bæjarins til þess að
hindra að efnt verði til auka-
kosninga eins og Alþýðuflokk-
urinn hefur krafizt.
Á framhaldsfundi bæjarráðs
sl. Iaugardag gerðist það, að
fulltrúar Framsóltnar- og Sjálf
stæðisflokksins stóðu saman að
afgreiðslu fjárhagsáætiunar og
einnig gegn tillögu Alþýðu-
flokksins um nýjar kosningar.
Verður því ekki betur séð en
sá meirihluti, sem rofnaði með
sögulegum hætti fyrir tæplega
hálfum mánuði, sé aftur kom-
inn saman.
Á bæjarráðsfundinum Iagði
Kristínn Gunnarsson fulftrúí
Alþýðuflokksins til, að af-
greiðslu fjárhagsáætlunar yrði
enn frestað um sinn vegna ó-
vissu um stjórn bæjarmála.
Þessi tillaga var felld með 2
atkvæðum gegn 1, og greiddu
bæði Framsóknarmaðurinn Jón
Pálmason og íhaldsmaðurinn
Páll Daníelsson atkvæði á móti
Kristni.
Að þcssu loknu var f járhags
áætlun tekin fyrir og afgreidd
með atkvæðum þeirra tvímenn
inga í sátt og samlyndi. Krist-
inn áskildi sér rétt til bæjar-
stjórnarfundar um breytingar
og athugasemdir við áætlunina.
Framh. á 14- siðu
TVÖ hörmuleg umferðarslys
urðu i gærkvöldi á tímabilinu frá
kl. rúmlega sex til hálf sjö. Fyrra
slysið varð á Miklubraut klukkan
fjórar mínútur yfir sex. Þar ók
próflaus, 16 ára gamall piltur á
78 ára gamla konu. Slasaðist hún
mjög mikið, og var vart hugað líf
í gærkvöldi. Lögreglunni var til-
kynnt um hitt slysið klukkan rúm-
lega hálf sjö. Varð það í Svína-
hrauni, rétt fyrir neðan Skíðaskál-
ann. Bíll með 7 menntaskólapilt-
um fór þar út af veginum og valt.
Slösuðust piltarnir allir meira og
minna, en tveir voru fluttir á
Landsspítalann.
Slysið á Miklubrautinni varð
með þeim hætti, að Land-Rover
bifreið var ekið austur úr Mikla-
torgi. Er bifreiðin var að koma
út úr .hringnum, gekk- gamla kon-
an suður yfir götuna. Ökumaður-
inn kvaðst ekki hafa séð hana, fyrr
en hann var rétt kominn að henni.
og engin leiö var að forða slysi.
Framh. á 14. síðu
iöia vill
akkorðið
EKKI hefur enn náðst samkomu
lag milli Iðju, félags verksmiðju--
fólks í Reykjavík, og Félags ísl.
iðnrekenda um kauphækkun verk-
smiö jufólks. Hafa sanmingar
strandað á þeirri kröfu Iðju, að
Framh. á 14. síðu
FYRSTl FRAMBOÐSLISTINN tíl alþingiskosninga, sem væntanlega
fara fram í sumar, hefur nú verið ákveðinn. Er það listi Alþýðuflokksins f
Reykjaneskjördæmi, sem ákveðínn var á fundi kjördæmisráðs síðasfi'iðmn
sunnudag og staðfestur af miðstjóm flokksins í gær. Listann skipa þessir
menn:
1. Emil Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra.
2. Guðmundur f. Guðmundsson, utanrfkisráðherra.
3. Ragnar Guðleifsson, kennari, Keflavík.
4. Stefán Júlíusson, rithöfundur, Hafnarfirði.
5. Ólafur Ólafsson, læknir, Kópavogi.
6. Ólafur Thordarsen, framkvæmdastjóri, Njarðvík.
7. Svavar Árnason, oddviti, Grindavík.
8. Ólafur Vilhjálmsson, fyrrv. oddviti, Sandgerði.
9. Ólafur Gunnlaugsson, bóndi, Mosfellssveit.
10. Guðmundur Gíslason Hagalín, rithöfundur Seltjarnarnesi.
FYRSTI FRAM
BOÐSLISTINN
Emil Jónsson
Gúðmundur I. Guðmundsson